Morgunblaðið - 21.10.2016, Síða 77

Morgunblaðið - 21.10.2016, Síða 77
Ólafur var á vitaskipinu Hermóði sumrin 1951 og 1952, var síðan á sjómælingabátnum Tý 1953: „Þá um haustið fór ég á námssamning í kortagerð hjá Landhelgisgæslunni og síðasta árið hjá Det kongeli Sö- kort Arkiv í Kaupmannahöfn. Þar lauk ég prófi í kortagerð 1958, ann- ar Íslendingurinn sem lauk slíku prófi frá stofnuninni sem var á veg- um danska sjóhersins. Auk þess tók ég hin minni skipstjórnarréttindi.“ Að námi loknu starfaði Ólafur við sjómælingar og sjókortagerð á veg- um Landhelgisgæslunnar: „Ég var yfirleitt við mælingar og athuganir á varðskipum og sjómælingabátum á sumrin en vann úr gögnunum yfir veturinn. Við vorum yfirleitt á minni sjómælingabátum við strend- ur landsins en á varðskipum þegar fjær dró ströndinni. Auk þess starfaði ég við kortagerð og korta- skýringar við fréttastofu RÚV um skeið. Ég man vel eftir gosinu í Eyjum 1973. Þá fórum við strax til Eyja og fylgdumst vel með öllum breyt- ingum, einkum við innsiglinguna. Þar urðum við að mæla dýpt og aðr- ar breytingar á annan sólarhring, nánast fram á vor. Um sumarið mældum við allar breytingar með- fram suðurströnd Heimaeyjar.“ Ólafur vann hjá Landhelgisgæsl- unni allan sinn starfsferil og var síðast við mælingar á varðskipinu Ægi um aldamótin. Ólafur hefur lengi fengist við myndlist. Hann hóf nám við mynd- listarskóla í Reykjavík er hann var 12 ára, hefur sótt fjölda myndlist- arnámskeiða og hefur haldið nokkr- ar myndlistarsýningar. Þá kenndi hann myndmennt við Hlíðarskóla í Reykjavík um skeið. Fjölskylda Eiginkona Ólafs er Jóhanna J. Thorlacius, f. 4.5. 1940, hjúkr- unarfræðingur. Hún er dóttir Jó- hannesar Zoëga, f. 7.4. 1907, d. 13.1. 1957, prentsmiðjustjóra í Alþýðu- prentsmiðjunni, og k.h., Sigríðar Elínar Þorkelsdóttur, f. 27.6. 1909, d. 8.6. 1993, húsfreyju. Þau bjuggu í Reykjavík. Dætur Ólafs og Jóhönnu eru Margrét Ó. Thorlacius, f. 10.11. 1961, hjúkrunarfræðingur og deild- arstjóri við Landspítalann, búsett í Garðabæ en maður hennar er Heimir Svavar Kristinsson vélstjóri og eiga þau tvö börn; Sigríður Elín Thorlacius, f. 8.8. 1963, flugfreyja í Garðabæ en maður hennar er Viðar Magnússon húsasmiður og eiga þau tvö börn; Þórdís Thorlacius, f. 8.9. 1964, bókari hjá Actavis, búsett í Garðabæ en maður hennar er Haukur Hafsteinsson tölvufræð- ingur hjá Marel og eiga þau tvö börn, og Theodóra Thorlacius, f. 24.5. 1974, líffræðingur hjá Actavis í Sviss en maður hennar er Valgeir Pétursson, markaðsfræðingur hjá Actavis, og eiga þau þrjá syni. Systur Ólafs eru Guðfinna Thorlacius, f. 10.3.1938, fyrrv. hjúkrunarforstjóri á Akureyri, og Margrét Thorlacius, f. 28.5. 1940, kennari og fyrrv. ritstjóri og blaða- maður í Garðabæ. Foreldrar Ólafs voru Guðni Sig- mundsson Thorlacius, f. 25.10. 1908, d. 22.5. 1975, skipstjóri í Reykjavík, og k.h., Margrét Ólafsdóttir, f. 8.4. 1909, d. 15.9. 2005, húsfreyja. Úr frændgarði Ólafs Þórs Thorlacius Ólafur Þór Thorlacius Guðrún Bjarnadóttir húsfr. á Brennistöðum Bogi Sigurðsson b. á Brennistöðum í Borgarhreppi Þórdís Bogadóttir húsfr. í Hjörsey Ólafur S. Guðmundsson b. Hjörsey á Mýrum Margrét Ólafsdóttir húsfr. í Rvík Guðný Jónsdóttir húsfr. Guðmundur Sigurðsson b. í Miklaholti á MýrumMargrét Thorlacius Guðfinna Guðnadóttir Thorlacius fyrrv. hjúkrunar- kennari á Akureyri Haraldur Thorlacius útgerðarm. í Hrísey og víðar Jóhanna Thorlacius ritari í ráðuneytum Bogi Ólafsson skipstjóri og útgerðarm. í Rvík Ásgeir Bjarnason bóndi í Knarrarnesi Inga Thorlacius talsímakona á Akureyri Þorsteinn Hannesson eðlisfræðingur Jón Örn Bogason loftskeytam. í Rvík Bjarni Ásgeirsson alþm. og ráðherra á Reykjum í Mosfellssveit Þórdís Ásgeirsdóttir húsfr. á Húsavík Jóhannes Bjarnason verkfræðingur Gunnar Bjarnason hrossaráðunautur og skólastj. Bryndís Bjarnadóttir húsfr. í Rvík Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir fyrrv. alþingisforseti Halldór Gunnarsson pr. í Holti undir Eyjafjöllum Sigtryggur Sigtryggsson fulltrúi ritstjórnar Morgunblaðsins Ágústína Ingvarsdóttir sálfræðingur Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands Kristjana Aðalgeirsdóttir arkitekt í Finnlandi Patrekur Jóhannesson landsliðsþjálfari Austurríkis Margrét Th. Aðalgeirsdóttir kennari á Akureyri Jóhannes Ólafur Jóhannesson kerfisfr. og deildarstj. hjá CCP Guðfinna Aðalgeirsdóttir dr. og dósent í jöklafræði við HÍ Gróa Jóhannesdóttir húsfr. í Rvík Guðni Guðnason steinsmiður í Rvík Guðfinna Guðnadóttir Thorlacius húsfr. á Bíldudal og í Rvík K. Sigmundur Thorlacius sjóm. á Bíldudal Guðni Sigmundsson Thorlacius skipstj. í Rvík Helga Sigmundsdóttir húsfr. á Bæ Ólafur Thorlacius b. á Bæ á Rauðasandi ÍSLENDINGAR 77 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2016 Hulda Dóra Jakobsdóttirfæddist í Reykjavík 21.10.1911. Foreldrar hennar voru Jakob Guðjón Bjarnason vél- stjóri, sem fórst með Skúla fógeta 1933, og Guðrún Sesselja Ármanns- dóttir húsfreyja, systir Kristins Ár- mannssonar, rektors MR. Jakob Guðjón var sonur Bjarna Bjarnasonar, sjómanns frá Sæbóli á Ingjaldssandi, og Hildar Elísabetar Þorláksdóttur, en Guðrún Sesselja var dóttir Ármanns Jónssonar, skipasmiðs og hreppstjóra á Saxa- hvoli á Snæfellsnesi, og Katrínar Sveinsdóttur húsfreyju. Meðal systkina Huldu var Ár- mann bankastjóri, afi Katrínar Jak- obsdóttur, formanns VG. Eiginmaður Huldu var Finnbogi Rútur Valdimarsson, bankastjóri og alþingismaður, bróðir Hannibals Valdimarssonar, alþingismanns, ráðherra og forseta ASÍ. Hulda og Finnbogi Rútur eign- uðust fimm börn Hulda lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1931, prófi í forspjallsvísindum frá Há- skóla Íslands 1932 og stundaði frönskunám þar 1962-64. Hulda var húsfreyja í Reykjavík til 1940 og síðan í Kópavogi. Hún var bæjarstjóri Kópavogs frá 1957 til 1962 og þar með fyrsta konan sem gegndi bæjarstjórastarfi á Íslandi. Eiginmaður hennar hafði verið bæjarstjóri þar 1955-57. Þau hjónin voru því í forystu fyrir uppbyggingu Kópavogs á fyrstu árum bæjar- félagsins en þau voru kjörin fyrstu heiðursborgarar Kópavogskaup- staðar árið 1976. Hulda var umboðsmaður Bruna- bótafélags Íslands í Kópvogi 1964-80 og bæjarfulltrúi í Kópavogi 1970-74. Hulda var m.a. formaður Kven- félags Kópavogs, byggingarnefndar Kópavogskirkju og formaður Fræðsluráðs Kópavogskaupstaðar um langt árabil. Hulda var sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu árið 1994. Hulda lést 31.10. 1998. Merkir Íslendingar Hulda Jakobsdóttir 95 ára Guðríður Jónsdóttir Guðrún Jónsdóttir 90 ára Hlöðver Guðmundsson Jóhanna Jónsdóttir Kristján Sigfússon Lára Brynhildur Eiríksdóttir Steingrímur Kristjánsson Vilborg Ásgeirsdóttir 85 ára Brandur Fróði Einarsson Gestur Guðmundsson Guðlaug Ó. Jónsdóttir Guðni Agnar Einarsson Guðrún Haraldsdóttir Jón Sölvi Stefánsson 80 ára Alda Friðgeirsdóttir Guðbjörg Júlía Kortsdóttir Ólafur Þór Thorlacius Sæmundur Reimar Gunnarsson 75 ára Anna Maren Leósdóttir Helgi Sigurjónsson Kristín Bergsveinsdóttir 70 ára Dusanka Pantic Guðmundur Andrésson Jón Þórir Einarsson Kai Leo Johannesen Yulan Xu Þór Arason 60 ára Anna Guðlaug Albertsdóttir Axel Þórir Alfreðsson Guðbjörn Þór Ævarsson Guðleif Helgadóttir Gunnhildur Olga Jónsdóttir Helgi Dagur Gunnarsson Ingimar Haraldsson Sigrún Ólafsdóttir Þórarinn Þórhallsson 50 ára Guðmundur Hugi Guðmundsson Guðmundur Þór Guðjónsson Hannes Kristinn Gunnarsson Kristinn Ólafur Hreiðarsson Linda Katrín Urbancic Ólafur Andri Ragnarsson 40 ára Anna Jónsdóttir Elín Jónína Bergljótardóttir Elva Ruth Kristjánsdóttir Hanný Ösp Pétursdóttir Ingi Páll Sigurðsson Januz Kelmendi Kolbrún Katla Alexandersdóttir Marija Fabijanic Nína Björk Gunnarsdóttir Ólöf Júlíusdóttir Vesna Pusic Örvar Ólafsson 30 ára Bogdan Catalin Nebeleac Bragi Freyr Vilhjálmsson Brynjar Úlfarsson Dagur Hjartarson Eliths Freyr Heimisson Eydís Inga Sigurjónsdóttir Jóhann Ari Jóhannsson Katrín Erika Hjálmarsdóttir Kjartan Marteinsson Lilja Dögg Þorbjörnsdóttir Minney Sigurðardóttir Nína Sigurveig Björnsdóttir Sigurjón Ingvar Ólafsson Thi Thu Trang Dinh Waldemar Bzura Þorbergur Sverrisson Til hamingju með daginn 30 ára Þorbergur ólst upp á Laugum í Reykja- dal, býr í Kópavogi, lauk þyrluflugmannsprófi og er þyrluflugmaður hjá Reykjavík Helicopters. Maki: Lára Guðnadóttir, f. 1988, heimavinnandi. Börn: Tristan Elí, f. 2008; Guðný Birta, f. 2014, og Óliver Orri, f. 2015. Foreldrar: Sverrir Har- aldsson, f. 1952, og Guðný Þorbergsdóttir, f. 1955. Þorbergur Sverrisson 30 ára Sigurjón ólst upp í Reykjavík, býr á Selfossi og er sjómaður. Maki: Margrét Ósk Jó- hannsdóttir, f. 1977, fram- kvæmdastjóri Vélsmiðju Suðurlands. Stjúpbörn: Ásdís Linda Pétursdóttir, f. 1999, og Bjarki Freyr Pétursson, f. 2004. Sonur: Jón Jökull, f. 2011. Foreldrar: Ólafur Sveins- son, f. 1964, og Guðrún Jónsdóttir, f. 1966. Sigurjón Ingvar Ólafsson 30 ára Jóhann ólst upp á Akureyri, býr þar, útskrif- aðist frá Lögregluskóla ríkisins og er lögreglu- maður í Reykjavík. Maki: Anna Sæunn Ólafs- dóttir, f. 1987, kvikmynda- gerðarkona. Sonur: Huginn Haukur Jóhannsson, f. 2012. Foreldrar: Aðalheiður Björk Ásgeirsdóttir, f. 1961, og Jóhann Grímur Hauksson, f. 1959. Þau búa á Akureyri. Jóhann Ari Jóhannsson JURA – If you love coffee Opið virka daga frá kl. 10:00-18:00 og laugardaga frá kl. 11:00-15:00 | Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is Dásamlegt kaffi – nýmalað, engin hylki. ƒ Púlsuppáhelling (P.E.P.®) tryggir réttan uppáhellingar- tíma og framkallar fullkominn espresso, eins og hann er gerður af heimsins bestu kaffibarþjónum ƒ Vatnskerfið (I.W.S.®) skynjar vatnsfilterinn sjálfkrafa á meðan CLARIS Smart tryggir bestu mögulegu vatnsgæði ƒ Notendavæn kaffivél með einföldu stjórnborði, nútímalegum TFT skjá og vatnstanki sem fyllt er á að framanverðu ƒ Fullkomið hreinlæti fyrir fullkomna mjólkurfroðu þökk sé eins hnapps viðhaldi og mjólkurstúti sem er auðvelt að skipta út JURA – If you love coffee
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.