Fréttablaðið - 30.06.2016, Side 1

Fréttablaðið - 30.06.2016, Side 1
Efnahagsmál Ríkissjóður greiðir 4,3 milljarða í vaxtabætur í ár, sam- kvæmt yfirliti efnahags- og fjármála- ráðuneytisins. Greiddir voru út 7,6 milljarðar króna 2012, en upphæðin hefur síðan lækkað á hverju ári. Lækkunin nemur um 43 prósentum á fimm árum. Samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu stafar lækkunin af því að tekjur heimila hafa aukist og skuldir minnkað. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, for- maður velferðarnefndar Alþingis og þingmaður Samfylkingar, segir lækkun vaxtabóta alvarlega þróun. Lækkunin sé meiri en skýrist af minni skuldsetningu heimila. Verið sé að auka tekjutengingu þannig að sífellt minni hópur fái vaxtabæturnar. „Og þegar þú lest ríkisfjármála- áætlunina, sem var lögð fram í vor, þá er mjög erfitt að lesa hver áformin eru, bæði með barnabætur og vaxta- bætur, önnur en þau að gera þetta að fátæktarbótum en ekki skatta afslætti fyrir launafólk,“ segir Sigríður Ingi- björg. Þetta sé stefnubreyting þar sem litið sé til ráðlegginga Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins í stað þess að líta til þess hvernig Norðurlöndin fara með þessi mál. „Þróunin endurspeglar í rauninni það að ríkisstjórnin er að hverfa frá hinum norrænu velferðar- módelum og rýrir þar með kjör milli- tekjufólksins.“ Í sumar samþykkti Alþingi lög um nýtt húsnæðisbótakerfi. Sigríður Ingi- björg segir að þetta sé í raun og veru sama kerfi og var fyrir húsaleigu- bætur en nýja kerfið nái til breiðari hóps og bæturnar hjá þeim sem hafi lægstu tekjurnar hækki. En það hefði verið betra og það hafi verið sátt um það við sveitarfélögin að búa til kerfi þar sem húsnæðisstuðningur yrði jafn, óháð því hvort fólk byggi í leigu- húsnæði eða eigin húsnæði. – jhh — m E s t l E s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —1 5 3 . t ö l u b l a ð 1 6 . á r g a n g u r f i m m t u d a g u r 3 0 . j ú n Í 2 0 1 6 Fréttablaðið í dag lÍfið Emmsjé Gauti safnar fyrir útgáfu á vínylplötu. 60 skoðun Þorvaldur Gylfason um Breta og ESB. 25 sport Deschamps mun ekki vanmeta Ísland. 40 mEnning Fremstu listamenn heims sýna á Djúpavogi. 50 plús 2 sérblöð l fólk l garðabær & hafnarfjörður  *Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015 ÚTSALAN ER HAFIN OPIÐ TIL 21 Í KVÖLD Útsala opið til 21 12 MANNA ÁSAMT FYLGIHLUTUM YFIR 15 TEGUNDIR VERÐ FRÁ KR.24.990 HNÍFAPARATÖSKUR 45 ÁRA LAUGAVEGI 178 – SÍMI 568 9955 Vaxtabætur dragast verulega saman Ríkissjóður greiðir 4,3 milljarða í vaxtabætur í ár en greiddi 7,6 milljarða 2012. Ástæðan er bætt eignastaða heimila og auknar tekjur. ✿ heildarupphæð vaxtabóta 2012 2013 2014 2015 2016 4. 33 25. 88 6 6. 74 7 7. 40 6 7. 62 3 í milljónum króna Tyrkir lýstu í gær yfir þjóðarsorg vegna árásarinnar á Atatürk-alþjóðaflugvöllinn í Istanbúl. Í gær safnaðist fólk saman fyrir utan líkhúsið í Istanbúl til að sækja látna ástvini og jarðarfarir fóru fram. Hér má sjá aðstandendur reyna að hugga móður eins fórnarlambsins. Vísbendingar eru sagðar um aðild hryðjuverkasamtakanna sem kenna sig við íslamskt ríki. Sjá síðu 12 Fréttablaðið/EPa mEnning Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri tekur sér leyfi frá störfum hjá RÚV til að leikstýra í Borgarleik- húsinu í byrjun næsta árs. „Ég er leikhúsmaður í grunninn og var upprunalega leikstjóri áður en ég fór að fikra mig meira í yfir- stjórnina, fyrst í leikhúsunum og svo nú hjá RÚV,“ segir Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri sem kemur til með að venda kvæði sínu í kross um áramót og vinda sér í gamalkunnugt hlut- verk leikstjóra. „Það eru viss líkindi. Ég er maður menningar og þessi störf snúast bæði um það. RÚV er hins vegar töluvert stærra apparat,“ segir hann, spenntur fyrir komandi átökum á fjöl- unum. – gjs / sjá síðu 62 Útvarpsstjóri fer aftur á fjalirnar Þjóðarsorg í Tyrklandi 3 0 -0 6 -2 0 1 6 0 4 :3 5 F B 0 9 6 s _ P 0 9 6 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 8 1 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 9 D E -0 A 7 C 1 9 D E -0 9 4 0 1 9 D E -0 8 0 4 1 9 D E -0 6 C 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 9 6 s _ 2 9 _ 6 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.