Morgunblaðið - 21.10.2016, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 21.10.2016, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2016 Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Píratar og Sjálfstæðisflokkur fengju hvor um sig 15 þingmenn yrði gengið til kosninga núna. Þetta sýnir könnun sem Félagsvís- indastofnun Háskóla Íslands gerði fyrir Morgunblaðið á fylgi flokk- anna fyrir alþingiskosningarnar 29. október. Samkvæmt henni eru Píratar stærsti flokkur landsins með 23% fylgi, Sjálfstæðisflokkur mælist næststærstur með 21% og Vinstri græn eru með 19% fylgi og 13 þingmenn. Framsóknarflokkurinn mælist með 9% og sex þingmenn, Viðreisn mælist með 9% og fengi sex þingmenn, en fylgi Viðreisnar mælist nú um fjórðungi minna en í síðustu tveimur könnunum þegar 11-12% sögðust ætla að kjósa flokkinn. Samfylkingin fengi 6% og fjóra þingmenn og Björt framtíð mælist með sama fylgi og sama þing- mannafjölda. Flokkur fólksins mælist með 4% og nær ekki manni á þing. Aðrir flokkar mælast með minna. Ýmsir möguleikar Verði þetta niðurstöður kosning- anna er tveggja flokka meirihluta- stjórn ekki möguleg, en allnokkrir möguleikar eru á þriggja flokka stjórn. Til dæmis gætu Píratar og Sjálfstæðisflokkur myndað stjórn með hvaða flokki sem er af þeim flokkum sem ná inn þingmönnum samkvæmt könnuninni. Sé litið til hugmyndar Pírata um kosningabandalag með stjórnar- andstöðuflokkunum og Viðreisn, væri hægt að mynda slíka þriggja flokka stjórn með aðild Pírata og VG, sem samkvæmt könnuninni fá samtals 28 þingmenn og annað- hvort Samfylkingu, Bjartri framtíð eða Viðreisn. Þetta er þriðja könnunin sem Félagsvísindastofnun vinnur fyrir Morgunblaðið þar sem fylgi flokk- anna fyrir komandi kosningar er kannað, en þær fyrri voru birtar 7. og 14. október. Séu niðurstöður þeirra bornar saman við þá sem hér er kynnt sjást talsverðar sveiflur í fylgi sumra flokka. Til dæmis mældist fylgi Pírata 20% í fyrstu könnuninni, 18% í þeirri næstu og nú mælist það 23%. Fylgi Bjartrar framtíðar sveiflast einnig nokkuð, fyrst var það 4%, síðan 8% og nú mælist það 6%. Þá hefur VG bætt við sig einu pró- sentustigi með hverri könnun. Fylgi Sjálfstæðisflokksins stendur í stað frá fyrri könnun, en var 26% í þeirri fyrstu. Reyndir þingmenn detta út Þegar fylgi flokkanna í ein- stökum kjördæmum er skoðað sést m.a. að Oddný G. Harðardóttir, formaður Samfylkingarinnar, nær inn á þing en fyrri kannanir Fé- lagsvísindastofnunar sýndu að hún yrði utan þings. Flokkurinn næði ekki inn manni í Reykjavíkurkjör- dæmi suður, en þar leiðir Össur Skarphéðinsson þingmaður listann. Aðrir reyndir þingmenn sem ekki næðu inn á þing, ef kosningar færu á sama veg og niðurstöður könnunarinnar, eru m.a. Helgi Hjörvar Samfylkingu, Vilhjálmur Bjarnason Sjálfstæðisflokki og Karl Garðarsson Framsóknar- flokki. Könnunin var gerð dagana 13. og 16. - 19. október. Um var að ræða bæði net- og símakönnun og var fjöldi í úrtaki 2.300. Svarhlut- fall var 59,4% og þar af tóku 81,2% afstöðu. Áfram sveiflast fylgið  Margir möguleikar eru á þriggja flokka stjórn samkvæmt nýrri könnun Félagsvísindastofnunar HÍ  Formaður Samfylkingarinnar kemst inn á þing Fylgi flokka fyrir alþingiskosningar H ei m ild :F él ag sv ís in da st of nu n H ás kó la Ís la nd s Niðurstöður skoðanakönnunar Félagsvísindastofnunar HÍ fyrir Morgunblaðið Sjálfstæðisflokkurinn Vinstri GrænPíratar SamfylkinginViðreisnFramsóknarflokkurinn Björt framtíð Flokkur fólksins Ísl. þjóðfylkingin Dögun Alþýðufylkingin Annar flokkur eða listi Úrslit kosninga 2013 Skoðanakönnun 6.okt. Skoðanakönnun 13.okt. 26 ,7 % 26 % 21 ,5 % 22 ,6 % 21 ,1 % 18 ,6 % 9, 1% 8, 8% 6, 5% 6% 3, 8% 1, 6% 1, 2% 0, 5% Húmanistaflokkurinn 0 % Fl. heimilanna 0, 2% 0, 1% 19 ,8 % 5, 1% 17 ,5 % 16 ,5 % 10 ,9 % 17 ,7 % 11 ,7 % 11 ,4 % 9, 7% 24 ,4 % 8, 6% 6, 3% 12 ,9 % 6, 9% 4, 1% 8, 2% 7,7 % 3, 2% 3% 2, 2% 2, 7% 3, 1% 0, 3% 1 ,9 % 0, 3% 0, 1% 0, 8% 0, 1% 0%0, 1% 0% 3% 0% 0%0, 1% Hver ætlar að kjósa hvern? kjósenda 60 ára og eldri ætla að kjósa Sjálfstæðisflokkinn 25% kjósenda 18-29 ára ætla að kjósa Pírata 39% kvenna ætla að kjósa Vinstri græn 23% karla ætla að kjósa Sjálfstæðis- flokkinn 24% „Við þökkum þetta traust og vonumst eftir því að þetta muni skila sér úr kjör- kössunum þegar þar að kemur. Við tökum þessu að öðru leyti með æðruleysi og þakklæti,“ segir Ásta Guðrún Helgadóttir, fyrsti maður á lista Pí- rataflokksins í Reykjavík- urkjördæmi suður. Mun vonandi skila sér á kjördag Ásta Guðrún Helgadóttir „Ég get ekkert skýrt þetta, en það eina sem við getum gert er að berjast fyrir jafnaðarstefn- unni sem við vit- um að á erindi. Það er ekkert um annað að ræða fyrir okkur,“ segir Oddný G. Harðardóttir, for- maður Samfylkingarinnar. Berjast fyrir jafnaðarstefnunni Oddný Harðardóttir „Við erum búin að vera að kynna kosningamálin okkar og erum að koma þeim enn betur á framfæri og ég er sannfærð um að lokadagar kosningabarátt- unnar muni skila okkur meira fylgi en þessi könnun sýnir,“ segir Lilja Alfreðsdóttir, fyrsti maður á lista Framsóknarflokksins í Reykja- vík suður. Sannfærð um að fylgið muni aukast Lilja Alfreðsdóttir „Ég ætla ekki einu sinni að reyna að skýra þetta. Það er greinilegt að fylgið er á fleygiferð og það eina sem við getum sagt er; þetta höfum við gert og þetta er stefn- an,“ segir Brynjar Níelsson, annar maður á lista Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður. Flokk- urinn mælist með 15% fylgi í kjördæminu. „Það er mjög mikið áhyggjuefni fyrir flokkinn hve lítill hann mælist í Reykjavík. Það er ekki eins og það hafi verið stórkost- leg stjórn í borginni,“ segir Brynjar. Áhyggjuefni fyrir flokkinn Brynjar Níelsson „Það svolítið erf- itt að átta sig á stöðunni þar sem mikil hreyfing er á fylgi. Við höfum fundið fyrir mikl- um stuðningi og áhuga,“ segir Óttarr Proppé, þingmaður og formaður Bjartr- ar framtíðar. Svolítið erfitt að átta sig á stöðunni Óttarr Proppé „Við erum bara að byrja og lít- um svo á að hvert einasta prósent í plús sé sigur. Yf- irleitt höfum við fengið já- kvæð viðbrögð hvar sem við komum,“ segir Benedikt Jó- hannesson, formaður Viðreisnar. Lítum á hvert prósent sem sigur Benedikt Jóhannesson „Við í framboði höfum verið á ferðalagi undan- farna daga og finnum fyrir miklum stuðn- ingi. Ég er því ekkert hissa að þessar skoðana- kannanir endur- spegli jákvæðni gagnvart stefnu Vinstri grænna,“ segir Lilja Rafney Magnúsdóttir, 1. maður á lista VG í NV-kjördæmi. Endurspeglar já- kvæðni í garð VG Lilja Rafney Magnúsdóttir Láttu okkur ráða Elja starfsmannaþjónusta 4 150 140 elja.is elja@elja.is Þarftu að ráða? Iðnaðarmann Bílstjóra Bifvélavirkja Þjónustufólk Öryggisvörð Lagerstarfsmann Matreiðslumann ALÞINGISKOSNINGAR 2016
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.