Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.10.2016, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.10.2016, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.10. 2016 Kim Kardashian West varð næsta fórnarlamb Sediuk á eftir Gigi Hadid. Sediuk kast- aði sér að henni þar sem hún var stödd á tískuviku í París. Hann virtist miða á rass stjörnunnar en öryggis- verðir voru snöggir í snún- ingum og stöðvuðu mann- inn. Þetta er í annað sinn sem hann ræðst að raun- veruleikastjörnunni en þá féll hún næstum til jarðar. Atvikið var tilkynnt til lögreglu í Frakklandi. Sediuk áreitir ekki ein- ungis konur því áður hafa Leonardo DiCap- rio, Will Smith og Brad Pitt orðið fyrir barðinu á honum. Fyrir skemmstu gekk um netiðmyndband af fyrirsætunniGigi Hadid þar sem hún sést berja af sér mann. Hadid var stödd á tískuviku í Mílanó og er mynd- bandið af henni á leið út í bíl þegar maður ræðst aftan að henni, grípur utan um hana og lyftir henni. Henni tekst að rífa sig lausa og slær af krafti til mannsins, sem hleypur á brott á meðan hún öskrar gífuryrði á eftir honum. Það er eitthvað óhugnanlegt við þetta myndband, fyrirsætunni og fylgdarliði er skilj- anlega brugðið og þau keyra á brott. Maður hefði haldið að málinu lyki þar með og gagnrýnin myndi að minnsta kosti beinast að manninum sem réðst á hana en svo var ekki. Hadid sætti gagnrýni fyrir að hafa brugðist við, fyrir að hafa varið sig. Fyrsta fréttin um atvikið birtist með eftirfarandi fyrirsögn sem er orðaleikur á ensku: „Not model be- haviour“, sem birtist í The Sun, sem útleggst, „Ekki fyrirmyndarhegðun fyrirsætu“. Þar er því lýst hvernig Hadid hafi rekið olnbogann í andlit aðdáanda. Daily Mail skrifaði að of- urfyrirsætan hefði verið brjáluð og ráðist á mann, sem ýmist er kall- aður aðdáandi eða hrekkjalómur. Síðastnefndi titillinn virðist loða við manninn sem um ræðir en þessi 27 ára gamli úkraínski sjónvarps- maður að nafni Vitalii Sediuk er víð- ast hvar kallaður hrekkjalómur. Þessi titill gerir lítið úr atburðinum því hrekkur hlýtur helst að eiga að vera saklaus og enda með því að all- ir hlæja. Bresku slúðurblöðin skrifa það sem þau halda að seljist en skila- boðin sem þau senda með þessu, að það sé ekki í lagi að verja sjálfan sig gegn árásarmanni, eru fráleit. Hadid greip til þess ráðs í vikunni að verja sig með pistli á lenny- letter.com í fréttabréfi og vefsíðu Lenu Dunham og Jenni Konner, sem vinna saman í hinum vinsælu þáttum Girls. „Hreinskilnislega sagt, mér fannst ég vera í hættu og ég hafði fullan rétt til að bregðast við eins og ég gerði. Ég vil að stelpur horfi á myndbandið og viti að þær mega svara fyrir sig ef þær lenda í sam- bærilegum aðstæðum. Það er mik- ilvægt að æfa sjálfsvörn því ef eitt- hvað gerist þá grípur vöðvaminnið inn í og hindrar að þú frjósir,“ skrif- ar Hadid, sem lýsir því að hún sé þakklát fyrir það að æfa box og vöðvaminnið hafi því tekið við. Í inngangi að viðtalinu bendir Dunham á bókina The Gift of Fear eftir Gavin de Becker. Bókin er vel þekkt metsölubók, sem er auglýst sem „bókin sem getur bjargað lífi þínu“. Hún byggist að einhverju leyti á þeirri kenningu að fólk, sér- staklega konur, hafi misst tengslin við innsæið. Nánar tiltekið hlusti þær ekki á viðvörunarbjöllur hvað varðar ókunnugt fólk af ótta við að virðast kaldar, stjórnlausar eða brjálaðar. Þetta var Hadid ásökuð um í blöð- unum þó það hafi ekki staðist nánari skoðun. Götuáreitni alvarlegt vandamál Á vefsíðunni stop- streetharass- ment.org kemur fram að götu- áreitni sé ekki eins rannsakað málefni og það ætti að vera þó það sé að breytast. Þar kemur enn- fremur fram að götuáreitni sé alvar- legt vandamál sem ekkert lát sé á. Þar er líka bent á að kannanir Gall- up frá 143 löndum um öryggis- tilfinningu fólks leiði í ljós að tölu- vert fleiri karlar en konur upplifi sig örugga séu þeir einir á ferð um kvöld í hverfinu sínu. Á þessari vefsíðu stendur líka að það sé engin ein „rétt“ leið til að takast á við áreitni. „Aðstæður og manneskjur eru ólíkar og stundum er aðeins ein eða tvær sekúndur til að meta stöðuna og eigið öryggi og ákveða hvað skuli gera,“ segir þar og er alveg í takt við lýsingu Hadid. Hadid skrifaði að lokum í pistl- inum: „Ég veit að fólk lendir í miklu verri aðstæðum á hverjum degi og er ekki með myndavélar í kringum sig og í kjölfarið stuðning á sam- félagsmiðlum. Mig langaði bara að nota það sem kom fyrir mig til að láta í ljós að allir hafa rétt á, og það getur verið valdeflandi, að verja sig.“ Hvorki aðdáandi né hrekkjalómur Ofurfyrirsætan Gigi Hadid þurfti ekki aðeins að verjast árás ókunnugs manns heldur þurfti hún að verja sjálfa sig í fjölmiðlum fyrir að hafa varist. Kim Kardashian West Næsta fórnarlamb AFP Gigi Hadid er vön því að allra augu og linsur ljósmyndaranna beinist að henni. Hér er hún á tískusýningu Tommy Hilfiger. ’ Þeir sem eru illa innrættir öfunda og hata, það er þeirra aðferð við að sýna aðdáun. Victor Hugo ERLENT INGA RÚN SIGURÐARDÓTTIR ingarun@mbl.is Japanskir og vikunni að þeir hefðu fundið eitt stærsta risaeðlufótspor sem nokkurn tímann hefur fundist í heiminum. Fótsporið er rúmlega risaeðlur gengu. ÍTALÍA NAPÓLÍ Ítalska lögreglan hefur endurheimt tvö málverk eftirVan Gogh sem stolið var í BANDARÍKIN WASHINGTON, D.C. Tímaritið Newsweek greinir frá því að Donald Trump hafi brotið lög þegar fyrirtæki í hans eigu hafi átt í leynilegum Fyrirtækið braut viðskiptabann við landið og eyddi að minnsta kosti um átta milljónum króna í landinu árið 1998.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.