Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.10.2016, Page 35
leg nýuppgerð hús innan um bygg-
ingar sem virðast vera að grotna nið-
ur en gömul fegurð þeirra og reisn
skín þó í gegn.
Sú tilfinning vaknar að þegar kalda
stríðinu lauk fyrir aldarfjórðungi hafi
borgin öll verið í niðurníðslu en nú sé
hún að ganga í gegnum hamskipti og
eftir nokkur ár verði öll ummerki
vanrækslu kalda stríðsins horfin.
Rúmenía liggur á flekamótum
menningarheima og hefur saga þessa
svæðis verið allt annað en friðsamleg.
Þarna hafa tekist á stórveldi og Rúm-
enar líta gjarnan svo á að þeir hafi
verið brjóstvörn vesturs gegn Rúss-
um og Tyrkjaveldi og þá um leið ísl-
am. Heitið Rúmenía er sagt dregið af
orðinu romanus úr latínu og merkir
„borgari Rómar“. Til að leggja
áherslu á þetta fóru stjórnvöld í her-
ferð fyrir um 40 árum til að breyta
stafsetningu nafnsins þannig að o
kæmi í stað u eða ou. Á íslensku ætti
því að skrifa Rómanía, en þessi her-
ferð náði greinilega ekki til Íslands.
Í Oradea sjást þessi áhrif að ein-
hverju leyti en í byggingarstíl er þó art
nouveau, barokk og nýklassík mest
áberandi í miðbænum. Þegar utar
dregur stingur ljótleiki kaldastríðs-
arkitektúrs hins vegar í augu. Oradea
hefur verið kölluð hliðið að Mið- og
Vestur-Evrópu. Lífskjör í Rúmeníu
eru augljóslega önnur en vestar í álf-
unni og verðlagið ber því vitni. Jafnvel
alþjóðlegar merkjavörur virðast ódýr-
ari þarna en gengur og gerist, og er til
marks um það að oft miðast verðlagn-
ing við kaupmátt en ekki fram-
leiðslukostnað. Í nágrenni Oradea eru
heitar uppsprettulindir. Svæðið er
þekkt fyrir böð sín og dregur því að
ferðamenn. Þeir eru flestir heimamenn
og erlendir ferðalangar sjaldséðari.
Sennilega helgast verðlagið af því.
Matur og drykkur er ódýr og
sömuleiðis gisting. Án þess að stuðst
sé við vísindalegar úttektir má skjóta
á að helmingi ódýrara sé að jafnaði
fyrir ferðalang að framfleyta sér á
þessum slóðum en í Vestur-Evrópu.
Yfirleitt var maturinn góður og
sömuleiðis reyndist lítil áhætta fylgja
því að panta rúmenskt vín.
Í skemmtilega skrifaðri bók og
gagnlegri fyrir ferðamenn um Rúm-
eníu skrifar Debbie Stowe að Rúmen-
ar séu opnir og hjálpsamir gagnvart
útlendingum en oft lokaðir gagnvart
samlöndum sínum þegar komið er út
fyrir nánasta hóp vina og ættingja.
Segir hún að tortryggni þessa megi
rekja til tíma Ceausescus þegar ör-
yggislögreglan Securitate lagði hroll-
kaldan hramm sinn á landið og var
með uppljóstrara um allt samfélagið
þannig að engum mátti treysta.
Spilling er einnig sögð gegnsýra
samfélagið og er hún arfleifð þessara
mannskemmandi tíma. Þótt lesa
megi um neikvæðar hliðar rúmensks
samfélags blasti allt annað við þess-
um ferðalangi og varð hann þess aldr-
ei var að reynt væri að nýta hrekk-
leysi hans. Þvert á móti stóð allt eins
og stafur á bók og eftir standa góðar
minningar um land og þjóð.
Rakarinn á horninu hafði opið til tíu á kvöldin. Húsið er
niðurnítt en nýuppgert húsið við hliðina sýnir hvað býr undir.
Veiðimaður situr undir sólhlíf á bakka árinnar Crisul
Repede, sem rennur í gegnum Oradea miðja.
Um þrjú hundruð þúsund manns búa í borginni Oradea
og getur mannlífið á götunum verið líflegt.
2.10. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
Ferðalangi í Rúmeníu getur liðið
eins og tímaflakkara. Í miðbæ
Oradea sitja ungmenni á kaffihúsi
á göngugötunni niðursokkin í
snjallsíma af nýjustu gerð. Eftir
kortérs akstur út fyrir borgina
verður á vegi hans jafnaldri þeirra
með heysátu á hestvagni og virð-
ist kominn aftur úr öldum.
Oradea er í Bihor-héraði í
norðvesturhluta landsins.
Skammt fyrir utan borgina er
Baile Felix, þar sem fjölsóttar
heilsulindir er að finna.
Lengra frá eru Apuseni-fjöll,
þar sem er þjóðgarður og fal-
legar gönguleiðir. Eigi að aka um
þjóðgarðinn borgar sig hins veg-
ar að vera á vel búnum bíl því að
inn í hann liggur stórgrýttur
malarvegur. Skrifari lagði í hann
í stuttermabol á fólksbíl í blíð-
viðri á jafnsléttu, en uppi í fjöll-
unum var orðið hrollkalt og hon-
um leið eins og hann hefði
breyst í frummynd Íslendinga af
erlenda ferðamanninum sem
allt er að vanbúnaði.
Hestvagnar eru ekki óalgeng sjón þegar ekið er um sveitavegi Rúmeníu.
Morgunblaðið/Stefanía Þorgeirsdóttir
FALLEGAR SVEITIR OG TIGNARLEG FJÖLL
Eins og tímaflakk
Útsölustaðir:Apótek,Heilsuhúsið,Krónan,
Hagkaup,Nettó,Fjarðark,Grænheilsa.
Duft í kalt vatn eða boost
Styður:
Efnaskipti og öflugri brennslu
Minni sykurlöngun
Slökun og svefn
Vöðva og taugastarfsemi
Gott á morgnana og kvöldin
1/3 tsk = 350mg - ekkert bragð
Mikil virkni
Náttúrulegt
Þörungamagnesíum
ENGIN
MAGAÓNOT
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
og á leiðinni
Sími 4 80 80 80
2016 Ford F-150 Platinum
3.5L Ecoboost Bensín.
VERÐ
11.990.000.-
2016 GMC Denali 3500
6.6L Diesel.
VERÐ
11.690.000.-
2016 Dodge Ram 1500
Laramie 3L EcoDiesel,
8 gíra skifting.
VERÐ
11.900.000.-
2016 Ford F-350 Lariat
Ultimate 6.7L Diesel.
VERÐ
10.390.000.-
2016 Chevrolet Silverado
3500 High Country 6.6L
Diesel.
VERÐ
11.390.000.-