Morgunblaðið - 21.10.2016, Side 69

Morgunblaðið - 21.10.2016, Side 69
MINNINGAR 69 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2016 ✝ Þuríður Þor-steinsdóttir fæddist 3. janúar 1923 í Miðhlíð á Barðaströnd og fluttist á barns- aldri að Litluhlíð í sömu sveit. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu Sunnu- hlíð 16 október 2016. Þuríður var dóttir hjónanna Guðrúnar Jónu Margrétar Finnboga- dóttur, f. 1893, d. 1978, og Þorsteins Ólafssonar, f. 1890, d. 1989. Systkini hennar eru: Sigurður Finnbogi, f. 1913, d. mundssyni frá Skjald- vararfossi, f. 1918, d. 1972. Eignuðust þau fjögur börn: Guðmundur Hafsteinn, f. 1944 , kvæntur Margréti Sverrisdóttur, börn þeirra eru: Rakel, Friðgeir og Sverr- ir. Friðgerður Björk, f. 1946, gift Ómari Þórðarsyni, börn þeirra eru: Atli, Gunnsteinn Reynir og Rebekka. Gunnsteinn Reynir, f. 1948, d. 1954. Olga, f. 1961, börn hennar eru: Friðgeir Karl og Alex- andra. Þuríður á orðið stóran hóp afkomenda. Sambýlismaður Þuríðar síð- ustu árin var Pétur Benedikts- son, f. 1918, d. 2012. Útför hennar verður gerð frá Digraneskirkju í dag, 21. október 2016, klukkan 11. 1984, Ólafía Krist- ín, f. 1914, d. 1914, Ólafía Krist- ín, f. 1915, d. 2012, Gunnar Þor- steinn, f. 1918, d. 2008, Mikael, f. 1919, d. 1997, Kristján Ólafur, f. 1922, d. 1973, Unnur, f. 1924, d. 1924, Höskuldur, f. 1925, d. 2004, Jóhann Þorsteinsson, f. 1928, d. 2016, Vigfús, f. 1930, d. 2008, Bjarni, f. 1933, d. 2008, Ásta, f. 1936, d. 1996, Hall- dóra, f. 1939, d. 1940. Hún var gift Friðgeiri Guð- Eigum við ekki að skreppa á rúntinn? spurði amma. Auðvitað var það eitthvað sem lítil stelpa vildi heyra síðla kvölds einmitt þegar örlaði aðeins á heimþrá. Við fórum á rúntinn og komum við í lúgusjoppunni til að kaupa malað- an ís eða Nizza. Ertu ekki svöng, viltu ekki fá þér eitthvað? spurði amma og benti í áttina að búrinu þar sem alltaf mátti finna eitthvað gómsætt og spennandi. Sjálf átti hún til að ná sér í væna smjörklípu ef hún átti leið þar um. Er þér kalt, á ég ekki að ná í hit- arann? spurði amma og náði í hita- blásara til að hafa við rúmstokkinn þegar unglingsstelpan átti að mæta snemma til vinnu í frystihús- inu. Þú getur gist hjá mér sagði amma þegar hún var flutt til Reykjavíkur og stelpan kom í bæ- inn. Þá var amma flutt í blokk og búin að kaupa sér ný húsgögn og mér fannst hún vera að hefja nýtt líf. Á ég ekki bara að sækja ykkur? spurði amma þegar stelpan var orðin fullorðin kona og þurfti að komast heim af fæðingardeildinni með fyrsta drenginn sinn. Hún keyrði okkur heim og fannst hún eiga svolítið í stráknum æ síðan. Get ég hjálpað eitthvað? spurði amma þegar fjölskyldan lá í ælu- pest – og hún kom, sá um barnið og smitaðist svo sjálf af pestinni. Vantar ykkur ekki hosur? spurði amma og stórir sem smáir fengu hlýja sokka. Nú gerist eitthvað hræðilegt sagði amma þegar hún á níræð- isaldri sagði frá leyndarmálinu sem hún var látin þegja yfir þegar hún var lítil stúlka. Það er þyngra en tárum taki að hugsa um mann- vonskuna sem býr að baki slíkum gjörðum og óttinn var enn til stað- ar 80 árum síðar. Viltu ekki fá þér mola? spurði amma fram á síðasta dag á Sunnu- hlíð. Taktu svo nokkra fyrir strák- ana, bætti hún við í lokin. Ég þakka ömmu fyrir allt sem hún hefur gert fyrir mig og minn- ist hennar með mikilli hlýju. Rakel Guðmundsdóttir. Það var haust, laufin byrjuð að falla af trjánum og dauf morgun- skíma sló bjarma á fjöllin okkar fögru. Yfir Þorpinu hvíldi fyrirheit komandi vetrar, því nýr vettvang- ur var að skapast fyrir sjö ára grunnskólabörn sem voru að hefja skólagöngu sína á Patreksfirði, það var árgangur 1946 sem með tímanum hefur orðið ákaflega samstilltur hópur. Snót er bjó yst í þorpinu lagði af stað eilítið kvíðin en þó eftirvæntingafull, nýr heim- ur að opnast, hvernig yrði hann eiginlega? Skemmst er frá því að segja að þarna hófst vegferð sem reyndist mér gifturík í meira lagi. Það sem gerði ekki síst útslagið að á þessum fyrstu haustdögum í skólanum kynntist ég vinkonu minni Friðgerði Friðgeirsdóttur, Lillu eins og hún er jafnan kölluð. Lilla bjó með fjölskyldu sinni í „101“ í þorpinu okkar góða, allra leiðir lágu fram hjá heimili hennar. Fljótlega varð hennar heimili minn fasti áfangastaður. Þangað var gott að koma. Í tíma og ótíma stóðu dyr heimilisins að Aðalstræti 29 opnar, allir velkomnir hvort sem það voru trítlandi þorparar á leið í eða úr skólanum eða ferða- langar langt að komnir, ekki síst frá Barðaströnd, heimasveit hús- móðurinnar. Hverjir voru húsráðendur á þessu gestrisna heimili? Jú, það voru hjónin Friðgeir Guðmunds- son frá Skjaldvararfossi mikill öð- lingur og Þuríður Þorsteinsdóttir frá Litluhlíð sú er við nú kveðjum. Ég minnist Þuru eins og hún var jafnan kölluð með mikilli hlýju og kærleika. Alltaf tók hún á móti skellibjöllunum af mikilli þolin- mæði, aldrei styggðaryrði né fá- leiki, alltaf var hún spennt yfir að heyra upplifun okkar af heiminum bæði þeim sem ollu gleði sem og hinum sem gerðu það síður. Þura var ákaflega dugleg kona og lék allt í höndunum á henni. Það get ég staðfest sérstaklega hvað prjónaskapinn áhrærði. Hand- bragðið var sérlega fágað, kryddað þeirri næmni sem sem hún bjó yfir, flíkurnar hennar lýstu sköpunar- gleði sem endurspegluðu listræna hæfileika hennar. Þess fyrir utan skoraði hún sérlega hátt hvað mat- seld, bakstur og mannleg sam- skipti varðaði. Alla þessa hæfileika nýtti hún í þágu samferðafólks, sem fóru af hennar fundi sann- færðir að heimurinn brosti þeim skærar í mót en fyrr. Hún Þura var fastur punktur í tilveru minnar bernsku, í henni átti ég vin og bandamann. Fyrir það verð ég ævinlega þakklát. Aðstandendum votta ég mína dýpstu samúð. Guð blessi minn- ingu Þuríðar Þorsteinsdóttur. Auður Kristinsdóttir. Sá lærir sem lifir. Ég er alltaf að læra og nú þegar ég sit og skrifa þessi orð ígrunda ég orðið minn- ingar enn frekar. Tími, gæða- stundir og minningar eru hlutir sem við eigum að hlúa betur að. Þura var ekki bara Þura frænka og það vita allir sem þekkja mig að Þura var svo miklu miklu meira í mínum huga og hjarta. Hún átti jafn stóran part í mínu hjarta og ég í hennar, ég veit það, hún sagði mér það kannski ekki en hún sýndi það í verki, hlýju og umhyggju. Enda eru margar af mínum fyrstu minningum úr æsku tengdar Þuru frænku. Veturinn 1998 urðu straum- hvörf í mínu lífi. Ég flutti úr vernd- uðu umhverfi sveitarinnar til borg- arinnar og að standa á eigin fótum var allt í einu staðreynd. Engihjalli 9 varð mitt fyrsta eigið heimili en ekki bara mitt heldur var það Þura frænka sem leigði mér sína íbúð. Leigan var ekki há en háð nokkr- um skilyrðum sem var ekki erfitt að uppfylla heldur ljúft og skylt að rækja. Þura vildi nefnilega fá að koma af og til í sína íbúð, íbúðina okkar, slappa af og vera um stund. Það voru því ófá skiptin sem Þura kom til mín og stoppaði góða stund þennan veturinn, rifjaði upp minn- ingar úr æsku, sagði mér sögur af sér og afa, sögur úr sveitinni í Litluhlíð og hún sagði mér hluti sem hún bað mig fyrir og ég geymi aðeins með mér. Stundum gleymd- um við okkur og tíminn flaug frá okkur. Dagurinn sem Pétur hringdi til að vitja hennar, eða hringdi til að vita hvort ég vissi um Þuru er sérstaklega minnisstæður, gæðastund og tíminn flaug hjá okk- ur. Ég var lánsöm og í dag kann ég enn frekar að meta það að ég var undir verndarvæng hennar og elsku Péturs þennan vetur. Það gat tekið á að standa á eigin fótum og það vissu þau Þura og Pétur líklega betur en mig grunar. Mér var ekki einungis boðið í mat oft heldur leyst út með nesti líka. Þau hringdu til að vita hvað ég hefði borðað dag- ana á undan og eftir þá upptaln- ingu þótti þeim tími til kominn að ég kæmi í mat. Kjarngóður íslensk- ur matur á borðum, en auk þess bakkelsi og brjóstsykur. Pétur hafði oft á orði hvað það væri gam- an að fá mig í mat því ég borðaði allt og hraustlega líka. Veturinn leið og sveitin varð aft- ur fyrir valinu um árabil. Það ein- staka samband sem ég myndaði við Þuru og Pétur breyttist ekki og heimsóknir í Hamraborgina og síð- ar íbúðina þeirra í Sunnuhlíð urðu ófáar, en ég viðurkenni færri en ég vildi óska í dag. Þau fylgdust alltaf vel með mér, hvað ég tók mér fyrir hendur og hvernig mér gekk í verkefnum líðandi stundar. Ég fékk að fylgjast enn betur með hvað Þura var að gera í Gjábakka og sérstaklega hreyfingunni þar sem hún vissi að íþróttafræðin var orðin mitt fag. Ég vona að mér hlotnist sá heiður að verða jafn létt á fæti á mínum efri árum og Þura var á sínum efri árum, það eru lífs- gæði. Það er með ást, virðingu og hlýju sem ég kveð elsku Þuru frænku, hún var einstök rós í mínum garði. Kær kveðja. Þín frænka, Sabína Steinunn Halldórsdóttir. Það eru ævinlega mikil tímamót þegar síðasti leggur stórs systkina- hóps kveður. Svo er vissulega einn- ig nú þegar hún Þuríður Þorsteins- dóttir, eða Þura frænka, eins og hún var jafnan nefnd í minni fjöl- skyldu, heldur á nýtt tilverustig. Þura var sjötta í röðinni af ellefu systkina hópi sem komst á legg og jafnan er kenndur við bæinn Litlu- hlíð á Barðaströnd. Nú eru þau öll horfin úr okkar heimi. Árið er 1977. Við Anna mín erum í fyrsta sinn á leið saman á Vest- firði. Ferðinni er heitið á Patreks- fjörð – þar býr Þura frænka – föð- ursystir Önnu og einhvern veginn er sjálfgefið að hjá henni gistum við næstu daga meðan „gripur- inn“ er kynntur fyrir verðandi tengdafólki og tekið er hús á stórum hópi ættmenna og vina Önnu á svæðinu – af nógu er að taka! Tekið með kostum og kynj- um af Þuru í litla húsinu hennar við Aðalstræti 29 – næsta hús við hina landsþekktu Skjaldborg. Hún býr þarna ein með Olgu dótt- ur sinni – hafði misst mann sinn fimm árum áður aðeins 49 ára gömul og ungan son löngu fyrr. Lífsreynd kona en þó með sína léttu lund. Þannig voru mín fyrstu kynni af Þuru, kynni sem entust allt fram á síðasta dag og aldrei bar skugga á. Þau kynni og samskipti áttu eftir að aukast mjög eftir að hún flutti suður og settist að í Kópavogi – ekki síst eftir að hún kynntist sómamanninum Pétri Benediktssyni og hóf búskap með honum. Bæði sýndu þau okkur og dætrum okkar einstaka vináttu og áhuga alla tíð og samskiptin við þau voru ávallt ánægjuleg. Sú venja komst fljótt á að ég sá um framtalsgerð og tilheyrandi fyrir þau og í minningunni sé ég þau koma röltandi yfir Hamraborgina í slíkum erindagjörðum – gjarnan með „góðgjörðir“ í poka meðferðis svona til yndisauka. Eftirminni- legt var einnig að sækja þau heim í sumarbústað Péturs við Þing- vallavatn þar sem þau áttu góðar stundir og snyrtimennska var í öndvegi höfð. Síðustu árin saman áttu þau í lítilli og fallegri íbúð í Sunnuhlíð og ekki var síðra að taka á þeim hús þar – alltaf nota- legt. Pétur lést 2012 og fyrst um sinn bjó Þura áfram í íbúðinni í Sunnu- hlíð en þegar heilsan fór að gefa sig flutti hún í herbergi – einnig í Sunnuhlíð – þar sem hún dvaldi uns yfir lauk. Við Anna litum inn hjá henni tveimur vikum fyrir andlátið og ljóst var að hverju dró. Hún virtist þekkja okkur og spjallaði lítillega við okkur en þrekið var augljóslega á þrotum. Komið er að kveðjustund. Að leiðarlokum er þakklæti fyrir gefandi kynni af henni og hennar fólki það sem efst er í huga. Megi henni vel farnast á nýju tilveru- stigi. Blessuð sé minning Þuríðar Þorsteinsdóttur. Guðmundur Jóelsson. Þuríður Þorsteinsdóttir ✝ Erla RuthSandholt fædd- ist í Reykjavík 27. maí 1940. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 7. október 2016. Foreldrar henn- ar voru Þóra G. A. K. Sandholt lista- maður og húsmóð- ir, f. 18. júlí 1912, d. 14. janúar 2010, og Ásgeir J. Sandholt bakarameist- ari, f. 5. júlí 1913, d. 19. maí 2003. Systkini hennar eru: Sverrir Sandholt rafeindavirki, f. 1. september 1942, kona hans er Sigríður Breiðfjörð. Stefán Har- ald Sandholt bakarameistari, f. 28. nóvember 1945, kona hans er Olga Bjarklind Magnúsdóttir, og Ragnhildur Kristín Sandholt 25. apríl 1966, giftur H. Christi- an Faurschou arkitekt, f. 26. júní 1969. Erla gekk í Ísaksskóla og svo Austurbæjarskóla, síðar lærði hún hárgreiðslu í Iðnskóla Reykjavíkur. Erla fór að loknu námi til frekara náms í sinni iðn til Kaupmannahafnar og dvald- ist þar í eitt ár. Erla starfaði sem sjálfboðaliði bæði hjá Rauða krossi Íslands og innan Sjálfsbjargar en einnig var hún virk í starfi Sjálfstæðisflokksins frá 15 ára aldri. Erla starfaði við hárgreiðslu þar til börnin fæddust en hún var heimavinn- andi allt fram að því að Sjálfs- bjargarhúsið í Hátúni 12 tók til starfa en þá réð hún sig þangað sem hárgreiðslumeistara og vann þar allt þar til hún lét af störfum sjötug að aldri eða í 37 ár. Erla hóf einnig störf hjá Reykjavíkurborg þegar félags- starf eldri borgara opnaði að Norðurbrún 1 og vann þar í yfir 30 ár. Útför Erlu fer fram frá Grensáskirkju í dag, 21. október 2016, klukkan 16. bókari, f. 6. ágúst 1949, d. 27. júlí 2008, eftirlifandi maki hennar er Jón Eiríksson. Erla Ruth giftist Tómasi Halldórs- syni Sigurðssyni, f. 31. júlí 1937, verzl- unarmanni þann 3. júní 1961. Eignuð- ust þau þrjú börn: 1) Ásgeir Þór bak- arameistari, f. 11. júní 1962, eig- inkona hans er Helena Hörn Einarsdóttir, f. 8. júní 1968. Þau eiga fjögur börn: i) Davíð Hauk, eiginkona hans er Katrín Alex- andra, börn þeirra eru Aron Máni og Helga Margrét. ii) Söndru Ruth, iii) Anítu Mjöll, iv) Elínu Huld. 2) Guðlaug skrif- stofumaður, f. 11. janúar 1965. 3) Arnar hárgreiðslumeistari, Í dag munum við fjölskyldan og vinir koma saman í Grensás- kirkju til að minnast og kveðja elskulega múttu mína. Þessi ákveðna kona var alveg harðákveðin að nú væri tíminn kominn, nú væri komið nóg. Hún hafði ekki áhuga á að vera spítalamatur tengd við tæki og tól, það gerði hún okkur ljóst og var þess fullviss að nú færi hún til fundar við Drottin sinn, því kvaddi hún okkur börn sín og eig- inmann sátt og óhrædd. Hún frú Erla, eins og við systkinin köll- uðum hana í góðu tómi, var glæsi- leg kona, fór í lagningu, var með varalit og naglalakk, átti nóg af veskjum og skóm og var alltaf ánægð með það sem hún átti. Fals átti hún ekki til og á stundum var hún helst til of hreinskilin. Átti langbesta manninn, bestu börnin, bestu tengdabörnin, bestu barna- börnin og langömmubörn og var yfir höfuð ánægð með val sitt á flestöllu sem hún eignaðist eða gerði um ævina. Hún var hræðilega pólitísk og svei mér þá ef hún var ekki sann- færð um að Drottinn, Davíð og xD væri allt í sama gæðaflokki en hún reifst aldrei um pólitík, það kom ekki til greina. Held næstum því að hún hafi fundið til með þeim sem ekki höfðu séð ljósið svo maður geri nú smá grín að þessari sannfæringu hennar. Hún móðir mín hafði meiri náð fyrir kirkjubrölti dóttur sinnar og ólíkri lífssýn en dóttirin fyrir þessari póltísku sannfæringu hennar. Það sem skiptir hins vegar máli þegar öllu er á botninn hvolft er að við mæðgurnar vorum vinir og hefði ekki getað þótt vænna hvor um aðra. Fjölskyldan í heild hafði held ég líka komist að þeirri niðurstöðu að vera sammála um að vera ósammála þegar það átti við. Mamma var safnari, hún átti alltaf mikið af öllu, það gat nefni- lega orðið fólk á leið hennar sem hefði getað nýtt sér eitthvað af þessum mat eða dóti. Aldrei mátti henda neinu því í flestum tilfellum fann hún einhvern sem gat fært sér allt þetta í nyt, já eða hún gef- ið það til Nytjamarkaðar ABC. Hún elskaði að eyða tíma í sumarbústaðnum þótt hún væri ekkert fyrir útiveru, leyfði börn- unum sem þangað komu að hanga á náttfötum allan daginn og horfa á teiknó og borða ís. Hún var líka ein af þessum ein- staklingum sem fékk orku af því að vera í margmenni jafnvel þó að hún þekkti engan, sem reyndar kom nú ekki oft fyrir, þá var ekk- ert eðlilegra en kynnast nokkrum nýjum. Hún sagði á góðri stund við bróður minn að verst hafi henni fundist að hafa alið okkur upp í að verða svona sjálfstæð því þannig hefðum við ekki neina þörf fyrir hana. Reyndar veður hún í villu þar en sjálfstæð erum við sem er bara frábært en við vissum líka að hún var til staðar hundrað prósent. Hún var ekki endilega sú auð- veldasta, hún var stórbrotin, ákveðin en ekki frek, hún vildi vel og það ber að þakka. Hvíl í friði, elsku mamma mín, og Drottinn blessi minningu þína. Guðlaug Tómasdóttir. Í dag kveðjum við elskulega móðursystur okkar Erlu, sem við systkinin höfum ávallt kallað Frænku. Hún hafði með eindæm- um stóran og ástríkan faðm, sem umvafði okkur hvenær sem þörf var á. Við vorum ávallt velkomin á heimili hennar í Stóragerði þar sem hún bjó lengst af ásamt Tomma og krökkunum og vorum við þar tíðir gestir í æsku. Þar átt- um við eiginlega annað heimili og áttum okkar tannbursta inni í skáp, náttföt og fullan skáp af Tarzanblöðum til að lesa. Eigum við margar skemmtilegar minn- ingar frá þeim árum. Minningarnar um matmálstím- ana, þar sem Frænka lét sig aldr- ei muna um að bæta okkur í hóp- inn – alltaf nóg pláss og nægur matur. Stundum veltum við fyrir okk- ur hvernig við komumst öll fyrir við litla eldhúsborðið. En það var alltaf einn sem fékk að sitja í há- sætinu sem var trappa og borðið skurðbretti sem dregið var út úr eldhúsinnréttingunni. Minningin þegar Eiríkur, sennilega um sjö ára, át svo margar bringur af svartfugli, meira en Ásgeir Þór gat torgað, að um var talað í mörg ár. Íris lá oft vel við höggi fyrir stríðni frænda sinna, Ásgeirs Þórs og Arnars, og þá var gott að geta hlaupið til Frænku sem tók hana undir sinn verndarvæng og skammaði þá svo þeir hættu í bili. Þegar hún hjólaði til Frænku og fékk permanent aðeins 12 ára gömul. Atli Már var yngstur og eftirlæti Frænku og mátti enginn stugga við honum svo hún heyrði til, því hann var engillinn hennar. Þegar hann gisti hjá henni, var hann eins og prins á heimilinu, fékk allt sem hann vildi á silfurfati og ótakmarkaðan aðgang að videospólum og sjónvarpsglápi – það var allt látið eftir honum. Öll yndislegu jólaboðin sem hún hélt og við mættum alltaf snemma í og byrjuðum á að horfa á jólastundina okkar áður en allir hinir kæmu. Oftar en ekki varð eitthvert okkar eftir og gisti í stofusófanum eða uppi í rúmi hjá Guðlaugu. Frænka var ákveðin en samt alltaf létt í lund og bros- mild. Við erum rík af minningum um góða Frænku sem við eigum eftir að sakna mikið og erum þakklát fyrir allt sem hún hefur gert fyrir okkur og jafnframt þakklát fyrir að hún fékk að fara eftir erfið veikindi. Við erum sannfærð um að vel verði tekið á móti henni, af ömmu og afa og okkar ástkæru móður. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Hvíl í friðið, elsku Frænka. Eiríkur, Íris og Atli Már. Erla Ruth Sandholt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.