Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.10.2016, Qupperneq 48

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.10.2016, Qupperneq 48
SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 2016 Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is FLOWER Hönnun: CHRISTINE SCHWARZER FAT FAT Hönnun: PATRICIA URQUIOLA Sófaborð STROWBERRY DESIGN: NISSEN & GEHL Nýstárleg stuttmynd um íslenskan útrásarvíking sem fer í bakstursævintýri til London er sýnd á RIFF en framleiðandi myndarinnar og aðalleikari, Smári Gunn- arsson, fór á sérstakt námskeið til að læra að baka það sem myndin snýst um; makkarónur. Myndinni, Makkarónumaðurinn (The Macaron Man), er leikstýrt af Ben Garfield og meðframleiðandi Smára er Helen Gladders. Kokkurinn sem Smári leikur vill gera stuttmynd til að kynna makkarónugerðarfyrirtækið sitt og er mynd- in því í svokölluðum „mockumentary“ stíl eða háðheim- ildamynd, þar sem myndin er látin líta út fyrir að vera heimildarmynd þrátt fyrir að vera skálduð. Makkarón- umaðurinn tekur á hugmyndinni um útrásardrauma en Smári og leikstjóri myndarinnar völdu viðfangsefnið jafnframt með það til hliðsjónar hvað gæti verið undarlegasta fyrirtæki sem íslenskur útrásarvíkingur í London gæti stofnað. Myndin þykir ekki síst grát- brosleg í ljósi þess að karakterinn er með bráðaof- næmi fyrir einu aðalhráefninu í bakstrinum; möndlum. Fylgst er með útrásarvíkingnum Jóni klúðra sínum málum á makka- rónumarkaðnum í Bretlandi. Með makkarónur í útrás Íslenskur útrásarvíkingur sem ætlar að sigra heiminn með bakstri en er með bráðaofnæmi fyrir hráefninu er efni nýrrar íslenskrar stuttmyndar á RIFF. Hundruðum hótelgesta sem áttu bókað á Hótel Sögu dagana 11. og 12. október árið 1986 var vísað frá. Ástæðan var leiðtoga- fundur Reagans og Gorbatsjev sem var óvænt settur á dagskrá í Reykjavík með örstuttum fyrir- vara eða 30. september. Í viðtali við Morgunblaðið 3. október sagði Karen Þorsteins- dóttir, vaktstjóri í gestamóttöku Hótel Sögu, að daginn áður hefðu starfsmenn frétt af nýjum lögum ríkisstjórnarinnar um svokallað leigunám hótelsins og fleiri hótela og því þurfti að rýma herbergi til að gera pláss fyrir erlenda gesti í tengslum við leiðtogafundinn. „Við höfum verið á kafi í dag að hringja og senda telex út um allan heim til að bjóða fólki, sem átti bókað hjá okkur þessa daga, að koma síðar,“ sagði Karen og bætti við að sumir gestirnir hefðu verið sendir á Hótel Esju yfir nóttina og sumir fengið inni í heima- húsum. Flestir gesta sýndu þessu skilning og höfðu þó margir hverjir bókað með löngum fyrirvara og til lengri tíma. GAMLA FRÉTTIN Hundruð- um vísað frá Hótel Saga var eitt þeirra hótela sem tekið var leigunámi í tengslum við leiðtogafund stórveldanna í Höfða í október 1986. ÞRÍFARAR VIKUNNAR Inga Lind Karlsdóttir fjölmiðlakona. Helga Snjólfsdóttir yogakennari. Helga Lind Björgvinsdóttir líkamsræktarkennari.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.