Morgunblaðið - 21.10.2016, Qupperneq 54

Morgunblaðið - 21.10.2016, Qupperneq 54
54 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2016 Sl. vor lýsti ég fyrir lesendum Morgun- blaðsins viðskiptum mínum við Orkuveitu Reykjavíkur (OR) og nú langar mig til að ræða aðeins meira um aðkomu stjórnsýsl- unnar að því máli seinustu þrjú árin, þó endastöð þess leiðang- urs sé ekki í augsýn. Forsagan er sú að OR hefur í tæp 15 ár gert mér að greiða tvöfalt meira en aðrir í hita- kostnað fyrir sumarhús í Borg- arfirði. Sé ég ósáttur við það hef ég „frelsi til að fara annað“ með mín viðskipti og þar sem OR er eini aðilinn sem má bjóða þessa þjónustu á svæðinu er væntanlega átt við að ég færi húsið út fyrir þjónustusvæði OR. Í árslok 2013, eftir tæplega 12 ára ofurgreiðslur til OR, óskaði ég eftir afskiptum Neytendasamtak- anna enda félagi þar. Þau virtust ekki sjá neitt ámælisvert við við- skiptahætti OR, þ.e. ranga upplýs- ingagjöf eða einhliða riftun samn- inga og kyngdu athugasemdalaust skýringum OR á hvers vegna heimilt væri að mismuna við- skiptavinum eins og ég hef fengið að kynnast. Neytendasamtökin koma aftur við sögu eins og síðar verður getið og frammistaðan síst skárri í seinna skiptið. Kannski eru þetta ekki mjög skilvirk samtök. Þá hófst ferðalag um stjórn- sýsluna, enda réttlætir OR gjald- töku sína með reglugerð þaðan. Fyrsti viðkomustaður var hjá um- boðsmanni Alþingis, sem vísaði á innanríkisráðuneytið (Irr), sem vís- aði á atvinnuvega- og nýsköpunar- ráðuneyti (Anr). Eftir ítarlega – og tímafreka – gagnaöflun og umþótt- un treysti Anr sér ekki til að túlka eigin reglugerð og vísaði á Kæru- nefnd lausafjár- og þjónustukaupa, sem vísaði málinu frá. Nú, eftir 32 mánaða hringferð, er staðan þessi: Sveitarstjórn Borgarbyggðar tel- ur sig ekki hafa forræði í málinu (en hefur óskað eftir við OR að endurskoða stefnu sína í verðlagn- ingu – án undirtekta þar). Neytendasamtökin hafa tvívegis vísað málinu frá – í seinna skiptið með aðild að ákvörðun kæru- nefndar. Ekkert bólar á nýjum lögum eða reglugerð frá atvinnu- og nýsköp- unarráðuneyti eins og um var tal- að. Ekki er vitað til að innanríkis- ráðuneytið hafi gert athugasemd við starfshætti kærunefndar. Umboðsmaður Al- þingis hefur end- ursent málið til kæru- nefndar þar sem það bíður meðferðar. Kærunefnd lausa- fjár- og þjónustu- kaupa á skilinn sér- stakan kapítula í þessari sögu. Nefnd- inni er ætlað að bjóða upp á skjótvirka og ódýra leið til að leita úrlausnar á deilum um viðskipti og skal skila áliti innan átta vikna frá því að gögn liggja fyrir. Neytenda- samtökin og Samtök atvinnulífsins tilnefna hvor einn nefndarmann en innanríkisráðherra skipar þann þriðja án tilnefningar. Nefndin tók sér átta mánuði í að vísa málinu frá. Þessari frávís- un vildi ég ekki una og óskaði eft- ir endurupptöku, enda augljósir annmarkar á málsmeðferð. Eftir ítrekaða beiðni þar um kom loks staðfesting á endurupptöku, en hún hafði ekki meira vægi en svo að þegar Irr innti eftir stöðu mála nokkru síðar kannaðist nefndin ekki við að vera með málið til meðferðar! Í millitíðinni hafði ég snúið mér aftur til umboðsmanns Alþingis og taldi fullreynt að fá úrlausn eftir hefðbundnum leiðum stjórnsýsl- unnar. Niðurstaða umboðsmanns er að nefndinni sé skylt að fjalla um málið. Nú, tveimur mánuðum eftir snuprur umboðsmanns og þriðju ítrekun á ósk minni um endurupptöku, fæ ég þær upplýs- ingar að málið sé ekki enn komið á dagskrá. Það er þá búið að liggja hjá nefndinni síðan í febr- úar 2015. Ekki beint skjótvirk leið til úrlausnar. Mér er sagt að verið sé að skipa nýtt fólk í nefndina. Ætli það verði þá aðrir 20 mánuðir? Og jafnvel þótt að endingu komi mér hagfellt álit er óvíst að OR hlíti því nema fyrir atbeina dómstóla, kannski 2-3 ár þar til viðbótar. Í millitíðinni held ég áfram að greiða himinháa reikninga frá Orkuveitu Reykjavíkur. Þetta potast samt áfram og heilsan er enn góð, takk, svo ekki ætti hún að flækjast fyrir. En eins og lesendur sjá er samt hætt við að nokkur bið verði á næsta pistli. Sagan endalausa um lögverndaða einokun Eftir Karl Sigurhjartarson »Mér er sagt að verið sé að skipa nýtt fólk í nefndina. Ætli það verði þá aðrir 20 mánuðir? Karl Sigurhjartarson Höfundur sinnti áður ferðamálum. Á nýju kjörtímabili blasa við stórverkefni á sviði öldrunarmála og í réttindabaráttu eldri borgara. Gríðarleg fyr- irsjáanleg fjölgun eldri borgara kallar á ný við- mið um atvinnuþátt- töku og samfélagsþátt- töku eldri borgara. Í bígerð er hækkun líf- eyrisaldurs í 70 ár, en samhliða því er mikilvægt að auka frelsi aldraðra til sveigjanlegra starfsloka og sveigjanlegrar töku líf- eyris. Ef sú breyting á að virka þarf líka viðhorfsbreytingu á vinnumark- aði gagnvart eldri borgurum. Það þarf að meta framlag þeirra meira. Nú þegar er illmögulegt fyrir fólk á sjötugsaldri að fá vinnu og konur yf- ir fimmtugu hafa margar átt mjög erfitt með að finna störf þar sem hæfni þeirra og reynsla er metin að verðleikum. Ef við ætlum eldri borg- urum í alvöru að vinna lengur verður vinnumarkaðurinn – hinn almenni og opinberi – að gera fólki kleift að fá og halda vinnu á sjötugsaldri. Það á að vera verkefni nýrrar ríkis- stjórnar að leiða vinnu við að bregð- ast við þessum nýju þörfum og skapa fjárhagslega hvata fyrir fyr- irtæki og stofnanir að nýta sér vinnuafl eldri borgara. Hjúkrunarrými og fjölbreytt búseta Í ríkisstjórnartíð Samfylking- arinnar 2007-2013 var hafist handa um byggingu um 500 hjúkr- unarrýma, en upp- byggingunni var hætt þegar ný ríkisstjórn settist að völdum. Nú hefur verið hafist handa um nokkur upp- byggingarverkefni, en brýn þörf er fyrir hundruð nýrra rýma. Við getum ekki búið öldruðum ófullnægj- andi úrlausn í heil- brigðismálum og umönnun vegna skorts á hjúkrunarúrræðum. Til viðbótar við uppbyggingu hjúkr- unarheimila þarf að styrkja heima- hjúkrun og auka möguleika aldraðra á að njóta persónulegrar heimaþjón- ustu, með sama hætti og fatlaðir eru nú að fá í vaxandi mæli. Stærsta hagsmunamál í heilbrigðismálum eldri borgara er samt uppbygging Landspítalans með betri húsakosti, fullkomnari tækjum og útrýmingu biðlista eftir mikilvægum aðgerðum eins og liðskiptaaðgerðum. Það þarf líka að þróa áfram fjöl- breyttar húsnæðislausnir. Þeir tímar eru liðnir að aldraðir flytji á dvalarheimili og mikilvægt að gera fólki sem það vill kleift að búa heima. En við þurfum líka að tryggja þeim sem ekki vilja búa einir og upplifa óöryggi og einmanaleika leiðir til að búa í félagsskap við aðra, án þess að um fullbúin hjúkrunarheimili sé að ræða. Á vegum Samfylkingarinnar hefur Rannveig Guðmundsdóttir, fv. félagsmálaráðherra, leitt vinnu við að kortleggja þarfir fyrir nýjar hús- næðislausnir. Við viljum halda því verki áfram í ríkisstjórn og auka val eldri borgara um búsetuform. Bætur eiga fylgja lágmarks- launum Ég hef áður fjallað hér í blaðinu um það ófrávíkjanlega loforð okkar að lágmarksbætur almannatrygg- inga fylgi lægstu launum og taki hækkunum með sama hætti og þau. Það loforð höfum við alltaf staðið við í ríkisstjórn, jafnvel þótt við höfum glímt við fordæmalausa erfiðleika og það munum við standa við á nýju kjörtímabili. Það þarf líka að horfa til þess hvernig mæta beri þeim eldri borg- urum sem eru með óbærilega háan húsnæðiskostnað. Aldraðir eru vissulega margir með skuldlítið íbúðarhúsnæði og bera hóflegan húsnæðiskostnað, en það eru óþægi- lega margir sem eru með svo háan húsnæðiskostnað að hann fer upp fyrir öll eðlileg viðmið. Oft er miðað við það alþjóðlega að húsnæðis- kostnaður eigi ekki að fara umfram 35% af ráðstöfunartekjum. Ég tel eðlilegt að við setjum sambærileg viðmið fyrir eldri borgara, sem sann- anlega eru ekki í þeirri stöðu að geta aukið við tekjur sínar til að mæta þessum kostnaði. Það er eðlilegt að þróa leiðir til að mæta húsnæð- iskostnaði eldri borgara ef hann fer yfir 35% af ráðstöfunartekjum. Í öllum þessum efnum hefur Sam- fylkingin skýra sýn og hefur sýnt á liðnum árum skilning og áhuga á málefnum eldri borgara. Á umróts- tímum skiptir máli að við ríkis- stjórnarborðið sé umbótaflokkur sem þekkir til verka og kann að koma málum áfram. Samfylkingin er slíkur flokkur. Eldri borgarar eiga ekki að vera afgangsstærð Eftir Árna Pál Árnason » Lágmarksbætur al- mannatrygginga eiga að fylgja lægstu launum og taka hækk- unum með sama hætti og á sama tíma og þau. Árni Páll Árnason Höfundur er alþingismaður og skipar 1. sætið á lista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Atvinnublað alla laugardaga mbl.is Bridsfélag eldri borgara í Hafnarfirði Þriðjudaginn 11. október var spil- aður 22 para tvímenningur. Bestur árangur í N/S (% skor): Örn Einarsson - Guðlaugur Ellertsson 59,6 Bjarnar Ingimarss. - Bragi Björnsson 57,7 Jón Sigvaldason - Katarínus Jónsson 57,6 Jóhann Benedikts. - Friðrik Hermanns. 57,1 Bjarni Þórarinsson - Magnús Jónsson 50,9 A-V Ómar Ellertsson - Guðm. Guðmss. 60,0 Sigurður Hallgrs. - Steinmóður Einarss.59,2 Birgir Sigurðss. - Jón Svan Sigurðss. 58,7 Höskuldur Jónss. - Sigtryggur Jónss. 55,3 Sveinn Snorrason - Filip Höskuldsson 52,9 Þriðjudaginn 4. okt. var spilaður tvímenningur með þátttöku 24 para. Efstu pör í N/S: Albert Þorsteinsson - Jórunn Kristinsd. 59,8 Guðm. Sigursteinss. - Björn Árnason 57,3 Jóhann Benedikts. - Friðrik Hermanns. 55,3 A-V Ólafur Ólafsson - Anton Jónsson 66,5 Birgir Sigurðss. - Jón Svan Sigurðss. 63,6 Tómas Sigurjs. - Jóhannes Guðmannss. 56,6 Föstudaginn 7. október var spilað á 10 borðum. Efstu pör í N/S: Bjarnar Ingimarss. - Bragi Björnsson 56,5 Örn Ingólfsson - Örn Isebarn 53,9 Lúðvík Ólafsson - Björn Árnason 53,5 A-V Höskuldur Jónss. - Sigtryggur Jónss. 64,1 Birgir Sigurðss. - Jón Svan Sigurðsson 61,3 Anton Jónsson - Ólafur Ólafsson 53,9 BFEH spilar á þriðjudögum og föstudögum í Hraunholti, Flata- hrauni 3. Spilamennska byrjar kl. 13. Keppnisstjóri er Sveinn R. Eiríks- son og er hjálpað til við myndun para fyrir staka spilara. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| brids@mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.