Fréttablaðið - 30.06.2016, Blaðsíða 84

Fréttablaðið - 30.06.2016, Blaðsíða 84
Unnur Sara Eldjárn djasssöngkona kemur fram í Norræna húsinu í kvöld, 30. júní, sem næsti listamaður í Arctic Concerts röðinni. „Ég ætla að syngja lög eftir mig aðal- lega, þau flokkast undir djasstónlist, rokk og fleiri stíla,“ upplýsir hún þegar hún er spurð út í tónleikana í Norræna húsinu í kvöld sem hefjast þar klukkan 20.30. Hún kveðst alltaf vera að semja. En hún á ekki sviðið ein, heldur verður Halldór Eldjárn, föðurbróðir hennar, með henni og spilar á slag- verk og líka Gréta Rún Snorradóttir sem leikur á selló. Unnur útskrifaðist úr djasssöngs- námi frá Tónlistarskóla FÍH í fyrra og gaf út disk á síðasta ári sem fékk góða dóma. Gestir kvöldsins í Norræna húsinu fá að heyra eitthvað af efni hans, að sögn söngkonunnar. Sumarvinnan hennar Unnar Söru er bundin fleiru en söng. Hún er líka úti á örkinni að afla fjár fyrir Rauða krossinn. Þegar þetta viðtal fer fram er hún stödd við Bónus á Smáratorgi og stoppar þar, galvösk, fólk á röltinu. Hún lætur vel af starfinu og viðtökum almennings. Á kvöldin kemur hún svo fram og syngur djass. „Við Halldór og fleiri erum með prógramm í gangi þar sem við flytjum lög eftir Serge Gainsbourg, þar syng ég á frönsku, við höfum feng- ið góð viðbrögð.“ segir hún brosandi. Lögin flokkast undir djasstónlist Unnur er bæði að fást við tónsmíðar og söng. Fréttablaðið/anton brink Margrét Bóasdóttir er í bíl milli L a u g a r v a t n s og borgarinnar þegar hún svar-ar símanum. Hún er með handfrjálsan búnað og því getur hún auðveldlega svarað nokkrum spurningum um Sumar- tónleika við Mývatn sem hún er búin að plana allan júlímánuð og hefjast um helgina. „Það er nú eða aldrei. Þetta er síðasta sumarið sem ég stjórna þessari hátíð sem ég stofnaði fyrir þrjátíu árum,“ segir hún og kveðst sjálf fædd og uppalin í Mývatns- sveit. „En ég hef um langt skeið búið í fjarlægð frá sveitinni minni og er komin með mörg krefjandi verk- efni annars staðar. Ég á mjög góða að fyrir norðan sem hjálpa mér en það er bara ekki rétt leið að fjarstýra svona stórum viðburðum.“ Fyrstu tóna hátíðarinnar í ár á Tríó Fókus, með Ingveldi Ýr Jóns- dóttur söngkonu, Margréti Th. Hjaltested víóluleikara og Guðríði St. Sigurðardóttur píanóleikara. Þær koma fram í Reykjahlíðar- kirkju klukkan 21 á laugardaginn. Síðan rekur hver viðburðurinn annan, af og til út mánuðinn. Sá næsti eftir opnunartónleikana er Fjárlagakvöld til minningar um Jón Stefánsson organista sem lést 2. apríl síðastliðinn. Þá eru allir vel- komnir til að syngja fjórraddað upp úr nótnabókinni Íslensku söngva- safni sem gjarnan er kölluð Fjár- lögin, vegna myndar af kindum á kápunni. Hún geymir þjóðlög, bæði íslensk og erlend. „Við ætlum að minnast Jóns dag- inn sem hann hefði orðið sjötug- ur,“ segir Margrét. „Við Jón vorum systkinabörn og alin upp í húsum hlið við hlið í Vogum í Mývatns- sveit. Jón var sjálfur búinn að hugsa sér að halda upp á sjötugsafmælið í Mývatnssveitinni og mér er það ljúft og skylt að gera það með þeim hætti að fá fólk til að syngja fjórraddað upp úr Fjárlögunum.“ Lengi hefur verið talað um Þing- eyinga sem syngi í fjórum röddum. Margrét segir að þau Jón hafi gert sitt til að halda þeirri hefð við. „Á ári söngsins 1992 og næstu ár á eftir héldum við Jón helgarnámskeið sem við kölluðum fjárlaganám- skeið því þar voru sungin þjóðlögin úr Íslensku söngvasafni. Jón lét líka alltaf kórafólkið sitt syngja þessi lög til gleði og gamans og Ríkisútvarpið tók upp mörg þeirra í flutningi kórs Langholtskirkju svo þau eru þar varðveitt. Þannig að það var ein- boðið að koma saman í minningu Jóns og syngja ættjarðarlögin. Ég á von á að þar verði vel mætt.“ En á Margrét von á að einhver taki við keflinu eftir að hún hættir að stýra Sumartónleikum við Mývatn? „Ég er að reyna að leggja drög að því. Það er glæsilegur tón- listarmaður sem býr í sveitinni sem liggur undir feldi. Hann tekur þá bara sinn pól í hæðina, því allir móta svona listrænt starf eftir sínu höfði. En það væri synd ef hátíðin legðist af. Það eru svo margir gestir Fleira til að njóta en fagurt landslag Sumartónleikar við Mývatn eru að hefjast um helgina og stendur hátíðin út júlímán- uð í kirkjum sveitarinnar, samkomuhúsinu Skjólbrekku og bænhúsinu Rönd. Mar- grét Bóasdóttir söngkona heldur utan um dagskrána í þrítugasta og síðasta skipti. Margrét vonar að Sumartónleikar við Mývatn leggist ekki af þó hún hætti að stjórna þeim. Fréttablaðið/Hanna ingveldur Ýr, Guðríður St. Sigurðardóttir og Margrét th. Hjaltested í tríói Fókus verða í reykjahlíðarkirkju á laugardagskvöldið. Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is í Mývatnssveit á sumrin og þessir tónleikar hafa jafnan verið sérstak- lega vel sóttir. Margir möguleikar eru líka til tónleikahalds ekki bara í kirkjunum heldur líka í jarðböð- unum og Dimmuborgum. Ég hef verið með helgistund og tónlist í litla hellinum sem heitir Kirkjan í Dimmuborgum.“ Einn af flytjendum Sumartónleika við Mývatn er Benedikt Kristjánsson tenór, sonur Margrétar, sem hún segir hafa verið þátttakanda í fyrstu tónleikunum fyrir 30 árum, en þá í móðurkviði. Hann syngur 30. og 31. júlí við undirleik Bjarna Frímanns Bjarnasonar á píanó og orgel. Síðasti viðburður hátíðarinnar er messa í bænhúsinu á Rönd og þar verður flutt tónlist frá hátíðinni. En hvar er Rönd? „Það er sumarbústaðaland við Sandvatn í eigu afkomenda Guðmundar og Ernu sem áttu Bif- reiðar og landbúnaðarvélar. Þegar þau höfðu byggt bústaðinn létu þau gera lítið bænhús úr torfi og grjóti. Það er eftirmynd Reykjahlíðarkirkju sem fór undir hraun 1724 og er eins og lítill gimsteinn. Íslendingar eru einstaklega duglegir að sækja guðs- þjónustur í óbyggðum og öðrum skrítnum stöðum þó þeir rati ekki í sínar sóknarkirkjur svo ég vona að þeir mæti á Rönd. Aðgangur er ókeypis að flestum sumartónleikunum við Mývatn. Margrét kveðst hafa fengið framúr- skarandi tónlistarfólk af öllu land- inu til að koma þar fram, eins og fyrri ár. „Ég er alltaf jafn stolt af því að hafa svona gott fólk undir nafni sumartónleikanna því það er svo góðir fulltrúar menningar þjóðar- innar. Það er líka gaman að ferða- menn átti sig á að hér á Íslandi er fleira til að njóta en fagurt landslag. Jón vaR SJálfuR Búinn að hugSa SéR að halda upp á SJötugSaf- Mælið í MývatnSSveitinni og MéR eR það lJúft og Skylt að geRa það Með þeiM hætti að fá fólk til að SyngJa fJóR- Raddað upp úR fJáRlögunuM. 3 0 . j ú n í 2 0 1 6 F I M M T U D A G U R52 M e n n I n G ∙ F R É T T A B L A ð I ð 3 0 -0 6 -2 0 1 6 0 4 :3 5 F B 0 9 6 s _ P 0 9 3 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 8 4 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 9 D E -2 3 2 C 1 9 D E -2 1 F 0 1 9 D E -2 0 B 4 1 9 D E -1 F 7 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 9 6 s _ 2 9 _ 6 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.