Morgunblaðið - 12.11.2016, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 12.11.2016, Blaðsíða 39
MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2016 ✝ KristbjörgÞórðardóttir Bergmann fæddist í Vík í Mýrdal 8. apr- íl árið 1928. Hún lést á Skjóli 18. október 2016. Foreldrar henn- ar voru hjónin Guð- rún Ingibjörg Sig- urðardóttir, hús- freyja og annáluð hannyrðakona í Vík, og Þórður Stefánsson, verkamaður og héraðsbóka- vörður í Vík. Þau hjón voru Skaftfellingar að uppruna þótt bæði væru fædd austur á fjörð- um. Þau voru búsett í Vík öll sín hjúskaparár og til æviloka. Þórður féll frá árið 1981, tæp- lega 87 ára að aldri, og Guðrún Ingibjörg dó sjö árum síðar, 1988, á 90. aldursári. Kristbjörg var fjórða í röð sjö barna þeirra, og hélt ævilangt góðum tengslum við systkini sín. Þau voru auk hennar, í aldursröð tal- in: Vilborg Magnea, Jóna, Unn- ur, Stefán Ármann, Sigríður Eygló og Ólafur. Kristbjörg er sú fimmta úr hópnum sem kveð- ur og eru systurnar allar fallnar frá, en bræðurnir Stefán og hér í Reykjavík. Þau byggðu sér hús í Smáíbúðahverfinu þegar það var að byrja að byggjast upp, að Langagerði 82. Þar bjuggu þau í rúm sextíu ár. Þau voru búsett um tíma í Danmörku meðan Daníel var þar við nám og störf í Landmandsbanken, og var sá tími þeim að vonum eft- irminnilegur. Börn Kristbjargar og Daníels eru: 1) Kristín, f. 1951, 2) Þórður Daníel, f. 1952, og 3) Sigríður, f. 1958. Kristín á fjóra syni með Guðjóni Óskars- syni, fyrrum eiginmanni sínum, þá Daníel, Guðmund Óskar, Guðjón Björn og Brynjólf, og barnabörn þeirra eru fjögur. Þórður Daníel er kvæntur Krist- ínu Valtýsdóttur. Synir þeirra eru Valtýr, Þröstur og Ingvi Björn og barnabörnin eru átta. Sigríður er gift Guðjóni Sívert- sen. Börn þeirra eru Kristbjörg Þöll og Hjörleifur. Lengst af vann Kristbjörg heima, en starf- aði síðar um árabil við ræstingar í Breiðagerðisskóla. Eftir að Daníel veiktist annaðist Krist- björg um hann heima lengi, og var stoð hans og stytta uns yfir lauk, en Daníel féll frá á gaml- ársdag árið 2005. Síðustu árin tók ellin að minna á sig og heilsa Kristbjargar að gefa sig. Hún fluttist að hjúkrunarheimilinu Skjóli í marsbyrjun 2015. Kristbjörg var jarðsett í Gufu- neskirkjugarði við hlið Daníels eiginmanns síns þann 1. nóv- ember 2016. Ólafur lifa systur sína. Kristbjörg sleit barnsskónum í Vík, í nánd ægifag- urrar náttúru og háskalegs nábýlis við hafið og nær- liggjandi straum- vötn. Þar gekk hún í barnaskóla og fermdist, og var þá lokið formlegri skólagöngu hennar. Kristbjörg vandist við ýmis störf í uppvexti sínum og fór ung að vinna fyrir sér. Hún vann um tíma á hótelinu í Vík, en hélt svo til Reykjavíkur og var fyrstu ár- in í vist hjá frændfólki sínu, Lau- rettu húsfreyju og Haraldi Hag- an úrsmið á Laufásvegi 12. Í Reykjavík kynntist hún brátt mannsefni sínu og lífsförunaut, Daníel Bergmann, bankamanni, sem lengi var útibússtjóri Landsbankans á Langholtsvegi. Daníel var fæddur á Hellissandi 16. nóvember 1923 en fluttist til Reykjavíkur níu ára gamall. Hann var sonur hjónanna Sig- ríðar Jónsdóttur Bergmann og Daníels Þ. Bergmann. Krist- björg og Daníel giftust hinn 4. júní árið 1949, stofnuðu heimili Ástkær móðir mín hefur nú kvatt þetta jarðlíf. Missir minn er mikill bæði að missa bestu mömmu sem ég hefði getað eign- ast og einnig bestu vinkonu sem ég átti. Síðustu dagar hafa verið und- arlegir, skrýtið að renna ekki við á Skjóli að vinnudegi loknum til að kíkja til þín, mamma mín, og fá okkur kaffibolla og mola sam- an. En þú varst tilbúin til brott- farar, líkaminn var að þrotum kominn, en reisn þinni hélstu fram að síðustu stundu. Takk, elsku mamma, fyrir allt og allt. Ég veit að pabbi hefur tekið á móti þér opnum örmum þegar þú varst komin í Sum- arlandið. Ég elska þig, mamma mín, og sakna þín mikið. Þín Sigríður (Sigga). Elsku besta amma mín. Þegar ég sit hér og hugsa til baka koma ótal minningar upp í huga minn. Allar góðu stundirnar í Langagerðinu, ófáar útlanda- ferðir og ferðalög, og allt það sem við höfum brallað saman í gegnum tíðina. Ég er bæði mjög heppinn og þakklátur fyrir að hafa átt þig sem ömmu og verið svona náinn þér. Betri ömmu en þig er hvergi að finna. Ég er mjög þakklátur fyrir öll árin sem ég fékk að eiga með þér, þau eru mér afar dýrmæt. Þín verður sárt saknað. Þinn, Hjörleifur. Elsku besta yndislega amma mín. Ég trúi því ekki enn að þú sért farin, mér finnst það svo skrýtið og óraunverulegt. Ég leit mjög upp til þín og dáðist að þér, þú varst fyrir- mynd mín í svo mörgu því þú varst mikill karakter og hafðir einstakan persónuleika. Já, þú varst gull af konu og ég er svo þakklát fyrir allar dýrmætu stundirnar okkar saman. Þegar ég var yngri var ég ekkert sérstaklega hrifin af nafninu mínu en í dag finnst mér það yndislegt og mjög dýrmætt og ég er mjög stolt að bera það. Síðustu æviárin þín voru á Skjóli, á vinnustað mínum þá, og mér þótti einstaklega vænt um það að geta kíkt á þig þegar ég var á vakt. Hvíl í friði, elsku amma mín – ég sakna þín sárt. Takk fyrir allt. Ég veit að afi Daníel og Vil- borg frænka ásamt hinum systr- um þínum munu taka vel á móti þér. Minning þín og brosið þitt lif- ir. Þín nafna Kristbjörg Þöll. Ef það væri algengara að myndir prýddu orðabækur þá væri mynd af ömmu Kristbjörgu við skilgreiningu á orðinu „amma“. Hún var þessi ekta amma sem svo gott var að eiga. Hún var traust og ávallt til stað- ar. Hún bakaði kleinur, sauð ýsu, ráðlagði heilt og hlustaði. Hún var einstök amma og einstök vinkona mín. Það sem einkenndi samband okkar ömmu var þetta traust sem ég hafði á henni og ég trúi að hún hafi einnig haft á mér. Við gátum talað saman um allt og ekkert og oftar en ekki strítt hvort öðru svo mikið að þeir sem á hlustuðu hristu hausinn yfir bullinu í okkur. Mér fannst gam- an að stríða ömmu og ég fékk stríðnina margfalt til baka frá henni. Svo hlógum við saman að vitleysunni í okkur. Þegar ég var barn voru amma og afi í Langagerði alltaf kjarn- inn í fjölskyldunni. Límið sem festi allt saman. Þar voru kaffi- og kvöldverðarboðin haldin. Þar var einnig ávallt hist á jóladag. Í Langagerði hittist fjölskyldan öll og oft var mikill hamagangur enda barnabörnin á þeim tíma sex talsins og allt strákar. Síðar bættust við þrjú barnabörn og loks barnabarnabörn sem öll héldu uppi stuðinu eftir að við upphaflegu strákarnir sex urð- um eldri. Eftir að afi veiktist annaðist amma hann eins og henni var einni lagið. Það var aðdáunar- vert að sjá ósérhlífnina og dugn- aðinn sem einkenndi þessa ynd- islegu konu. Eitt hádegið sat ég inni á skrifstofu afa í Langagerði og spjallaði við hann. Ég hef ver- ið í kringum tvítugt. Amma var að elda og við afi töluðum eflaust um pólitík á meðan. Amma kom inn á skrifstofu og sagði okkar að það væri að koma matur, við ættum bara að koma þegar við værum tilbúnir. Þegar hún gekk aftur inn í eldhús hallaði afi sér yfir skrifborðið og hvíslaði: „Hún er góð kona.“ Ég er sammála afa. Hún var góð kona. Einstök kona. Nú eru þau sameinuð á ný. Elsku amma mín, takk fyrir að vera svona góð við mig og alla mína nánustu alla tíð. Ég sakna þess að geta ekki bullað og hleg- ið með þér lengur. Ég elska þig. Guðmundur Óskar Guðjónsson. Elsku Kristbjörg mín. Veru þinni hér hjá okkur er nú lokið. Margs er að minnast eftir langa samveru. Við Hemmi minn vorum ung þegar við flutt- um í risið hjá ykkur í Langa- gerðinu með Lúlla bara eins árs. Með okkur tókst góð vinátta sem varði alla tíð. Kristín og Þórður tóku Lúlla undir sinn verndar- væng því þau voru eldri. Síðan átti ég Halla og þú Siggu mánuði seinna og ólust þau upp sem systkin. Síðan fluttum við í Háa- gerðið og Sigga sótti Halla sinn í Ásuskóla í Heiðagerði og síðar í Breiðagerðisskóla. Svo leið tíminn börnin urðu eldri. Við eignuðumst bíla og þá var farið í ferðalög með allar útilegugræjurnar og keyrt vítt og breitt um landið á þessum holóttu malarvegum í rykskýi. Þetta var ekki alltaf auðvelt en þess virði þótt tæki 12 tíma að keyra á Mývatn. Hver skyldi trúa því en svona var það. Við bættum um betur og fórum líka á Austfirðina og Vestfirðina en ég held að krakkarnir muni helst eftir ferð í Þjórsárdal það sem áð var í tjöldum. Snemma morg- un í glampandi veðri ákváðum við að ganga inn að Háafossi. Vorum við á göngu allan daginn og aldrei ætlaði fossinn að koma í ljós en loks sáum við hann og þá átti eftir að fara til bak og voru fótasárir ferðamenn og lún- ir er komu í tjaldstað undir kvöld og sársvangir. Allt er gott meðan heilsan er góð. En svo veiktist Daníel og þá var mikil breyting á þínum hög- um. Þú dreifst þig í bílpróf til að geta aðstoðað og heimsótt Daní- el á spítalann í veikindum hans. Margar voru samverustundir eftir sem áður og komum við oft í Langagerðið í heimsókn og var margt spjallað. Alltaf tekið vel á móti okkur með bros á vör. Þótti okkur gaman að fara með ykkur upp í sumarbústað en ekki var víst að Daníel gæti gengið brekkuna niður í bústaðinn en hann hélt nú að hann gæti treyst honum Hemma fyrir því. Þetta gekk ágætlega og fengum við góðan dag sól og blíðu. Grillað var læri með öllu tilheyrandi og við stelpurnar fengum okkur að- eins í gogginn úti á palli og slúðruðum mikið. Gott er að fara aftur í tímann og muna gamla tíð. Að eiga góða vinkonu er gott. Létt lund þín var alltaf til staðar og oft fórum við eitthvert saman eftir að við vorum orðnar einar og töluðum saman í síma ansi lengi. Eftir að þú fluttir á Sléttuveginn varstu heldur van- sæl og hafa þá veikindi þín sett mark á þig. Ég heimsótti þig á Skjól og fannst mér þér líða vel þar og hafðir það öryggi sem til þarf og tókst brosandi á móti mér. Ég veit að börn þín og barnabörn minnast góðrar mömmu og ömmu. Takk fyrir allt og allt, Kristbjörg mín. Guðlaug Ágústa Lúðvíksdóttir (Gullý). Kristbjörg Þórðar- dóttir Bergmann ✝ Hörður Guð-mannsson fæddist 23. nóv- ember 1941. Hann lést á gjörgæslu- deild Landspítalans 24. október 2016. Foreldrar Harð- ar voru Guðmann Ólafsson, f. 13. nóv- ember 1909, d. 12. maí 1993, og Reg- ína Sveinbjarnar- dóttir, f. 25. júní 1915, d. 21. ágúst 2006. Þau bjuggu á Skála- brekku í Þingvallasveit. Systk- býlismaður Kristinn Jósep Gal- lagher, f. 3. janúar 1974. Dætur þeirra eru Gabríela Ósk, f. 20. febrúar 2008, og Marín Björt, f. 31. júlí 2013. Sonur Jónínu er Erling Páll Karlsson, f. 27. ágúst 1985. Hörður ólst upp á Skála- brekku í Þingvallasveit og bjó þar nær alla ævi. Síðustu fimm- tán árin var hann í Reykjavík; síðast átti hann heimili á Felli við Skipholt. Hann stundaði fjárbúskap og silungs- og murtuveiði á Skálabrekku ásamt foreldrum sínum. Hann sinnti að auki ýmsum öðrum verkefnum og störfum. Útför Harðar var gerð í kyrr- þey 2. nóvember sl. Hann fær sína hinstu hvílu í kirkjugarð- inum á Þingvöllum hjá foreldr- um sínum. ini hans voru Hilm- ar, f. 18. janúar 1938, d. 26. desem- ber 1961, og Guð- rún Þóra, f. 11. febrúar 1950. Sambýliskona Harðar var um hríð Jónína Þorbjörg S. Pálsdóttir, f. 31. janúar 1959, d. 8. mars 2005. Hann tengdist tveimur af börnum hennar böndum. Dóttir Jónínu er Anna Lísa Sigfúsdótt- ir, f. 22. september 1980, sam- „Ég er orðin vitlaus.“ Þessi fullyrðing mín var oft rifjuð upp heima. Haddi átti að passa stelpuna stundarkorn og ég sætti mig náttúrlega ekki við það og varð „vitlaus“. Ég trúði honum að sjálfsögðu. Ég var alltaf „stelpan“ þegar hann var þreyttur á mér. Haddi er dáinn og minning- arnar streyma fram. Ég og Haddi í leikjum (þrátt fyrir ald- ursmun), úti á sleða, úti á vatni á skíðasleða, á skautum (sem pabbi smíðaði), á hjólatíkinni, í leik með báta (úr spýtum, korki eða lýsisdósum), með skrið- dreka (úr tvinnakefli, kerti, bút úr hjólhestaslöngu og heklunál), með spunakonur og gestaþraut- ir (heimagerðar), í feluleikjum. Ég man okkur á jólum, að skreyta jólatré, að taka upp pakka, að spila manna með mömmu eða pabba; man okkur í tunglsljósi að fara niður í reyk- kofa, baksandi upp á ás að ná í kol á sleða, með vasaljós í niða- myrkri á leiðinni upp á veg. Við brösuðum mikið saman í öllum sveitaverkum, smöluðum, rúð- um, vitjuðum um (hann stjórn- aði, ég reri), settum aflann í sil- ungaþróna, við heyjuðum, snerum, fórum út í Litlu girð- ingu, keyrðum heim heyið, sættum, múguðum, rökuðum dreif, settum niður kartöflur, dreifðum hrossatöðum, bárum á, gáfum á fjárhúsin, slægðum og söltuðum, fórum upp í læk með mjólkina, drógum upp bát- inn, keyrðum silunginn í Val- höll. Ég man hann við dyra- vörslu á kvenfélagsböllunum í Valhöll. Það sem hann var viljugur að sækja mig, endalaust, og Óskar og Reyni, hvernig sem ástandið á bænum var. Hann sótti mig í helgarfrí þegar ég var í skóla á Laugarvatni og í Kennaraskól- anum í Reykjavík, hvernig sem færðin var, enda mikill „keyr- ari“; ég var alltaf örugg í bíl með honum. Hann sótti mig og keyrði til baka hvenær sem ég vildi þegar ég vann á símanum og bjó í Valhöll; ökumaður mik- ill alla tíð. Haddi var afar góður við syni mína, enda barngóður með af- brigðum; þeir voru í sveit heima í nokkur ár, lærðu margt. Hann var fyrsti kostur þegar ég þurfti pössun, að þeirra mati, þótt langt væri að fara. Endalausar minningar. Við á leiðinni að Högnastöðum, að Seli, suður að Nesjavöllum, út að Heiðarbæ, endalaust þangað, alltaf verið að fara á milli bæj- anna, í bæinn, yfir heiðina, austur á Þingvöll, austur að Laugarvatni. Svo komu tímar þar sem við vorum ekki eins mikið saman; við fjarlægðumst hvort annað í önnum og átökum lífsins. Við höfðum þó nálgast hvort annað í seinni tíð. Við áttum góðar stundir síðsumars þegar haldið var ættarmót í Kjósinni. Það var gaman. Þakkarvert. Ég færi hjartans þakkir frá mér og mínum. Guðrún. Haddi frændi lést 24. október síðastliðinn. Ég hitti hann síð- ast á ættarmóti í sumar en nokkrum vikum fyrir það heim- sótti hann mig í bústað fjöl- skyldunnar á Skálabrekku. Í bæði skiptin kom mér skemmti- lega á óvart hversu hress hann var, en hann hafði orðið fyrir miklu áfalli þá um vorið og dvaldi á spítala um hríð. Á pall- inum við bústaðinn ræddum við vatnið, náttúruna, sveitina og fjölskyldu- og ættartengsl en hann var mjög fróður um þessi mál. Á ættarmótinu var hann síðan hress, spjallaði og hafði gaman af að hlusta á sögurnar frá því í gamla daga. Ekki var annað að sjá en að hann nyti lífsins. Þegar ég hugsa aftur í tímann er ég alltaf jafn þakk- látur fyrir að við Nolli bróðir minn vorum svo lánsamir að fá að dvelja fimm sumur í sveit á Skálabrekku, hjá Hadda og ömmu og afa. Ég var 10 ára þegar ég mætti fyrst í sveitina og mætti Nolli um mitt sumarið enda nokkuð yngri. Ekki veit ég hvort við vorum til einhvers gagns þetta fyrsta sumar, en oft er mjór mikils vísir og Haddi tók okkur bræð- ur óþreyttur með til allra verka. Hvort sem það var að vitja um netin, mjólka kúna, safna eggj- um hjá hænunum, gefa fénu að éta eða gera við vélar og girð- ingar, þá vorum við með og höfðum gaman af þessu öllu saman. Ekki síst glettninni í frænda okkar en hann átti það til að slá á létta strengi, leika mann og annan, og jafnvel taka sopa af fóðurlýsinu eftir að við höfðum manað hann til þess. Mér er minnisstætt þetta sum- ar að ég keyrði dráttarvél í fyrsta skipti einsamall. Gekk það þannig fyrir sig að Haddi keyrði með mig á túnið sem þurfti að snúa heyinu á og ég settist í ökumannssætið á drátt- arvélinni, hann stillti olíugjöf- ina, setti í gír og fór. Síðan sneri ég heyinu þar til hann kom til baka. Vafalaust gengur þetta ekki svona fyrir sig í dag. Þessi fimm sumur í sveitinni voru ómetanleg, ekki síst fyrir það veganesti sem Haddi frændi lagði okkur bræðrum til, ekki bara varðandi verk og vinnu heldur líka lífið yfirleitt. Fastur liður í sumrinu var að við þrír fórum saman í dagsferðalag á bíl með nesti. Skoðuðum oft hella og keyrðum erfiða slóða eins og Kaldadal og Uxahryggi á Lödu! Með þessum orðum kveð ég Hadda að sinni. Far vel, frændi minn. Guðmann. Hörður Guðmannsson, eða Haddi eins og hann var ávallt kallaður, er allur og blessuð sé minning hans. Haddi hefði orðið 75 ára 23. nóvember næstkom- andi en hann var fæddur 23. nóvember 1941 í Skálabrekku við Þingvallavatn, vatnið sem var honum einstaklega hugleik- ið. Við vorum svo lánsöm að kynnast Hadda í sveitinni hans, Þingvallasveit. Þar leið honum alltaf best. Hann var ekki gamall þegar hann byrjaði að veiða með föður sínum en net voru hans veið- arfæri og hann var mjög fisk- inn. Þekkti vatnið vel og vissi á hvaða stöðum urriðinn hélt sig og hvar bleikjan var. Veiðin var ekki mæld í stykkjatali heldur kílóum. Þetta var ekki sport- veiði heldur var þetta nytja- veiði. Hann var einu sinni spurður hvort hann hefði prófað að veiða á stöng? Haddi horfði á spyrjandann og sagði: „Til hvers?“ Haddi naut þess að eiga ein- staka foreldra sem vöfðu hann umhyggju og væntumþykju. Guðmann kenndi honum á vatn og veiðar, Regína passaði svo upp á þá báða. Í þessum faðmi varð Haddi að þessari einstöku perlu sem við erum þakklát fyr- ir að fá að hafa fengið að kynn- ast. Haddi var afskaplega fróður um Þingvallasveit. Þekkti hverja þúfu, hól og fjall ásamt því að þekkja alla íbúa sveit- arinnar vel og fylgdist með öllu sem fram fór en var ávallt orð- var og umhyggjusamur og hafði aðgát í nærveru sálar. Hann var alltaf traustur, heiðarlegur, hjálpsamur og góð- lyndur. Hann heimsótti okkur reglu- lega bæði í sveitinni og heim til okkar og sýndi okkur mikla tryggð. Kærar þakkir frá okkur og góðar minningar ylja. Við vott- um fjölskyldu Hadda okkar samúð og virðingu. Ásgeir, Sigga Dóra, Dóra, María, Guðmundur, Sigurður og Sigríður og fjölskyldur. Hörður Guðmannsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.