Fréttablaðið - 22.08.2016, Blaðsíða 16
Síðumúla 34 • 108 Reykjavík
Sími 696 5600 • rafsol@rafsol.is
ENDURNÝJUN
OG VIÐHALD
Löggiltur rafverktaki
Sími:
696 5600
rafsol@rafsol.is
Í dag
17.30 FH - Stjarnan Sport
19.50 Þróttur - Valur Sport 2
20.30 Messan Sport
22.00 Pepsímörkin Sport
18.00 Fylkir - ÍA Flórídanavöllur
18.00 Víkingur R. - ÍBV Víkingsv.
Nýjast
Stoke City 1 – 4 Man City
Swansea 0 – 2 Hull City
Tottenham 1 – 0 Crystal Palace
Watford 1 – 2 Chelsea
West Brom 1 – 2 Everton
Burnley 2 – 0 Liverpool
Leicester 0 – 0 Arsenal
Sunderland 1 – 2 Boro
West Ham 1 – 0 Bournemouth
Efst
Man City 6
Man Utd 6
Hull 6
Chelsea 6
Boro 4
Neðst
Southampton 1
Stoke City 1
Sunderland 0
Crystal Palace 0
Bournemouth 0
Enska úrvalsdeildin
Hvað gerðu Gylfi og Jóhann Berg?
Gylfi Þór Sigurðsson lék allan
leikinn fyrir Swansea sem tapaði
óvænt fyrir nýliðum Hull á heima-
velli. Jóhann Berg Guðmundsson
kom inn á sem varamaður á
56. mínútu þegar Burnley vann
frækinn sigur á Liverpool.
Stærstu úrslitin Þrátt
fyrir að vera aðeins
19% með boltann
vann Burnley 2-0
sigur á Liverpool á
heimavelli sínum.
Hetjan Diego Costa
tryggði Chelsea þrjú
stig í öðrum leiknum í röð þegar
hann skoraði sigurmarkið gegn
Watford á útivelli.
Kom á óvart Nýliðar Hull City sem
allir spáðu falli eru með fullt hús
stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar.
Á laugardaginn gerði Hull góða
ferð til Swansea og vann 0-2 sigur.
Pepsi-deild karla
KR - Breiðablik 1-1
0-1 Daniel Bamberg, víti (39.), 1-1 Morten
Beck Andersen (79.).
Morten Beck Andersen tryggði
KR-ingum stig gegn Blikum þegar
hann jafnaði metin 11 mínútum
fyrir leikslok. KR er taplaust í
síðustu fjórum leikjum en Blikum
gengur illa að stimpla sig inn í
toppbaráttuna.
Víkingur Ó. - Fjölnir 2-2
1-0 Kenan Turudija (7.), 1-1 Marcus Solberg
(38.), 2-1 Þorsteinn Már Ragnarsson (41.),
2-2 Solberg (75.).
Rautt spjald: Emir Dokara, Víkingur Ó. (44.).
Fjölnismenn jöfnuðu tvisvar á
Ólafsvík og stigið fleytti þeim upp
í 2. sætið. Ólsarar náðu í sitt fyrsta
stig síðan 10. júlí en þeir þurftu að
spila einum færri í rúman hálfleik.
HandBolti Þrír þjálfarar, þrenn
verðlaun. Ísland átti verðuga fulltrúa
í handboltakeppnum Ólympíuleik-
anna. Þó svo að tveir hafi ekki komið
liðum sínum í úrslitaleikinn tókst
þeim báðum að yfirvinna vonbrigði
tapsins í undanúrslitunum og vinna
hinn erfiða leik um bronsverðlaunin.
Guðmundur Guðmundsson topp-
aði þá báða með því að stýra danska
liðinu alla leið til gullverðlauna í gær-
kvöldi og finna leiðir til að enda sigur-
göngu Frakka á Ólympíuleikunum.
Sigurganga Frakka hófst fyrir átta
árum þegar þeir unnu Guðmund og
strákana hans í íslenska landsliðinu í
úrslitaleik á ÓL í Peking. Nú var hins
vegar ekkert silfur gulli betra.
Guðmundur ætlaði ekki að tapa
aftur fyrir Frökkum í gullleik á
Ólympíuleikunum. Hann talaði um
það eftir undanúrslitaleikinn og
sýndi það síðan í verki með frábær-
lega upplögðum leik þar sem Danir
unnu tveggja marka sigur á Frökkum,
28-26, eftir að hafa komist mest fimm
mörkum yfir í seinni hálfleiknum.
Danir hafa keppst við að gagn-
rýna Guðmund eftir að danska
liðinu tókst ekki að vinna verðlaun
Nýtti reynslu sína frá
úrslitaleik Íslands 2008
Guðmundur Guðmundsson náði sögulegu afreki í gær þegar hann gerði danska handboltalandsliðið að Ól-
ympíumeisturum . Allir íslensku þjálfararnir þrír á Ólympíuleikunum í Ríó skiluðu sínum liðum í verðlauna-
sæti á leikunum. Lið Þóris Hergeirssonar og Dags Sigurðssonar unnu bæði bronsleikinn með sannfærandi hætti.
Ólympíumeistarar Dana voru kampakátir eftir að hafa fengið gullmedalíurnar um hálsinn í Ríó í gær. FRéttABlAðið/ANtoN BRiNK
á fyrstu tveimur stórmótum hans en
þeir hljóta að elska hann núna. Guð-
mundi tókst að búa til samstilltan og
einbeittan hóp og allt í einu mættu
Danir hungraðir og grimmir í úrslita-
leik eftir að hafa verið ansi draugalegir
í mörgum úrslitaleikjum síðustu árin.
„Ég upplifði úrslitaleik fyrir átta árum
og ég notaði mína reynslu virkilega
til þess að undirbúa liðið núna. Það
hjálpaði mér," sagði Guðmundur og
hann breytti útaf venjunni og sýndi
ekki myndbönd á lokafundi fyrir leik.
Guðmundur fagnaði gríðarlega
með lærisveinum sínum í leikslok
og skiljanlega. Nú á sínum sjöttu
Ólympíuleikum fær hann að
kynnast þeirri tilfinningu að verða
Ólympíumeistari þótt að hann nú ekki
fengið neinn verðlaunapening um
hálsinn. Hann tapaði úrslitaleik 2008,
var með efni í Ólympíumeistaralið
2012 en nú kom hann liði sínu efst á
verðlaunapallinn á Ólympíuleikum.
„Ég er búinn að tala mikið við
leikmennina og við horfðum ekki svo
mikið á myndbönd núna. Ég talaði um
það að nota tækifærið því tækifærið er
núna. Það er ekki eftir fjögur ár eða í
næstu stórkeppni. Tækifærið er núna,
við ætlum að taka það og fara alla leið,"
sagði Guðmundur og hann talaði
trúna í sína menn.
Hann notaði líka sjö menn í sókn-
inni í upphafi leiks. „Við vorum með
ákveðinn hroka að byrja leikinn sjö á
móti sex. Það sem við vorum að gera
með því var að sýna að okkur er alvara
hérna og við þorum að taka áhættu.
Ef við getum kallað þetta áhættu þá
er þetta allavega útreiknuð áhætta,“
sagði Guðmundur. Guðmundur hafði
kynnst því að tapa svona leik og nú
mætti hann til að taka gullið.
„Fyrir mig persónulega þá er þetta
það stærsta sem ég hef upplifað á
mínum ferli sem þjálfari og hann er
að verða nokkuð langur,“ sagði Guð-
mundur.
Danska liðið hafði ekki spilað um
verðlaun á fyrstu stórmótum hans.
„Ég held að það sé ekki hægt að fara
í gegnum harðari skóla heldur en ég
er búinn að fara í gegnum á þessum
tveimur árum. Það er ekki mögulegt,"
sagði Guðmundur.
„Ég hef verið trúr mínu þrátt fyrir
að ég hafi fengið mikla gagnrýni fyrir
varnarleikinn. Ég hef alltaf trúað á leik-
kerfi, hugmyndafræðina og á þessa
taktík. Ég hef unnið áfram með hana
og ég hef barist við marga,“ sagði Guð-
mundur.
„Ég hef verið gagnrýndur mikið fyrir
þetta en ég hef alltaf haldið mínu striki.
Það er fyrir mig ákveðinn sigur að sýna
fram á þetta,“ sagði Guðmundur. Hann
fékk ekki verðlaunapening ekki frekar
en í Peking 2008.
„Það er mjög sorglegt að fá aldrei
verðlaunapeninginn. Eigum við ekki
að segja að minningin og það að vera
hluti af þessu og sjá stoltur leikmenn-
ina það sé númer eitt,“ svaraði Guð-
mundur sem hefur enga tilfinningu
um það hvernig Danirnir taka honum
núna.
Hann er líka með framtíðarlið í
höndunum. „Þetta er tiltölulega ungt
lið og það eru miklir möguleikar í
stöðunni," sagði Guðmundur.
Íslenskir þjálfarar eru nú handhafar
fjögurra af þeim sex titlum sem keppt
er um á stórmótum landsliða í karla og
kvennaflokki. Það er bara Ólympíut-
itill kvenna sem Þórir missti í Ríó og
heimsmeistaratitill Frakka sem unnust
ekki með íslenskum þjálfurum.
Hefði viljað silfrið 2008 en þetta verður að duga
Dagur Sigurðsson var ekki með íslenska landsliðinu
þegar það vann silfrið í Peking 2008 en kynntist því
í gær að skila liði í verðlaunasæti á ÓL. Þýskaland
vann þá sex marka sigur á Pólland í bronsleiknum.
Þýskaland lenti þremur mörkum undir í byrjun
leiks í bronsleiknum gegn Póllandi en þýsku
strákarnir svöruðu leikhléi hjá Degi með 9-2 spretti og
litu ekki til baka eftir það.
„Við vorum betri allan leikinn þó að þeir hafi verið yfir. Þeir náðu að
refsa okkur fyrir mistök í byrjun,“ sagði Dagur. „Þetta var stórkostlegt og
gaman að ná í þessa medalíu. Það er ótrúlega erfitt andlega að vinna
þennan leik,“ sagði Dagur. Hann fylgdi eftir Evrópumeistaratitli með því að
skila liðinu í brons á Ólympíuleikum.
„Það er mjög sterkt og sýnir sterkan karakter hjá strákunum,“ sagði
Dagur og þetta hefur þýðingu fyrir hann sjálfan. „Ég er mjög stoltur yfir
því að hafa klárað þetta svona. Ég hefði viljað ná silfrinu fyrir átta árum en
þetta verður að duga,“ sagði Dagur og var rokinn.
Veit ekki hvort hann heldur út til Tókýó 2020
Þórir Hergeirsson og norsku stelpurnar voru handhafar
allra stóru titlanna þegar þær mættu til Ríó. Norska
liðið missti af úrslitaleiknum eftir framlengingu en tók
bronsið.
„Það er ekki hægt að kalla það skref niður á við þegar
það er svona jafnt. Við erum örlítið slakari varnarlega
en við höfum verið. Við erum betri sóknarlega núna en á
HM,“ sagði Þórir.
„Ég er meira upptekinn af næsta móti sem er markmiðið. Það er alltaf
næsta medalía sem er markmiðið og hvetur mann áfram. Á meðan ég hef
það hungur og leikmannahópurinn hefur það hungur og allir eru þar þá er
maður í þessu,“ sagði Þórir, sem skrifaði undir nýjan fjögurra ára samning í
vetur og er því með samning fram að Ólympíuleikunum í Tókýó.
„Ég veit ekkert hvort ég held það út og maður veit heldur aldrei hvort
maður fái leyfi til þess að halda áfram.“
Óskar Ófeigur Jónsson
ooj@365.is
Haukar 1 – 0 Leiknir F.
Grindavík 4 – 0 HK
Fram 1 – 0 Keflavík
Huginn 1 – 2 Þór
KA 3 – 1 Leiknir R.
Efri
Grindavík 37
KA 35
Keflavík 26
Þór 26
Leiknir 24
Haukar 23
Neðri
Selfoss 22
Fram 22
HK 18
Fjarðabyggð 17
Huginn 16
Leiknir F. 12
inkasso-deild karla
2 2 . á G ú S t 2 0 1 6 M á n U d a G U R16 S P o R t ∙ F R É t t a B l a ð i ð
sport
2
2
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
9
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
4
F
-4
6
8
C
1
A
4
F
-4
5
5
0
1
A
4
F
-4
4
1
4
1
A
4
F
-4
2
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
6
4
s
_
2
1
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K