Fréttablaðið - 30.06.2016, Blaðsíða 51
Agnes Helga Bjarnadóttir og Sigurður Guðjónsson eru ánægðir starfsmenn hjá Marel. Hún er rafvirki og hann er rafmagnsverkfræðingur. Þau segja að fyrirtækið bjóði upp á skemmtileg verkefni. MYND/ANTON BRINK
Á Íslandi starfa um 550 manns
við fjölbreytt störf hjá Marel,
meðal annars við framleiðslu, ný-
sköpun, viðhald, sölu og mark-
aðsstarf. Einnig er hér á landi
rekið eitt stærsta hugbúnaðarhús
landsins sem þróar og framleið-
ir In nova-hugbúnaðarlausn fyrir-
tækisins sem sér til þess að veita
viðskiptavinum rauntímaupplýs-
ingar um afköst, nýtingu og arð-
semi. Auk þess sem lausnin trygg-
ir fullkominn rekjanleika.
Agnes Helga Bjarnadóttir er
rafvirki sem hefur starfað hjá
Marel síðastliðin sex ár. Agnes
er í fámennum hópi kvenna sem
starfa við rafvirkjun hér á landi
en segir það ekki koma að sök hjá
Marel.
„Konur eru um eitt prósent
af stéttinni en þeim fer sem
betur fer fjölgandi. Ég starfaði
áður sem sjúkraliði og maður-
inn minn er hjúkrunarfræðingur
sem starfar við sölu á lækninga-
tækjum. Ástæðan fyrir því að
ég tók ákvörðun um að söðla um
var að ég fann þörf fyrir breyt-
ingu og hafði alltaf langað til þess
að starfa við rafvirkjun, sem var
einfaldlega ekki í boði fyrir konur
þegar ég var ung. Mér var sagt að
starfið væri of flókið og ég komst
hvergi að á samning. Þegar ég
ákveð að láta verða af þessari
breytingu starfaði ég á vökudeild
Barnaspítala Hringsins með ný-
burum og fyrirburum en eftir
fimmtán ár af næturvöktum og
vinnu á jólum og páskum fannst
mér einfaldlega komið nóg. Þar
að auki langaði mig að prufa að
vinna með körlum,“ segir Agnes.
„Á spítalanum eru kynjahlut-
föllin náttúrulega akkúrat öfug
við þau sem ég starfa við í dag og
það veitir mér ánægju að vinna
í jafn fjölbreyttum hópi starfs-
fólks og ég fæ að gera. Sjálf vinn
ég með smiðum og samsetn-
ingamönnum í flestum verkefn-
um, en það er líka svo ánægju-
legt að koma upp í fallega borð-
salinn okkar og geta sest niður
með stjórnendum, öðrum iðnaðar-
mönnum eða forriturum, sem
þrátt fyrir mismunandi starfs-
reynslu og bakgrunn eiga auðvelt
með að starfa sem ein heild hjá
Marel. Hérna stendur fólk saman
og manni líður eins og hluta af vel
samstilltri fjölskyldu.
Þegar ég var yngri óraði mig
ekki fyrir því að ég myndi fá tæki-
færi til þess að meðhöndla ýmis
verkfæri og tæki sem ég starfa nú
með daglega. Ég er þakklát fyrir
að hafa fengið að öðlast innsýn og
reynslu í verkefni sem áður fyrr
voru bara hluti af karlaheiminum,
eins og til dæmis bara að bora í
vegg.“
Sigurður Guðjónsson, raf-
magnsverkfræðingur og vél-
stjóri, hóf störf hjá Marel fyrir
rúmu ári. Sigurður hefur fjöl-
breyttan starfsferil að baki sem
hann segir koma sér að góðum
notum á degi hverjum við starf
sitt hjá Marel.
„Þær eru ófáar greinarnar
sem ég hef starfað við í gegnum
tíðina en starf mitt hefur þó oft-
ast eitthvað verið tengt iðnaði og
þjónustu. Björgunar sveitar störf,
vélstjóranámið, verkfræðikunn-
áttan sem og bein afskipti af
framleiðslustýringu hafa hjálp-
að mér að öðlast stöðugan og
góðan grunn til þess að sinna
starfi mínu vel hjá Marel,“ segir
Sigurður.
„Hér hjá Marel er aragrúi af
frábærum einstaklingum sem
margir hverjir hafa svipaða sögu
að segja og ég, það er, hafa fjöl-
breyttan bakgrunn og hafa fengið
að dafna og þroskast í starfi eftir
að þeir gengu til liðs við fyrirtæk-
ið. Persónulega hefur það þrosk-
að mig mikið að starfa í jafn frjóu
umhverfi og stórt nýsköpunar-
og framleiðslufyrirtæki eins og
Marel er.
Hjá Marel er manni boðið upp
á að fást við skemmtileg verk-
efni og skipulagið í kringum þau
er gott. Víðtæka þekkingu er að
finna í hverju horni og stöðugt er
ýtt undir að starfsfólk sæki sér
meiri þekkingu og miðli henni að
sama skapi til samstarfsfélaga
sinna. Ekki skemmir fyrir að hér
er bráðgott mötuneyti, aðstaða til
íþróttaiðkunar er til fyrirmynd-
ar og boðið er upp á margs konar
félagstarf fyrir starfsmenn og að-
standendur þeirra.“
Víðtæk þekking í hverju horni hjá Marel
Marel er í hópi stærstu útflutningsfyrirtækja landsins og er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu á háþróuðum búnaði og
kerfum til vinnslu á fiski, kjöti og kjúklingi. Um 550 frábærir starfsmenn starfa við fjölbreytt störf hjá fyrirtækinu á Íslandi.
Marel er með höfuðstöðvar að Austurhrauni 9 í Garðabæ.
Marel selur hugbúnaðarlausnir til margra landa víða um heiminn.
Starfsmenn hafa
fengið að dafna og
þroskast í starfi eftir að
þeir gengu til liðs við
fyrirtækið.
Sigurður Guðjónsson
Kynningarblað GARðABæR OG HAfNARfjöRðuR
30. júní 2016 9
3
0
-0
6
-2
0
1
6
0
4
:3
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
D
E
-7
7
1
C
1
9
D
E
-7
5
E
0
1
9
D
E
-7
4
A
4
1
9
D
E
-7
3
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
9
6
s
_
2
9
_
6
_
2
0
1
6
C
M
Y
K