Fréttablaðið - 22.08.2016, Blaðsíða 20
Útgefandi
365 miðlar ehf. | Skaftahlíð 24 | s. 512 5000 | fax 512 5301
UmSjónarmaðUr aUglýSinga
Jón Ívar Vilhelmsson| jonivar@365.is | s. 512-5429
ÁbyrgðarmaðUr
Svanur Valgeirsson
Veffang
visir.is
K
ostnaður fyrirtækja
vegna svefnleysis er um-
talsverður og rannsókn-
ir sýna að greining og
meðhöndlun á svefnleysi skila mik-
illi hagræðingu fyrir fyrirtæki,“
segir Erla sem bendir á að meðvit-
und fyrirtækja á mikilvægi þess að
takast á við svefnleysi starfsmanna
sinna hafi aukist mjög frá því hún,
ásamt fleirum, stofnaði www.
betrisvefn.is fyrir þremur árum.
„Fyrir tæki hafa hingað til einblínt
á hreyfingu og næringu þegar
haldnar eru svokallaðar heilsuvik-
ur en nú er svefninn æ oftar tekinn
þarna inn í líka. Enda er svefninn
ein af grunnstoðum andlegs og lík-
amlegs heilbrigðis.“
Sofa stutt
Erla segir svefnleysi algengt á Ís-
landi en samkvæmt rannsóknum
sofi Íslendingar frekar stutt. „Ís-
lenska leiðin er að sofa stutt á virk-
um dögum og bæta sér það upp
um helgar. Þetta veldur óreglu á
svefnvenjum sem getur þróast út í
vítahring og orsakað langvarandi
svefnleysi,“ útskýrir Erla. Hún
nefnir einnig að hin óvenjulegu
birtuskilyrði á Íslandi hafi nokk-
ur áhrif á svefnvenjur.
Aukin slysahætta
Svefnleysi veldur fyrirtækjum
töluverðum kostnaði. „Menn taka
fleiri veikindadaga, sýna minni
framleiðni auk þess sem slysa-
hætta eykst,“ segir Erla.
Hún segir hættu á svefnleysi
meiri í sumum fyrirtækjum, til
dæmis þar sem vaktir séu lang-
ar og vinnutímar óvenjulegir. „Þá
skiptir miklu máli að fyrirtæki
velti þessum hlutum fyrir sér, sér
í lagi ef hætta er á slysum,“ segir
hún og tekur sem dæmi atvinnubíl-
stjóra og þá sem vinni með vélar
og tæki. „Nýlegar rannsóknir hafa
sýnt að þreyta og það að dotta
undir stýri, svokölluðum örsvefni,
sé orsök í stórum hluta árekstra.“
Fræðsla er lykilatriði
Erla segir að það að meðhöndla
svefnvanda sé bæði til hagsbóta
fyrir fyrirtækið og líðan starfs-
mannsins. En hvað geta fyrirtæki
gert? „Fyrst og fremst að fræða
starfsmenn um mikilvægi góðra
svefnvenja, um helstu svefnsjúk-
dóma og afleiðingar þess að sofa of
lítið,“ svarar Erla sem hefur unnið
töluvert með íslenskum fyrirtækj-
um, haldið fyrirlestra og veitt
fræðslu. „Svo höfum við í nokkr-
um fyrirtækjum skimað fyrir
svefnvanda. Þá eru sendir á alla
starfsmenn fimm mínútna spurn-
ingalistar sem þeir svara nafn-
laust. Forstjórinn fær svo skýrslu
um hve margir glíma við svefn-
vanda,“ útskýrir Erla. Næstu skref
væru þá til dæmis að bjóða starfs-
mönnum með svefnvanda niður-
greiðslu á meðferð.
Góður árangur af meðferð
Erla segir hugræna atferlismeð-
ferð, líkt og þá sem boðið er upp
á hjá Betri svefni, vera árangurs-
ríkustu lausnina við svefnleysi.
Rannsóknir hafi sýnt að 80-90%
fólks fái góðan bata sem haldist til
lengri tíma. „Meðferðin tekur auð-
vitað á, enda þarf fólk að breyta
venjum sínum,“ segir Erla og
bætir við að henni þyki sorglegast
að fólk bíði alltof lengi með að leita
sér hjálpar. „Fólk er stundum búið
að glíma við svefnvanda í áratugi
og kemst svo að því að hægt er að
leysa vandann á nokkrum vikum.“
fyrirtæki meðvitaðri um svefnvanda
Svefnleysi er algengt vandamál og langvarandi svefnleysi hefur slæm áhrif á daglegt líf og heilsu. Það getur einnig leitt til þess að fólk taki
fleiri veikindadaga, framleiðni í starfi minnki auk þess sem hætta á slysum eykst. Slíkt getur valdið fyrirtækjum töluverðum kostnaði. erla
björnsdóttir sálfræðingur hefur rannsakað svefnleysi og sérhæft sig í hugrænni atferlismeðferð við kvillanum.
Svefnleysi veldur fyrirtækjum töluverðum kostnaði. menn taka fleiri veikindadaga, sýna minni framleiðni auk þess sem slysahætta eykst. nordicphotoS/getty
Sólveig Gísladóttir
solveig@frettabladid.is
erla björnsdóttir sálfræðingur segir
að oft sé hægt að laga svefnleysi á
nokkrum vikum. Það geti hins vegar
tekið töluvert á enda þarf fólk að
breyta venjum sínum. mynd/ernir
Afleiðingar svefnleysis:
Orkuleysi
Orkuleysi er ein algengasta afleiðing svefnleysis og lýsir sér í al-
mennu sleni og orkuleysi. Flestir upplifa að verða orkulausir stöku
sinnum en hjá svefnlausum er þetta gjarnan viðvarandi allan dag-
inn og kemur niður á daglegu lífi.
Andleg ofreynsla
Andleg ofreynsla er algeng afleiðing svefnleysis og getur leitt til
þunglyndis, kvíða og kulnunar í starfi. Andleg ofreynsla hefur
þannig áhrif á bæði tilfinningar og atferli.
Viðbragðsflýtir
Langvarandi svefnleysi hefur neikvæð áhrif á dómgreind, við-
bragðsflýti og ákvörðunartöku. Einungis tveggja tíma svefnmiss-
ir í eitt skipti getur haft slæm áhrif á viðbragðsflýti, frammistöðu,
minni og árvekni.
Versnandi frammistaða
Þeir sem glíma við langvarandi svefnleysi sýna minni framleiðni
í starfi m.a. vegna orkuleysis og neikvæðra áhrifa á minni og ár-
vekni. Þessir einstaklingar taka einnig fleiri veikindadaga frá
vinnu.
Einbeiting
Neikvæð áhrif á minni og árvekni skila sér fljótt í skertri ein-
beitingu. Rannsóknir sýna að um fjórðungur vinnandi fólks sefur
mjög illa og telur sig í kjölfarið eiga erfitt með að einbeita sér í
starfi sínu.
Tilfinningar
Svefnleysi hefur mikil áhrif á tilfinningar og veldur því að fólk
upplifir meiri depurð og kvíða. Einnig er tilfinningastjórnun gjarn-
an erfið hjá svefnlausum og pirringur og reiði geta brotist fram í
auknum mæli. Samfara þessu minnkar metnaður og atorka.
fyrirtækjaÞjónUSta kynningarblað
22. ágúst 20162
2
2
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
4
F
-6
9
1
C
1
A
4
F
-6
7
E
0
1
A
4
F
-6
6
A
4
1
A
4
F
-6
5
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
6
4
s
_
2
1
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K