Morgunblaðið - 12.11.2016, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 12.11.2016, Blaðsíða 45
DÆGRADVÖL 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2016 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Líttu ávallt á björtu hliðar lífsins því það gerir aðeins illt verra að mikla erfiðleik- ana fyrir sér. Skiptu þér ekki af öðrum og reyndu ekki að bjarga heiminum. 20. apríl - 20. maí  Naut Fólk getur verið hugsunarlaust, svo mikið er víst. Hugleiddu alvarlega að taka námskeið eða ganga í samtök þar sem þú getur notið þess að skiptast á skoðunum við annað fólk. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Reynið að taka hlutina ekki of per- sónulega. Notaðu þá í eitthvað ódýrt og flott, í stað þess að leyfa þér dýran munað. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þegar þú hlustar á hjartað segir það þér að eyða meiri tíma í hversdagsverkin. Ekki láta þér segjast þótt þú eigir erfitt með einbeitinguna. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er einhver spenna á heimilinu og því hefðirðu gott af því að verja tíma með vini þínum. Láttu það því sitja fyrir öðru um sinn. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú munt líklega þurfa að gera upp á milli vinnunnar og heimilisins í dag. Ef hann veit ekki hvað skal taka til bragðs, er best að gera ekkert. 23. sept. - 22. okt.  Vog Framlög til góðgerðarmála hjálpa fiskn- um að finna til ríkidæmis – eins og hann eigi meira en nóg og enn meira á lager. Gerðu ekki of mikið úr því. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þér vegnar vel ef þú vinnur und- irbúningsvinnnuna þína. Hafðu ekki áhyggjur af peningaeyðslu, eftir allt ferðu ekki með auðinn í gröfina. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Bættu tillitssömu og hjálpsömu fólki við liðið þitt. Mál sem tengjast lögfræði, útgáfustarfsemi, framhaldsmenntun og ferðalögum ættu að ganga sérstaklega vel. 22. des. - 19. janúar Steingeit Vertu fyrstur til þess að kynna þig. Gleymdu því óörygginu og kýldu á það núna. En það sem skiptir þig máli er að gefa. Þér er það algerlega náttúrulegt. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þegar þú spyrð örlögin hvað þau ætli að færa þér færðu ekkert svar – bara hvítan striga þrunginn möguleikum. Reyndu að koma erfða-, fasteigna- og tryggingamál- unum á hreint. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það er engin ástæða til þess að gala það út um allar jarðir þótt þú hafir haft heppnina með þér. En það veitir örygg- iskennd. Síðasta gáta var sem endranæreftir Guðmund Arnfinnsson: Háloftanna hraðbraut er. Hafa margir uppi’ í sér. Karlinn vísast er þar enn. Í hana fara liprir menn. Svona lítur lausnin út hjá Hörpu á Hjarðarfelli: Loftbrú er milli landa. Lítil tannbrú er. Stjórar í brúnni standa. Stirð í brú ei fer. Árni Blöndal svarar: Loftbrú muna margir hér. Margir brú í munni bera. Karl í brúnni ennþá er. Úr sér brúna sjálfir gera. „Þá er það lausnin,“ segir Helgi R. Einarsson: Í hugarfylgsnum heimskan býr og hugsunin því sein og rýr, samt lausnin finnst mér frekar skýr. Fjórar mismunandi brýr. Þessi er skýring Guðmundar: Milli landa loftbrúin. Lagar tannbrú munnsvipinn. Í brúnni karlinn birtist enn. Í brú svo fara liprir menn. Þá er limra: Með sælubros sefurðu nú, en seinna meir vaknar þú af svefnsins ró, er sæld þér bjó, og þinn draumur er brotin brú. Síðan segir Guðmundur: Vaknaður af værum dúr vísnagátu semja hlýt, fæ mér góðan göngutúr um gátu meðan heilann brýt. Hún er svohljóðandi: Gengur hann á hæla manns. Hindrar birtu ljósgjafans. Vofa, sem á sveimi er. Sorg, er þig í hjartað sker. Ármann Þorgrímsson veltir ei- lífðarmálunum fyrir sér: Oft er trúin aðlöguð einkaþörfum notandans allir segjast elska guð en enginn fer að boðum hans. Brynjólfur Ingvarsson, síðar geð- læknir, orti þar sem hann stóð við hliðina á mér einhvern tíma þegar ég var að flensa búrhval og gekk illa að lima hann: Heyrast andvörp örmögnuð yfirgnæfa kliðinn: „Almáttugur góður guð gef að ég hitti á liðinn!“ Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Svipast um af brúnni Í klípu „KANNSKI SKRIFAR LÆKNIRINN ÞINN BARA SVONA ILLA. EN TIL ÖRYGGIS ÆTLA ÉG AÐ GEFA ÞÉR 30 SEKÚNDNA FORSKOT.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „GRAFÐU PABBA ÞINN UPP, ANNARS FÆRÐU ENGAN ÍS.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... Að blása sápukúlur saman. FYRIRGEFÐU, FRÖKEN... HEFURÐU NOKKUÐ SÉÐ GARNHNYKILINN MINN? BÚKTALARI! HVAÐ MYNDIRÐU VERA EF ÞÚ VÆRIR EKKI VÍKINGUR? Víkverji er alltaf að reyna að kennabarninu góða siði. Hluti af því er að aðstoða krakkann eftir megni að verða sjálfstæður einstaklingur. Þetta er eins konar hjálp til sjálfs- hjálpar svona alveg eins og kirkjan boðar af fögnuði. x x x Í aðra röndina býsnast Víkverji yfirsjálfstæðinu yfir fatavalinu hjá barninu sem á það til að vera eins og útburður til fara. Stundum koma tímabil, sem reyndar ekkert hlé er á, þar sem Víkverji getur ekki áttað sig á því hvers vegna í ósköpunum af- kvæmið er ekki duglegra við að greiða sér sjálft. x x x Þetta ástand undrunar hefurhreiðrað um sig í brjósti Vík- verja alveg þar til Víkverji leit sjálfur í spegil eftir að hafa hent hárinu í tagl eftir sturtu án þess svo mikið sem að gera heiðarlega tilraun til að greiða úr hárflækjunum. x x x Hreinlæti blessaðra barnanna lær-ist ekki af sjálfu sér. Það þarf að fara vel yfir þessa hluti með því að kenna þeim að nota sápu og vatn. Augljóslega því þetta er stór hluti af lífinu. x x x Hrein föt eru hluti af okkar nú-tímaveruleika, að minnsta kosti flestra sem búa hér á landi. Víkverji er svo heppinn að eiga þvottavél sem sinnir hlutverki sínu af mikilli natni. Hreinar nærbrækur og skipta reglulega um er eitt af boðorðum Víkverja. Nýverið benti Víkverji barni sínu vinsamlegast á að skipta um nærhald og rétti því munstraðar buxur í regnbogans litum. Svarið lét ekki á sér standa hjá þeirri stuttu frekar en fyrri daginn. „Þú ert alltaf að láta mig skipta um nærbuxur,“ sagði barnið um leið og það allt að því hrifsaði brækurnar úr lúkum Víkverja. Þegar það var búið að skipta samviskusamlega eftir for- skrift Víkverja, leit það á Víkverja og sagði: „Skiptu sjálf, þú varst líka í þessum nærbuxum í gær.“ víkverji@mbl.is Víkverji Lofa þú Drottin, sála mín, og allt sem í mér er, hans heilaga nafn; lofa þú Drottin, sála mín, og gleym eigi nein- um velgjörðum hans. (Sálm. 103:1-2) ...sem þola álagið! TRAUSTAR VÖRUR... Raftæknivörur Mótorvarrofar og spólurofar Það borgar sig að nota það besta! E i n n t v e i r o g þ r í r 3 1 .3 0 1 Skynjarar Töfluskápar Hraðabreytar Öryggisliðar Aflrofar Iðntölvur Dalvegi 10–14 • 201 Kópavogi • Sími: 540 7000 • www.falkinn.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.