Fréttablaðið - 15.09.2016, Blaðsíða 2
Veður
Austan- og suðaustanátt í dag og
nokkuð vindasamt, einkum við suður-
ströndina en fer að lægja seinni partinn.
Víða rigning, en þurrt fram eftir degi
norðaustan til á landinu. Hiti 7 til 14
stig. sjá síðu 36
Miðjuakreinin malbikuð
Miðjuakrein Reykjanesbrautar til suðurs, frá Bústaðavegi að Breiðholtsbraut, var fræst og malbikuð í gær. Talsverðar tafir urðu á umferð vegna
framkvæmdanna. Í dag verður Fjarðarhraun malbikað til suðurs en áætlað er að framkvæmdir standi yfir frá kl. 9.00 til 15.00. Gatan verður lokuð
frá Hjallahrauni að Flatahrauni. Vegagerðin biðlar til vegfarenda að virða lokanir og hraðatakmarkanir við vinnusvæðin. Fréttablaðið/GVa
30. OKTÓBER
Í HÖRPU
MIÐASALA FER FRAM Á HARPA.IS OG Í SÍMA 528-5050.
ALLAR UPPLÝSINGAR Á WWW.SENA.IS/JOSS
MIÐASALA
HAFIN!
íþróttir Krikketfélag Kópavogs
hafnaði í fimmta sæti á sínu fyrsta
alþjóðlega móti, en því lauk á
þriðjudag. Keppt var í Prag, höfuð-
borg Tékklands, og kallast mótið
Pepsi Cup. „Þetta er í fjórða skipti
sem þetta er haldið. Mótið er opið
fyrir klúbbum sem koma alls staðar
að og hafa áhuga á að keppa og
kynnast öðrum liðum,“ segir Jakob
Wayne Víkingur Robertson, fyrir-
liði liðsins.
Eftir að hafa tapað fyrstu fjórum
leikjunum sneri Krikketfélag Kópa-
vogs genginu við og vann síðustu
tvo leikina og hafnaði þar með í
fimmta sætinu. „Við vorum svo-
lítið lengi að venjast hitanum sem
var yfir þrjátíu gráður og vorum að
læra að spila saman sem lið. En við
urðum betri og betri eftir því sem
leið á mótið og hlutverk leikmanna
komu betur í ljós,“ segir Jakob.
Ellefu leikmenn þarf til að
manna lið en Jakob segir að félag-
ið hafi bara náð að senda níu til
Tékklands og hafi því þurft að fá
leikmenn að láni. „Vonandi getum
við aflað styrkja fyrir næsta ár svo
við getum farið með fullt lið frá
Íslandi,“ segir Jakob.
Félagið hefur verið starfrækt í um
tvö ár og eru virkir meðlimir um
þrjátíu. Undanfarin ár hefur félag-
ið tekið á móti liðum frá Banda-
ríkjunum, Ástralíu, Bretlandi og
Skotlandi. Þetta mót segir Jakob
að hafi þó verið í fyrsta skipti sem
íslenskt krikketlið keppir erlendis
við sterk lið.
„Krikketfélag Kópavogs er stans-
laust að vaxa. Miklu hraðar en ég
bjóst nokkurn tímann við. Við
erum nógu margir til að halda inn-
anlandsmót og höfum verið að gera
Spiluðu krikket fyrir
Íslands hönd í Prag
Níu meðlimir Krikketfélags Kópavogs tóku þátt í alþjóðlegu móti sem fram fór í
Prag á dögunum. Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskt lið keppir í krikket á alþjóða-
vísu. Lánsmenn þurfti til að fullmanna liðið því það vantaði tvo leikmenn.
að sjálfsögðu var víkingaklappið tekið í leikslok. Mynd/KriKKetFélaG KópaVoGs
það með góðum árangri þó fjár-
mögnun hafi verið hindrun,“ segir
Jakob en um þrjátíu virkir með-
limir eru í félaginu. Jakob bendir á
að áhugasamir geti haft samband
á Facebook-síðu félagsins, Iceland
Cricket.
Krikketsenuna á Íslandi segir
hann nærri tuttugu ára gamla. Þá
hafi hún þó verið áhugamanna-
sport sem komið hafði í bylgjum.
„Það var ekki fyrr en við hitt-
umst nokkrir á Klambratúni fyrir
tveimur árum og ákváðum að byrja
að æfa innanhúss sem þetta varð
að félagi sem er virkt allan ársins
hring. Öllum er velkomið að koma
og prófa, óháð getu,“ segir Jakob.
thorgnyr@frettabladid.is
stjórnmál Unnur Brá Konráðs-
dóttir, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, ætlar ekki að tjá sig strax
um kosningu sína í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins um helgina. Slakt
gengi kvenna hefur vakið athygli
en Unnur Brá hafnaði í fimmta sæti
í kjördæminu. Þrír karlmenn, Páll
Magnússon, Ásmundur Friðriks-
son og Vilhjálmur Árnason, hrepptu
þrjú efstu sætin.
„Það er fundur í kjördæmisráði
á sunnudaginn. Ég ætla að tjá mig
fyrst við mína flokksmenn,“ sagði
Unnur Brá í samtali við Frétta-
blaðið.
Mikið er rætt um það innan Sjálf-
stæðisflokksins að breyta röð fram-
bjóðenda til að bæta hag kvenna í
Suðurkjördæmi og Suðvesturkjör-
dæmi. Kosning á listana er ekki
bindandi þar sem ekki náðist fimm-
tíu prósenta þátttaka flokksmanna
í prófkjörinu og enginn frambjóð-
enda náði meira en fimmtíu pró-
senta fylgi í kosningunni. Það er í
valdi kjördæmisráðs að hafna list-
anum. – snæ
Bíður með
að tjá sig um
prófkjörið
Unnur brá Konráðsdóttir, þingmaður
sjálfstæðisflokksins, hafnaði í fimmta
sæti í prófkjöri sjálfstæðisflokksins í
suðurkjördæmi. Fréttablaðið/VilhelM
Ég ætla að tjá mig
fyrst við mína
flokksmenn.
Unnur Brá Konráðsdóttir,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins
Við urðum betri og
betri eftir því sem
leið á mótið.
Jakob Wayne Víkingur Robertson,
fyrirliði Krikketfélags Kópavogs
30
eru virkir
meðlimir í
Krikketfélagi Kópavogs.
Dómsmál Karlmaður í Vestmanna-
eyjum er grunaður um kynferðisbrot
gegn einhverfri og greindarskertri
konu í bænum. Um þrjátíu ára ald-
ursmunur er á hinum grunaða og
brotaþola.
Hæstiréttur sneri í gær við
úrskurði Héraðsdóms Suðurlands
og dæmdi sakborninginn í þriggja
mánaða nálgunarbann. Maðurinn
hafði áður sætt nálgunarbanni í þrjá
mánuði gagnvart konunni en borið
hafði á því að hann heimsækti hana
á vinnustað hennar. Hann er meðal
annars grunaður um að hafa berað
sig fyrir framan hana.
Að mati Hæstaréttar er uppi rök-
studdur grunur um að maðurinn
hafi brotið gegn konunni. Þá taldi
dómurinn að brotaþoli stæði höll-
um fæti gagnvart manninum og að
hætt væri við því að hann bryti gegn
henni aftur. – jóe
Grunaður
um áreitni gegn
fatlaðri konu
1 5 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 F i m m t u D A G u r2 F r é t t i r ∙ F r é t t A b l A ð i ð
1
5
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:3
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
9
3
-6
9
8
0
1
A
9
3
-6
8
4
4
1
A
9
3
-6
7
0
8
1
A
9
3
-6
5
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
6
4
s
_
1
4
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K