Morgunblaðið - 21.10.2016, Síða 58
Siglótöfrar Sigló Hótel sómir sér óneitanlega vel undir norðurljósadýrðinni sem fer með himinskautum. Alls telur gistiplássið 68 herbergi af fjórum mismunandi stærðum.
Sigló Hótel telur heil 68 herbergi og
skiptast þau í fjóra flokka, eins og
hótelstjórinn Finnur Yngvi Krist-
insson útskýrir. „Við erum með Clas-
sic herbergi, Lúxus, Junior-svítur og
svo tvær svítur. Herbergin eru af
mismunandi stærðum og því með
eitthvað við allra hæfi. Aðbúnaðurinn
er í alla staði mjög góður, eins og
vera ber á hóteli í flokknum fjórar
stjörnur plús.“
Margþætt aðdráttarafl
Það er engum ofsögum sagt að um-
hverfi Sigló Hótels er geysifallegt,
þar sem það stendur við Siglufjörð.
En aðdráttaraflið er margþættara en
svo, að sögn Finns hótelstjóra.
„Það eru fáein lykilatriði sem
nauðsynlegt er að upplifa þegar fólk
kemur hingað, ekki síst þegar um
fyrstu heimsókn er að ræða. Fyrst er
að nefna Síldarminjasafnið, enda er
safnið eitt hið flottasta á landinu og
saga síldarinnar bundin kaup-
staðnum órofa böndum. Einnig vil ég
nefna Þjóðlagasetrið og Ljóðasetrið
sömuleiðis.“
Það er auðheyrt að menninguna
vantar ekki á Siglufjörð og Finnur
tekur samstundis undir það.
Súkkulaðikaffihús og bjórgerð
„Hér er að finna slatta af galleríum
og svo var að opna hér súkkulaði-
kaffihús, rekið af henni Fríðu Björk
sem framleiðir sitt eigið súkkulaði og
lærði súkkulaðigerð í Belgíu. Siglu-
fjörður státar sem sagt af því að vera
með lókal súkkulaðigerð,“ segir
Finnur stoltur. Og það er ekki allt.
„Fyrir ári síðan opnaði hér lítil
bjórverksmiðja, sem nefnist Segull
67.“
Heimagert súkkulaði og hand-
verksbjór?
Það er ljóst að sælkerar hafa
drjúga ástæðu til að sækja Siglufjörð
heim, ásamt menningarvitunum eins
og framar greindi.
„Hér er ótalmargt sem laðar að og
nóg af áhugaverðum hlutum. En
samt sem áður er það svo að þú kem-
ur hingað til að slaka á. Fólk kemur
til Siglufjarðar til að njóta stund-
arinnar, kyrrðarinnar og lífsins.“
Snjóþrúguganga um vetur
Fyrir þá sem langar að sækja Sigló
heim í vetur er ýmislegt við að vera
þótt snjór liggi yfir öllu – eða kannski
einmitt vegna þess að snjór er yfir
öllu. Finnur bendir á að á veturna
bíði skíðasvæðið klárt ásamt því að
hægt er að fá leigðar snjóþrúgur á
hótelinu og bregða sér í snjó-
þrúgugöngu um nágrennið, ýmist
undir leiðsögn heimamanns eða bara
á eigin vegum.
„Það er hægt að fara ákveðnar
gönguleiðir eða bara elta nefið á sér.
Mitt uppáhald er að fara að skóg-
ræktinni og labba þar að fossinum.
Það er óviðjafnanlegt að fara þessa
leið fyrir pör,“ bætir Finnur Yngvi
við. „Þegar veður leyfir er svo hægt
að bregða sér í sjóstangaveiðitúr. Til
þess erum við með bát sem tekur allt
að 30 manns í hvern túr.“
Valkostir í veitingastöðum
Finnur bendir á að þegar kemur að
því að fá sér í svanginn búi Sigló Hót-
el svo vel að hafa yfir að ráða þremur
mismunandi stöðum sem henti mis-
munandi tækifærum.
„Fyrst er að nefna Sunnu, sem er
veitingastaðurinn á hótelinu með à la
carte-seðil, en nafnið er dregið af
Sunnubragga sem stóð áður þar sem
hótelið er í dag. Frá matsalnum er
því útsýni beint yfir smábátahöfnina.
Við þetta má bæta að við erum með
Lobbý Bar þar sem léttur matseðill
er boði fyrir þá sem vilja tylla sér og
kasta mæðinni eftir erilsaman dag.“
Í annan stað nefnir Finnur Kaffi
Rauðku sem er, vel að merkja, í fag-
urrauðu húsi og er opin á daginn.
Loks er það Hannes Boy sem stend-
ur í skærgulu húsi við smábátahöfn-
ina. Staðirnir hafa á sinn hátt mis-
munandi áherslur og því erum við að
ná að taka inn mjög breiðan hóp af
viðskiptavinum, allt frá pörum upp í
stærri hópa.“
Í sælunni á Siglufirði
Rúmlega ársgamalt
stendur Sigló Hótel á nota-
legum stað við smábáta-
höfnina á Siglufirði
Hótelherbergi Herbergin á Sigló Hótel eru nútímaleg og vistleg, og þess er
gætt að þau rími við klassískt útlit hótelsins sem smellpassar sjálft inn í bæj-
armyndina við smábátahöfnina. Hér sést herbergi af „Classic“ gerðinni.
Fanntófell ehf. | Bíldshöfða 12 | 110 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is
· Gæðavörur úr harðplasti, akrílstein, Fenix og límtré.
· Mikið úrval efna, áferða og lita.
· Framleiðum eftir óskum hvers og eins.
· Hentar jafnt fyrir heimili, vinnustaði og almenningssvæði.
BORÐPLÖTUR
OG SÓLBEKKIR
Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987.
HÓTEL
Hringinn í kringum landið