Morgunblaðið - 09.11.2016, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 09.11.2016, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2016 Raðauglýsingar Styrkir Umsóknir um styrki úr Stofnverndarsjóði íslenska hestakynsins Frá Bændasamtökum Íslands: Fagráð í hrossarækt starfar samkvæmt 15 gr. búnaðarlaga nr. 70/1998. Fagráð fer, meðal annarra verkefna, með stjórn Stofnverndarsjóðs sem starfræktur er samkvæmt ákvæðum í sömu lögum og reglugerð nr. 1123/2015 um sama efni. Verkefni sjóðsins eru að veita styrki til þróunar- og rannsóknaverkefna í hrossarækt. Verkefnin skulu stuðla að viðhaldi verðmætra eiginleika í íslenska hrossastofninum, verndun erfðafjölbreytileika stofnsins og/ eða auka þekkingu á stofninum og útbreiðslu hans. Fagráð í hrossarækt auglýsir eftir umsóknum ár hvert og tekur ákvörðun um styrkveitingar. Fagráð tekur ákvörðun um styrkveitingar í desember 2016. Nánari upplýsingar fást hjá Bændasamtökunum. Frestur til að skila inn umsóknum er til 1. desember 2016 og skal umsóknum skilað til: Fagráð í hrossarækt, Bændahöllinni v/Hagatorg, 107 Reykjavík. Fagráð í hrossarækt. Tilkynningar Deiliskipulagstillaga Ólafsdalur í Dalabyggð Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 20. september 2016 að auglýsa deiliskipulagstillögu fyrir Ólafsdal í Dalabyggð skv. 41. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 123/2010. Ólafsdalur í Gilsfirði er meðal merkustu sögu-, menningar- og minjastaða á Vesturlandi og við Breiðafjörð.Torfi Bjarnason stofnaði fyrsta bændaskóla landsins í Ólafsdal árið 1880 og rak hann til 1907. Menningarlandslag í Ólafsdal er mjög merkilegt á landsvísu. Minjar á svæðinu eru afar merkur hluti íslenskrar búnaðarsögu, sem hlífa þarf og sýna verð- skuldaða athygli. Markmið deiliskipulagsins er fyrst og fremst verndun og viðhald menningarlandslags í Ólafsdal og uppbygging menningartengdrar ferðaþjónustu. Minjavernd undirgengst með samningi við ríkið að annast viðhald bygginga í Ólafsdal og að endurreisa hús og valin mann- virki sem hafa fallið eða verið rifin. Miðað er við að öll húsin verði í framtíðinni nýtt til þjónustu ferðamanna. Með endurbyggingu og endurgerð húsanna í Ólafsdal yrði menningar- og sögutengd ferðaþjónusta við Breiðarfjörð styrkt til muna. Skipulagsuppdrættir og greinagerðir eru til sýnis á skrifstofu Dalabyggðar frá 10. nóvember til 23. desember 2016. Ennfremur verða gögnin aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins www.dalir.is. Athugasemdum skal skila skriflega á skrifstofu Dalabyggðar Miðbraut 11, 370 Búðardal eða á netfangið byggingarfulltrui@dalir.is merkt ,,Deiliskipulag Ólafsdal” fyrir 23. desember 2016. Deiliskipulag, Laugar í Sælingsdal Byggðarráð Dalabyggðar samþykkti þann 30. ágúst 2016 deiliskipulag fyrir Laugar í Sælings- dal. Auglýsing um gildistöku birtist í B-deild stjórnartíðinda 27. október 2016. Markmið deiliskipulagsins er að efla svæðið sem heild og auka möguleika á nýtingu þess árið um kring. Deiliskipulagið felur í sér afmörkun lóða fyrir hótel, tjaldsvæði, íþrótta- mannvirki, ungmennabúðir, íbúðir o.fl. og afmörkun byggingarreita fyrir stækkun á hóteli. Gert er ráð fyrir frístundabyggð með 16 lóðum. Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð skv. 41. og 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi. Kristján Ingi Arnarsson, Skipulags og byggingarfulltrúi. Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9, morgunleikfimi kl. 9.45. Eftir hádegið verður útskurður II og postulínsmálun II kl. 13, söngstund við píanóið með Helgu Gunnarsdóttur kl. 13.45 og bókaspjall Hrafns Jökulssonar kl. 15. Jóga kl. 18. Árbæjarkirkja Opið hús í dag miðvikudag kl. 12–16, kyrrðarstund og léttur hádegisverður, leikfimin verður á sínum stað og síðan mun sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson koma og skemmta og spila á saxófón. Allir eldri borgarar eru velkomnir á þessar stundir Árskógar 4 Opin smíðastofa kl. 9–16, handavinna með leiðbeinanda kl. 8.30–16.30, stóladans með Þóreyju kl. 9.30–10.10, jóga sitjandi, með Kristínu kl. 10.30–11.30, sungið með Helgu sem spilar á píanóið kl. 11–11.30, heilsugæslan kl. 13–14, opið hús, m.a. spiluð vist og brids kl. 13-16. Ljósbrotið, prjónaklúbbur með Guðnýju Ingigerði kl. 13–16. Boðinn Handavinna kl. 9–15 og harmonikka og söngur kl. 13.30. Bólstaðarhlíð 43 Leikfimi kl.10.30, spiladagur og pjónaklúbbur kl.13. Bústaðakirkja Félagsstarfið er á miðvikudögum kl. 13–16, þar er spilað, unnin handavinna, spjall, framhaldssaga, hugleiðing frá presti eða djákna og kaffið góða hjá Sigurbjörgu. Guðmunda heimsækir okkur og ætlar að kynna fyrir okkur Alzheimer kaffið sem er haldið í Hæðagarði einu sinni í mánuði. Félagsmiðstöðin Vitatorgi/Lindargata 59 Bókband kl. 9–17, hand- verksstofa opin, með leiðbeinanda kl. 9–12, Bónusrúta stoppar við Skúlagötu kl. 12.20, lestur framhaldssögu kl. 12.30–13, myndlistar- námskeið kl. 13.30–16.30, dansleikur með Vitatorgsbandi kl. 14–15. Garðabær Opið og heitt á könnuni í Jónshúsi frá kl. 9.30–16, meðlæti selt með síðdegiskaffinu frá kl. 14–15.45, vatnsleikfimi kl. 7.40, 12.10 og 13, kvennaleikfimi í Sjálandsskóla kl. 9, stólaleikfimi í Sjálands- skóla kl. 10 og kvennaleikfimi í Ásgarði kl. 11. Gler í Kirkjuhvoli kl. 13, bútasaumur í Jónshúsi kl. 13, brids í Jónshúsi kl. 13. Gjábakki Handavinna kl. 9, botsía kl. 9.30, glerlist kl. 9.30, félagsvist kl. 13, gler- og postulínsmálun kl. 13. Grensáskirkja Kl. 13–16.45 verður haustferð eldri borgara í Grensássókn. Lagt er af stað frá Grensáskirkju kl. 13 stundvíslega. Upplýsingar í síma 528-4410. Guðríðarkirkja Félagsstarf fullorðinna í dag kl. 13.10, helgistund í kirkjunni, Árný Erla Sveinbjörnsdóttir jarðfræðingur og vísindamaður mun koma til okkar og segja frá mörgu fróðlegu sem á daga hennar hefur drifið, kaffi og meðlæti á 500 krónur. Gullsmári Myndlist kl. 9, ganga kl. 10, postulínsmálun kl. 12.30, kvennabrids kl. 13, línudans kl. 16.30, línudans byrjendur kl. 17.30. Hárgreiðslustofa og fótaaðgerðastofa á staðnum. Allir velkomnir! Hvassaleiti 56–58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8–16, morgunkaffi og spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi. Zumbadans og líkamsrækt með Carynu kl. 9, morgunleikfimi kl. 9.45. Samverustund kl. 10.30, lestur og spjall, matur kl. 11.30. Mömmuhópur kl. 12, handa- vinnuhópur kl. 13, söngstund með Sighvati kl. 13.30, allir velkomnir. Kaffi kl. 14.30. Fótaaðgerðir 588-2320, hársnyrting 517-3005. Hæðargarður 31 Qigong kl. 6.30, við hringborðið kl. 8.50, upplestr- arhópur Soffíu kl. 9.30, ganga kl. 10, línudans fyrir byrjendur kl. 10.15, hláturjóga kl. 13.30, tálgun í ferskan við með Valdóri kl. 14.30, síðdeg- iskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir í Hæðargarð óháð aldri og búsetu. Nánar í síma 411-2790. Korpúlfar Glerlist kl. 9 til 13 í Borgum, gönguhópar kl. 10 frá Borg- um, keila í Egilshöll kl. 10 í dag og bingó í Borgum hefst kl. 13 í dag, vonumst til að sjá sem flesta. Neskirkja Krossgötur kl. 13.30, heilsa í heimabyggð, Sigríður Haraldsdóttir sviðsstjóri hjá landlæknisembættinu fjallar um doktors- rannsókn sína þar sem hún skoðaði hvort munur væri á heilsufari Íslendinga eftir búsetu, niðurstöður hennar varpa merkilegu ljósi á samfélag okkar og þær aðstæður sem landsmenn búa við. KaffI- veitingar. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9–12, morgunleik- fimi kl. 9.45, viðtalstími hjúkrunarfræðings kl. 10–12, upplestur kl. 11, félagsvist kl. 14, ganga með starfsmanni kl. 14, Bónusbíllinn kl. 14.40, heimildarmyndasýning kl. 16. Selið, Sléttuvegi Húsið opið frá kl. 10–14, en opið í vestursalinn til kl. 16, kaffi, spjall og blöðin eftir opnun, matur kl. 11.30-12.30, handa- vinna kl. 13. Seltjarnarnes Gler Valhúsaskóla kl. 9 og 13, leir og listasmiðja Skólabrraut kl. 9, botsía Gróttusal kl. 10, kaffispjall í króknum kl. 10.30. Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12, handavinna Skólabraut kl. 13, timbur- menn Valhúsaskóla kl. 13, vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30. Ath. skráning stendur yfir á eftirfarandi viðburði; kvöldskemmtun 17. nóv- ember, leikhúsferð 4. desember og Hótel Örk 4. desember Skráning og uppl. í síma 8939800. Stangarhylur 4, Göngu-Hrólfar ganga frá Ásgarði Stangarhyl 4, kl. 10, söngvaka kl. 14, stjórnendur Sigurður Jónsson píanóleikari og Karl S. Karlsson, allir velkomnir. Söngfélag FEB kóræfing kl. 16.30 Gylfi stjórnar. Félagslíf Söngsamkoma kl. 20 í Kristni- boðssalnum. Kvennakór KFUK, Ljósbrot, syngur. Ræðumaður Þráinn Haraldsson. Allir velkomnir.  HELGAFELL 6016110919 IV/V Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Iðnaðarmenn Óska eftir Staðgreiðum og lánum út á: gull, demanta, vönduð úr og málverk! Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex, Cartier, Patek Philippe o.fl. Hringdu núna og fáðu tilboð þér að kost- naðarlausu! www.kaupumgull.is Opið mán.– fös. 11–16. Kringlan – 3. hæð (Hagkaupsmegin) Upplýsingar í síma 782 8800 Ýmislegt Bílaþjónusta GÆÐABÓN Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Hjólbarðar Ódýru dekkin Hágæða sterk dekk. Allar stærðir. Sendum hvert á land sem er. Bílastofan, Funahöfða 6, sími 562 1351. Húsviðhald Hreinsa þakrennur fyrir veturinn og tek að mér ýmis verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Tökum að okkur viðhald, við- gerðir og nýsmíði fasteigna fyrir fyritæki húsfélög og einstak- linga. Fagmenn á öllum sviðum. Tilboð/ tímavinna. S. 896 - 4019. fagmid@simnet.is Atvinnublað alla laugardaga Sendu pöntun á augl@mbl.is eða hafðu samband í síma 569-1100 Allar auglýsingar birtast bæði í Mogganum og ámbl.is ER ATVINNUAUGLÝSINGIN ÞÍN Á BESTA STAÐ? atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.