Fréttablaðið - 22.08.2016, Blaðsíða 6
Hlíðasmára 8 | Skipholti 70 | Spönginni 13
Sími 554 7200 |
Eitt mesta úrval landsins af fiskréttum
og ferskum fiski.
Veitingastaðir
Stóreldhús
Mötuneyti
hafid@hafid.is
554 7200
Fáðu tilboð fyrir þitt fyrirtæki
SamfélagSmál Alls þrettán prósent
Íslendinga á aldrinum 18-76 ára segj-
ast hafa orðið fyrir netbroti á síðustu
þremur árum. Algengast er að hafa
orðið fyrir meiðyrðum eða rógburði,
eða 33 prósent allra þeirra sem urðu
fyrir netbroti.
Að sama skapi hafði fjórðungur
svarenda heimsótt klámsíður á sama
tímabili. Einnig sögðust þrettán pró-
sent svarenda hafa orðið þolendur
afbrots á netinu á síðustu þremur
árum. Þá var algengt að nefna fjársvik
og kreditkortasvindl.
Rannsóknin var gerð af Helga
Gunnlaugssyni, prófessors í félags-
fræði við HÍ, og Jónasi Orra Jónas-
syni, félagsfræðingi hjá lögreglunni
á höfuðborgarsvæðinu, í samvinnu
við Félagsvísindastofnun HÍ. Það
sem einnig kemur fram er að eftir því
sem einstaklingur notar netið meira,
því líklegra er að hann verði fyrir ein-
hvers konar netbroti.
„Áhugavert er að skoða þolendur
netbrota. Netbrot eru býsna algeng
og bara það að brotin séu nefnd, eins
og að rógi og meiðyrðum sé dreift
um þá á netinu, sýnir að mönnum er
ekki sama,“ segir Helgi. „Svo ekki sé
minnst á fjársvik, hótanir um ofbeldi
eða kynferðislega áreitni sem sannar-
lega hefur áhrif á þolendur.“
Mikið hefur verið rætt um hug-
myndir innanríkisráðherra um nýja
netbrotadeild lögreglunnar. Ljóst
er að afbrot á netinu miðað við
núverandi lagaramma eru gríðarlega
útbreidd meðal ungs fólks og því lík-
legt að deild innan lögreglunnar sem
ætti að rannsaka niðurhal myndi
fyrst og fremst beinast að ungu fólki.
„Niðurstöðurnar um ólöglegt
niðurhal eru sláandi og sýna svart á
hvítu að lífsstíll og hugsunarháttur
unga fólksins er töluvert frábrugðinn
hinna eldri og kominn langt út fyrir
það sem hefðbundin löggjöf heimilar
og gerir ráð fyrir,“ segir Helgi. „Unga
kynslóðin hefur vaxið fram úr laga-
rammanum og áleitin spurning
hvernig bregðast eigi við. Á að berja
ungdóminn inn í hefðbundinn laga-
ramma eða verður að breyta lög-
gjöfinni á einhvern hátt til að mæta
þessum nýja tæknilega veruleika?“
bætir Helgi við. sveinn@frettabladid.is
Margir verða
fyrir ofbeldi á
internetinu
13 prósent Íslendinga segjast hafa verið þolendur í
afbroti á netinu á síðustu þremur árum samkvæmt
nýrri rannsókn Helga Gunnlaugssonar prófessors.
Gera má ráð fyrir að um eitt hundrað þúsund manns brjóti af sér reglulega á
netinu.
Niðurstöðurnar um
ólöglegt niðurhal
eru sláandi og sýna svart á
hvítu að lífsstíll og hugsunar-
háttur unga fólksins er
töluvert frá-
brugðinn
hinna eldri
Helgi Gunnlaugs-
son prófessor
brjóta af sér á
netinu.
Þjóðarsorg í Tyrklandi
Íbúar tyrknesku borgarinnar Gaziantep eru í losti eftir sjálfsmorðsárás á laugardagskvöldið. Hundruð
manna mættu í gær í jarðarfarir hjá fórnarlömbum árásarinnar. Þjóðarsorg hefur verið lýst yfir í landinu.
Allir helstu þjóðarleiðtogar heims hafa fordæmt árásina. Mynd/Epa
Bandaríkin Fyrirtæki í eigu Donalds
Trump, forsetaefnis repúblikana í
komandi forsetakosningum í Banda-
ríkjunum, skulda samtals yfir 76
milljarða íslenskra króna. Trump
hefur í kosningabaráttu sinni farið
mikinn og talað um eigið ágæti sem
viðskiptamaður og segist á ferli sínum
hafa grætt milljónir dollara og sé full-
komlega laus við skuldir. Fjallað er
ítarlega um málið í rannsókn á vegum
New York Times sem birtist í gær.
Rannsóknin leiddi einnig í ljós að
meðal fjárfesta í fyrirtækjum Trumps
eru stofnanir sem hann hefur opin-
berlega talað gegn í kosningabaráttu
sinni. Þar mætti helst nefna seðla-
banka Kína, sem Trump hefur sagt
vera eina stærstu ógn sem stafi að
fjármálaumhverfi Bandaríkjanna í
dag, og Goldman Sachs fjárfestinga-
banka sem hann hefur ásakað um
að stjórna mótframbjóðanda sínum,
Hillary Clinton.
Þá kemur einnig fram að mikil
leynd ríki yfir persónulegum fjármál-
um Trumps. Til dæmis hefur forseta-
frambjóðandinn neitað að gefa upp
eigið skattframtal og einnig lagst gegn
því að hlutlaus aðili meti eignir hans.
Sem forseti myndi Trump hafa tals-
verð völd þegar kæmi að fjármála- og
skattalöggjöf Bandaríkjanna, en
þannig gæti hann haft bein áhrif á
eigið viðskiptaveldi. Þá gæti hann
einnig haft áhrif á lög sem tengjast
beint hans eigin fé, sem og eiga í sam-
skiptum við lönd sem hann á í per-
sónulegu viðskiptasambandi í.
Fyrirtæki Trumps skulda tugmilljarða
2 2 . á g ú S t 2 0 1 6 m á n U d a g U r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
2
2
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
4
F
-7
2
F
C
1
A
4
F
-7
1
C
0
1
A
4
F
-7
0
8
4
1
A
4
F
-6
F
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
6
4
s
_
2
1
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K