Fréttablaðið - 30.06.2016, Blaðsíða 84
Unnur Sara Eldjárn djasssöngkona
kemur fram í Norræna húsinu í kvöld,
30. júní, sem næsti listamaður í Arctic
Concerts röðinni.
„Ég ætla að syngja lög eftir mig aðal-
lega, þau flokkast undir djasstónlist,
rokk og fleiri stíla,“ upplýsir hún
þegar hún er spurð út í tónleikana í
Norræna húsinu í kvöld sem hefjast
þar klukkan 20.30. Hún kveðst alltaf
vera að semja.
En hún á ekki sviðið ein, heldur
verður Halldór Eldjárn, föðurbróðir
hennar, með henni og spilar á slag-
verk og líka Gréta Rún Snorradóttir
sem leikur á selló.
Unnur útskrifaðist úr djasssöngs-
námi frá Tónlistarskóla FÍH í fyrra og
gaf út disk á síðasta ári sem fékk góða
dóma. Gestir kvöldsins í Norræna
húsinu fá að heyra eitthvað af efni
hans, að sögn söngkonunnar.
Sumarvinnan hennar Unnar Söru
er bundin fleiru en söng. Hún er líka
úti á örkinni að afla fjár fyrir Rauða
krossinn. Þegar þetta viðtal fer fram
er hún stödd við Bónus á Smáratorgi
og stoppar þar, galvösk, fólk á röltinu.
Hún lætur vel af starfinu og viðtökum
almennings.
Á kvöldin kemur hún svo fram og
syngur djass. „Við Halldór og fleiri
erum með prógramm í gangi þar sem
við flytjum lög eftir Serge Gainsbourg,
þar syng ég á frönsku, við höfum feng-
ið góð viðbrögð.“ segir hún brosandi.
Lögin flokkast undir djasstónlist
Unnur er bæði að fást við tónsmíðar og söng. Fréttablaðið/anton brink
Margrét Bóasdóttir er í bíl milli L a u g a r v a t n s og borgarinnar þegar hún svar-ar símanum.
Hún er með handfrjálsan búnað og
því getur hún auðveldlega svarað
nokkrum spurningum um Sumar-
tónleika við Mývatn sem hún er
búin að plana allan júlímánuð og
hefjast um helgina.
„Það er nú eða aldrei. Þetta er
síðasta sumarið sem ég stjórna
þessari hátíð sem ég stofnaði fyrir
þrjátíu árum,“ segir hún og kveðst
sjálf fædd og uppalin í Mývatns-
sveit. „En ég hef um langt skeið búið
í fjarlægð frá sveitinni minni og er
komin með mörg krefjandi verk-
efni annars staðar. Ég á mjög góða
að fyrir norðan sem hjálpa mér en
það er bara ekki rétt leið að fjarstýra
svona stórum viðburðum.“
Fyrstu tóna hátíðarinnar í ár á
Tríó Fókus, með Ingveldi Ýr Jóns-
dóttur söngkonu, Margréti Th.
Hjaltested víóluleikara og Guðríði
St. Sigurðardóttur píanóleikara.
Þær koma fram í Reykjahlíðar-
kirkju klukkan 21 á laugardaginn.
Síðan rekur hver viðburðurinn
annan, af og til út mánuðinn. Sá
næsti eftir opnunartónleikana er
Fjárlagakvöld til minningar um
Jón Stefánsson organista sem lést
2. apríl síðastliðinn. Þá eru allir vel-
komnir til að syngja fjórraddað upp
úr nótnabókinni Íslensku söngva-
safni sem gjarnan er kölluð Fjár-
lögin, vegna myndar af kindum á
kápunni. Hún geymir þjóðlög, bæði
íslensk og erlend.
„Við ætlum að minnast Jóns dag-
inn sem hann hefði orðið sjötug-
ur,“ segir Margrét. „Við Jón vorum
systkinabörn og alin upp í húsum
hlið við hlið í Vogum í Mývatns-
sveit. Jón var sjálfur búinn að hugsa
sér að halda upp á sjötugsafmælið í
Mývatnssveitinni og mér er það ljúft
og skylt að gera það með þeim hætti
að fá fólk til að syngja fjórraddað
upp úr Fjárlögunum.“
Lengi hefur verið talað um Þing-
eyinga sem syngi í fjórum röddum.
Margrét segir að þau Jón hafi gert
sitt til að halda þeirri hefð við. „Á
ári söngsins 1992 og næstu ár á eftir
héldum við Jón helgarnámskeið
sem við kölluðum fjárlaganám-
skeið því þar voru sungin þjóðlögin
úr Íslensku söngvasafni. Jón lét líka
alltaf kórafólkið sitt syngja þessi lög
til gleði og gamans og Ríkisútvarpið
tók upp mörg þeirra í flutningi kórs
Langholtskirkju svo þau eru þar
varðveitt. Þannig að það var ein-
boðið að koma saman í minningu
Jóns og syngja ættjarðarlögin. Ég á
von á að þar verði vel mætt.“
En á Margrét von á að einhver
taki við keflinu eftir að hún hættir
að stýra Sumartónleikum við
Mývatn? „Ég er að reyna að leggja
drög að því. Það er glæsilegur tón-
listarmaður sem býr í sveitinni
sem liggur undir feldi. Hann tekur
þá bara sinn pól í hæðina, því allir
móta svona listrænt starf eftir sínu
höfði. En það væri synd ef hátíðin
legðist af. Það eru svo margir gestir
Fleira til að njóta en fagurt landslag
Sumartónleikar við Mývatn eru að hefjast um helgina og stendur hátíðin út júlímán-
uð í kirkjum sveitarinnar, samkomuhúsinu Skjólbrekku og bænhúsinu Rönd. Mar-
grét Bóasdóttir söngkona heldur utan um dagskrána í þrítugasta og síðasta skipti.
Margrét vonar að Sumartónleikar við
Mývatn leggist ekki af þó hún hætti að
stjórna þeim. Fréttablaðið/Hanna
ingveldur Ýr, Guðríður St. Sigurðardóttir og Margrét th. Hjaltested í tríói Fókus verða í reykjahlíðarkirkju á laugardagskvöldið.
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
í Mývatnssveit á sumrin og þessir
tónleikar hafa jafnan verið sérstak-
lega vel sóttir. Margir möguleikar
eru líka til tónleikahalds ekki bara
í kirkjunum heldur líka í jarðböð-
unum og Dimmuborgum. Ég hef
verið með helgistund og tónlist í
litla hellinum sem heitir Kirkjan í
Dimmuborgum.“
Einn af flytjendum Sumartónleika
við Mývatn er Benedikt Kristjánsson
tenór, sonur Margrétar, sem hún
segir hafa verið þátttakanda í fyrstu
tónleikunum fyrir 30 árum, en þá í
móðurkviði. Hann syngur 30. og 31.
júlí við undirleik Bjarna Frímanns
Bjarnasonar á píanó og orgel. Síðasti
viðburður hátíðarinnar er messa
í bænhúsinu á Rönd og þar verður
flutt tónlist frá hátíðinni. En hvar er
Rönd? „Það er sumarbústaðaland
við Sandvatn í eigu afkomenda
Guðmundar og Ernu sem áttu Bif-
reiðar og landbúnaðarvélar. Þegar
þau höfðu byggt bústaðinn létu þau
gera lítið bænhús úr torfi og grjóti.
Það er eftirmynd Reykjahlíðarkirkju
sem fór undir hraun 1724 og er eins
og lítill gimsteinn. Íslendingar eru
einstaklega duglegir að sækja guðs-
þjónustur í óbyggðum og öðrum
skrítnum stöðum þó þeir rati ekki
í sínar sóknarkirkjur svo ég vona að
þeir mæti á Rönd.
Aðgangur er ókeypis að flestum
sumartónleikunum við Mývatn.
Margrét kveðst hafa fengið framúr-
skarandi tónlistarfólk af öllu land-
inu til að koma þar fram, eins og
fyrri ár. „Ég er alltaf jafn stolt af því
að hafa svona gott fólk undir nafni
sumartónleikanna því það er svo
góðir fulltrúar menningar þjóðar-
innar. Það er líka gaman að ferða-
menn átti sig á að hér á Íslandi er
fleira til að njóta en fagurt landslag.
Jón vaR SJálfuR
Búinn að hugSa SéR
að halda upp á SJötugSaf-
Mælið í MývatnSSveitinni og
MéR eR það lJúft og Skylt að
geRa það Með þeiM hætti að
fá fólk til að SyngJa fJóR-
Raddað upp úR fJáRlögunuM.
3 0 . j ú n í 2 0 1 6 F I M M T U D A G U R52 M e n n I n G ∙ F R É T T A B L A ð I ð
3
0
-0
6
-2
0
1
6
0
4
:3
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
D
E
-2
3
2
C
1
9
D
E
-2
1
F
0
1
9
D
E
-2
0
B
4
1
9
D
E
-1
F
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
9
6
s
_
2
9
_
6
_
2
0
1
6
C
M
Y
K