Fréttablaðið - 30.06.2016, Síða 34

Fréttablaðið - 30.06.2016, Síða 34
Rapparinn Árni Páll Árna­ son, eða Herra Hnetusmjör, sem er undrabarn úr austur hluta Kópavogs að eigin sögn, henti fyrsta lagi sínu á netið fyrir tveim­ ur árum og hefur ekki stoppað síðan. Fatastíll hans einkennist bæði af mjög látlausum og þægi­ legum fatnað en einnig mjög áber­ andi fötum. Týpískur fatnaður samanstendur af svartri hettu­ peysu, derhúfu og lillabláum satín­ jakka. Hann fílar flotta skó og stóra jakka, ljósbláar og svartar gallabuxur. Stórar keðjur og gott úr setja svo punktinn yfir i­ið. Hvenær fékkstu áhuga á tísku? Ég byrjaði að pæla í tísku þegar ég fór til Bandaríkjanna tíu ára gamall. Ég kíkti inn í búðina Ecko unltd og sá þar risastóra jakka, derhúfur, víðar gallabuxur og keðjur. Það varð ekki aftur snúið. Síðan þá hef ég aðeins slakað á og rokka ekki föt sem eru fimm númerum of stór. Hvernig blandast tónlistar- og tískuheimurinn? Tónlistin og listamenn hafa auðvitað massa­ áhrif á mann. Ég elska eiginlega allt sem Rick Ross klæðist. Hann á leðurjakkasafn, marga hverja úr krókódílaskinni og er þekktur fyrir að rokka Versace­silki­ skyrtur. Ég las líka að hann ætti eitt stærsta vintage sólgleraugna­ safn í heiminum, sem er nett. Svo spilar rappið auðvitað inn í skó­ áhugann; Jordans alla daga. Hvernig fylgist þú helst með tískunni? Ég fylgist í rauninni ekkert með tísku, nema helst í gegnum tónlistarmyndbönd og á Instagram þar sem ég spotta eitthvað nett. Svo er Joe Frazier að benda mér á nett stöff. Hann kynnti mig t.d. fyrir Tommy Hilfiger merk­ inu en ég keypti slatta af þannig flíkum um daginn. Áttu þér uppáhalds- verslanir? Ég er lítið í því að fara í verslunar­ leiðangra heldur kaupi frekar á netinu eða bara í bölki þegar ég fer til útlanda. Nýlega fór ég til Bandaríkjanna og ef ég ætti að nefna einhverjar búðir eru það Tommy Hilfiger, Ralph Lauren og Levi’s. Áttu uppáhaldshönnuði? Ég er ekki nógu djúpt í leiknum til að eiga uppáhaldshönnuði. Þó fíla ég munstrin í Versace þótt ég eigi engar flíkur frá því merki. Samt á ég sturluð sólgleraugu frá Ver­ sace. Hérna heima er það klárlega Reykjavík Roses. Eyðir þú miklu í föt miðað við jafnaldra þína? Ég er ekkert að spyrjast fyrir um hvað hómís eru að eyða í föt. Held samt að ég sé ekkert að missa mig meira en félagar mínir, við erum slakir. Áttu þér uppáhaldsflík? Það er klárlega KBE­jakkinn minn sem er blár baseball­jakki með hvítum ermum sem ég lét gera á netinu. Þetta er í rauninni bara Yankees­jakki með KBE áletrun í staðinn, sem er heitið á genginu mínu. Bestu og verstu kaup þín? Bestu kaupin eru sennilega KBE­ jakkinn en verstu kaupin eru örugg­ lega einhver jakki sem ég týndi stuttu eftir að ég keypti hann. Notar þú fylgihluti? Já, ég elska fylgihluti og er nær alltaf með keðju, hring og úr. Ef ég er í stuði nota ég sólgleraugu. Hvað er helst að gerast í tón- listinni hjá þér í sumar? Ég kom fram á Secret Solstice tónlistar­ hátíðinni sem var mjög gaman. Síðan kem ég fram á Húkkara­ ballinu á Þjóðhátíð í Vestmanna­ eyjum síðar í sumar. Annars hlakka ég til að gefa út efnið sem ég sit á. Ég er búinn að vinna nýtt efni þó ég hafi ekki gefið neitt út síðan í desember. Það er lager á leiðinni. Jakkinn er frá Tommy Hilfiger og buxurnar frá Levi’s. Myndir/Eyþór Buxurnar eru frá Levi’s og bolurinn frá ralph Lauren. KBE- húfa á hausnum og Jordans-skór. Fólk Er kyNNiNgarBlað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar- efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson | Umsjónarmenn efnis: Sólveig gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351, Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 | Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 2447, Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434, Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 KBE jakkinn er í mestu uppá- haldi. Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna Stærðir 38-58 Flott sumarföt fyrir flottar konur Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook Góðar gallabuxur Háar í mittið 7/8 lengd 2 litir kr. 14.900.- str. 36-46/48 K-BRÚN Íslensk hönnun Sundlaugarvegi Sími: 517 3640 Opið 11:30 - 18:00 3 0 . j ú n í 2 0 1 6 F I M M T U D A G U R2 F ó l k ∙ k y n n I n G A R b l A ð ∙ T í s k A 3 0 -0 6 -2 0 1 6 0 4 :3 5 F B 0 9 6 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 D E -5 E 6 C 1 9 D E -5 D 3 0 1 9 D E -5 B F 4 1 9 D E -5 A B 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 9 6 s _ 2 9 _ 6 _ 2 0 1 6 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.