Morgunblaðið - 09.11.2016, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 09.11.2016, Blaðsíða 37
DÆGRADVÖL 37 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2016 Veit á vandaða lausn Verið velkomin í verslun okkar Opið virka daga kl. 8:30–17:00 Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is Líkaminn tapar vökva og mikilvægum söltum við niðurgang, uppköst eða mikla svitauppgufun. Resorb er vökvauppbót sem fæst án lyfseðils og kemur jafnvægi á vökva- og saltbirgðir líkamans og flýtir þannig fyrir bata. RESORB ORIGINAL ENDURSTILLIR VÖKVABÚSKAPINN Fæst án lyfseðils í flestum apótekum Nýjar umbú ðir! Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Foreldrar þínir eða yfirmenn geta slegið þig út af laginu í dag. Líklega tengist það einhverju sem þú hefur lengi velt fyrir þér. Bíddu ekki eftir öðrum heldur taktu strax til þinna ráða. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú hefur lagt hart að þér og átt svo sannarlega skilið að njóta launanna. Engin breyting gæti verið framför. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú ættir að eiga auðvelt með að finna þér skoðanabræður, ef þú bara lítur vel í kringum þig. Innsæi hennar er rétt en það gæti reynst torvelt að sannfæra raunsæismanneskju í hópnum. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Nú er komið að þeim tímamótum í lífi þínu að þú hrindir í framkvæmd þeirri áætlun sem þú hefur svo lengi verið með í undirbúningi. Vertu viðbúinn. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það getur reynt á þolinmæðina að þurfa að endurtaka sjálfan sig oft svo allir skilji. Aflaðu þér upplýsinga um þá sem sækjast eftir félagsskap þínum. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Varastu stóryrtar yfirlýsingar og skuldbindingar sem kunna að koma þér í koll. Láttu það eftir þér því að vilji er allt sem þarf til þess að stefna í rétta átt. 23. sept. - 22. okt.  Vog Láttu það ekki hvarfla að þér að kasta til höndunum við verk þín því þú færð þau bara í hausinn aftur. Með lagni og léttri lund hefst þetta allt. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Fólk ber sérstaklega mikla virð- ingu fyrir þér í dag. Notaðu sviðsljósið til þess að þoka þér áleiðis. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Farðu í skemmtiferð eða nýttu þér kvikmyndir, myndbönd og íþróttir til að gera daginn ánægjulegan. Leiddu þær til lykta af festu og orðstír þinn vex. 22. des. - 19. janúar Steingeit Finndu eitthvað eitt sem þú getur gert til að bæta nánasta samband þitt og reyndu svo að fylgja því eftir. Töfrar þínir og þolinmæði geta skilað þér stöðuhækkun. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þótt þú lendir í einhverju mót- læti um skeið máttu ekki láta það á þig fá. Vertu því á varðbergi gegn hvers kyns óþoli og vertu stimamjúkur við börn og gamal- menni. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þörf þín fyrir að sleppa fram af þér beislinu og taka þér frí frá vinnu eykst sí- fellt. Hrapaðu ekki að neinu og hafðu hug- fast að þetta er ekki síðasta tækifærið. Kerlingin á Skólavörðuholtinusegir á fésbókarsíðu sinni að hún hafi ætlað að steinhætta að yrkja, – „en þegar ég las bullið í Reinhold Richter í Vísnahorninu þá hrökk þessi vísa út úr kjaftinum á mér: Fyrir honum flestallt snýst…, fattar sjaldnast hvar hann er, Reinhold greyið Richter víst reglulega tvöfalt sér. Auðvitað er aðeins EIN Kerling á Skólavörðuholtinu, ég mundi aldrei líða neina aðra þar. En úr því ég er byrjuð að yrkja þá get ég eins vel haldið áfram: Af mér þessar fréttir flyt frjáls og engum bundin; upp á Holti aftur sit, önug heldur lundin. Allvel fornum ennþá kann ástar beita galdri svo ég krækti mér í mann á miðjum þrítugsaldri. Brall okkar í byrjun gekk bestu eftir vonum, undarlega fljótt þó fékk feikna leiða á honum. Á fjármuni var fýrinn spar og flesta taldi þjófa, málgefinn hann mjög svo var og mesta dekurrófa. Yfir mörgu eins var hann oft að sífra og nauða, skelfing loks í skap mér rann, skildi því við kauða. Upp á Holtið greitt ég gekk, gamalkunnan spotta. Sit þar nú í svölum trekk, sígarettu totta.“ Ég hitti karlinn á Laugaveginum þar sem hann hallaði sér upp að gamla tukthúsinu og spurði hann hvað hann segði um þennan nýj- asta kveðskap kerlingarinnar. Hann svaraði: Mín kerling hún talar um karlinn sem komst fyrir slysni inn á pallinn því að upp nam hún lúka. Svo lét hún hann fjúka því leiðindaskarfur var karlinn! Helgi R. Einarsson skrifaði Vísnahorni í gær og sagði „þar sem ný stjórn er ekki komin á koppinn vil ég benda á eftirfar- andi: Nú þvengina þarf að binda og þrjóskunni ofan af vinda, skoðanir brúa og bökunum snúa saman (til málamynda).“ Gömul vísa í lokin: Sigla um víði súðahæng segja lýðir yndi. Blakki ríða, búa í sæng baugahlíðar undir væng. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Kerling lætur í sér heyra Í klípu GALLINN VIÐ AÐ VINNA FYRIR MÖMMU. eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÉG SAGÐI ÞÉR AÐ SÖTRA BARA.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að eiga fjölda gleði- legra minninga. JÓN ER ÁHUGAVERÐASTI MAÐUR SEM ÉG ÞEKKI. ÉG VAR AÐ RAÐA SOKKUNUM MÍNUM! HANN ER EINI MAÐURINN SEM ÉG ÞEKKI. HRÓLFUR, ÉG VIL RÁÐA ÞENNAN NÁUNGA! NEI, ÉG ÞARF LÍFVÖRÐ! ÞARFTU AÐSTOÐAR- KOKK? GRAUTUR AFTUR! BERJUM HANN! GET ÉG FENGIÐ KAUPHÆKKUN? ÉG VEIT ÞAÐ EKKI. GETURÐU ÞAÐ? Ekki er langt síðan átök voru á milliplötuverslana og bóksala um jól. Spurt var hvort nú yrðu plötujól eða bókajól. Bókin mun ekki fá mikla samkeppni frá plötunni þessi jólin. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær verður útgáfa á geisladiskum með minnsta móti þessi jól. Víkverji hefur gaman af tónlist og vill helst að tónlistarmenn fái eitthvað fyrir sinn snúð. Hann er til í að kaupa það sem honum líst vel á og gerði það hér áð- ur fyrr, en nú er geisladiskurinn á út- leið og úrval í verslunum mun tak- markaðra en áður. x x x Víkverji hefur notað vefi á borð viðYoutube til að kanna nýja tónlist og er nú kominn með áskrift að tón- listarveitu. Hann veit hins vegar að þótt tónlistarmenn fái eitthvað í sinn hlut þegar hlustað er á tónlist þeirra á veitunni er það varla fyrir salti grautinn. Enn hefur hann þó ekki stigið það skref að kaupa tónlist í raf- rænu formi, þótt hann hiki ekki við að kaupa rafbækur og lesa þær í tölvu. x x x Sennilega er það þörfin fyrir að fáeitthvað áþreifanlegt í hendur, vínylplötu eða geisladisk. Diskinn getur hann handfjatlað og tekið með sér. Rafræna platan er ef til vill til einhvers staðar í rafskýi og jafnað- gengileg og diskurinn, ef ekki að- gengilegri, en þetta er líka spurning um mátt vanans. x x x Í augum yngri kynslóða eru geisla-diskar sennilega bara til trafala, taka pláss og eru fyrir. Það er ástæða fyrir því að plötubúðum hefur víða verið lokað og nánast horfnar keðjur, sem áður virtust alls staðar, þannig að í sumum stórborgum eru bara eft- ir safnarabúðir sem selja gamlan vínyl og eru með slangur af diskum í leiðinni. Geisladiskar eru einfaldlega að miklu leyti hættir að seljast. Vík- verji verður því einfaldlega að sætta sig við nýja tíma og nýja siði. Það mun taka tíma, en á endanum mun hann taka við sér og þá verður hann örugglega gáttaður á að hann skuli ekki hafa gert það fyrr. víkverji@mbl.is Víkverji Himinn og jörð munu líða undir lok en orð mín munu aldrei undir lok líða. (Mark. 13:31)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.