Fréttablaðið - 30.06.2016, Page 40

Fréttablaðið - 30.06.2016, Page 40
Tvíburasysturnar Mary-Kate og Ashley Olsen hanna undir merkjum The Row sem er lúxus- merki og Elizabeth and James sem er hversdags- legra. Þær þykja hafa einstakt auga fyrir smáat- riðum og eru óhræddar við að setja ólíka hluti saman. Þær klæðast gjarnan mörgum lögum og eru fötin yfirleitt þremur númerum of stór. Þær leggja sömuleiðis mikla áherslu á handtöskur og flatbotna skó ásamt retróskarti. Fatastíll þeirra systra er langt frá því að vera dæmigerður fyrir Hollywood þar sem algengara er að sjá skósíða hafmeyjukjóla. Þær þykja eftir sem áður yfir- máta smart og virðast taka sig vel út í nánast hverju sem er. Þær eru jafnframt ófeimnar við að klæða sig í stíl, sem almennt þykir ekki til eftir- breytni, og komast yfirleitt alltaf upp með það. Hér eru örfá atriði sem einkenna stíl þeirra systra: l Jakkar í yfirstærð yfir víða skyrtu og fleiri flíkur l Kjólar í yfirstærð l Víðar buxur l Marglaga svartur klæðnaður, gjarnan með mismunandi efnisáferð l Loð og leður l Flatbotna skór, gjarnan í herralegri kantinum l Ökklasíðir kjólar l Skósíðir maxí-kjólar l Stórar handtöskur l Retróskart Áhugasamir geta kynnt sér hönnun þeirra systra á therow.com og elizabethandjames.us Komast upp með hvað sem er Fatahönnuðirnir Mary-Kate og Ashley Olsen hafa verið áberandi á rauða dreglinum frá unga aldri og eru tískufyrirmyndir margra. Þær klæðast oftar en ekki mörgum lögum og velja yfirleitt föt í yfirstærð. Marglaga svartur klæðnaður er einkennandi fyrir Olsen-systur. Sömuleiðis stórar handtöskur og flatbotna skór. Jakkar í yfirstærð fara systrunum vel. Meryl Streep í hlutverki sínu sem Miranda Priestly. Tíu ár eru síðan myndin The Devil Wears Prada kom út en þar sýndi Meryl Streep snilldarleik sem hin illræmda Miranda Priestly. Löngum hefur verið talið að Streep hafi fengið innblást- ur fyrir hlutverk sitt frá Önnu Wintour, ritstjóra Vogue, en hún hefur nú upplýst að svo er ekki. Persónusérkenni Miröndu Priestly fékk hún héðan og þaðan. Rödd- ina fékk hún til að mynda frá leik- stjóranum og stórleikaranum Clint Eastwood. „Hann hækkar aldr- ei, aldrei, aldrei, röddina sem gerir að verkum að allir þurfa að sperra eyrun til að hlusta. Þetta gerir hann sjálfkrafa að valda- mestu manneskjunni á svæðinu,“ sagði Streep í viðtali við Variety. Þurran húmor Miröndu fékk Streep frá leikstjóranum Mike Nichols en hún hefur starfað með honum að nokkrum myndum. Útlitið er blanda frá tveimur konum. Fyrst hinni stórglæsilegu leikkonu og fyrirsætu Carmen Dell’Orefice sem er þekkt fyrir hvíta og háa hárgreiðsluna. „Ég vildi blanda saman stíl hennar við glæsileika og valdsmannlega fram- komu Christine Lagarde.“ Fékk innblástur Frá Eastwood Christine Lagarde Clint Eastwood Carmen Dell’Orefice 3 0 . j ú n í 2 0 1 6 F I M M T U D A G U R8 F ó l k ∙ k y n n I n G A R b l A ð ∙ T í s k A 3 0 -0 6 -2 0 1 6 0 4 :3 5 F B 0 9 6 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 D E -5 9 7 C 1 9 D E -5 8 4 0 1 9 D E -5 7 0 4 1 9 D E -5 5 C 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 9 6 s _ 2 9 _ 6 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.