Morgunblaðið - 21.10.2016, Page 6

Morgunblaðið - 21.10.2016, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2016 BjarnaBenedikts- syni, formanni Sjálfstæðisflokksins Fundarstjóri verður Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs. Fundarstaður er Hlíðasmári 19 kosningaskrifstofa Sjálfstæðis- flokksins í Kópavogi. Allir velkomnir kaffi og gott kruðirí. Næstkomandi laugardag 22. október klukkan 10:00 Morgunverðafundurmeð Sjálfstæðisfélag Kópavogs www.xdkop.is BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ekki er tekin afstaða til þriggja kosta sem Landsnet gerir grein fyrir í svokallaðri valkostaskýrslu vegna Suðurnesjalínu 2. Þó kemur fram í skýrslunni að kostnaður við að leggja jarðstrengi er meira en tvöfalt meiri en loftlínu samkvæmt upphaflegum áætlunum Landsnets og að loftlína er betri kostur fyrir raforkukerfið í heild. Landsnet hefur lengi undirbúið styrkingu Suðurnesjalínu, með lagningu nýrrar og öflugri línu, Suðurnesjalínu 2. Fyrirtækið var komið með leyfi frá öllum viðkom- andi sveitarfélögum og opinberum stofnunum og heimild til eignar- náms á löndum þeirra jarðeigenda sem ekki tókst að semja við í frjáls- um samningum. Landeigendur hafa rekið nokkur dómsmál til að fá áformum Landsnets og ákvörð- unum opinberra aðila hnekkt. Þannig hefur eignarnámið verið dæmt ógilt í Hæstarétti, meðal annars á þeirri forsendu að ekki hafi verið kannaðir nógu vel aðrir kostir, svo sem jarðstrengir, og leyfi Orkustofnunar hefur einnig verið fellt úr gildi. Ekki er öllum málum lokið. Þannig er fyrir Hæstarétti mál landeigenda gegn Sveitarfélaginu Vogum vegna framkvæmdaleyfis. Framkvæmdir hafa tafist vegna þessara mála. Nýtist við ákvörðun Nils Gústavsson, framkvæmda- stjóri framkvæmda- og rekstrar- sviðs Landsnets, segir að fundað hafi verið með fulltrúum landeig- enda til að fara yfir kostina og fá fram hvaða kosti þeir væru með í huga. Í framhaldi af því hafi verið ákveðið að gera valkostaskýrslu þar sem tveir jarðstrengjakostir væru kynntir á hlutlausan og mál- efnalegan hátt og bornir saman við loftlínukostinn. Skýrslan er að hans sögn innlegg í umræðu með hagsmunaaðilum og leyfisveitendum enda telur Nils að hún sé upplýsandi gagn fyrir alla aðila. Um framhaldið vill hann ekki fjölyrða. Segir hann að beðið sé niðurstöðu í dómsmáli vegna fram- kvæmdaleyfis. Í fréttatilkynningu frá Landsneti er tekið fram að eng- in afstaða sé tekin til þess hvaða framkvæmdakostir séu tækir og viðunandi í skilningi dóma Hæsta- réttar en stuðst verði við skýrsluna þegar sú ákvörðun verði tekin. Áhrif á umhverfið Í skýrslunni kemur fram að nauðsynlegt sé að styrkja Suðurnesjalínu. Bent er á að þar séu tvær virkjanir og í tillögu að rammaáætlun sé gert ráð fyrir mikilli viðbót. Raforkuspá gerir ráð fyrir mjög auknu álagi til árs- ins 2050. Þá er gert ráð fyrir að við bætist stórir notendur, meðal ann- ars í Helguvík. Fjallað er um kerfiseiginleika og umhverfisaðstæður þessara þriggja kosta auk hagrænna þátta. Fram kemur að háspenntur leiðari í jörðu hefur minni flutningsgetu en loftlína á sama spennustigi og er talinn endast talsvert skemur. Allir kostirnir eru að mestu á þegar röskuðu svæði, annaðhvort meðfram eldri loftlínu eða með- fram Reykjanesbraut. Af umfjöll- uninni má ráða að umhverfisáhrif séu einna minnst af jarðstreng sem lagður yrði samhliða núverandi Suðurnesjalínu, þegar litið er á einstaka þætti, næstminnst af jarð- streng samhliða Reykjanesbraut og mest af nýrri loftlínu. Á stærst- um hluta leiðarinnar er farið yfir nútímahraun með þunnri gróður- þekju. Fram kemur að almennt valdi loftlínur minna raski á hraun- um en jarðstrengur. Ættu að velja loftlínu Umrædd línuleið er 30-31 km að lengd og fer samanburður þeirra fram miðað við 220 kV spennustig. Jarðstrengjalausnirnar kosta að lágmarki 3,5-3,7 milljarða króna en loftlínan 1,7 milljarða. Er því rúm- lega tvöfalt meiri stofnkostnaður við jarðstrengina en loftlínuna. Samkvæmt því ætti Landsnet að velja loftlínulausnina, samkvæmt stefnu stjórnvalda sem fram kemur í þingsályktun sem samþykkt var fyrir rúmu ári. Jarðstrengir tvöfalt dýrari  Landsnet ber tvo jarðstrengjakosti saman við fyrri áform um loftlínu til Suðurnesja  Miklu munar á kostnaði og allir kostir eru á röskuðu svæði  Skýrslan notuð við ákvörðun um framhald framkvæmda Heimild: Landsnet Suðurnesjalína – þrír valkostir Hamranes Fitjar Rauðimelur Reykjanesbær Helguvík Hafnarfjörður Kleifarvatn Reykjavík Garðabær Vogar Kostir Stofnkostnaður Flutningtsgeta Áhrif á landslag og ásýnd A - Jarðstrengur samsíða núverandi háspennulínum 3,5-4,3 ma 360 MVA Talsverð neikvæð B - Jarðstrengur meðfram Reykjanesbrautinni 2,2-2,6 ma 360 MVA Óveruleg neikvæð C - Loftlína samsíða núverandi háspennulínum 1,7 ma 470 MVA Talsverð neikvæð Þrír valkostir Loftmyndir ehf. Eignarnám fellt úr gildi Jarðstrengur samsíða núverandi háspennulínum Jarðstrengur meðfram Reykjanesbrautinni Loftlína samsíða núverandi háspennulínum Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Almennar kosningar til Alþingis munu fara fram laugardaginn 29. október næstkomandi. Af því tilefni hefur landskjörstjórn birt auglýs- ingu um framboð þeirra 12 stjórn- málaflokka sem bjóða fram lista og nöfn þeirra 1.302 einstaklinga sem í framboði eru. Þegar rýnt er nánar í listann má sjá hversu fjölbreyttir frambjóðendur eru, líkt og svo oft áður, en sumir þeirra eru m.a. titl- aðir sem hugsuðir og þingskáld, en aðrir eru læknar, bifreiðarstjórar eða aðstoðarmenn af ýmsum toga. Af þeim starfs- og menntatitlum sem teljast í hefðbundnara lagi og finna má á lista landskjörstjórnar eru t.a.m. framkvæmdastjórar, en þeir eru alls 61 auk þess sem einn titlar sig fyrrv. framkvæmdastjóra. Á listanum eru einnig 19 titlaðir lögfræðingar, 16 stjórnmálafræð- ingar og þrír stjórnsýslufræðingar. Kennarar, bændur og nemar Nemar í framhaldsskólum og há- skólum eru einnig nokkuð áberandi á lista landskjörstjórnar fyrir kom- andi alþingiskosningar, en alls eru 104 einstaklingar sagðir vera nemar í hinum ýmsu fræðigreinum og á ólíkum skólastigum. Þá eru kenn- arar ýmiss konar 97 talsins. Að þessu sinni eru 30 bændur sem gefa kost á sér til Alþingis, 10 skipstjórar, 16 verkamenn og verkakonur og sex lögreglumenn, auk þess sem finna má átta fyrrver- andi alþingismenn í hópi frambjóð- enda. Þingstörf virðast einnig heilla fólk í flugheiminum. Þannig má m.a. finna einn flugstjóra á listanum og sex flugfreyjur og flugþjóna. Að auki eru þar nokkrar aðrar starfs- stéttir sem tengjast flugrekstri. Fleiri en einn lífskúnstner Á lista landskjörstjórnar má einn- ig finna einstaklinga sem skera sig úr hvað varðar titil, en auk hugs- uðarins, sem nú þegar hefur verið nefndur, er jafnframt að finna hug- myndasmið í framboði til Alþingis. Einnig eru þarna gleðigjafi, bor- ari, kraftlyftingamaður og yfirnátt- úrubarn. Tveir eru sagðir vera lífs- kúnstnerar og ein sirkuskona. Af þeim flokkum sem bjóða fram lista eru aðeins níu sem bjóða fram í öllum kjördæmum og einn stjórn- málaflokkur býður eingöngu fram í einu kjördæmi. Allt frá lögfræðingum til sirkuskonu og borara  Fjölbreyttur hópur fólks býður sig fram til Alþingis Morgunblaðið/Ómar Uppstokkun Þjóðin gengur til kosninga eftir rétt rúmlega viku og að þeim loknum kemur í ljós hverjir það verða sem taka munu sæti á Alþingi. Alþingiskosningar » Alls eru 1.302 einstaklingar í framboði til Alþingis í komandi þingkosningum. » Kosið verður laugardaginn 29. október næstkomandi. » Að þessu sinni eru 12 stjórn- málaflokkar í framboði og bjóða níu þeirra fram lista í öll- um kjördæmum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.