Fréttablaðið - 30.06.2016, Blaðsíða 94
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Magnúr Geir var leikhússtjóri áður en hann tók við útvarpsstjórahlutverkinu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFáN
Eyðir fríinu í leikstjórastólnum
Magnús Geir útvarpsstjóri ætlar að taka sér leyfi frá störfum hjá Ríkisútvarpinu. Í leyfinu snýr hann aftur í Borgar-
leikhúsið þar sem hann starfaði áður en hann segist spenntur að komast aftur í leikhúsið ásamt gömlum vinum.
Önnur verk
Magnúsar
Gauragangur
Nei, ráðherra!
Stone Free
Svartur köttur
Óliver
Litla hryllingsbúðin
Fullkomið brúðkaup
Ilmur Kristjánsdóttir
mun taka sér stutt leyfi
frá borgarstjórn til þess
að leika aðalhlutverk í
leikritinu.
Hilmir Snær
fer með eitt af
aðalhlutverk-
unum.
Elma Lísa fer
með aukahlut-
verk í gaman-
leikritinu.
Halldóra Geir-
harðsdóttir fer
með eitt af aðal-
hlutverkunum í
verkinu en hún
er ein ástsælasta
leikkona lands-
ins.
8. - 15. SEPTEMBER 2016
GARDAVATNIÐ
ÍTALÍA
Frábær ferð á glæsilegum stað. Dvalið á
fjögurra stjörnu hóteli með góðum aðbúnaði.
Innifalið skoðunarferð umhverfis Gardavatnið
og dagsferð til Verona. Farastjóri í þessir ferð
verður Hlíf Ingibjörnsdóttir.
NÁNAR Á UU.IS
Leikhúsbakterían og ástríð-an fyrir leikhúsinu hverfur aldrei,“ segir Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri en í byrjun næsta árs mun
hann leikstýra gamanleikriti í Borg-
arleikhúsinu en vera á þeim tíma í
leyfi frá störfum hjá Ríkisútvarpinu.
„Ég er leikhúsmaður í grunninn og
var upprunalega leikstjóri áður en
ég fór að fikra mig meira í yfirstjórn-
ina, fyrst í leikhúsunum og svo nú
hjá RÚV. Ég hlakka svakalega til að
fá að takast á við þetta skemmtilega
verkefni.“
Magnús tók við starfi útvarps-
stjóra RÚV fyrir tveimur árum en
áður stýrði hann Borgarleikhús-
inu með góðum árangri. „Við erum
búin að vera í stórum og skemmti-
legum verkefnum hér í RÚV sem er
á góðri siglingu. Mikið breytinga-
ferli er langt komið og staðan sterk.
Það hefur nokkrum sinnum verið
leitað til mín með leikstjórnar-
verkefni en það var ekki fyrr en
nú sem mér fannst rétti tíminn
kominn. Ég hef leikstýrt verkum af
öllu tagi í gegnum tíðina en það er
alltaf svo skemmtilegt að setja upp
gamanverk. Ég veit að vinnan verður
skemmtileg og vonandi mun það
skila sér til áhorfenda.“
Aðspurður um líkindi milli hlut-
verks leikhússtjórans og útvarps-
stjórans segir Magnús að þessi
störf séu að mörgu leyti svipuð þó
annað sé ólíkt. „Það eru viss líkindi.
Í báðum tilvikum er um að ræða
mikilvægar menningarstofnanir og
ég er fyrst og fremst maður menn-
ingarinnar. RÚV er hins vegar tölu-
vert stærra og stundum eru flóknari
hagsmunir sem því tengjast. Það
verður kærkomið að stíga aftur inn
í leikhúsið og fá að andlega næringu.
Sumir nýta fríið sitt í að liggja í sól-
inni en á næsta ári ætla ég að nýta
það í að leikstýra og næra andann.“
Leikritið hefur enn ekki fengið
íslenskt nafn en það er eftir einn vin-
sælasta gamanleikjahöfund í heimi,
Ray Cooney. Verkið heitir Caught in
the net á ensku og var fyrst gefið út
árið 2007. Ray samdi meðal annars
leikritin Nei, ráðherra! sem Magnús
leikstýrði og naut gríðarlegra vin-
sælda. Gísli Rúnar Jónsson íslenskar
verkið og búið er að koma saman
glæsilegum hópi leikara. „Það sem
gerir þetta enn skemmtilegra er
þessi flotti hópur af fólki sem ég
verð að vinna með, algert einvala-
lið. Svo verður ekki lítið gaman að
vinna aftur með gömlu vinunum í
Borgarleikhúsinu.“
Með aðalhlutverk fara Hilmir
Snær Guðnason, Ilmur Kristjáns-
dóttir og Halldóra Geirharðsdóttir.
Í öðrum hlutverkum verða þau
Bergur Þór Ingólfsson, Elma Stef-
anía Ágústsdóttir, Halldór Gylfason
og Hilmar Guðjónsson. „Við Ilmur
erum í svipuðum sporum, því hún
er einmitt að koma inn í leikhúsið
aftur eftir nokkra fjarveru. Það er
mikil eftirvænting og gleði hjá
okkur öllum að fá að takast á við
þetta verkefni,“ segir Magnús. Ilmur
mun einnig taka sér stutt leyfi frá
borgarstjórn á meðan æfingarnar
fara fram. gunnhildur@frettabladid.is
Það hEfur nokkrum
sinnum vErið lEitað
til mín mEð lEikstjórnar-
vErkEfni En Það var Ekki
fyrr En nú sEm mér fannst
rétti tíminn kominn.
3 0 . j ú n í 2 0 1 6 F I M M T U D A G U R62 L í F I ð ∙ F R É T T A B L A ð I ð
3
0
-0
6
-2
0
1
6
0
4
:3
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
D
E
-1
E
3
C
1
9
D
E
-1
D
0
0
1
9
D
E
-1
B
C
4
1
9
D
E
-1
A
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
9
6
s
_
2
9
_
6
_
2
0
1
6
C
M
Y
K