Fréttablaðið - 30.06.2016, Blaðsíða 86

Fréttablaðið - 30.06.2016, Blaðsíða 86
Félagarnir Adrian og Costi í dálítið mislukkaðri fjársjóðsleit. The Treasure HHHHH Leikstjóri og handritshöfundur: Corneliu Porumboiu Framleiðandi: Marcela Ursu Aðalleikarar: Toma Cuzin, Adrian Purcarescu og Corneliu Cozmei Rúmenía var lengstum lítt þekkt fyrir kvikmyndagerð en það breyttist kringum 2005 eða svo þegar nokkrir athyglisverðir rúmenskir leikstjórar spruttu fram á sjónarsviðið og síðan þá hafa athyglisverðar rúmenskar myndir borist okkur á hverju ári. Cornelio Porumboiu er einn af þess- um leikstjórum, þekktur fyrir myndir á borð 12:08 East of Bucharest. The Treasure er nýjasta myndin hans og hefur hún unnið til fjölda verðlauna um heim allan undanfarið. Myndin segir frá Costi nokkrum sem lætur fjárþurfi nágranna sinn Adrian plata sig í fjársjóðsleit á gam- alli landareign úti í sveit. Costi notar allt sparifé sitt, og fær auk þess lán- aðan pening frá tengdaföður sínum, til að leigja málmleitarvél og þeir skunda af stað og hefja leitina, en hún gengur ekki alveg eins og þeir vonuðu. The Treasure er hæglát en lúmsk gamanmynd, jafnvel svolítið þurr (en á góðan hátt, að mestu). Þetta er ekki beint mynd þar sem maður skellir upp úr reglulega heldur fær hún mann smám saman til að brosa og byggir hægt og rólega upp absúrd aðstæður og lætur þær virka trúverð- ugar, þótt fáránleikinn sem liggur að baki sé aldrei langt undan. Hetjurnar tvær, Adrian og Costi, eru ekki skörpustu hnífarnir í skúff- unni og auk þess mjög örvæntingar- fullir. Myndin er sannarlega ádeila á rúmenskt samfélag sem er enn þá að rífa sig upp úr kommúnismanum, og það kemst vel til skila jafnvel fyrir okkur sem erum ekki endilega sér- fróð um það. Skriffinnskan er allsráðandi og mögulega það sem helst lifir af gömlu kommún- ista-Rúmeníu. Hérna fáum við að sjá eitthvað sem e.t.v. fæstir sjá fyrir sér þegar hugsað er um Rúmeníu: Milli- stéttarfólk sem lifir tiltölulega venjulega vestrænu lífi. Þrátt fyrir arfleifð kommúnismans lifir þetta fólk ágætis lífi með flestum nútíma þægindum. En engu að síður gætu hlutirnir verið miklu betri og menn eru til í gera fáránlegustu hluti til að bæta líf sitt, eins og að leita að göml- um fjársjóðum í bakgörðum eða ljúga að yfirmanni sínum að maður sé að halda framhjá konunni sinni frekar en að segjast vera að fara í fjársjóðs- leit. Það er margt í gangi í þessari mynd en um leið er hún samt frekar einföld. Hún er líka hæg, stundum virkar það mjög vel en hún verður þó fullhæg í seinnihlutann og nær ekki alltaf að halda athygli manns. Hugsanlega hefði hún virkað enn betur sem stutt- mynd. Hægagangurinn er vissulega ákveðið stílbrigði en myndin verður full endurtekningarsöm á köflum. En svo kemur myndin á óvart í lokin og endar ekki alveg eins og maður hefði búist við, og atburðirnir öðlast aukna dýpt. Þessi óvænti endir bætir að einhverju leyti upp fyrir hægaganginn í seinnihlutanum. Atli Sigurjónsson. NiðursTaða: Lúmsk og hæglát gamanmynd um venjulegt fólk í fárán- legum aðstæðum. Fullhæg og endur- tekningarsöm í seinnihlutann en samt fyndin og skemmtilega óvenjuleg. Fjársjóðsleit í fáránlegum aðstæðum Hæglát en lúmsk gamanmynd þar sem örvæntingarfulla tvíeykið Adrian og Costi endurspegla Rúmeníu í andarslitrum kommúnismans svo úr verður óvænt stuð. Frumsýningar THe BFG Ævintýra-/fjölskyldumynd Aðalhlutverk: Mark Rylance, Ruby Barnhill og Penelope Wilton. Frumsýnd 1. júlí. IMDb 7,4 Mike And dAve need WeddinG dATes Grínmynd Aðalhlutverk: Aubrey Plaza, Anna Kendrick og Zac Efron Frumsýnd 6. júlí. THe LeGend oF TARzAn Ævintýra- og hasarmynd. Aðalhlutverk: Margot Robbie, Alexander Skarsgård og Christoph Waltz. Frumsýnd 6. júlí IMDb 7,9/10 The Treasure Allt sem þú þar ... Skv. prentmiðlakönnun Gallup, janúar–mars 2016 íbúa á höfuðborgarsvæðinu á aldursbilinu 12–80 ára lesa Fréttablaðið daglega.* 59,5% Sá öldi myndi fara langt með að fylla sæti Laugardalsvallar tíu sinnum. 59,5% lesa Fréttablaðið 28,6% lesa Morgunblaðið 3 0 . j ú N í 2 0 1 6 F i M M T u D a G u r54 M e N N i N G ∙ F r É T T a B L a ð i ð bíó 3 0 -0 6 -2 0 1 6 0 4 :3 5 F B 0 9 6 s _ P 0 9 1 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 8 6 K _ N Ý.p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 9 D E -3 6 E C 1 9 D E -3 5 B 0 1 9 D E -3 4 7 4 1 9 D E -3 3 3 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 9 6 s _ 2 9 _ 6 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.