Fréttablaðið - 30.06.2016, Side 6

Fréttablaðið - 30.06.2016, Side 6
Kletthálsi 2 • 110 Reykjavík • Sími 590 2160 • Opið virka daga kl. 10–18 og laugardaga kl. 12–16 Mercedes-Benz Ljúfir gæðabílar – en smá notaðir Kíktu á úrvalið á www.notadir.is www.notadir.is Verð 11.990.000 kr. Afb./mán. 101.200 kr.* Verð 3.490.000 kr. Afb./mán. 25.500 kr.* Verð 7.650.000 kr. Afb./mán. 64.500 kr.* *Mánaðargreiðsla m.v. 50% útborgun og lán í 84 mánuði. Vextir 9,25%, árleg hlutfallstala kostnaðar er 10,9–10,98% GL 350 4MATIC Árgerð 2012, ekinn 26 þús. km, sjálfskiptur, dísil, 211 hö. Búnaður: Nálgunarvarar, LED innilýsing, On/Off Road pakki með lágu drifi, 19“ álfelgur, skrautlistar o.fl. B 180 NTG Árgerð 2011, ekinn 45 þús. km, sjálfskiptur, bensín/metan. Búnaður: Krómpakki, 16“ álfelgur, bakkskynjarar, hiti í fram- sætum, loftkæling o.fl. E 220 CDI Árgerð 2014, ekinn 12 þús. km, sjálfskiptur, dísil, 170 hö. Búnaður: LED dagljósabúnaður, Metallic lakk, Artico leður, nálgunarvarar, Avantgarde útfærsla o.fl. LögregLumáL Verkefnum alþjóða- deildar ríkislögreglustjóra hefur fjölgað mikið síðustu tvö ár sam- hliða auknum fjölda umsækjenda um alþjóðlega vernd. Á síðasta ári stóð alþjóðadeild að 69 fram- kvæmdum þar sem 123 einstak- lingum var fylgt með lögregluvaldi úr landi. Það sem af er ársins 2016 er þeir orðnir 131. Aðgerð lögreglu í Laugarnes- kirkju var að beiðni Útlendinga- stofnunar. Sérsveit lögreglu aðstoð- aði alþjóðadeild við aðgerðina. Myndband sem sýndi aðgerð lög- reglu vakti óhug með almenningi. Á því sést lögreglumaður slá til ungs manns sem var viðstaddur brottflutninginn. Þá sjást Írak- arnir tveir sem voru handteknir og fluttir til Noregs dregnir eftir kirkjugólfinu. Séra Kristín Tómas- dóttir, sóknarprestur í Laugarnes- kirkju, sagði aðfarir lögreglu harka- legar og þörf á breytingum sem tækju mið af mannúð. „Stjórnvöld verða að hætta að skýla sér á bak við Dyflinnarreglugerðina í stað þess að veita hverjum einstaklingi efnislega meðferð og þannig sýna honum þá virðingu sem hann á skilið,“ sagði Kristín. Siðmennt tekur undir gagnrýni Kristínar á að Útlendingastofnun og lögregla beiti harkalegum aðgerðum við brottvísun flótta- manna, í stað þess að láta mann- úðarsjónarmið ráða ferðinni. Fjórir Írakar fengu vernd í meðferð Útlendingastofnunar í maímánuði eftir efnislega meðferð. Írakarnir tveir sem voru sóttir af lögreglu voru hins vegar sendir til Noregs samkvæmt Dyflinnarreglugerðinni. Jón Bjartmars, yfirmaður alþjóðadeildar ríkislögreglustjóra, segir nú verið að taka saman skýrslur frá lögreglumönnum sem komu að framkvæmd máls- ins. „Ávallt er reynt að haga fram- kvæmd með sem mildilegasta hætti,“ segir Jón spurður um hvert leiðarljós lögreglumanna er við aðgerðir sem þessar. Athygli vakti að sérsveit ríkis- lögreglustjóra tók þátt í aðgerð- unum. Jón segir sérsveit ekki alltaf kallaða til. „Nei, það fer eftir því mati sem liggur fyrir í hverju til- viki fyrir sig,“ segir Jón. Hann bendir á að ríkislögreglustjóri hafi ítrekað bent á þörf á auknum mannafla til embætta lögreglu. kristjanabjorg@frettabladid.is 131 fluttur úr landi með lögregluvaldi Árið 2015 annaðist lögregla að beiðni Útlendinga- stofnunar fylgd 123 einstaklinga frá landinu og það sem af er ársins 2016 eru þeir orðnir 131. Aðgerð lögreglu í Laugarneskirkju hefur verið harðlega gagnrýnd. Yfirmaður alþjóðadeildar bíður skýrslu frá lögreglumönnum sem tóku þátt í aðgerðinni. 123 einstaklingar fóru í lögreglu- fylgd úr landi á síðasta ári. 131 einstaklingur hefur farið í lögreglufylgd á þessu ári. 4 Írakar fengu vernd í maímánuði. Jón Bjartmars, yfirmaður alþjóðadeildar ríkislögreglustjóra Nýja-SjáLaNd Bærinn Kaitangata á Nýja-Sjálandi á við einstakt vandamál að stríða en þar er fjöldi lausra starfa og mikið laust húsnæði en of fáir íbúar. Bæjarstjórnarmenn í þessum átta hundruð manna bæ reyna nú að laða að íbúa með spennandi tilboði. Þeir sem flytja til bæjarins fá hús og land fyrir rétt rúmar 20 milljónir íslenskra króna. Vonast er til þess að koma einnig í veg fyrir brottflutning með þessu móti. Um þúsund laus störf eru í hérað- inu og bara tveir ungir atvinnulausir í bænum. Helstu atvinnurekendur á svæðinu tengjast frumatvinnugrein- um. Hingað til hafa þeir verið með starfsmenn sem koma með rútum í allt að klukkutíma fjarlægð frá verk- smiðjunum. Í The Guardian er haft eftir Evan Dick mjólkurbónda að samfélagið sé gamaldags. „Við læsum ekki húsunum okkar, börnin hlaupa frjáls. Við erum með störf, og húsnæði, en vantar bara fólk. Við viljum gæða bæinn lífi á ný og bíðum með opinn faðminn.“ – sg Nýsjálenskur bær lofar nýbúum 20 milljónum Lentar á Spáni Michelle Obama, forsetafrú í Bandaríkjunum, er í fararbroddi út úr þotunni við komuna á herflugvöllinn Torrejon de Ardoz í Madríd á Spáni í gær. Á eftir henni koma dætur forsetahjónanna, Malia og Sasha, og svo móðir hennar, Marian Shields Robinson. Forsetafrúin er á Spáni til að fylgja eftir lærdómsátakinu Let Girls Learn sem hleypt var af stokkunum í mars í fyrra. FréttaBlaðið/EPa 3 0 . j ú N í 2 0 1 6 F I m m T u d a g u r6 F r é T T I r ∙ F r é T T a B L a ð I ð 3 0 -0 6 -2 0 1 6 0 4 :3 5 F B 0 9 6 s _ P 0 9 1 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 8 6 K _ N Ý. p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 D E -3 6 E C 1 9 D E -3 5 B 0 1 9 D E -3 4 7 4 1 9 D E -3 3 3 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 9 6 s _ 2 9 _ 6 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.