Fréttablaðið - 15.09.2016, Page 55
Klukkan fjögur í dag verður svo-
kallað „Gopnik takeover“ í Lucky
Records á Rauðarárstíg. Þar ætla þeir
félagar Rastislav Blazovic og Asmir
Fazlovic að spila nokkrar vel valdar
plötur upp úr kössum úr búðinni og
víst er að þar er um nóg að velja.
„Það er rosalega mikið af stöffi
þarna bak við – rafrænt hiphop og
svona,“ segir Rastislav og bætir við
að „Slavarnir séu að taka yfir heim-
inn og þeir eru úti um allt“ þegar
hann er spurður að því hvað sé að
fara að gerast í Lucky Records í dag
og hvaðan þetta þema komi.
Þeir hvetja fólk til að mæta í Adi-
das og fyrir sem besta upplifun era
æskilegt að njóta tónlistarinnar í
svokölluðu „slav squatti“ – eða eins
og við Íslendingar myndum kalla
það: sitjandi á hækjum sér. „Squatt-
ið er svolítið eins og plankið,“ segir
Ratislav dularfullur og má hver lesa
úr því að vild.
Annars á gopnik hugtakið við
einstakling í Rússlandi eða fyrrum
Sovétlýðveldinu sem klæðist oft Adi-
dasgalla, drekkur áfenga orkudrykk-
inn Jaguar og borðar sól blóma fræ
sitjandi á hækjum sér. Þessari steríó-
týpu má líkja við breska chav-inn
sem er nokkuð svipaður. Kvenkyns
gopnik er gopnitsa.
Það er því algjörlega ljóst að
fimmtudagurinn verður ákaflega
fjörugur í Lucky Records. – sþh
Adidasgallar og vel valdar plötur
Rastislav Blazovic og
Asmir Fazlovic ætla að
veiða alls kyns góðgæti
upp úr kössum í Lucky
Records í dag.
Fullkomnaðu augnablikið með ljúffengri sælkeraköku.
– Láttu það eftir þér!
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
1
6-
04
29prófessora með sérstökum kynn-
ingarfyrirlestri. Athafnirnar
hefjast með stuttu yfirliti yfir
helstu störf viðkomandi prófess-
ors, en svo tekur hann sjálfur við
og flytur erindi um störf sín og
framtíðarsýn í kennslu og rann-
sóknum. Í lok athafnarinnar gefst
svo tækifæri til þess að spjalla
og gleðjast með hinum nýja pró-
fessor.
Uppákomur
Hvað? Opin vísindi – málþing
Hvenær? 15.00
Hvar? Þjóðarbókhlaðan
Málþing um opin vísindi haldið
á Þjóðarbókhlöðunni. Ingibjörg
Sverrisdóttir landsbókavörður
setur málþingið og opnar vefinn
opinvisindi.is. Sigurgeir Finnsson
sér um kynningu á vefnum.
Hvað? Pubquiz in English - Justin
Bieber
Hvenær? 20.00
Hvar? Bravó
Hvað? Tilraunastofan
Hvenær? 21.00
Hvar? Ölstofa Hafnarfjarðar
Í dag hefur göngu sína tónleika-
röðin Tilraunastofan á Ölhús-
inu – Ölstofu Hafnarfjarðar.
Markmiðið verður að bjóða
upp á ferska og öðruvísi tóna úr
hinum ýmsu hornum íslensku
tónlistarsenunnar. Stefnt er á
að draga fram tilraunaglösin og
hinar ýmsu mixtúrur einu sinni í
mánuði, allt eftir því hvernig til-
raunirnar heppnast. Í kvöld koma
fram: Einar Indra, AKA Sinfónían
og Dj Microwave Landing System.
M e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 43F i M M T U D A g U R 1 5 . s e p T e M B e R 2 0 1 6
1
5
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:3
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
9
3
-9
F
D
0
1
A
9
3
-9
E
9
4
1
A
9
3
-9
D
5
8
1
A
9
3
-9
C
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
6
4
s
_
1
4
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K