Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.10.2016, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.10.2016, Blaðsíða 42
ÍHestvík, væntanlegri skáldsögueftir Gerði Kristnýju, er lýst ferðfráskilinnar konu með tólf ára syni sínum í sumarbústað við Þing- vallavatn, Draumahöllina, sem hún hefur ekki heimsótt árum saman. Fljótlega kemur í ljós að sú mynd af sumarbústaðnum sem söguhetjan Elín er með í huganum er ekki endi- lega sönn. Gerður segir að sig hafi lengi lang- að að skrifa sögu sem gerðist í Grafn- ingnum. „Þar hafa foreldrar mínir átt sumarbústað frá árinu 1972. Hann ber svip af þeim tíma og er ekkert í líkingu við glæsihýsin sem þar hafa sprottið upp undanfarin ár. Mig lang- aði að láta þessar andstæður mætast í sögu. Hestvík gerist í ágúst árið 2009 rétt eftir hrun og í henni mætast tveir heimar. Mig langaði líka til að fjalla um einelti og afleiðingar þess, hvern- ig stéttaskiptingin hefst strax í barnaskóla og eltir fólk fram á fullorðinsár, hírarkíið sem myndast stundum í barnahópum en líka í hóp- um fullorðinna.“ - Eins og segir í upphafi bókar- innar hefur Elín ekki farið í sumar- bústað fjölskyldunnar í mörg ár. Hún hefur afsakanir á hraðbergi en mín tilfinning er sú að það sé fyrst og fremst vegna þess að hún vilji ekki horfast í augu við fortíðina. „Nei, nei, það getur verið óþægi- legt. Þá veit enginn hvaða tilfinningar geta tekið að vella upp innra með manni. Það þyrmir aðeins yfir Elínu þegar hún áttar sig á stöðu sinni og einmanaleika í kjarrinu miðju og svo er þetta spurning um hversu vel hún þekkti í raun foreldra sína. Var þessi yndislega stemmning sem hún man eftir úr æsku raunveruleg og þekkti hún foreldra sína í raun og veru? Dagbækur móður hennar koma við sögu og innihaldið kemur Elínu eilítið á óvart.“ Bústaðurinn í Grafningnum þar sem Gerður dvaldi í æsku er áþekkur þeim sem lýst er í bókinni, einfaldur og fábrotinn. „Um tíma var notast við kamar úti á bletti. Farið var um hverja helgi á sumrin því þeir sem eiga bústað verða jú að sinna honum,“ segir hún og hlær við. - Að fara út úr borginni og upp í Grafning hefur verið eins og að fara inn í annan heim. „Já, í allt annan heim, en samt sem áður voru verkfræðingar, tannlæknar og prestar úr Bústaðahverfinu, Hlíð- unum og Hvassaleitinu í næstu bú- stöðum. Þarna var því svipað fólk og maður umgekkst í hverfinu heima.“ - Annar heimur, já, en bókin gerist 2009, eins og þú nefnir, og greinilegt að heimur borgarinnar er farinn að þrengja að heimi Grafningsins. „Þetta er öðruvísi tími. Nú eru þarna ekki byggð nein kot, heldur heilsárshús þar sem fólk vill búa að sömu þægindunum og heima við og þá þarf fólk spanhellur og flatskjá. Það er ekki verið að sækja í hefð- bundið sveitalíf með veiðiferðum, ber- jatínslu eða samskiptum við bóndann á næsta bæ. Þegar ég var krakki var ég ekki ginkeypt fyrir sumar- bústaðaferðunum því mér fannst ég alveg geta lesið Enid Blyton og spilað lúdó heima hjá mér í Safamýrinni. Ég sá því þennan stað ekki í sama ljóm- anum og Elín aðalpersónan í Hestvík. Ég þurfti virkilega að setja undir mig hausinn og gerast skáld þegar ég ætl- aði að lýsa nostalgíunni í henni,“ segir Gerður og kímir. Hestvík er þriðja skáldsaga Gerð- ar, að frátöldum þeim skáldsögum sem hún hefur skrifað fyrir börn og unglinga; áður eru komnar Regnbogi í póstinum, sem kom út 1996, og Bát- ur með segli og allt, sem kom út 2004. Það var einmitt síðarnefnda bókin sem varð eins konar kveikja að Hest- vík: „Mér bárust njósnir af því að ágætis forlag þýskt hefði samið um að fá að gefa út Bátur með segli og allt. Mér fannst það svo gaman að það vaknaði aftur hjá mér löngun til að skrifa skáldsögu fyrir fullorðna. Ég hafði þá þegar fengið hugmyndina að sögu úr sumarbústaðahverfi við Þing- vallavatn þar sem hauströkkrið er tekið að skríða yfir kjarrið sem sífellt þrengir að borgarbúum. Þetta átti að vera dularfull saga en þó raunsæ.“ Gerður segir það liggja ágætlega fyrir sér að skrifa skáldsögur. „Þegar mig rekur í vörðurnar læt ég það eftir mér að yrkja ljóð og þegar mig rekur í vörðurnar þar tek ég aftur til við skáldsöguna. Þannig verður til bók.“ Andstæður mætast í Grafningnum Í skáldsögunni Hestvík segir Gerður Kristný frá afdrifaríkri sumarbústaðaferð í Grafninginn þar sem hauströkkrið er tekið að skríða yfir kjarrið sem sífellt þrengir að borgarbúum. Árni Matthíasson arnim@mbl.is 42 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.10. 2016 LESBÓK Íslandsbók barnanna heitir ný alfræðibók um Ísland fyrir börn sem þær Margrét Tryggva- dóttir og Linda Ólafsdóttur sendu frá sér. Mar- grét er höfundur texta, en Linda teiknar mynd- ir. Í bókinni er fjallað í máli og myndum um fjörur og fjallstinda, fiska og fugla, pöddur og blóm, sumarsól og vetrarmyrkur, þjóðgarða og borgarlíf, sjávarþorp og sveitir, þjóð og tungu, hraun og skóga, jökla og eyjar, vötn og sanda, ár og fossa og margt fleira. Iðunn gefur út. Í Búðarferðinni eftir Bergrúnu Írisi Sævars- dóttur og Ósk Ólafsdóttur fara þau Blær og Busla út í búð að kaupa mjólk í afmæliskaffið. Þetta verður þó engin venjuleg búðarferð því á vegi þeirra verða snarbrött fjöll og flókið völundarhús, frumskógardýr, bergrisar og aðrar furðuverur. Aðalpersónan heitir Blær og er algjörlega kynfrjáls. Það er því lesand- ans að ákveða hvort Blær er strákur, stelpa eða eitthvað annað. Töfraland gefur út. Óvenjuleg búðarferð Í bókinni Sigurfljóð hjálpar öllum! eftir Sigrúnu Eldjárn segir frá því er Sigurfljóð stendur við baðvaskinn nývöknuð og burstar í sér tenn- urnar, finnur hún á sér að þetta verður óvenju- legur dagur og þá ekki bara fyrir það að hún hefur misst tönn um nóttina. Hún er nefnilega farin að heyra svo vel að hún heyrir blómstilk brotna úti í garði og sjá svo vel að hún sér í gegnum húsveggi – hún er komin með ofur- kraft. Mál og menning gefur út. Ofurhetjan Sigurfljóð Amma óþekka og huldufólkið í hamrinum heitir ný bók eftir J.K. Kolsöe sem segir frá ævintýr- um Fanneyjar Þóru og Fanneyjar Fjólu ömmu hennar í heimsókn til Hveragerðis. Á Jóns- messunótt finnur Fanney Þóra töfrastein sem flytur hana í álfheima. Þar er allt í uppnámi því Blæheiði álfadrottningu hefur verið rænt af svartálfi, en amma óþekka og Fanney Þóra grípa til sinna ráða. Bergrún Íris Sævarsdóttir myndskreytti bókina, Bókabeitan gefur út. Ævintýri Fanneyja Goldsmith-verðlaunin bresku eru séstaklega ætluð óvenjulegum bók- um, ef svo má segja, bókum sem skera sig úr hvað varðar stíl og frumleika. Tilnefningar til verð- launanna voru kynntar í vikunni, en verðlaunin verða afhent eftir rúm- an mánuð. Eftirfarandi skáldsögur eru tilnefndar til verðlaunana, en aðeins koma til greina bækur eftir rithöfunda frá Írlandi eða Stóra- Bretlandi. The Lesser Bohemians eftir Eimear McBride, en fyrsta skáld- saga hennar, A Girl Is a Half- Formed Thing, fékk einmitt verð- launin 2013 og fleiri verðlaun, þar á meðal Baileys- verðlaunin. Transit eftir Rachel Cusk, en hún komst einnig á stuttlistann 2014 fyrir skáldsöguna Outline. Hot Milk eftir Deborah Levy, en sú bók er einnig tilfnefnd til Book- er-verðlaunanna. Solar Bones eftir Mike McCormack, sem er eini karl- maðurinn á listan- um að þessu sinni. Like a Mule Bringing Ice Cream eftir ensk- nígerísku skáld- konuna Sarah La- dipo Manyika. Martin John eftir írsk-kanadíska rithöfundinn Anakana Scho- field. Óvenjulegar bækur GOLDSMITH-VERÐLAUNIN Alfræðibók um Ísland þegar þú vilt kvarts stein á borðið Blettaábyrgð Viðhaldsfrítt yfirborð Slitsterkt Bakteríuvörn Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | www.rein.is By Cosentino

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.