Morgunblaðið - 21.10.2016, Blaðsíða 61
Glæsilegt Aðalbygging hótelsins er gamli Franski spítalinn, uppgerður í hólf og gólf og allur hinn reisulegasti.
Jón Agnar Ólason
jonagnar@mbl.is
Í húsi á Fáskrúðsfirði sem áður fyrr
var sjúkrahús ætlað frönskum sjó-
mönnum er að finna nýtískulegt og
fallegt hótel sem tilheyrir keðju Foss-
hótela. Að sögn hótelstjórans, Helgu
Guðmundsdóttur Snædal, er franska
taugin römm enda sagan yfir og allt
um kring við hótelið. „Umhverfið hér
við hótelið er bæði einstaklega fal-
legt, bæði heillandi og róandi segir
Helga hótelstýra þegar við tökum tal
saman en hótelið opnaði í september
2013 og fagnaði því nýverið þriggja
ára afmæli sínu.
Þar sem sögulegt og nýuppgert
fer saman í órofa heild
Eins og Helga segir frá er að-
albygging hótelsins það sem áður
kallaðist Franski spítalinn á Fá-
skrúðsfirði. Húsið mátti um áratuga
skeið muna sinn fífil fegurri en var
svo góðu heilli tekið til gagngerrar
endurnýjunar sem lauk á því að það
opnaði sem hótel, fyrir þremur árum
eins og fyrr segir. Alls eru bygging-
arnar nú fjórar sem heyra undir hót-
elið í dag. „Upprunalega var hótelið
26 herbergi í þremur byggingum sem
allar eru sögulegar. Þar er fyrst að
nefna gamla Franska spítalann, þá
Læknisbústaðinn sem var dval-
arstaður læknisins sem einnig var
ræðismaður Frakka en þar erum við
bæði með herbergi og móttöku ásamt
því að þar er inngangur í Franska
safnið okkar Fáskrúðsfirðinga. Við
höfum fjögur herbergi í Sjúkraskýl-
inu svokallaða sem er við hliðina á áð-
urnefndu móttökuhúsi. Sjúkraskýlið
er sambyggt kapellunni, sem er
blessuð af kaþólskum presti sem og
prestinum okkar hérna á Fáskrúðs-
firði, og er því vel nýtilegt til hvers
kyns bænahalds, og nú í sumar tók-
um við í gagnið nýbyggingu sem í eru
21 glæsileg hótelherbergi“ útskýrir
Helga. Eins og sjá má á myndum frá
því fyrir uppgerð gamla spítalans hef-
ur upprunalegt og sérstætt lag bygg-
ingarinnar fengið að halda sér þó hús-
ið hafi verið endurnýjað frá grunni.
Vel hefur tekist að feta hið fíngerða
einstigi milli þess að endurnýja og
varðveita. Helga tekur undir þetta.
„Einmitt þess vegna eru herbergin á
hótelinu dálítið óhefðbundin því að-
eins nýbyggingin var byggð sem hót-
elbygging, hinar byggingarnar eru
aðlagaðar að nýju hlutverki.“
Ómetanlegt útsýni yfir fjörðinn
Í því felst þó kostur en enginn galli,
sé að gáð. „Herbergin eru af ýmsum
stærðum og flest þeirra alveg svaka-
lega rúmgóð, yfirleitt vel umfram það
sem fólk á að venjast á hótelum yf-
irleitt. Flestir sem hingað koma kjósa
svo vitaskuld að hafa útsýni yfir fjörð-
inn enda er það ólýsanlega fallegt.“
Lesendur geta gert sér þetta í hug-
arlund með aðstoð meðfylgjandi
mynda. Þar sést glögglega að engu er
logið um fegurð fjarðarins. Út frá
hótelinu liggur svo nýlega smíðaður
bryggjusporður sem gestir geta
gengið út eftir og notið þar útsýnis
bæði og kyrrðar. „Hér var bryggja í
gamla daga en þessi var smíðuð, með
rammgerðum hætti, um svipað leyti
og spítalahúsið var gert upp. Veit-
ingasalurinn okkar á jarðhæðinni
snýr að bryggjunni og gestir okkar,
bæði kvölds og morgna, sitja og njóta
útsýnisins meðan þeir gæða sér á
veitingunum. Að matnum loknum er
síðan vinsælt að ganga beint úr veit-
ingasalnum og út á bryggjuna til að fá
sér ferskt loft eftir matinn, dást að
fjalla- og fjarðarsýninni og njóta
kyrrðarinnar sem hér er. Oft sést til
sela og jafnvel háhyrninga leika sér
inni í firðinum og það leiðist fólki síð-
ur en svo að sjá. Ég myndi því segja
að hótelið okkar hér fyrir austan sé
hinn fullkomni áfangastaður þegar
meiningin er að stinga af frá stress-
inu, skipta um umhverfi og hlaða
batteríin í frábærri slökun.“
Franska safnið og „íbúar“ þess
Hinn franski andi svífur því yfir
vötnum við Fosshótelið á Fáskrúðs-
firði og gestirnir fara ekki varhluta af
því. Meðal annars fá þeir aðgang að
franska safninu, eins og Helga út-
skýrir.
„Gamli spítalinn og læknasetrið
standa hvort sínu megin við Hafn-
argötuna en tengjast með und-
irgöngum undir götunni. Þar á gang-
inum er hluti safnsins og göngin eru í
raun innréttuð eins og frönsk skúta,“
útskýrir Helga. „Þar sitja sjómenn í
káetum sínum og fást við sitt. Þetta
er mjög vinsælt til skoðunar og gest-
um okkar þykir sagan fróðleg og
áhugaverð – þó að næturverðirnir
hraði oftast göngu sinni þarna í gegn
á næturnar,“ bætir hún við og hlær.
Helga bætir því við að franski graf-
reiturinn sé aðeins um 500 metra frá
hótelinu þar sem skoða megi leiði
franskra sjómanna sem fórust við sjó-
sókn fyrr á öldum. Minningu þeirra
er enn fremur sómi sýndur með ýmsu
móti við hótelið. Þar má nefna að veit-
ingastaður hótelsins heitir því
franska nafni L’Abri, sem merkir
skjól eða var, og veggi hótelsins, bæði
herbergi og ganga, prýða gamlar
myndir af sjómönnum. Einnig eru
frönsk orð prentuð á sandblást-
ursfilmu í gluggum herbergjanna,
ásamt íslenskri þýðingu í næsta
glugga. Þá nefnir Helga að á milli
Læknabústaðarins og Sjúkraskýl-
isins renni lækur og þar hafi verið
komið fyrir sæslípuðum grjóthnull-
ungum. Í þá er búið að meitla heiti
franskra skipa sem fórust forðum á
miðunum við Ísland. „Það er því
táknrænt að hafa steinana umlukta
vatni,“ segir Helga, og blaðamann
setur nánast hljóðan. Þetta er óneit-
anlega áhrifaríkt minnismerki.
„Í safninu í göngunum undir göt-
unni er líka veggur sem myndrænu
listaverki er varpað á með skjávarpa.
Verkið er öldur sem bylgjast um
vegginn og í þeim dansa nöfn þeirra
frönsku sjómanna sem vitað er að
skiluðu sér aldrei af miðunum við Ís-
land, en talið er að þeir hafi verið um
5000 talsins.. Kafli frönsku sjómann-
anna við Ísland er hluti Íslandssög-
unnar og honum megum við aldrei
gleyma.“
Hin frönsku kynni gleymast ei
Helga Guðmundsdóttir Snædal,
hótelstjóri Fosshótel Austfjarða.
Rúmgott Herbergin voru upprunalega ekki hugsuð sem hótelherbergi, eðli máls samkvæmt,
og því talsvert stærri og rúmbetri en hótelgestir eiga almennt að venjast, svo sem sjá má hér.
Fjörðurinn Frá matsal hótelsins á jarðhæðinni á aðalbyggingunni má ganga út á nýju bryggj-
una og drekka í sig kyrrð fjarðarins, njóta fjallasýnar og náttúrufegurðar.
Fosshótel Austfirðir standa
vörð um arfleifð franskra
sjómanna Mikil og merk
saga sem gestir geta kynnt
sér á hótelinu og nágrenni
61
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2016