Morgunblaðið - 21.10.2016, Side 84

Morgunblaðið - 21.10.2016, Side 84
84 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2016 þriðjudaginn 25. október, kl. 18 Listmunauppboð í Gallerí Fold Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is laugardag kl. 11–16, sunnudag kl. 12–16, mánudag kl. 10–17, þriðjudag kl. 10–17 Si gu rð ur G uð m un ds so n Sara Riel Uppboð í 20 ár Forsýning á verkunum fimmtudag til þriðjudags Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is „Ég var með skegg á þessum tíma og ákvað bara að slá til, enda bjóst ég ekki við því að nokkur maður myndi sjá þessa mynd,“ segir Greg Sestero sem fór með eitt aðalhlut- verk bestu verstu kvikmyndar allra tíma en myndin sem um ræðir er að sjálfsögðu The Room. Vinsældir myndarinnar eru hreint út sagt ótrúlegar í ljósi þess að hún er örugglega í hópi verstu mynda sem sýndar hafa verið í bíóhúsum, en myndin kom út árið 2003 í leikstjórn Tommy Wiseau, sem skrifaði einnig handrit myndarinnar og lék eitt aðalhlutverka hennar. Greg segir að þrátt fyrir að myndin teljist seint til betri mynda kvikmyndaiðnaðarins sjái hann ekki eftir neinu. „Tommy skrifaði persónuna Mark með mig í huga og mér fannst ég ekki geta hafnað því að leika í mynd- inni. Af kannski ólíklegustu ástæð- um reyndist það rétt ákvörðun að þiggja hlutverkið,“ segir Greg en myndin náði athygli kvikmynda- nörda um allan heim og var fljótlega komin í hóp frægustu költmynda heims. Átti að vera verðlaunamynd Þegar The Room var frumsýnd í Los Angeles í júní árið 2003 ætlaði Tommy Wiseau henni að verða svo miklu meira en bara hver önnur mynd. Hann sá reyndar ekki fyrir að myndin yrði ein frægasta költmynd allra tíma enda var það ekki ætlunin. Þvert á móti sá hann fyrir sér að myndin yrði stórvirki á borð við verk Tennessee Williams. Greg segir ótrúlegt hvaða stefnu myndin tók eftir að hún fór í sýningu og vinsældir hennar hafi komið sér á óvart og eflaust öllum nema Tommy. „Þetta er hreint út sagt ótrúlegt hversu vinsæl myndin er búin að vera og er enn. Mig óraði ekki fyrir því að einhvern daginn myndi ég ferðast milli landa að kynna mynd- ina. Hvað þá að koma á stað á borð við Ísland. Kannski mátti búast við þessu, Tommy hef ég þekkt lengi og þekkti hann áður en upptökur á The Room hófust og vissi svo sem að hann hefði sérkennilega hæfileika.“ Greg segist vera mjög þakklátur fyrir þau tækifæri sem myndin hef- ur veitt honum og segist t.d. alltaf hafa viljað koma til Íslands og nú fái hann tækifæri til að ferðast hingað og allt vegna vinsælda myndarinnar. Vinna að nýrri mynd Líkt og Greg bendir á nær vinátta hans og Tommy langt aftur en hver er þessi sérkennilegi maður sem leikstýrði einni lélegustu mynd seinni tíma, lék í henni og skrifaði handritið? „Tommy er alveg einstakur mað- ur sem mjög gaman er að vinna með. Núna erum við að vinna að nýrri kvikmynd sem nefnist Best Friends en þetta er í fyrsta sinn í meira en áratug sem við vinnum saman og trúðu mér, hver dagur með honum er einstakur,“ segir Greg en hann hefur skrifað bók byggða á sam- starfi sínu við Tommy og gerð myndarinnar The Room sem nefn- ist, The Disaster Artist: My Life In- side The Room, the Greatest Bad Movie Ever Made. „Þetta er skáldsaga byggð á raun- veruleikanum og ég vildi að lesand- inn myndi upplifa það við lestur hennar. Hún segir frá tveimur ólík- um einstaklingum að elta drauma sína og því sérkennilega ferðalegi sem ástríða þeirra rekur þá út í.“ Flestir sem njóta þess að horfa á The Room ættu að hafa gaman af bókinni, segir Greg, en hann mun lesa upp úr henni í Bíó Paradís í kvöld og á morgun á sérstökum þátt- tökusýningum á myndinni The Ro- om. Þá mun Greg segja frá væntan- legri kvikmynd sem byggist á bók- inni, þar sem James Franco, Seth Rogen, Sharon Stone, Bryan Cran- ston og Zac Efron fara öll með hlut- verk. Frægðin kom úr bestu verstu mynd heims  Bíó Paradís sýnir kvikmyndina The Room  Myndin þykir ekki góð en varð fljótlega vinsæl költmynd Aðalhlutverk Greg Sestero er hér í hlutverki sínu sem Mark í kvikmyndinni The Room sem kom út 2003. Enski tónlistarmaðurinn John Lydon, sem áður var þekktur sem Johnny Rotten, mun opna Pönksafn Íslands í Bankastræti 2. nóvember næstkomandi. Lydon var söngvari Sex Pistols en þegar sveitin lagði upp laupana stofnaði hann sveitina Public Image Ltd. Lydon mun lesa úr verkum sínum við opnun pönksafnsins auk þess að koma fram á ljóðakvöldi Airwaves, Airwords, í Kaldalóni fimmtudags- kvöldið 3. nóvember. Þar mun Lydon stíga á svið með engum öðrum en sjálfum Bubba Morthens, en Bubbi lék stórt hlut- verk í íslensku pönkbylgjunni í kringum 1980. Pönksafn Íslands verður opnað að Bankastræti 0 miðvikudaginn 2. nóvember. Almenningssalerni voru í húsnæðinu frá 1930 til 2006. Pönk- safnið mun heiðra tónlist og tíð- aranda sem hefur mótað tónlistar- menn og hljómsveitir til dagsins í dag, fólk sem þorði að vera öðru- vísi. Munir, ljósmyndir, videó, plak- öt o.fl. verða á safninu. Pönkað John Lydon opnar Pönksafn Íslands og kemur fram á Iceland Airwaves. Johnny Rotten opnar Pönksafn Íslands Bíó Paradís verður með tvennar svokallaðar þátttökusýningar á kvikmyndinni The Room. Fyrri sýningin verður í kvöld og sú síðari á morgun. Greg Sestero, sem leikur hlutverk Mark í myndinni, verður sérstakur gestur á sýningunum. Á þátt- tökusýningu klæða gestir sig upp, kasta amerískum fótbolt- um á milli og kalla upp línur úr myndinni. The Room ÞÁTTTÖKUSÝNING Mynd Tommy Wiseau, leikstjóri myndarinnar The Room, í hlutverki sínu. Bíó Á þátttökusýningum klæða gestir sig eins persónur myndarinnar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.