Fréttablaðið - 30.06.2016, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 30.06.2016, Blaðsíða 44
Útgefandi | 365 miðlar ehf. Skaftahlíð 24 | s. 512 5000 Ábyrgðarmaður Svanur Valgeirsson Veffang visir.is umSjónarmaður auglýSinga Jóhann Waage| johannwaage@365.is | s. 512-5439 byggðasafnið í Hafnarfirði er einstaklega skemmtilegt og oft fjölbreyttar sýningar þar. Við hlið þess stendur hið gamla hús a. Hansen þar sem þessi stytta stendur. björgvin Halldórsson segir að best sé að búa í Hafnarfirði og er ánægður með mannlífið þar. Það eru 25 ár síðan Björgvin gaf út Íslandslög í fyrsta sinn en alls hafa nú komið út sjö plötur með vinsæl­ um íslenskum söngperlum og sú áttunda er í bígerð. Á nýju plöt­ unni eru 40 Íslandslög. Lögin eru frá ýmsum tímaskeiðum og skipa mörg þeirra heiðurssæti hjá þjóð­ inni. Björgvin segist hafa viljað minnast þess að 25 ár væru síðan fyrsta platan kom út. „Þetta eru lög sem allir þekkja, mikill fjársjóður af fallegum lögum sem við þurfum að varðveita,“ segir hann. „Nú er ég að undirbúa ýmsa tónleika sem verða á næstunni, meðal annars á Írskum dögum á Akranesi. Síðan er ég að undirbúa jólatónleika mína en þeir eru í vinnslu allt árið.“ Þegar Björgvin er spurður um Hafnarfjörð segir hann að það skemmtilegasta við bæinn sé hvað bæjarmenningin hefur haldið sér þrátt fyrir fólksfjölgun og nálægð við höfuðborgina. „Bærinn hefur auðvitað breyst töluvert en hann heldur enn í sjarmann. Áður fyrr þekkti maður bæjarbúa og hverra manna fólk var á svipmóti, göngulagi og háttalagi. Núna fer það þverrandi og það er miður. Kynlegu kvistirnir hverfa í fjöldann,“ segir hann. Björgvin segir margt skemmti­ legt að sjá í Hafnarfirði. „Það er líka gaman að kíkja á kaffihúsin hér í bænum eða veitingahúsin. Svo er Hafnarborg frábært gall­ erí og umhverfið heillandi. Mér fyndist allt í lagi að Strandgatan fengi andlitslyftingu og svo væri gaman að fá fleiri sérhæfðar versl­ anir sem myndu til dæmis selja vörur sem eingöngu væri hægt að fá í Hafnarfirði. Við höfum sér­ verslanir eins og Kalaish og Siggu og Timo og þurfum fleiri slíkar,“ segir Björgvin. Björgvin var spurður hvort Hafnarfjörður væri víkingabær eða bær tónlistarmanna. „Það búa margir listamenn í Hafnarfirði og þá sérstaklega fer tónlistarmönnum fjölgandi. Við erum með fyrsta hljóðverið sem byggt var á Íslandi, Hljóðrita. Svo erum við Hafnfirðingar auð­ vitað allir víkingar inn við beinið.“ elin@365.is allir eru víkingar inn við beinið björgvin Halldórsson er Hafnfirðingur í húð og hár. Hann segist hafa búið víða á höfuðborgarsvæðinu en það jafnist ekkert á við Fjörðinn. Björgvin var að gefa út vinsæl Íslandslög á dögunum þar sem eru 40 vinsæl íslensk sönglög. Þar utan er hann farinn að undirbúa jólin. Heiðar j. Sveinsson, framkvæmda- stjóri Hyundai, stendur hér hjá tucson- jeppa sem er söluhæsti bíllinn hjá fyrirtækinu. Samheldinn hópur starfsmanna Hyundai í landsliðstreyjum en þar á bæ er ein- hugur um álit á íslenska karlalandsliðinu í knattspyrnu. Hyundai hefur verið hluti af bif­ reiðaumboðinu BL ehf. síðan 1992 en í september 2012 var  ákveðið að færa starfsemi Hyundai í ný og glæsileg húsakynni í Kauptúni 1 í Garðabæ. Ástæðan var meðal ann­ ars sú, að sögn Heiðars J. Sveins­ sonar framkvæmdastjóra, að þar væri hægt að hafa alla starfsem­ ina á einum stað og uppfylla staðla framleiðanda. „Hér á þessu svæði er bæði fullkomið þjónustuverk­ stæði og varahlutaverslun fyrir Hyundai­bíla auk þess sem boðið er upp á úrval notaðra vel með far­ inna Hyundai­bíla. Hér er því hægt að sækja alla þjónustu á einn stað sem er til mikils hagræðis fyrir viðskiptavini okkar.“ Heiðar segir Kauptún hafa orðið fyrir valinu af ýmsum ástæðum. „Húsnæðið er rúmgott og hentar okkar viðskipt­ um vel og aðkoman að húsinu auð­ veld og næg bílastæði. Það spillir svo ekki fyrir að hér eru fyrir sterk fyrirtæki sem draga að talsvert af fólki sem kallar á umferð sem að okkar mati hentar okkar viðskipt­ um líka. Það er auðvelt að komast hér að og auðvelt fyrir fólk að finna okkur.“ Aðalsmerki Hyundai er falleg hönnun og áreiðanlegir bílar og að fylgja bílasölu eftir með góðri þjón­ ustu eftir að bíllinn er keyptur. „Ný vörulína Hyundai er öll með 5 ára ábyrgð og ótakmarkaðan akstur auk þess sem viðskiptavinum Hyundai býðst að koma með bíla sína í gæða­ skoðun án endurgjalds hvenær sem er. Til að viðskiptavinir njóti alls þess besta sem bíleigendur geta hugsað sér fylgir 24 tíma vega­ aðstoð öllum nýjum Hyundai­bílum ef svo óheppilega vildi til að bíll­ inn bili á fimm ára ábyrgðartíman­ um,“ segir Heiðar. Hann segir hraða endur nýjun í tegundum undan­ farin ár. „Salan er mest hjá okkur í Tucson og I20 og svo gengur Santa Fe  alltaf vel. Hyundai stendur fyrir áreiðanleika og öryggi í rekstri sem hefur skilað okkur góðum viðskipt­ um við bílaleigur sem aftur hafa styrkt merkið á markaði.“ Í dag er Hyundai næstmest seldi bíll landsins eða með 10 pró­ senta markaðshlutdeild í fólksbíl­ um eftir fyrstu fimm mánuði árs­ ins og Heiðar er að vonum ánægð­ ur með það. „Okkar metnaður er að þjónusta viðskiptavini okkar eins vel og kostur er og það gerum við hér í Kauptúni. Við opnum á hverj­ um degi klukkan korter í átta og bjóðum upp á kaffi og að sjálf­ sögðu skutlum við viðskiptavin­ um bæði til og frá vinnu eða hvert sem er innan höfuðborgarsvæðis­ ins á meðan bíllinn er í viðgerð. Verið velkomin til okkar í Kaup­ tún,“ segir Heiðar að lokum. Hyundai stendur fyrir öryggi og gæði Hyundai hefur verið í Kauptúni í Garðabæ síðan 2012 og þar er öll starfsemi og þjónusta við viðskiptavini á einum stað. Heiðar J. Sveinsson framkvæmdastjóri segir aðalsmerki Hyundai vera fallega hönnun og áreiðanleika. Krókur á garðaholti. Krókur á Garðaholti er fallegur lítill bárujárnsklæddur burstabær sem var endurbyggður úr torfbæ árin 1923, 1934 og 1944 og er nú varðveittur með upprunalegu innbúi síðustu ábúenda, hjónanna Þorbjargar Stefaníu Guðjóns­ dóttur og Vilmundar Gíslasonar. Þorbjörg bjó í Króki allt til 1985 en eftir að hún lést gaf fjölskyldan Garðabæ bæjar­ húsin ásamt innbúi þannig að hægt væri að varðveita Krók. Sunnudaginn 3. júlí kl. 13 til 17 fá gestir safnsins í Króki á Garða­ holti tækifæri til að hitta Elínu Vilmundardóttur sem ólst upp á bænum, spjalla við hana og hlusta á hana segja frá lífinu þar. Systurnar Elín og Vilborg Vil­ mundardætur höfðu yfirum­ sjón með hvernig húsgögn­ um og munum var raðað þann­ ig að það væri eins og í tíð móður þeirra, enda verður sú tilfinning sterk þegar geng­ ið er um bæinn að gamla konan hafi bara rétt skroppið af bæ. Krókur er gott dæmi um alþýðu­ heimili frá fyrri hluta 20. aldar og má þar sjá ýmislegt forvitnilegt sem sumir muna eftir frá fyrri tíð. Í tilefni af endurkomu Elínar í Krók verður boðið upp á kaffi. Eins og aðra sunnudaga í sumar er opið kl. 13 til 17, ókeypis inn og allir velkomnir. Bílastæði eru við samkomuhúsið á Garðaholti. Segir frá lífinu í Króki Áður fyrr þekkti maður bæjarbúa og hverra manna fólk var á svipmóti og göngulagi. Björgvin Halldórsson garðabær og Hafnarfjörður Kynningarblað 30. júní 20162 3 0 -0 6 -2 0 1 6 0 4 :3 5 F B 0 9 6 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 D E -7 C 0 C 1 9 D E -7 A D 0 1 9 D E -7 9 9 4 1 9 D E -7 8 5 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 9 6 s _ 2 9 _ 6 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.