Fréttablaðið - 15.09.2016, Side 21
Sovétríkin sálugu voru fimmtán talsins, þar af átta suðurríki. Hin sjö mátti kalla norðurríki svo notað sé bandarískt tungutak: Rúss-land, Hvíta-Rússland, Moldavía og
Úkraína og Eystrasaltslöndin þrjú, Eist-
land, Lettland og Litháen. Hér segir fyrst
frá norðurríkjunum og síðan frá suður-
ríkjunum. Dragðu nú andann djúpt því nú
kemur talnahríð.
Norðurríkin
Þegar Sovétríkin hrundu 1991 þótti
mörgum sá atburður marka mikilvægustu
tímamót evrópskrar sögu frá lokum síðari
heimsstyrjaldarinnar 1945. Menn fylltust
bjartsýni. Um 290 milljónir manna höfðu
losnað undan oki kommúnismans eins og
hendi væri veifað og gátu nú horft björtum
augum fram á veginn.
Norðurríkjunum hefur mörgum vegnað
vel. Eystrasaltsríkin þrjú gengu inn í ESB
um leið og færi gafst og m.a.s. inn í Nató
og hrærast nú í meginstraumi evrópskrar
menningar og stjórnmála eins og þau
gerðu árin milli stríða. Þarna við austan-
vert Eystrasalt hafa orðið miklar framfarir
undangenginn aldarfjórðung. Til dæmis
hafa þjóðartekjur á mann í Eistlandi vaxið
úr því að vera röskur þriðjungur af tekjum
á mann í Finnlandi 1990 upp í tvo þriðju
hluta 2015 skv. gögnum Alþjóðabankans.
Eistum hefur því tekizt að brúa nálega
helminginn af tekjubilinu sem skildi þá frá
Finnum þegar Eistar endurheimtu frelsi
sitt og sjálfstæði 1991. Moldavía, klemmd
milli Rúmeníu og Úkraínu, er fátækasta
land álfunnar. Tekjur á mann í Mold avíu
voru fjórði partur af tekjum á mann í
Finnlandi 1990 og eru nú komnar niður í
áttunda part eins og í Pakistan. Samt má
Moldavía nú heita óskorað lýðræðisríki
ólíkt Rússlandi og Úkraínu þar sem sigið
hefur á ógæfuhliðina í báðum löndum.
Hvíta-Rússland er ennþá harðsvírað
einræðisríki eins og það var sem hluti
Sovétríkjanna fyrir 1991.
Rússum hefur einnig vegnað vel að ýmsu
leyti. Sé miðað við kaupmátt þjóðartekna
á mann voru Rússar ekki hálfdrættingar
á við Finna þegar Sovétríkin liðu undir
lok. Áratug síðar, um aldamótin 2000,
eftir erfið umskipti sem enn sér ekki fyrir
endann á, var kaupmáttur þjóðartekna á
mann í Rússlandi kominn niður í fjórðung
af kaupmætti þjóðartekna á mann í Finn-
landi. Eftir það tók Rússland kipp svo nú
er munurinn á Rússum og Finnum ekki
nema 40% Finnum í vil. Rússar standa
Eystrasaltsþjóðunum þrem ekki langt
að baki í efnahagslegu tilliti. Úkraína
stendur á hinn bóginn langt að baki Rúss-
landi. Kaupmáttur þjóðartekna á mann í
Úkraínu var aðeins litlu minni en í Rúss-
landi 1990 en nemur nú aðeins þriðjungi
– og fimmtungi af kaupmætti þjóðar tekna
á mann í Finnlandi. Engan þarf því að
undra ófriðinn þar. Við þá Úkraínumenn
sem vilja fylgja Eystrasaltsþjóðunum inn
í ESB segja Rússar: Gangið heldur til liðs
við okkur, við erum miklu ríkari en þið.
Rússum fækkaði úr 148 milljónum 1990 í
144 milljónir 2015 á meðan Bandaríkja-
mönnum fjölgaði úr 249 milljónum í 321.
Rússar hafa vanrækt að renna fjölbreyttum
stoðum undir útflutning og eiga því mikið
undir olíuverði á heimsmarkaði.
Suðurríkin
Víkur þá sögunni suður á bóginn.
Suðurríkin átta voru Georgía, Armenía
og Aserbaídsjan, lítil lönd sem liggja milli
Svartahafs í vestri og Kaspíahafs í austri
og önnur fimm sem bera heiti sem enda
á stan eins og Pakistan og Gamla stan í
Stokkhólmi. Stan þýðir stöð og þá kannski
líka borg eða kastali. Suðurríkin fimm eru
Kasakstan, Kirgisistan, Tadsjikistan, Túrk-
menistan og Úsbekistan.
Ætla hefði mátt við fall Sovétríkjanna að
fólkið í þessum löndum fengi nú að feta sig
áfram veginn að auknu lýðræði, en svo fór
yfirleitt ekki. Einræðisherrann í Úsbekist-
an, Isam Karimov, féll frá um daginn eftir
að hafa stjórnað landinu með harðri hendi
frá 1990 og þar áður verið hæstráðandi í
úsbeska kommúnistaflokknum um hríð
fyrir fall Sovétríkjanna. Nú stendur til að
dubba dóttur hans upp sem nýjan forseta.
Úsbekistan hefur frá 1990 verið eitt harð-
svíraðasta einræðisríki heimsins líkt og
Túrkmenistan. Kasakstan fór ekki eins illa
af stað en landið hefur færzt frá lýðræði
meðan Tadsjikistan hefur staðið í stað
og Kirgisistan hefur þróazt í lýðræðisátt.
Efnahagur suðurríkjanna er bágborinn
ef olíulöndin í hópnum (Aserbaídsjan,
Kasakstan og Túrkmenistan) eru undan
skilin. Tekjur á mann í Kirgisistan og
Tadsj ikistan eru lægri en í Bangladess.
Tekjur á mann í Úsbekistan eru lægri en í
Kongó. Hvítvoðungur í norðurríkjunum
getur nú vænzt þess að ná 74 ára aldri á
móti 71 ári í suðurríkjunum. Í Finnlandi
geta nýfædd börn vænzt þess að ná 81 árs
aldri og íslenzk börn 82ja.
Önnur saga
Bandaríkjunum tókst að varðveita sam-
einingu norðurríkja og suðurríkja undir
lýðræðisstjórn. Til þess þurfti blóðugt
borgarastríð 1861-1865 sem kostaði 600
þúsund mannslíf. Bandaríkin eru ein sterk
heild og bjóða almenningi svipuð lífskjör
í norðri og suðri. Margt ber að vísu enn á
milli í stjórnmálum milli norðurríkjanna
og suðurríkjanna þótt upphaflega ágrein-
ingsefnið, þrælahald, sé löngu liðin tíð.
Sovétríkin eru önnur saga. Fimm af
átta suðurríkjum Sovétríkjanna sálugu
komast ekki með tærnar þar sem Rússar
hafa hælana í efnahagslegu tilliti. Rússum
tókst ekki að lyfta þeim upp. Auk þess á
Rússland nú í langdregnum ófriði bæði
í Georgíu og Aserbaídsjan auk Úkraínu.
Aðeins Eystrasaltslöndin þrjú tóku upp
lýðræði eftir 1991 og náið samstarf við
önnur Evrópulönd, m.a. innan ESB.
Suðurríkjasögur
Efnahagur
suður
ríkjanna er
bágborinn ef
olíulöndin í
hópnum
(Aserbaíd
sjan, Kas
akstan og
Túrkmen
istan) eru
undan skilin.
Tekjur á
mann í
Kirgisistan og
Tadsj ikistan
eru lægri en í
Bangladess.
Tekjur á
mann í
Úsbekistan
eru lægri en í
Kongó.
Þorvaldur
Gylfason
prófessor
Í dag
Opið alla daga kl. 10–19
á Fiskislóð 39
opn m í g!
Fjöldi titla sem
fást eingöngu á
bókamarkaðnum
w w w.forlagid. i s | Bókabúð Forlags in s | F i sk i s lóð 39
s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 21F i M M T u d a g u R 1 5 . s e p T e M B e R 2 0 1 6
1
5
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:3
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
9
3
-9
5
F
0
1
A
9
3
-9
4
B
4
1
A
9
3
-9
3
7
8
1
A
9
3
-9
2
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
6
4
s
_
1
4
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K