Morgunblaðið - 12.11.2016, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.11.2016, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2016 Madonna SKÍÐAFERÐ | 14.- 21. janúar Verð frá: 119.900 kr. og 12.500 Vildarpunktar. Á mann m.v. 2 í herbergi með morgunverði á Garni St. Hubertus. Verð án Vildarpunkta: 129.900 kr. VITA | Skógarhlíð 12 | Sími 570 4444 | VITA.IS Flogið með Icelandair Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Ómar Friðriksson omfr@mbl.is BHM vill halda áfram vinnu og við- ræðum á vettvangi Salek-hópsins svokallaða um bætt vinnubrögð við kjarasamningagerð og nýtt samn- ingalíkan á vinnumarkaði. Þetta kom fram í erindi Þórunnar Svein- bjarnardóttur, formanns BHM, á málþingi í gær um möguleika há- skólafólks á nýju samningalíkani. Eins og fram hefur komið var samstarfi Salek-hópsins slitið í sein- asta mánuði á meðan niðurstaða um jöfnun lífeyrisréttinda liggur ekki fyrir. Að mati BHM er engin ástæða til að gera hlé á vinnunni í Salek- hópnum að sögn Þórunnar. „Það er rétt að það er eftir að ljúka líf- eyrismálinu. Við bíðum nýrrar rík- isstjórnar og Al- þingis að ljúka því og erum þeirrar skoðunar að það þurfi að gera það í samræmi við samkomulagið frá því í september. En við teljum enga ástæðu til að sitja með hendur í skauti þangað til það verður gert,“ sagði Þórunn í samtali við Morgunblaðið. Þórunn lagði til á málþinginu að fjallað yrði um tvö praktísk mál á næstunni. Annars vegar að náð yrði saman um öflun launaupplýsinga með miðlægum hætti, sem myndi tryggja aðilum aðgang að sömu upp- lýsingum á sama tíma. Hins vegar lagði hún áherslu á að allir sem að samningaviðræðum kæmu færu að lögum um vinnudeilur og settu niður viðræðuáætlanir á réttum tíma, sem gætu staðist. 20 ár eru liðin síðan leitt var í lög að viðræðuáætlanir fyrir endurnýjun kjarasamninga ættu að liggja fyrir ekki síðar en tíu vikum áður en samningar renna út. Allur gangur hefur hins vegar verið á þessu á vinnumarkaðinum. Halda áfram þó að gefi á bátinn „Þetta eru skref sem er auðvelt að taka ef samstaða er um það og eru sannarlega í rétta átt,“ segir Þór- unn. Hún segir engan vafa leika á að viðræðurnar um bætt vinnubrögð við kjarasamningsgerð séu gríð- arlega stórt verkefni, „en það þarf úthald til þess að vinna í þessu og þó að það gefi á bátinn verðum við að halda áfram. Aðalatriðið er að ná samstöðu um markmið sem við vilj- um ná með svona samningalíkani“. Engin ástæða til að gera hlé  Formaður BHM vill halda áfram vinnunni í Salek-hópnum um nýtt samningalíkan  Mikilvægt að þingið afgreiði lífeyrismálið en ástæðulaust að sitja með hendur í skauti Þórunn Sveinbjarnardóttir Gengið hefur verið frá sölu á jörð- inni Felli í Suðursveit til Fögru- steina, dótturfélags Thule Invest- ments. Staðfesti félagið kaupin í gær með greiðslu fjórðungs kaup- verðs sem er 1.520 milljónir kr. Málið er þó enn í ákveðinni biðstöðu því ríkið hefur forkaupsrétt og get- ur gengið inn í kaupin fram í byrj- un janúar. Jörðin Fell á land að austur- strönd Jökulsárlóns á Breiða- merkursandi. Ósamstaða hefur ver- ið meðal eigenda um nýtingu jarðarinnar og uppbyggingu. Var farið fram á uppboð hjá sýslumanni til slita á sameign. Þeir sem fóru fram á uppboðið höfðu frest til há- degis í gær til að afturkalla upp- boðsferlið. Það var ekki gert. helgi@mbl.is Salan á jörðinni Felli við Jökulsárlón hefur verið staðfest Sigtryggur Sigtygsson sisi@mbl.is Veðurmetin hafa fallið eitt af öðru á þessu sögulega ári og enn eitt metið féll í gær. Ekki hefur enn mælst frost í Reykjavík það sem af er hausti og vetri. Samkvæmt upplýsingum Trausta Jónssonar veðurfræðings eru til lágmarksmælingar á hverj- um degi samfellt aftur til ársins 1920, eða í 96 ár. „Haustið 1939 fraus fyrst 10. nóvember en nú er kominn sá 11. þannig að metið er slegið,“ segir Trausti. Enn eru nokkrir dagar eftir til að ná meti í lengd sam- felldrar þíðu. Það met er frá 1939, 201 dagur samfellt. Núna eru frostlausu dagarnir orðnir 194 í röð, en síðast fraus 30. apríl síðastliðinn. Eina viku vantar til að jafna það met. „Eins og spár eru í dag verður það varla slegið að þessu sinni,“ segir Trausti. Hann hefur tekið stöðuna nú þegar þriðjungur nóvembermánaðar er liðinn. Meðalhiti í Reykjavík er 5,3 stig, 1,7 stigum ofan meðallags sömu daga síð- ustu tíu ár. Þetta er fjórði hæsti hiti sama tíma á öldinni en í 14. sæti á langa listanum [hlýjast 1945, 8,2 stig, kaldast 1899, -4,0 stig]. Á Akureyri er meðalhitinn 4,1 stig, 2,3 stigum ofan meðallags síðustu tíu ár, og í 14. sæti á lista sem nær aftur til 1936. Úrkoman í Reykjavík langt yfir meðaltali Úrkoma í Reykjavík hefur mælst 45,2 millimetrar, þriðjung umfram meðalúrkomu sömu daga síðustu tíu ár, sjötta mesta úrkoma sama tíma á öldinni (af 16). Á Akureyri hefur hún mælst aðeins 2,4 mm, tí- undi hluti meðalúrkomu sama tíma síðustu tíu árin. Sólskinsstundafjöldi í Reykjavík er nærri botni samkvæmt athugunum Trausta, í 97. sæti af 101. Ársmeðalhitinn í Reykjavík til þessa er enn í 6,5 stigum, í 5. til 6. hæsta sæti á 68 ára listanum, 0,4 stig frá toppnum (2003). Akureyrarársmeðalhitinn er nú kominn upp í 7. sæti á sama lista – hefur borið hratt upp á við. Á Dalatanga er hitinn í fjórða efsta sæti. „Enn eru 50 dagar rúmir til áramóta og mögu- leikar á sætasveiflum töluverðir,“ segir Trausti. Ljósmynd/Jón Snær Ragnarsson Haustblíða Veðrið hefur leikið við landsmenn og hér bregða vinirnir Þórdís og Rökkvi Steinn á leik. Aldrei fryst seinna í sögu mælinga  Gamla metið frá 1939  Fjöldi sólskinsstunda í botni Trausti Jónsson Einstaklingum sem bíða lengur en 90 daga eftir hjarta- og/eða krans- æðamyndatöku hefur fjölgað tals- vert síðan í júní sl. Helstu ástæður þess eru sumarleyfi, ónóg mönnun hjúkrunarfræðinga, skortur á legu- rýmum á Landspítala, fjölgun á flóknari og tímafrekari aðgerðum svo og mikill fjöldi bráðasjúklinga haustið 2016. Þetta er meðal þess sem fram kemur á heimasíðu Embættis lands- læknis, sem hefur uppfært yfirlit yfir stöðu á biðlistum eftir völdum skurð- aðgerðum. Embættið hefur frá árinu 2007 staðið fyrir innköllun og úr- vinnslu á stöðu biðlista eftir völdum aðgerðum á helstu aðgerðastöðum landsins. Þessar upplýsingar hafa verið kallaðir inn á þriggja mánaða fresti, í febrúar, júní og október. Í nýrri greinargerð er farið yfir stöð- una eins og hún var í byrjun október 2016. Átak til að stytta biðlista Þar segir meðal annars að í mars 2016 hafi verið farið af stað með átak til styttingar biðlista í fjórum að- gerðaflokkum; augasteina- og lið- skiptaaðgerðum, auk hjarta- og/eða kransæðamyndatöku. Árangur þessa verkefnis sé misjafn eftir að- gerðaflokkum. Skurðaðgerðum á augasteini hafi snarfjölgað og fækkað hafi í hópi þeirra einstaklinga sem bíða lengur en þrjá mánuði eftir aðgerð. Þrátt fyrir þá fækkun sé hlutfall þeirra sem bíða lengur en 90 daga eftir að- gerð svipað og verið hefur síðastliðið ár. Fjöldi einstaklinga sem bíði eftir gerviliðaaðgerð standi í stað á milli innköllunar í júní og þessarar inn- köllunar. Óviðunandi bið „Á hinn bóginn hefur einstakling- um sem bíða lengur en 90 daga eftir hjarta- og/eða kransæðamyndatöku fjölgað talsvert síðan í júní, eða úr 12 í 84. Þrjátíu og fjögur prósent ein- staklinga þurfa að bíða lengur en 90 daga eftir þessari tegund aðgerðar sem verður að teljast óviðunandi bið,“ segir í greinargerðinni. Misjafn árangur af biðlistaátaki  Óviðunandi bið sjúklinga eftir hjarta- og/eða kransæðamyndatöku Morgunblaðið/Eggert

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.