Morgunblaðið - 21.10.2016, Blaðsíða 73
MINNINGAR 73
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2016
✝ ArngrímurMarteinsson
fæddist á Ystafelli í
Þingeyjarsveit 26.
júlí 1930. Hann lést
á Vífilsstöðum 7.
október 2016.
Foreldrar hans
voru hjónin Mart-
einn S. Sigurðsson,
frá Ystafelli í Þing-
eyjarsveit, f. 10.5.
1894, d. 25.10. 1982,
og Kara Arngrímsdóttir frá
Torfunesi í Ljósavatnshr., f. 2.2.
1894, d. 24.12. 1980.
Arngrímur átti fjögur systk-
ini. Þau voru Kristbjörg Mart-
einsdóttir, f. 12.1. 1918, d. 1.10.
2010, Sigurður Marteinsson, f.
6.5. 1921, d. 19.3. 1923, Sigurður
Marteinsson, f. 9.5. 1924, d. 1.1.
1989, og Jónína Marteinsdóttir, f.
29.1. 1927, d. 22.9. 2015.
Arngrímur eignaðist son með
Helgu J. Ásgeirsdóttur, f. 23.9.
1934, d. 22.2. 1985, Ásgeir Arn-
grímsson, f. 5.10. 1954, d. 8.12.
1998.
Börn Ásgeirs og Örnu Hrafns-
dóttur, f. 2.2. 1957, eru Baldvin
H. Ásgeirsson, f. 30.10. 1976,
kvæntur Aldísi Ösp Sigurjóns-
dóttur, f. 13.10. 1980.
Þau eiga Ásgeir M. Baldvins-
son, f. 29.8. 2001, Júlíu K. Bald-
vinsdóttur, f. 7.2. 2004, og Bald-
vin B. Baldvinsson, f. 3.7. 2008.
f. 26.9. 1964. Með Stefáni Guð-
leifssyni, f. 5.7. 1963, á Kara
Reyni Stefánsson, f. 5.6. 1998, og
Arngrím Stefánsson, f. 16.5.
2003.
Sveinn Arngrímsson, f. 18.1.
1969, kvæntur Elísabetu I. Mar-
teinsdóttur, f. 21.1. 1979.
Sveinn á Martein Elí Sveins-
son, f. 16.3. 2011, með Elísabetu
og Stefni Sveinsson, f. 31.1. 1994,
og Areyju I. Sveinsdóttur, f.
12.11 .2003, með Guðrúnu K.
Sveinbjörnsdóttur, f. 18.3. 1967.
Elísabet á Gyðu S. Halldórsdótt-
ur, f. 6.5. 2002, úr fyrra sam-
bandi.
Auðbjörg Arngrímsdóttir, f.
31.7. 1970. Með Guðmundi H.
Magnasyni, f. 14.9. 1969, á Auð-
björg Köru Guðmundsdóttur, f.
6.4. 1993.
Arngrímur fæddist í Ystafelli í
Kinn en fluttist suður til þess að
læra bifvélavirkjun. Hann hafði
áhuga á bílum og hafði gott lag á
að gera við vélar. Hann var bón-
góður, hvatti börn sín til dáða og
alltaf tilbúinn að aðstoða ef á
þurfti að halda. Hann var lunk-
inn við að fá tóna úr ýmsum
hljóðfærum. Arngrímur og Ingi-
björg sóttu dansnám, kepptu í
dansi og unnu sér inn Íslands-
meistaratitil í samkvæmisdöns-
um. Seinna stofnuðu þau hljóm-
sveitina Vinabandið ásamt
nokkrum öðrum eldri borgurum.
Unnu þau mikið og gott starf þar
sem þau fóru á milli hjúkrunar-
heimila og spiluðu fyrir gamla
fólkið.
Útför Arngríms fer fram frá
Grensáskirkju í dag, 21. október
2016, kl. 13.
Bjarni H. Ásgeirs-
son, f. 10.5. 1979,
sem er í sambúð
með Jónu B. Árna-
dóttur. Þau eiga
Sigurð G. Bjarna-
son, f. 8.11. 2008,
Ingibjörgu Ö.
Bjarnadóttur, f.
26.8. 2011, og Sig-
urbjörgu M. Bjarna-
dóttur, f. 28.2. 2013.
Brynjar H.
Ásgeirsson, f. 6.4. 1981.
Arngrímur kvæntist Ingi-
björgu Sveinsdóttur þann 9.4.
1960. Eignuðust þau eftirtalin
börn:
Kára Arngrímsson, f. 3.1.
1960, kvæntur Birnu Káradóttur,
f. 16.7. 1961. Þau eiga Írisi Kára-
dóttur, f. 10.4. 1989, Hörpu Kára-
dóttur, f. 9.11. 1991, og Birki
Kárason, f. 7.10. 1995. Birna á
Óskar G. Sveinsson, f. 15.3. 1981,
úr fyrra sambandi.
Reynir Arngrímsson, f. 15.3.
1961, kvæntur Nönnu M. Norð-
dahl, f. 3.7. 1968.
Reynir á Arnar I. Reynisson, f.
20.9. 1986, með Þóru Viðars-
dóttur, f. 8.10. 1965, Hauk H.
Reynisson, f. 27.9. 1990, og Hel-
enu Reynisdóttur, f. 9.3. 1994,
með Ingibjörgu Hannesdóttur, f.
6.3. 1966. Nanna á Þröst F.
Hauksson, f. 17.9. 1987, úr fyrra
sambandi. Kara Arngrímsdóttir,
Elsku tengdapabbi er dáinn.
Eftir að Ingibjörg, ástin hans í
lífinu, dó fyrr í sumar þá vildi
hann ekki lifa lengur. Þegar Ingi-
björg og Arngrímur fóru á eft-
irlaun þá gerðu þau allt saman.
Þau gátu bara ekki verið án hvort
annars. Arngrímur datt illa og
slasaðist á höfði í mars á þessu
ári og þá kom í ljós hvað hann
hafði verið sterkur að halda
heimilinu saman. Um leið og
hann fór á spítalann varð Ingi-
björg alveg ómöguleg að hafa
hann ekki hjá sér. En svona er
gangur lífsins, elsku tengda-
mamma dó og Arngrímur vildi
bara fá að fylgja henni, hann
fylgdi henni til grafar og beið eft-
ir að fá að hitta hana aftur. Arn-
grímur fór alltaf sínar eigin leiðir.
Honum var alveg sama hvað öðr-
um fannst. Arngrímur var hörku-
duglegur, heiðarlegur og stund-
vís. Þegar hann átti að mæta á
mannamót þá var hann alltaf
mættur fyrstur. Hann borðaði
alltaf á sama tíma, fór í sund á
sama tíma og hlustaði og horfði á
alla fréttatíma. Honum fannst
stundvísi vera einn af mestu
mannkostunum og fór nákvæm-
lega eftir þeirri skoðun sinni.
Arngrímur elskaði að spila og
dansa. Hann sagði að dansinn
væri hreyfing sem allir ættu að
iðka og skildi ekki ef það var
áhugaleysi fyrir dansi hjá ein-
hverjum í fjölskyldunni. Hans
fyrsta spurning þegar hann kom í
heimsókn var yfirleitt: „Eruð þið
ekki að dansa neitt núna?“ Arn-
grímur var líka einstaklega bón-
góður og ef hann gat aðstoðað þá
var það alveg sjálfsagt, hann
spurði oft ef hann var beðinn um
aðstoð: „Viljið þið ekki að ég geri
meira fyrir ykkur?“ Eftir að Arn-
grímur hætti að vinna þá voru
hann og Ingibjörg saman öllum
stundum, þau stofnuðu hljóm-
sveitina Vinabandið og fóru á
milli til að spila fyrir eldri borg-
ara – best var ef eldri borgarar
gátu dansað eftir lögunum. Arn-
grímur spilaði á flest hljóðfæri en
yfirleitt spilaði hann á harmon-
ikkuna og Ingibjörg var á
trommum í Vinabandinu.
Elsku tengdapabbi, ég þakka
fyrir að fá að hafa kynnst þér og
vona að þú sért kominn í arma
stóru ástarinnar þinnar.
Birna Óskarsdóttir.
Ég kynntist Arngrími Mart-
einssyni fyrst að ráði þegar hóp-
ur smárra verktaka kom saman
til að vinna stórt vegagerðar-
verkefni sem var lagning Vestur-
landsvegar,VV2, frá Ártúns-
brekku út fyrir Úlfarsá.
Við vorum ekki tækjaríkir í þá
daga en við trúðum því að saman
gætum við unnið þetta sem og
varð. Kapteinn okkar var Guð-
mundur Einarsson verkfræðing-
ur, sá ógleymanlegi maður og
meistari þolinmæðinnar.
Hann kunni samningatækni
umfram flesta menn. Sagt var að
hann hefði mætt á opinberan
kontór klukkan að verða fimm á
föstudegi til að ræða kröfur.
Hann fór ekki fyrr en að ganga
tólf um kvöldið pollrólegur með
málið uppgert. Icesave-samn-
ingamenn hefðu kannski getað
lært eitthvað af Guðmundi Ein-
arssyni.
Þeir Arngrímur áttu langa
sögu saman eftir að VV2 lauk.
Þeir voru báðir unnendur klass-
ískrar tónlistar sem Guðmundur
spilaði á fullu í Bensanum sínum
þá við vorum saman.
Arngrím þekkti ég lauslega úr
öðrum verkefnum og vissi að þar
fór mikill atorkumaður og stál-
ábyggilegur. Meistari dragskófl-
unnar. Við áttum eftir að vera
samverkamenn í áratugi og
breyttist þetta aldrei eftir það.
Hann var ávallt þessi jafnlyndi
drengskaparmaður sem maður
gat treyst á að hvergi brygðist.
Auðvitað gerðum við báðir mis-
tök í fjölbreyttum störfum. En
flest baslaðist samt áfram ein-
hvern veginn þótt margir væru
jafnan úrtölumennirnir.
Við gerðum út dæluskipið
Perluna saman og vorum við
landkrabbarnir úr Steypustöð-
inni um margt öðruvísi en sjó-
mennirnir á skipinu sem höfðu
ekki allir trú á „bílameikurum“ til
skipaviðgerða. En skipaútgerð er
harður húsbóndi eins og kunnugt
er.
Við vorum báðir af gamla skól-
anum sem vildi heldur gera við en
henda umsvifalaust fyrir nýjum
innkaupum. Við urðum líklega of
gamlir í starfinu fyrir nýju tím-
ana, þar sem lítið er lagt upp úr
því að kunna að fara með skrúf-
járn og skiptilykla, eldlykla og
rafsuðu, en bara skrifaður tékki á
óþrjótandi lánsfé. Arngrímur
skynjaði þetta fyrr en ég og hætti
verkstjórnarstörfum í fullu fjöri,
sagði mér hreint út að hann
nennti ekki lengur að segja ung-
um seppum til sem þættust vita
allt betur en hann. Líklega var
þetta rétt í okkar tilfelli sem ég
skynjaði ekki fyrir sjálfan mig
fyrr en mörgum árum of seint.
Menn eru víst mistregir eins og
gengur.
Arngrímur var listrænn mað-
ur og var tónlistin honum þáttur
af lífinu. Hann lék listavel á hljóð-
færi. Lék fyrir dansi með konu
sinni sem trommaði taktfast und-
ir. Hvarvetna var hann velkom-
inn og var ávallt sama ljúfmenn-
ið. Hann hafði áhuga á fornbílum
og lagði á gjörva hönd.
Síðustu árin strjáluðust kynn-
in og við sáumst orðið aðeins við
jarðarfarir gamalla félaga. Þann-
ig er lífsins saga. Nú sný ég mér
ekki lengur við þótt ég heyri dís-
ilvélar þandar eins og í gamla
daga, steypubíll vekur ekki leng-
ur áhuga og aðeins hörðnuð
steypa er viðfangsefnið. Bráðum
heyrir maður ekki neitt meira
hvort eð er.
Ég mun ávallt minnast Arn-
gríms Marteinssonar frá Yzta-
felli með hlýhug.
Eftirlifandi fólki hans sendi ég
mínar bestu kveðjur.
Halldór Jónsson verkfr.
Arngrímur
Marteinsson
✝ Guðbjörg E.Vestmann
fæddist 23. nóv-
ember 1953. Hún
lést 16. október
2016.
Foreldrar henn-
ar eru Einar Vest-
mann vélsmiður og
Guðlaug Jónsdóttir
kaupmaður. Sysk-
ini hennar eru þrjú,
Jón Vestmann,
Guðmundur og Jóhanna.
Guðbjörg átti þrjú börn af
fyrra hjónabandi,
þau eru Guð-
mundur Kristján
Jakobsson, Guð-
björg Jakobsdóttir
og Steindór Örn
Jakobsson.
Eftirlifandi maki
Guðbjargar er
Sveinn Þorkelsson.
Guðbjörg verður
jarðsungin frá
Akraneskirkju í
dag, 21. október 2016, klukkan
13.
Hann var fallegur sunnudag-
urinn 16. október þegar þú
kvaddir þetta líf, langt um ald-
ur fram, elsku vinkona. Þú
tókst veikindum þínum af miklu
æðruleysi og aldrei heyrði ég
þig kvarta. Samstarf okkar og
vinátta stóð í rúman aldarfjórð-
ung og minnist ég þessara ára
með gleði og hlýju. Þú varst
ekki allra en vinur vina þinna.
Það var gott að koma á fallegt
heimili ykkar Svenna, fá sér
kaffisopa með þér og spjalla
um handavinnu, sem við höfð-
um báðar brennandi áhuga fyr-
ir. Allt sem þú gerðir var svo
fallegt og vandað. Við gátum
líka setið hljóðar lengi og einu
sinni sagðir þú við mig: „Við
erum góðar saman, við þurfum
ekki allaf að tala getum bara
setið hljóðar og liðið vel með
það.“ Elsku Dubba mín, það er
svo stutt síðan þú komst í
heimsókn til mín og við áttum
svo góða stund saman, ekki
grunaði mig þá að þú yrðir far-
in frá okkur mánuði seinna. Ég
veit að fjölskylda þín var þér
mjög kær, elsku Dubba mín, og
gerðu þau allt fyrir þig sem
þau gátu til að þér liði sem
best. Elsku vinkona, hafðu
þökk fyrir einstaka vináttu í
gegnum árin.
Nú er sál þín rós
í rósagarði Guðs
kysst af englum
döggvuð af bænum
þeirra sem þú elskaðir
aldrei framar mun þessi rós
blikna að hausti
(Ragnhildur Pála Ófeigsdóttir)
Elsku Sveinn, Kristján, Guð-
björg, Steindór og Guðlaug
María. Megi englar Guðs vaka
yfir ykkur og senda ykkur
styrk í sorginni.
Alma Garðarsdóttir.
Guðbjörg E.
Vestmann
Elskuleg móðir okkar,
AUÐUR ÞÓRÐARDÓTTIR
frá Hergilsey,
andaðist 11. október sl. Útförin fer fram frá
Kópavogskirkju föstudaginn 21. október
klukkan 15.
.
Björk Svanfríður, Sigurbjörn,
Valgerður Þorbjörg Elín, Lúðvík,
Þórir, Ólafur,
Guðjónsbörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs
eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa
og langafa,
TÓMASAR STEINDÓRSSONAR,
Hamrahóli.
.
Sigurbirna Guðjónsdóttir,
Guðjón Tómasson, Valgerður Sveinsdóttir,
Tómas Tómasson, Ólafía Eiríksdóttir,
Guðný Rósa Tómasdóttir, Bjarni Jóhannsson,
Steindór Tómasson, María Björk Gunnarsdóttir,
Guðríður Ásta Tómasdóttir, Steinar Tómasson,
Hjalti Tómasson, Ingileif Dagný Viðarsdóttir
og fjölskyldur.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
ANNA LÍSA KRISTJÁNSDÓTTIR,
Sóltúni 7, Reykjavík,
lést á Borgarspítalanum 17. október. Þakkir
til hjúkrunarfólks fyrir einstaka umönnun.
Útförin fer fram frá Langholtskirkju fimmtudaginn 27. október
klukkan 11. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Krabbameinsfélagið.
.
Guðbjörn Axelsson,
Elísabet Guðbjörnsdóttir, Björn Jónasson,
Axel Sæmann Guðbjörnsson, Ólöf Stefánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín og móðir okkar og
systir mín,
VALGERÐUR KRISTJÁNSSON,
Vala,
lést fimmtudaginn 13. október 2016.
Hún verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í
Reykjavík þriðjudaginn 25. október klukkan 15.
.
Pétur H. Snæland,
Einar Örn Benediktsson, Árni Benediktsson,
Brynja Kristjánsson
og fjölskyldur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
HELGI SIGURÐUR HARALDSSON
yfirverkstjóri,
Sléttuvegi 19, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Háteigskirkju
þriðjudaginn 25. október klukkan 13.
.
Guðlaug Halldóra Guðmundsdóttir,
Signý Halla Helgadóttir, Hjörtur H.R. Hjartarson,
Vilberg Grímur Helgason, Kristjana Guðlaugsdóttir,
Ásta Sigrún Helgadóttir, Þorsteinn Einarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginmaður minn,
ÓLAFUR ÞÓR ÓLAFSSON
bóndi,
Valdastöðum, Kjós,
sem lést laugardaginn 15. október, verður
jarðsunginn frá Reynivallakirkju í Kjós
laugardaginn 22. október klukkan 13. Blóm og kransar
vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent
á Krabbameinsfélagið.
.
Fyrir hönd aðstandenda,
Þórdís Ólafsdóttir.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
KAREN KARLSDÓTTIR,
lést á líknardeild Landspítalans 17. október.
Útför hennar fer fram frá Langholtskirkju
föstudaginn 28. október klukkan 14.
.
Karl Birgir Örvarsson, Halldóra Árnadóttir,
Grétar Örvarsson,
Viðar Þorberg Ingason,
Dagur Freyr Ingason,
barnabörn og barnabarnabörn.