Fréttablaðið - 30.06.2016, Blaðsíða 82
Það er aðeins súld en mjög fínt veður,“ segir Sigurður Guðmundsson listamaður, staddur á Djúpavogi. „Það er alltaf gott veður hér á
Íslandi. Ég bý í svo miklu hitabelti,
í Xiamen á suðausturströnd Kína, á
milli Sjanghaí og Hong Kong og mér
finnst gott að koma í svalann hér.“
Sigurður og Ineke kona hans eru
að drífa upp metnaðarfulla mynd
listarsýningu í Bræðslunni á Djúpa
vogi á vegum fyrirtækisins Chines
European Art Center sem Ineke á
og stjórnar. Sýningin nefnist Rúll
andi snjóbolti/7 og Katrín Jakobs
dóttir mun opna hana klukkan þrjú
á laugardaginn.
Gerðist gegnum augum
Þau Sigurður og Ineke hafa laðað
marga af þekktustu listamönnum
þjóðarinnar til sín og líka rjóma
erlendra samtímalistamanna, þar
sem ríkisakademían í Amsterdam
er gengin til liðs við þau.
En hvað kom til að þau tóku ást-
fóstri við Djúpavog? „Það var nú
engin söguleg tenging. Það gerðist
bara gegnum augun. Ég hef ekki
búið á Íslandi í 50 ár en við hjónin
eigum börn og barnabörn og langar
að tengja þau landinu. Því vildum
við kaupa okkur býli eða hús ein
hvers staðar og vorum búin að leita
á öllum útkjálkum landsins en fund
um ekkert sem hentaði. Einu sinni
vorum við að koma á húsbíl frá Evr
ópu með Norrænu og halda í enn
eina ferðina kringum landið. Lögð
um bílnum hér í bænum og sváfum
yfir nótt skammt frá Hammers
minni, þegar við vöknuðum um
morguninn var staðurinn baðaður
sól og skammt frá stóð autt hús sem
var til sölu. Við öfluðum upplýsinga
hjá nágrönnum og úr varð að við
keyptum húsið. Síðar byggðum við
nýtt hús inni í því gamla. Það sést
ekki og þetta er okkar sveitastaður
síðan.“
Sigurður lýkur lofsorði á Djúpa
vog. „Hér er fallegt og hér býr svo
flott fólk sem er búið að vera í öllum
heiminum, vel upplýst lið. Þessu
sýningarstandi okkar hefur verið
tekið opnum örmum af öllum,“
segir hann og bætir við að þetta sé
þriðja sumarið í röð sem þau sýni
samtímalist helstu listamanna
heimsins í Bræðslunni.
Eins og New York París eða Róm
„Allir þekktustu listamenn Íslend
inga eru búnir að sýna hér ásamt
þeim sem verða hér núna. Við
ákváðum að hafa þetta bara eins og
við værum að sýna í New York, París
eða Róm. Þetta minnir á íslenska
fótboltaliðið – hvers vegna ekki við?
Við segjum: Hvers vegna ekki hér?
Það virðist ætla að skila sér. Þó að
þetta séu listamenn sem eru þekktir
og alþjóðlegir þá koma þeir.“
Er það ekki af því þið hjón eruð svo
þekkt og alþjóðleg? „Jú, eflaust. Við
erum auðvitað vinir í bransanum.“
Kristján, bróðir Sigurðar er á listan
um yfir þá sem sýna í ár. „Hann er
einn af uppáhaldslistamönnunum
mínum, hann Kristján bróðir. Við
erum búin að sýna hér alla nema
Ólaf Elíasson og honum hefur alltaf
verið boðið en hann er bara svo
upptekinn. Hann er náttúrlega bara
orðinn stórfyrirtæki og gerir það vel
á sinn hátt.“
Þó sýningin heiti Rúllandi snjó
bolti þá rúllar hún ekki víðar heldur
verður á Djúpavogi út sumarið.
Sigurður stefnir líka að því að skilja
eitthvað fallegt eftir fleira en minn
ingar um flotta sýningu. „Við erum
að gróðursetja. Ég sé fyrir mér að
einhvern tíma verði vísir að nútíma
listasafni á Djúpavogi og til að láta
þá sýn rætast bað ég tvo félaga mína
um að gefa hingað öflug listaverk. Ég
geri slíkt hið sama, ég tók með mér
risastórt verk frá Kína sem ég ætla að
gefa. Verkin verða á sýningunni. Þetta
er bara byrjunin. Ég sé ekki hvað væri
því til fyrirstöðu að það væri alvöru
Modern Art musemum hér á Djúpa
vogi, það þarf ekki að vera stórt, það
þarf bara að vera sterkt.“
Ekki kveðst Sigurður hafa fundið
listasafninu stað en hefur ekki
áhyggjur af því. „Hér er miklu klár
ara fólk en ég sem mun gera það.“
Eggin, verk Sigurðar rétt við
bryggjuna á Djúpavogi, eru sívinsælt
skoðunarefni. „Þar sem ég stend sé
ég að það er krökkt af fólki kringum
eggin að láta taka mynd af sér,“ segir
listamaðurinn glaðlega. „En nú er
konan að toga í mig, finnst víst ég
vera of fjölmiðlaglaður!“
þegar við vöknuð
um um morguninn
var staðurinn baðaður sól
og skammt frá stóð autt
hús sem var til sölu. við
öfluðum upplýsinga hjá
nágrönnum og úr varð að
við keyptum húsið.
fremstu listamenn heims
sýna á Djúpavogi
hjónin sigurður guðmundsson myndlistarmaður og ineke
guðmundsson forstjóri hafa fengið úrval listamanna á heims-
mælikvarða til að sýna á Djúpavogi í sumar, þriðja árið í röð.
Þau Sigurður og Ineke Guðmundsson kunna vel við sig á Djúpavogi og láta heimamenn og gesti njóta þess. MYND/ERla DóRa VoGlER
Íslenskir listamenn arna óttars
dóttir, Árni Páll Jóhannsson,
Berglind Ágústsdóttir, Dagrún
aðalsteinsdóttir, Egill Sæbjörns
son, Elín Hansdóttir, Finnbogi
Pétursson, Geirþrúður Finn
bogadóttir Hjörvar, Hekla Dögg,
Hrafnkell Sigurðsson, Hreinn
Friðfinnsson, Kristján Guð
mundsson, Magnús Pálsson,
Margrét Blöndal, olga Bergmann,
ólöf Nordal, Ragna Róberts
dóttir, Ragnar Kjartansson, Rúna
Þorkelsdóttir, Rúrí, Sigurður
Guðmundsson, Þór Vigfússon.
listamenn við Rijksakademie,
amsterdam í Hollandi Christine
Moldrickx, Eva Spierenburg,
Josefin arnell, Juliaan andeweg,
Marije Gertenbach, Matthijs
Munnik, Mercedes azpilicueta,
Pauline Curnier Jardin, Robbert
Weide, Tamar Harpaz.
þau sýna á rúllanDi
snjóbolta 2016
3 0 . j ú n í 2 0 1 6 F I M M T U D A G U R50 M e n n I n G ∙ F R É T T A B L A ð I ð
menning
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
3
0
-0
6
-2
0
1
6
0
4
:3
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
D
E
-0
F
6
C
1
9
D
E
-0
E
3
0
1
9
D
E
-0
C
F
4
1
9
D
E
-0
B
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
9
6
s
_
2
9
_
6
_
2
0
1
6
C
M
Y
K