Morgunblaðið - 12.11.2016, Side 8

Morgunblaðið - 12.11.2016, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2016 ...með nútíma svalalokunum og sólstofum Skútuvogur 10b, 104 Reykjavík, sími 517 1417, glerogbrautir.is Opið alla virka daga frá 9-17 og á föstudögum frá 9-16 • Svalalokanir • Glerveggir • Gler • Felliveggir • Garðskálar • Handrið Við færumþér logn & blíðu Stjórnarmyndunarþreifingarhafa verið með sérkennilegasta móti og enn bætist í. Strax eftir kosningar lýsti Samfylkingin því yfir, bæði fyrri formaður og sá sem tók við, að flokkurinn færi ekki í ríkisstjórn. Hann ætlaði að sleikja sárin, og það var vissulega umtalsvert verkefni.    Nú lýsir Logi Einars-son formaður því yfir að Samfylkingin geti orðið sú skrúfa sem þurfi til að tjasla saman einu stykki ríkisstjórnarvél.    Lausa skrúfan hyggstað sögn Loga „nálgast þá stöðu af fullri ábyrgð“ og er það eðlilegt, enda skylda þingmanna og stjórnmálaflokka að leggja sig fram um að mynda rík- isstjórn með starfhæfan meirihluta á Alþingi.    En það eru lausar skrúfur víðarog jafnvel á verri stöðum.    Viðreisn telur til að mynda aðmeð því að hafa fengið sjö þingmenn eigi flokkurinn að ráða lögum og lofum á þessu kjör- tímabili og fá að þvinga í gegn mál sem þjóðin hefur hafnað. Svo neitar flokkurinn tilteknu samstarfi fyrir fram af fordómum einum saman.    Og það undarlega er að lausaskrúfan hefur einnig ráðið mestu í Bjartri framtíð, sem gæti verið í lykilstöðu við ríkisstjórn- armyndun, en kýs í staðinn að ger- ast taglhnýtingur Viðreisnar.    Að ekki sé minnst á lausu skrúf-una sem hefur orðið til þess að ungliðum VG hefur tekist að halda flokknum frá stjórnarmyndunar- viðræðum. Laus skrúfa STAKSTEINAR Veður víða um heim 11.11., kl. 18.00 Reykjavík 7 rigning Bolungarvík 8 rigning Akureyri 11 alskýjað Nuuk -8 heiðskírt Þórshöfn 8 súld Ósló 15 léttskýjað Kaupmannahöfn 0 léttskýjað Stokkhólmur -3 þoka Helsinki -9 heiðskírt Lúxemborg 3 skýjað Brussel 3 léttskýjað Dublin 10 rigning Glasgow 7 skýjað London 7 heiðskírt París 8 heiðskírt Amsterdam 3 heiðskírt Hamborg 2 þoka Berlín 1 heiðskírt Vín 4 skýjað Moskva -4 rigning Algarve 18 heiðskírt Madríd 14 heiðskírt Barcelona 15 skýjað Mallorca 19 léttskýjað Róm 16 skúrir Aþena 17 heiðskírt Winnipeg 0 léttskýjað Montreal 4 skýjað New York 15 heiðskírt Chicago 11 skýjað Orlando 18 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 12. nóvember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 9:49 16:36 ÍSAFJÖRÐUR 10:12 16:23 SIGLUFJÖRÐUR 9:55 16:05 DJÚPIVOGUR 9:23 16:01 Aðspurður segir Hermann Guð- mundsson, for- maður verk- efnastjórnar skýrslu Rauða krossins þar sem m.a. var dregin upp dökk mynd af félagslegum aðstæðum í Breiðholti, að lesið hafi verið yfir skýrsluna áður en hún var birt. Skýrslan hefur nú verið tekin af vef Rauða krossins vegna gagnrýni sem á hana barst. „Skýrslan var lesin yfir. Hún var unnin af óháðum aðila [Ómari Valdimarssyni] og hans tungutaki leyft að halda sér,“ segir Hermann og bætir við; „Hún var kannski ekki lesin nægilega víða og á hana kom gagnrýni eftir á, bæði innan Rauða krossins og víðar. Orðaval er talið gildishlaðið á köflum og við vildum ekki að það myndi skyggja á niðurstöðurnar. Því tókum ákvörðun um að vinna úr henni út- drátt til birtingar. Niðurstaðan skiptir mestu máli og unnið verður með hana við forgangsröðun verk- efna,“ segir Hermann. Að sögn hans verður verklag endurskoðað vegna gagnrýni sem á skýrsluna barst. vidar@mbl.is Skýrslan var lesin fyrir birtingu Hermann Guðmundsson Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Veitingastaðurinn Bergsson mathús verður áfram starfræktur í Templ- arasundi 3 eftir að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði að Þórsgarði ehf., eiganda fasteignarinnar, hefði ekki verið heimilt að segja upp leigu- samningi. Forsaga málsins er sú að Þórs- garður sagði einhliða upp leigusamn- ingi við Bergsson mathús snemma síðasta vor í kjölfar deilna. Við þessa niðurstöðu sætti Bergsson sig ekki. Í framhaldinu höfðaði Þórsgarður mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem þess var krafist að Bergsson viki úr húsnæðinu. Þórir Bergsson, eigandi Bergsson mathúss, segist að sjálfsögðu ánægð- ur með niðurstöðuna og á ekki von á því að málinu verði áfrýjað. „Það var ekki fallist á neitt þeirra atriða sem þeir lögðu upp með,“ segir Þórir. Hann segir þó um leiðindamál að ræða. „Ég er ekki maður átaka og manni finnst að það hefði verið hægt að leysa þetta annars staðar en í dómssal,“ segir Þórir. Hann segir að engin samskipti hafi farið fram á milli Þórsgarðs og hans eftir dóminn. „Þeim stóð til boða að kaupa mig út en þeir vildu það ekki. Því mun ég bara halda áfram að greiða mína leigu og reka mitt veitingahús,“ segir Þórir. Bergsson mathús fer ekki neitt  Þórsgarði var ekki heimilt að segja upp leigusamningi að Templarasundi 3 Morgunblaðið/Eggert Bergsson Þórir Bergsson er að vonum ánægður með niðurstöðuna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.