Fréttablaðið - 22.08.2016, Blaðsíða 10
Efnahagsmál Hagfræðingurinn
Joseph Stiglitz segir að ekki sé lengur
samstaða um að nýfrjálshyggjuöfl séu
ríkjandi skóli hugsunar í hagfræði, eins
og hann hefur verið síðustu þrjátíu ár.
Í samtali við Business Insider segir
Nóbelsverðlaunahafinn, sem var
efnahagslegur ráðgjafi Bills Clinton,
fyrrverandi Bandaríkjaforseta, að í
fræðiumhverfinu sé búið að hafna
samstöðunni um nýfrjálshyggju.
Stiglitz hefur síðustu árin verið einn
helsti gagnrýnandi nýfrjálshyggju. Frá
efnahagskreppunni árið 2008 virðist
hafa orðið vitundarvakning almennt
um það að frjálshyggja sé ekki endilega
rétta leiðin fyrir hagkerfi heimsins.
Í samtalinu færir Stiglitz rök fyrir
því að búið sé að afsanna eina af aðal
hugmyndum nýfrjálshyggju, að mörk
uðum gangi best þegar engin afskipti
eru höfð af þeim og að eftirlitslausir
markaðir séu besta leiðin til að auka
hagvöxt.
„Við erum búin að færast frá
nýfrjálshyggjuparadísinni þar sem
talið var að „markaðir virka vel næst
um alltaf“ og eina sem við þurftum
gera var að halda ríkisstjórnum gang
andi, í það að trúa að „markaðir virka
ekki“ og nú snýst umræðan um það
hvernig við getum látið ríkisstjórnir
laga þessa skekkju,“ segir Stiglitz.
„Nýfrjálshyggja er dáin bæði í þróun
arlöndum og þróuðum löndum.“
Stiglitz deilir þessari skoðun með
öðrum hagfræðingum. Í bloggi í maí
efuðust þrír hagfræðingar hjá Alþjóð
gjaldeyrissjóðnum, helstu klappstýru
nýfrjálshyggju, um skilvirkni ákveð
inna þátta kenningarinnar, sér í lagi
þegar kemur að sköpun ójafnaðar.
Bandaríski fræðimaðurinn Noam
Chomsky hefur einnig gagnrýnt
nýfrjálshyggju og skaðleg áhrif
hugsunarinnar. Í Bretlandi má einnig
greina viðhorfsbreytingu, en þar hafa
aðhaldsaðgerðir verið í fyrirrúmi frá
því að Íhaldsflokkurinn tók við ríkis
stjórn árið 2010.
saeunn@frettabladid.is
Nóbelsverðlaunahafinn Stiglitz
lýsir yfir dauða nýfrjálshyggun
Nóbelsverðlaunahafinn Joseph Stiglitz telur að búið sé að sanna að ein af aðalhugmyndum nýfrjálshyggju
gangi ekki upp. Hann telur nýfrjálshyggju hugsunarháttinn dauðan í bæði þróunarlöndum og þróuðum
löndum. Aðrir fræðimenn og hagfræðingar eru farnir að efast um kenninguna.
Hvað er nýfrjálshyggja?
Vísindavefurinn segir nýfrjálshyggju ná yfir sjónarmið og kenningar allra
núlifandi frjálshyggjumanna. Það sem þeir eiga helst sameiginlegt er ein-
staklingshyggja, áhersla á mikilvægi frelsis- og eignaréttinda, og trú á að
frjáls viðskipti stuðli að góðum lífskjörum. Nýfrjálshyggjusinnar eru á móti
miklum ríkisafskiptum og trúa því að markaðir gangi best án mikilla af-
skipta. Hugtakið nýfrjálshyggja hefur verið notað frá árinu 1938 en bera fór
á núverandi merkingu hugtaksins á áttunda og níunda áratug síðustu aldar.
Hverjir voru helstu talsmenn þess?
Margaret Thatcher, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, og Ronald
Reagan, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, voru helstu talsmenn íhaldsfrjáls-
hyggju sem orðið nýfrjálshyggja er stundum notað yfir.
Joseph Stiglitz vann Nóbelsverðlaun í hagfræði árið 2001 og vann sem efnahagsráðgjafi Bill Clinton.
Margaret Thatcher og Ronald Reagan
voru miklir talsmenn nýfrjálshyggju.
Viðskipti Frá því að gengi hluta
bréfa í japanska leikjaframleiðand
anum Nintendo náði hæstu hæðum
þann 19. júlí síðastliðinn hafa hluta
bréfin lækkað um rúmlega 30 pró
sent.
Gengi hlutabréfa í Nintendo rauk
upp í kjölfar útgáfu snjallsíma
leiksins Pokémon GO úr smiðju
fyrirtækisins þann 6. júlí síðast
liðinn. Í dag hefur leikurinn slegið
fimm heimsmet Guinness og hafa
rúmlega 130 milljónir manna náð
sér í leikinn. Velta leiksins á fyrsta
mánuði nam 206,5 milljónum doll
ara og hefur snjallsímaleikur aldr
ei velt jafn hárri fjárhæð á fyrsta
mánuði.
Eitthvað virðast fjárfestar þó ótt
ast að Pokémon GO verði ekki jafn
arðbær leikur og þeir áttu von á eftir
að forsvarsmenn Nintendo gáfu í
skyn að leikurinn myndi veita tak
mörkuð samlegðaráhrif.
Líkur eru á að gengi hlutabréfa
muni þó hækka á ný í haust þar sem
tveir snjallsímaleikir úr smiðju fyrir
tækisins eru væntanlegir á komandi
mánuðum. Leikirnir Fire Emblem
og Animal Crossing eru byggðir á
klassískum titlum og munu þá lík
lega draga að aðdáendur á borð við
Pokémon GO hópinn. – sg
Hlutabréf í Nintendo hafa lækkað um 30%
Hundrað og þrjátíu milljónir manna hafa náð sér í Pokémon GO á rúmum mánuði. Fréttablaðið/
Hlutabréfin hækkuðu
hratt í verði eftir að fyritækið
sendi frá sér tölvuleikinn
Pókemen Gó, sem sló ræki-
lega í gegn á heimsvísu.
Bandaríkin Fimm voru myrt á
heimili sínu í Alabama, Bandaríkj
unum, þegar 27 ára gamall maður
gekk berserksgang og rændi fyrr
verandi kærustu sinni og þriggja
mánaða ungabarni. Á meðal þeirra
látnu er ólétt kona. Derrick Dearman
verður kærður fyrir sex morð, þar á
meðal á ófædda barninu.
Dearman braust inn á heimili
systur fyrrverandi kærustu sinnar,
sem er í bænum Citronelle. Hún
hafði haldið sig þar eftir að hafa flutt
frá honum vegna ofbeldishneigðar
hans, samkvæmt lögregluyfirvöldum
á svæðinu.
Fórnarlömbin voru á aldrinum
22 til 35 ára en hið yngsta var kona
komin fimm mánuði á leið með sitt
fyrsta barn.
Samkvæmt upplýsingum frá lög
reglunni í Citronelle hafði verið
hringt á lögregluna fyrr um kvöldið
þegar Dearman hafði komið í óleyfi á
lóðina þar sem húsið stendur. Hann
flúði þegar lögreglan mætti á svæðið.
Seinna um kvöldið sneri hann aftur,
þá vopnaður og réðst á fórnarlömbin
þegar þau voru sofandi.
Hann tók fyrrverandi kærustu
sína með sér á brott þegar hann
yfirgaf húsið ásamt þriggja mánaða
barni eins af fórnarlömbunum og
fór með þau heim til föður síns. Eftir
að þangað var komið sleppti hann
fyrrverandi kærustunni og barninu
og fór ásamt föður sínum upp á
lögreglustöð og gaf sig fram. Hann
er enn í haldi lögreglu og er sam
vinnuþýður samkvæmt heimildum
Reuters fréttstofunnar.
Ólétt kona
á meðal
látinna
eftir morð í
Alabama
Fórnarlömbin voru á
aldrinum 22 til 35 ára en hið
yngsta var kona sem var
genginn fimm mánuði með
sitt fyrsta barn.
2 2 . á g ú s t 2 0 1 6 m á n U d a g U r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
2
2
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
4
F
-8
1
C
C
1
A
4
F
-8
0
9
0
1
A
4
F
-7
F
5
4
1
A
4
F
-7
E
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
6
4
s
_
2
1
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K