Fréttablaðið - 30.06.2016, Síða 72
Fótbolti Augu alheimsins beinast að
Íslandi þessa dagana og ljóst að það
verður gríðarleg athygli á leik liðsins
gegn Frakklandi í 8 liða úrslitum EM
á Stade de France á sunnudag.
Fjölmiðlar víða um heim keppast
við að hlaða íslenska liðið lofi og gera
íslenska ævintýrinu góð skil. Franskir
fjölmiðlar einbeita sér þó öðru frem-
ur að liðinu sjálfu og hvað franska
liðið þurfi að gera til að slá íslensku
víkingana úr leik á sunnudag.
Gregoire Fleurot er blaðamaður
stærsta íþróttablaðs Frakklands,
L'Equipe, og hann hefur fylgt
íslenska liðinu eftir síðan í mars.
Hann segir að væntingar Frakka
séu skýrar. Þeir vilji vinna mótið á
heimavelli.
Vilja fara alla leið
„Það væru þess vegna mikil von-
brigði að tapa fyrir Íslandi,“ sagði
hann í samtali við Fréttablaðið í
gær. Þá var nýlokið þéttsetnum
blaðamannafundi íslenska liðsins á
Novotel-hótelinu í Annecy.
„Forseti franska knattspyrnusam-
bandsins sagði fyrir mótið að lág-
marksvæntingar væru að ná í und-
anúrslitin. En allir búast við því að
liðið geti farið alla leið,“ segir hann.
L'Equipe helgaði íslenska liðinu
fjórar síður í útgáfu sinni í dag. „Tvær
um hvernig Ísland spilar og hversu
gott liðið er. Það vita flestir að Ísland
er með gott lið og fólk vill nú skilja
af hverju Ísland hefur náð góðum
árangri gegn sterkum liðum eins og
Englandi.“
Glapræði að vanmeta Ísland
Það hefur mátt heyra á sérfræðing-
um í franska sjónvarpinu að þeir
telji að franska landsliðið eigi að
vinna það íslenska.
„Það væri glapræði að vanmeta
íslenska liðið úr þessu. Ég hef nú
ekki heyrt mikið sjálfur af umræðu
sérfræðinga en get ímyndað mér
að það sé einfaldlega hluti af
umræðunni í sjónvarpi að hafa
skiptar skoðanir, þar sem meðal
annars svona ummæli falla.“
Undirbúningur verður réttur
Didier Deschamps, landsliðsþjálf-
ari Frakklands, átti ótrúlegan leik-
mannaferil. Hann vann nánast allt
sem hægt var að vinna. Hann var
landsliðsfyrirliði heims- og Evr-
ópumeistaraliðs Frakklands sem
unnu titlana 1998 og 2000 og vann
Meistaradeild Evrópu með tveimur
liðum – Marseille og Juventus. Hann
er einn þriggja fyrirliða í sögunni
til að lyfta öllum
þremur bikur-
unum, ásamt
Franz Becken-
bauer og Iker
Casillas.
„Deschamps mun ekki
vanmeta Ísland. Hann er
mjög alvörugefinn þjálfari
sem lifir fyrir samkeppni og
mót eins og þessi. Hann hefur
gert þetta allt saman áður og veit að
það eru engin smálið á stórmótum.
Ég held að honum takist að hafa
andlegan undirbúning liðsins fyrir
þennan leik réttan.“
Fleurot minnir á að verðandi
heimsmeistarar Frakklands fengu
erfiðan leik í 16 liða úrslitum HM
1998. „Það var gegn Paragvæ, sem
átti að heita smálið, og reyndist
einn erfiðasti leikur mótsins. Frakk-
land vann næstum 1-0 í framleng-
ingu og var næstum búið að tapa.
Þjálfarinn er mjög meðvitaður um
þær hættur sem stafa af Íslandi.“
Veikir á köntunum
Mikið hefur verið fjallað um það
sem Ísland gerir vel og landsliðs-
þjálfurunum hefur verið tíðrætt um
að lykilatriði í velgengni liðsins sé
hversu vel íslenska liðinu tekst að
nýta sína styrkleika. En hverja telur
Fleurot vera veikleika Íslands?
„Það er erfið spurning. Ég veit allt
um styrkleika liðsins,“ segir hann og
brosir. „Ísland er með mjög sterka
miðverði, miðjumenn og svo tvo
framherja sem vinna gríðarlega
mikið. Það er kannski helst að kant-
arnir séu viðkvæmir. Þegar England
ákvað að spila breitt og sækja upp
kantana komu bestu færi þeirra í
leiknum. Það er því helst að veik-
leikar íslenska liðsins liggi þar.“
Hann hefur gert
þetta allt saman
áður og veit að það eru engin
smálið á stór-
mótum.
Gregoire Fleurot,
blaðamaður á
L’Equipe
Í dag
17.30 Bridgestone Invit. Golfstöðin
21.00 Valur - Bröndby Sport 2
22.00 Sumarmessan Sport 2
Evrópudeild UEFA
19.15 KR - Glenavon
19.15 Breiðablik - FK Jelgava
21.00 Valur - Bröndby
Pepsi-deild kvenna
19.15 Stjarnan - ÍA
Inkasso-deildin
19.15 Leiknir R. - Haukar
19.15 HK - Fram
19.15 Selfoss - KA
ÍSLAND ALLTAF á uPPLEIð
Ísland er komið upp í 7. sætið á
styrkleikalista The Guardian yfir
liðin 24 á EM 2016.
Íslenska liðið stekkur upp um
sex sæti á styrkleikalistanum eftir
sigurinn á Englandi á mánudaginn.
Ekkert lið hækkar sig um jafn mörg
sæti á styrkleikalista The Guardian
eftir 16 liða úrslitin og Ísland.
Belgar koma næstir en þeir fara
upp um fjögur sæti eftir sigurinn
á ungverjalandi í Toulouse. Þjóð-
verjar taka efsta sætið af Króötum
sem falla niður um átta sæti og
niður í það níunda.
Ítalir eru í 2. sæti, Belgar í því
þriðja, Frakkar í fjórða og
Walesverjar eru komnir
upp í 5. sætið eftir
sigurinn á N-Írlandi.
Evrópumeistarar
Spánverja, sem
voru í efsta sætinu,
eru dottnir niður
í 11. sæti og Englend-
ingar í það fjórtánda.
Íslenska liðið var í
16. sæti á fyrsta styrk-
leikalistanum sem The
Guardian birti, 13. sæti
á öðrum og þriðja
og er nú komið upp
í 7. sætið eins og
áður sagði.
Nýjast
EM2016
http://www.seeklogo.net
Eiríkur Stefán Ásgeirsson
eirikur@365.is
Deschamps mun ekki
vanmeta Ísland
Blaðamaður L'Equipe á ekki von á að hinn almenni stuðningsmaður
franska landsliðsins muni vanmeta Ísland í leik liðanna í 8 liða úr-
slitum EM á sunnudag. Það verði þó erfitt fyrir íslensku vörnina.
Didier Deschamps, þá fyrirliði franska
landsliðsins, lyftir hér Evrópumeistara-
bikarnum við hlið Zinedine Zidane eftir
sigur Frakka 2000. FRéttABLAðIð/GEtty
Didier Deschamps,
Franz Beckenbauer og Iker
Casillas eru þeir einu sem
hafa verið fyrirliðar liða sem
hafa unnið HM, EM og
Meistaradeild Evrópu.
Ungir og hraðir leik-
menn á bekknumn hjá
franska landsliðinu
Engu liði hefur tekist að brjóta
íslenska liðið, sem er enn ósigrað
á EM í Frakklandi, niður. Gregoire
Fleurot, blaðamaður hins virta
íþróttablaðs L’Equipe, telur að
breiddin í leikmannahópi Frakk-
lands gæti reynst íslenska liðinu
erfið í leiknum á Stade de France á
sunnudaginn.
„Frakkland er að mínu mati með
betra sóknarlið en bæði Portúgal
og England. Það þýðir þó ekki
endilega að Frökkum muni takast
að brjóta íslensku vörnina niður og
skora 2-3 mörk,“ segir hann.
Frakkar hafa þegar skorað sex
mörk á mótinu eða jafnmikið og
íslenska liðið. „Frakkar hafa verið
að skora seint í leikjum og þegar
lið á unga og hraða menn eins
og Kingsley Coman og Anthony
Martial, leikmenn sem spila með
Bayern München og Manchester
Untied, á bekknum gæti það verið
erfitt fyrir þreytta varnarmenn
[Íslands] að takast á við þá eftir að
hafa glímt við Antoine Griezmann
og Dimitri Payet allan leikinn,“
segir Fleurot.
Pepsi-deild karla í fótbolta
ÍA - Stjarnan 4-2
0-1 Hilmar Árni Halldórsson (5.), 1-1 Garðar
Gunnlaugsson, víti (8.), 1-2 Brynjar Guð-
jónsson (56.), 2-2 Garðar Gunnlaugsson
(63.), 3-2 Darren Lough (66.), 4-2 Garðar
Gunnlaugsson (73.).
Efst
FH 20
Fjölnir 19
Víkingur Ó. 17
Breiðablik 16
Stjarnan 14
ÍBV 13
Neðst
Valur 11
Víkingur R. 11
ÍA 10
KR 9
Þróttur 7
Fylkir 5
Pepsi-deild kvenna í fótbolta
Valur - Þór/KA 6-1
Elín Metta Jensen 3, Margrét Lára Viðars-
dóttir 2, Laufey Björnsdóttir - Margrét
Árnadóttir.
ÍBV - Breiðablik 0-4
Hallbera Guðný Gísladóttir 2, Fanndís Frið-
riksdóttir, Svava Rós Guðmundsdóttir.
Fylkir - KR 1-1
0-1 Sigríður María Sigurðardóttir (28.), 1-1
Berglind Björg Þorvaldsdóttir (57.).
Selfoss - FH 2-0
1-0 Lauren Elizabeth Hughes (21.), 2-0
Magda lena Anna Reumis (67.).
Efst
Breiðablik 14
Stjarnan 13
Valur 11
Selfoss 9
Þór/KA 8
Neðst
FH 7
ÍBV 6
KR 6
Fylkir 4
ÍA 1
3 0 . j ú n í 2 0 1 6 F i M M t U D A G U R40 s P o R t ∙ F R É t t A b l A ð i ð
sport
3
0
-0
6
-2
0
1
6
0
4
:3
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
D
E
-5
4
8
C
1
9
D
E
-5
3
5
0
1
9
D
E
-5
2
1
4
1
9
D
E
-5
0
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
9
6
s
_
2
9
_
6
_
2
0
1
6
C
M
Y
K