Morgunblaðið - 21.10.2016, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 21.10.2016, Blaðsíða 14
14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2016 Árlegur „Kjötsúpudagur á Skóla- vörðustíg“ verður haldinn kl. 14-16 á morgun, fyrsta vetrardag, laugar- daginn 22. október. Þetta er fjórt- ánda árið sem rekstraraðilar við Skólavörðustíg efna til götuhátíðar í samvinnu við Samband sauðfjár- bænda og með dyggri aðstoð græn- metisbænda. Kjötsúpan er framleidd af nokkr- um færustu kokkum þjóðarinnar frá þekktum veitingastöðum; Jói í Ostabúðinni býður upp á súpu fyrir framan búðina sem er númer 8, Úlfar og félagar á Þremur frökkum við Hegningarhúsið númer 9, Gústi og hans fólk á Sjávargrill- inu verða á hlaðinu fyrir utan númer 14 og Sigurgísli og Stefán á Snaps bistro Óðinstorgi fyrir framan Hand- prjónasambandið númer 19. Efst á Skólavörðustígnum, númer 40, framreiðir svo Kol veitingastaður sína súpu. Athygli er vakin á að súpan er sérlöguð á hverjum veitingastað og því engar tvær eins. Gestum og gangandi er boðið að smakka á öll- um stöðum. Meginþema Kjötsúpu- dagsins er að bjóða Vetur konung velkominn og minna á að maður er manns gaman. Vetri konungi fagnað á Skólavörðustígnum Maður er manns gaman Nokkrir gestgjafanna á götuhátíðinni. Kokkar bjóða gestum og gang- andi upp á sérlagaða kjötsúpu Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Baráttan um hlutverk ersögð býsna hörð í henniHollywood og atvinnuleysitöluvert meðal leikara. Al- kunna er að sumir láta sig hafa það að afgreiða á börum og í búðum eða vinna önnur þjónustustörf til að eiga fyrir salti í grautinn á meðan þeir bíða eftir að verða uppgötvaðir. Chuck McCarthy ákvað hins vegar að gerast sjálfs sín herra og bjóða sjálfur upp á þjónustu. Hann virðist hafa dottið niður á snjalla en um leið einfalda viðskiptahugmynd því þjón- ustan er eftirsótt og hefur vakið at- hygli, innanlands sem utan. McCarthy býðst einfaldlega til að taka fólk með sér út í göngutúra. Þar vestra og víða annars staðar er ekki óalgengt að fólk drýgi tekj- urnar eða hafi jafnvel lifibrauð af að fara út að ganga með hunda annars fólks. Raunar hafði slíkt hvarflað að leikaranum, en svo áttaði hann hann sig á að í því fælist meira en að ganga. Flestir vita eflaust hvað hann meinar. Hann tekur 7 dollara (um 800 íslenskar krónur) fyrir að ganga rúmlega einn og hálfan kílómetra með viðskiptavini sína um götur og garða í grennd við heimili sitt. Í við- tali á abc7.com tekur hann sérstak- lega fram að hann noti ekki beisli og segir göngu aldeilis frábæra líkams- rækt. Fyndið en fráleitt Hugmyndinni laust niður í huga hans fyrir nokkrum mánuðum. Í fyrstu fannst honum hún í senn fynd- in, fáránleg og fráleit, en því meira sem hann velti henni fyrir sér, þeim mun betur hugnaðist hún honum. Hann lét til skarar skríða og byrjaði á að auglýsa á Facebook og útbúa auglýsingaspjöld sem hann hengdi upp víðs vegar um borgina. Slag- orðin voru á þessa leið: „Þarftu hvatningu til að fara út að ganga? Ertu hrædd/ur að ganga ein/n að næturlagi? Viltu einfaldlega ekki fara ein/n í göngutúra? Viltu ekki að fólk sjái þig eina/n á gangi af því þú ert hrædd/ur um að það haldi að þú eigir enga vini? Leiðist þér að hlusta á tónlist en ert ófær um að ganga í þögn og neyðast þannig til að horfast í augu við óræða framtíð, eða eigin ómerkilegheit í stóra samheng- inu? Síðan hefur síminn varla stopp- að hjá McCarthy, The People Walker, eins og hann kallar sig, sem verður varla þýtt öðruvísi en Maður- inn sem gengur með fólki. Og tölvu- póstarnir og fyrirspurnirnar hrann- ast inn. En hvers vegna vill fólk borga fyrir göngutúra sem það getur farið í ókeypis? Á því er allur gangur, eins og blaðamaður breska blaðsins The Guardian komst að þegar hann slóst í för með McCarthy á dögunum. Einsemd og þrá eftir fé- lagsskap Þeir sem nýta sér þjónustuna eiga þó allir sameiginlegt að vera einmana og þrá félagsskap. „Ég reyni að hlusta meira en að tala sjálf- ur,“ sagði leikarinn við blaðamann- inn og upplýsti að samtölin snerust yfirleitt ekki um játningar af neinu tagi. Þau væru frekar yfirborðskennt rabb um daginn og veginn. „Þótt fólk opni ekki hjarta sitt hafa samtölin ákveðið meðferðargildi,“ sagði McCarthy. Hann tók sem dæmi að flestum fyndist gott að fjargviðrast út í eitt- hvað hversdagslegt; umferðina eða þvíumlíkt, augliti til auglitis við mannlega veru frekar en á sam- félagsmiðlum. Þar fengju þeir kannski engin viðbrögð og yrðu fyrir vikið svolítið daprir. Svo mjög hefur starfseminni vaxið fiskur um hrygg að frum- kvöðullinn hefur ráðið til sín nokkra starfsmenn til að fara í göngutúra um fleiri hverfi Los Angeles. The Guardian upplýsir að kona nokkur í Ísrael hafi tekið upp sama viðskipta- módel. Einnig að McCarthy hafi ver- ið beðinn um að bjóða upp á þjón- ustuna á Bretlandi. Innblásinn af athyglinni er leikarinn sagður íhuga hópfjáröflun til að geta ráðið tækni- fólk til að setja upp app í líkingu við Uber-appið. Hins vegar er hann hvorki spenntur að fara með starf- semina úr – að sínu mati – örugga umhverfi né keyra með fólk um borgina og þaðan af síður að fljúga þúsundir kílómetra til að ganga með því. Hann hugsar appið sem tæki starfsmanna og viðskiptavina til að meta hversu vel þeir passa saman, sem og gönguhraða. Það síðarnefnda segir hann lykilatriði í verðlagningu, tiltekin vegalengd á hægagangi yrði ódýrari en röskleg ganga í jafn- langan tíma. Stökkpallur á hvíta tjaldið? „Geðveik hugmynd, fullt af ringluðu fólki þarna úti,“ skrifaði einn meinfýsinn á Facebook-síðu The People Walker, og dylgjaði um að tiltækið snerist meira um að slúðra en ganga. Því er McCarthy al- gjörlega ósammála. Hann segir að þótt fólk borgi fyrir göngutúrana þýði það ekki að það eigi enga vini. Vinirnir hafi bara ekki alltaf tíma, auk þess sem allir þurfi á líkamsrækt að halda. „Göngutúrarnir snúast um að hvetja fólk til að fara úr húsi sér til heilsubótar en ekki að píska því áfram eins og í herþjálfun,“ segir hann og leggur áherslu á að hann sé ekki lærður einkaþjálfari. Sjálfur getur McCarthy nú hert beltisólina um tvö göt frá því þegar hann hóf atvinnureksturinn. Þrátt fyrir árangurinn að því leytinu og fyrirtækisins hefur hann ekki gefið upp vonina um að landa bitastæðu hlutverki. Kannski verður athyglin sem göngutúrarnir hafa vakið stökk- pallur hans á hvíta tjaldið. A.m.k. lék hann í auglýsingamynd fyrir Pete’s Dragon, sem frumsýnd var á árinu og skartar Robert Redford í einu aðalhlutverkanna. Gengið með ókunnugt fólk Atvinnulaus leikari í Hollywood virðist hafa dottið niður á snjalla viðskiptahugmynd þegar hann bauðst til að taka fólk með sér í göngutúra gegn vægu gjaldi. Frumkvöðullinn Þrátt fyrir að viðskiptin blómstri dreymir Chuck McCarthy enn um að landa bitastæðu hlutverki í bíómynd. Markaðssetningin Heimatilbúnar auglýsingar blöstu víða við. „Göngutúrarnir snúast um að hvetja fólk til að fara úr húsi sér til heilsubótar en ekki að píska því áfram eins og í herþjálfun,“ Fræði núvitundar segja að maður eigi að lifa í augnablikinu, njóta þess og hylla. Við uppvask er til dæmis best að fylgjast með því hvernig vatnið rennur fallega úr krananum ofan á leirtauið, hvernig uppþvotta- burstinn leikur í höndum manns og sápan þyrlast í kringum allt saman á undursamlegan hátt. Ekki er mælt með því að hugsa um annað meðan á uppvaskinu stendur. Best er að geyma þau vandamál sem þarf að leysa í læstri hirslu í heilabúinu og einnig skal allt sem tengist fortíðinni heyra sögunni til. Núið er það eina sem skiptir máli. Sjálfur hef ég reynt þetta en ekki náð árangri enn sem komið er. Það er erfitt að hugsa ekki um eitthvað allt annað þegar maður er að sinna jafnleiðinlegu húsverki og að vaska upp. Kannski sér maður skrítinn, síð- hærðan mann á gangi fyrir framan eldhús- gluggann og fer að ímynda sér hvaðan hann kemur, hvert hann er eiginlega að fara og af hverju hann er alltaf með app- elsínugula húfu á höfðinu og í ljósgrænum buxum. Best finnst mér að hlusta á tónlist á meðan ég vaska upp og kemur Spotify þá sterkt inn. Þar nýtur maður þeirra forréttinda að geta hlustað á nánast hvaða plötu sem er, þar á meðal þær glænýjustu með uppáhaldsflytjendum. Þvílík nútímaþægindi! Tilgangurinn er að gera uppvaskið bærilegra, en núvitundarfræðin eru alveg örugg- lega á móti þessu líka. Núna ætla ég að tileinka mér fræðin. Vindurinn gnauðar við gluggann fyrir aftan mig, kona talar í símann, önnur kona gengur framhjá mér og sest í sætið sitt. Hurð er skellt í fjarska. Það heyrist hljóð í tökkunum á lyklaborðinu þegar ég legg fingurna fim- lega á þá. Konan sem sett- ist niður áðan gengur aftur framhjá mér en snýr svo strax aftur við og sest nið- ur. Jæja, hvernig ætli þetta hafi gengið? Ég veit það ekki alveg en vonandi tókst mér að hylla augnablik- ið á einhvern hátt, þó svo að ég hafi ekki beint notið þess á meðan á því stóð. Ætli ég geymi það ekki fyrir upp- vaskið þegar ég kem heim. »„Kannski sér maðurskrítinn, síðhærðan mann á gangi fyrir framan eldhúsgluggann og fer að ímynda sér hvaðan hann kemur.“ Heimur Freys Freyr Bjarnason freyr@mbl.is Á fjölskyldustund Menningarhús- anna í Kópavogi, fyrsta vetrardag laugardaginn 22. október kl. 13, verður Dúó Stemma með dagskrá í Salnum. Þau Herdís Anna Jónsdóttir víólu- leikari og Steef van Oosterhout slag- verksleikari mynda Dúó Stemmu, en þau hafa um árabil spilað í skólum og leikskólum um allt land. Þau syngja og leika á fjölmörg hljóðfæri, bæði hefðbundin og heimatilbúin svo sem hrossakjálka og skyrdósir. „Heyrðu villuhrafninn mig“ heitir sagan sem þau segja með tónum, en hún segir frá Fíu frænku sem lendir í miklu ævintýri með vini sínum hon- um Dúdda, Villuhrafninum, dvergn- um Bokka og leiðindaskjóðunni Bárðarbungu. Fjölskyldustundir Menningarhús- anna eru ókeypis. Dúó Stemma á fjölskyldu- stund í Salnum Fjölhæf Herdís Anna og Steef van Oosterhout leika á mörg hljóðfæri. Segja sögu með tónum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.