Morgunblaðið - 21.10.2016, Síða 25
FRÉTTIR 25Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2016
Hótel Rangá 851 Hella Sími 487 5700 hotelranga@hotelranga.is www.hotelranga.is
Hótel Rangá býður upp á girnilegan sex rétta
Villibráðarseðil frá 14. október til og með 1. desember
• Villisveppasúpa með léttsýrðum Flúðasveppum
• Hreindýra Carpaccio með truffluolíu og klettasalati
• Grafinn og léttreyktur makríll með rauðrófugeli
og nípumauki
• Kjúklingalifrakæfa á Brioche brauði með berjasultu
• Pönnusteikt gæsa- og andabringa með
sellerírótarmauki, grænkáli, rifsberjum og soðsósu
• Súkkulaði- og gráðaostamús með berjum
Kr. 15.900.- á mann
Við bjóðum einnig upp á pakka sem inniheldur gistingu,
morgunverðarhlaðborð og kvöldverð.
Kr. 27.350.- á mann í Standard herbergi miðað við tvo
í herbergi.
Vinsamlega bókið í síma 487-5700 eða með tölvupósti á
hotelranga@hotelranga.is
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
„Börn eru fullgildir meðlimir samfélagsins alveg
eins og þeir sem hafa kosningarétt. Það er ekki
bara verið að kjósa alþingismenn fyrir þá sem
eru eldri en 18 ára, heldur fara þeir með umboð
fyrir alla þjóðina og taka ákvarðanir fyrir alla
þjóðina – og börn eru partur af þjóðinni,“ segir
Þórhildur Elínardóttir Magnúsdóttir, sextán ára
menntaskólanemi, en hún er hluti af ráðgjafahóp
umboðsmanns barna sem hefur að undanförnu
mælt sér mót við stjórnmálaflokka landsins og
boðið þeim upp á fræðslu um réttindi barna,
barnasáttmálann og lýðræðislega þátttöku ung-
menna.
„Við vildum aðallega minna þau á barnasátt-
málann, að hann sé til og lögfestur á Íslandi, og
þegar verið sé að ræða ákveðna hluti sem tengj-
ast börnum þá eigi að hafa samráð við börn,“
bætir hún við en það sé í raun lögbrot að hafa
ekki samráð við börn um málefni sem þau varða
þar sem barnasáttmálinn kveði á um rétt barna
til að láta í ljós skoðanir sínar og því beri hinir
skyldu til að taka réttmætt tillit til þess.
Hafi ekki pælt í þessu áður
Þórhildur segir viðbrögð stjórnmálamannanna
við fræðslu þeirra hafa verið afar jákvæð en þau
hafa þegar hitt Bjarta framtíð, Sjálfstæðis-
flokkinn og Viðreisn en munu hitta Vinstri græna
og Pírata í dag. Þau hyggjast fylgja fræðslunni
eftir og óska eftir að hitta þá þingmenn sem
kjörnir verða á Alþingi að afstöðnum kosningum.
„Við finnum að þau hafa ekki pælt í þessu áð-
ur. En þegar maður er kominn fyrir framan þau
og er að benda á alla hlutina sem hefði verið
hægt að gera betur þá spyrja þau sig oft af
hverju þetta hafi ekki verið gert – og það er ein-
mitt stóra spurningin, af hverju er þetta ekki
gert?“ segir hún. Hópurinn hefur einnig hitt
bæði menntamálaráðherra, Illuga Gunnarsson,
og þáverandi forseta Íslands, Ólaf Ragnar
Grímsson.
Breytingar á nærumhverfinu
„Ég held að börn séu almennt miklu meðvit-
aðri um þessi mál því það hafa orðið svo miklar
breytingar á þeirra nærumhverfi,“ segir Þórhild-
ur og vísar þar til breytinga á einkunnakerfinu,
styttingar framhaldsskólanna og þeirra aðstæðna
sem komu upp í íslensku samfélagi í kringum
aflandsfélögin.
Þá stendur ráðgjafahópurinn einnig að
skuggakosningum í grunnskólum ásamt Krakk-
arúv þar sem börn kjósa á milli stjórnmálaflokk-
anna og fá ýmsar upplýsingar tengdar kosn-
ingum almennt. Niðurstöður verða svo kynntar á
kosningavöku.
Alþingismenn með umboð
fyrir alla þjóðina, líka börn
Ráðgjafahópur fræðir stjórnmálaflokka um réttindi barna og barnasáttmála
Réttindi Ráðgjafahópur umboðsmanns barna inniheldur krakka á aldrinum 13-17 ára og eru þau um
fimmtán talsins. Hópurinn stendur að ýmissi fræðslu og skuggakosningum í grunnskólum landsins.
Margrét
María Sigurð-
ardóttir, um-
boðsmaður
barna, stofn-
aði ráð-
gjafahópinn
árið 2009 en
í honum sitja
um fimmtán
krakkar á
aldrinum 13-17 ára. „Þau eru
að krefjast þess að við hugs-
um öðruvísi í þessum efnum
því það er mjög algengt að það
sé ekki leitað eftir sér-
fræðiþekkingu barna og ung-
menna áður en ákvarðanir eru
teknar,“ segir Margrét en hóp-
urinn hafi þróast í gegnum ár-
in. Krakkarnir láti meðal ann-
ars til sín taka á ráðstefnum,
með skrifum í blöðin og á
fundum með aðilum úr stjórn-
kerfinu. Hópurinn verði æ sjálf-
stæðari í störfum en það hafi
verið að þeirra frumkvæði að
fræða stjórnmálaflokkana um
réttindi barna nú í aðdraganda
kosninga.
„Um leið og krakkarnir finna
það að verið er að hlusta á þau
og að þau fái tækifæri til að
hafa áhrif, þá vaxa þau bara,“
segir Margrét, en þegar ekki
sé hlustað myndi krakkarnir
sér síður skoðanir.
Vilja breytt-
an hugs-
unarhátt
FRUMKVÆÐI AÐ
ÞVÍ AÐ FRÆÐA
Margrét María
Sigurðardóttir