Fréttablaðið - 22.08.2016, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 22.08.2016, Blaðsíða 13
Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Í dag Og skiliði kvótanum aftur til þjóðarinnar!“ Þannig endaði Bubbi vel heppnað framlag sitt til tónleika Rásar tvö á menningarnótt eftir að hafa fengið unga og aldna til að syngja með sér: „Og þér finnst það í góðu lagi“ og allur Arnarhóll kyrjaði með alsæll yfir því að fá að vera með í svona góðu lagi. Kvótakerfið er skattheimta En kvótagreifarnir fá ekkert að vera með í þeim makindum. Því að kvóta- kerfið finnst okkur alls ekki vera í góðu lagi. Þetta er frekar einfalt: „skiliði kvótanum aftur til þjóðar- innar“. Skáldið og söngvarinn fangar það í orð sem svífur um í blænum ekki síst þegar sviðið er í þann veginn að fyllast af vörpulegum Vestfirðingum. Um hvað snýst kvótakerfið? Tak- markaðan aðgang að takmörkuðum gæðum. Það þurfti að draga úr ofveiði og það þurfti að hagræða í greininni eftir full rösklega uppbygg- ingu í kjölfar útfærslu landhelginnar þegar ekki var þingmaður með þing- mönnum, að hann gæti ekki skaffað svo sem eins og einn skuttogara. En þess var ekki gætt að sú hagræðing yrði eins sársaukalítil og hægt væri og að samfélagið allt nyti góðs af þeirri hagræðingu. Um það var ekk- ert hirt. Kvótakerfið er hlið sem sumum er hleypt inn um, öðrum ekki. Og þeir sem fengu að fara inn selja hinum aðgang. Kvótakerfið er skattheimta nema andvirðið rennur ekki í sam- eiginlega sjóði landsmanna. Kvóta- kerfið og „frjáls“ viðskipti með rétt- inn til að nýta þjóðareignina hefur í för með sér frelsisskerðingu fyrir venjulegt fólk að sækja sjóinn nema með því að greiða skatt til kvóta- greifa sem geyma svo þennan skatt af sameign þjóðarinnar í leynihólfum heimsins og nota hann til að kaupa sér forréttindi og séraðgang að því sem ætti að vera almannaeign – og að borga Davíð Oddssyni tvær milljónir á mánuði til að skrifa skringilegar greinar. Kvótakerfið hafði mikið að segja um bóluna á árunum upp úr alda- mótum: Með kvótakerfinu fylltist allt af peningum sem voru ekki til, frá mönnum sem höfðu aflað þeirra með því að selja og veðsetja það sem þeir áttu ekki: fisk sem ekki var búið að veiða. Það er eins og ef ég, sem hef skrifað nokkrar bækur, rukkaði unga höf- unda fyrir að fá að skrifa bók. Það væri nú ekki í góðu lagi. Enginn samfélagssáttmáli Það verður ekkert jafnvægi í þjóðarsálinni – og hvað þá í þjóðar- búskapnum – fyrr en þjóðin fær almennt þá tilfinningu að snúið hafi verið af braut þessarar einka- skattheimtu. Í kvótakerfinu er að finna undirrót hins eilífa ósættis sem ríkir hér á landi. Við gleðjumst yfir því þegar Gugga og Binni verða rík af útgerð og fiskvinnslu – en hví skyldum við samgleðjast þegar Mummi sonur þeirra selur kvótann sem bundinn er útgerð þeirra fyrir trilljónir út úr bænum og flytur til London að gerast þar gjálífismaður; skilur gamla plássið sitt eftir í sárum, fólkið sem sjóinn hafði sótt og fiskinn verkað, en geymir auð sinn á aflandseyjareikningi? Hvað er það nákvæmlega við framferði Mumma (sem við þekkjum af ótal sögum) sem ætti að vekja virðingu en ekki forakt? Þeir eru alltaf biðja um sátt ráð- herrarnir (ljótt orð: það fyrsta sem íslensk yfirstétt gerði þegar við fengum heimastjórn 1904 var að breyta orðinu „ráðgjafi“ í „ráðherra“ – við ættum að breyta því aftur). Maður heyrir þá stundum kalla eftir því að hér sé gerður nokkurs konar samfélagssáttmáli um kaup og kjör, velferðarstig og tillitssemi hinna lægra launuðu við þörf hástéttanna fyrir ró og næði. Frið á vinnumark- aði. Jafnvægi. Hófsemi. Það er eins og ef maður í íbúð fyrir ofan mig væri með partílæti allar nætur en kæmi svo til mín og bæði mig að hafa ekki hátt, því hann langaði að fara að stunda jóga. Það fyndist manni nú ekki í góðu lagi. Það verður engin sátt fyrr en við fáum á tilfinninguna að afrakstrinum af þessari sameiginlegu auðlind sé skipt af réttlæti. Sem er að vísu vandmeðfarið hugtak – hugsjón en ekki ástand – og vei þeim stjórn- málamönnum sem telja sig vita hvar endastöð réttlætisins sé að finna – en það gæti til dæmis náð til þess að sanngjarn hluti af sjávarútvegsgróð- anum renni til uppbyggingar í þeim byggðum sem lifað hafa af sjávarút- vegi mann fram af manni en hafa af völdum þessa kerfis mátt sjá sjálfa lífsbjörgina hverfa í hendur braskara sem kaupa sér bílaumboð í Reykjavík í morgunmat. Það gæti til dæmis náð til þess að fólk fengi á tilfinninguna að sann- gjarn hluti af arðinum af auðlindinni renni til þess að byggja upp innviði samfélagsins sem látnir hafa verið markvisst grotna niður af stjórn- málaarmi þeirra afla sem stefna að samfélagi þar sem þeir ríku geta keypt sér aðgang að sérþjónustu í heilbrigðis- og menntamálum. Þetta er frekar einfalt. Það verður enginn friður, engin sátt, enginn sáttmáli fyrr en þann dag er hinn almenni Íslendingur getur horft á sjávarútveginn, alla þá miklu verðmætasköpun sem þar er, hug- vitið allt og dugnaðinn, og fundið til örlítils votts af stolti, kinkað kolli með sjálfum sér og fundist það í góðu lagi. Og þér finnst það ekkert í góðu lagi Kvótakerfið hafði mikið að segja um bóluna á árunum upp úr aldamótum: Með kvóta- kerfinu fylltist allt af peningum sem voru ekki til, frá mönnum sem höfðu aflað þeirra með því að selja og veðsetja það sem þeir áttu ekki: fisk sem ekki var búið að veiða. s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 13M Á n u d a g u R 2 2 . Á g ú s T 2 0 1 6 2 2 -0 8 -2 0 1 6 0 4 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A 4 F -5 F 3 C 1 A 4 F -5 E 0 0 1 A 4 F -5 C C 4 1 A 4 F -5 B 8 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 6 4 s _ 2 1 _ 8 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.