Morgunblaðið - 09.11.2016, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 09.11.2016, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2016 Vistvænna prentumhverfi og hagkvæmni í rekstri Með Prent+ fæst yfirsýn, aðhald í rekstri og fyrsta flokks þjónusta. Prent+ er þjónusta fyrir fyrirtæki og stofnanir sem vilja hagræða í rekstri prentumhverfis. Við aðstoðum þig við val á hagkvæmasta prentbúnaði í samræmi við kröfur. www.kjaran.is | sími 510 5520 Morgunblaðið/Sverrir Nýtt Ný reglugerð kveður á um skýr skilyrði um upplýsingar sem birta á. Skýr skilyrði um hvaða upplýsingar beri að birta í auglýsingum um lausasölulyf er á meðal þess sem finna má í nýrri reglugerð um lyfja- auglýsingar sem heilbrigð- isráðherra samþykkti 26. október síðastliðinn og birt var á vef ráðu- neytisins í gær. Markmiðið er að tryggja að þær upplýsingar sem mikilvægastar eru varðandi viðkomandi lyf og notkun þess skili sér til neytenda. Reglu- gerðin er í samræmi við tilskipanir Evrópuþingsins um bandalags- reglur um lyf sem ætluð eru mönn- um annars vegar og dýrum hins vegar og um samræmingu tiltek- inna ákvæða í lögum og stjórnsýslu- fyrirmælum í aðildarríkjum um hljóð og myndmiðlunarþjónustu. Birta þarf sérstök skilaboð Í lyfjaauglýsingu sem beint er til almennings skal koma fram heiti lyfs, lyfjaform, ábendingar lyfs og nauðsynlegar upplýsingar fyrir rétta notkun lyfsins. Þá er einnig skylt að birta eftirfarandi skilaboð samkvæmt reglugerðinni. „Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðil fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.ser- lyfjaskra.is.“ Þetta kemur fram í 6. gr. reglugerðarinnar en þar er verulega dregið úr umfangi þeirra upplýsinga sem þarf að birta eða lesa upp með hverri auglýsingu. Notendur hafi átt erfitt með að meðtaka nema brot þeirra upplýs- inga sem settar voru fram í auglýs- ingum eins og þær hafa verið birtar í sjónvarpi. Upplýsingarnar hafi verið viðamiklar, í smáu letri og með skamman birtingartíma á skjánum. Þá er einnig tekið fram að lyfja- auglýsing megi ekki fela í sér neitt sem gefur til kynna að óþarfi sé að leita læknis eða dýralæknis, að áhrifin af lyfinu séu tryggð, þeim fylgi engar aukaverkanir eða að þau séu betri eða jafngóð og áhrifin af annarri meðferð eða lyfi. Notendur meðtóku brot upplýsinga  Ný reglugerð um lyfjaauglýsingar dregur úr magni upplýsinga í auglýsingum Neytendasamtökin mótmæla harð- lega fyrirætlunum um gjaldtöku vegna notkunar rafrænna skilríkja. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum. „Neytendasamtökin hafna því al- farið að fjármálastofnanir og síma- fyrirtæki láti neytendur borga brúsann þegar verið er að innleiða fyrirkomulag sem leiðir til hagræð- ingar og kostnaðarsparnaðar hjá fyrirtækjunum sjálfum,“ segir í til- kynningunni. Fram kemur að sé um það að ræða að símfyrirtæki lendi í kostn- aði vegna rafrænna skilríkja beri að senda þann reikning til fjármála- fyrirtækja og annarra sem hagnast af notkun slíkra skilríkja „því það er fráleitt að neytendur greiði þann reikning“, segir í umfjöllun sam- takanna. Mótmæla gjaldtöku Áin Súla, sem rennur úr Súlujökli, breytti um farveg og rennur nú austur í Gígjukvísl. Súla rann áður í Núpsá og saman mynduðu þær Núpsvötn, sem runnu undir vest- ustu brúna á Skeiðarársandi, rétt austan við Lómagnúp. „Súla færði sig miðvikudaginn fyrir verslunarmannahelgi [27. júlí]. Hún er farin í Gígjukvísl og fer ekki vestur í Núpsvötn nema eitthvað ævintýralegt gerist í jökl- inum,“ sagði Hannes Jónsson, bóndi á Hvoli í Fljótshverfi. Íshaft hafði staðið fyrir Súlu í meira og minna fjögur ár, að sögn Hannesar. Svo brast haftið og nú rennur áin í fjögurra metra djúpu ísgljúfri á um hálfs kílómetra kafla neðan við botninn á lóninu sem var. Svo rekur áin sig fram jökulöld- urnar og fram á sandinn. Áður hafði Skeiðará fært sig vestur með jöklinum og sameinast Gígjukvísl. Hannes sagði að allar ár frá Skeiðarárjökli hefðu nú samein- ast í farvegi Gígjukvíslar sem renn- ur undir brú á miðjum Skeiðarár- sandi. Þannig hefði það verið fyrir þúsund árum, eitt meginvatnsútfall á miðjum sandinum. gudni@mbl.is Áin Súla skipti um farveg  Súla og Skeiðará renna í Gígjukvísl Morgunblaðið/RAX Súlnatindar Súla rennur undan Súlujökli sem er við tindana.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.