Morgunblaðið - 12.11.2016, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 12.11.2016, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2016 Minjastofnun Íslands úthlutar styrkjum úr fornminjasjóði. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu og rannsóknum á fornminjum, sbr. reglur nr. 578/2014. Úthlutað er styrkjum til eftirfarandi verkefna:  Rannsókna á fornminjum (fornleifum og forngripum)  Miðlunar upplýsinga um fornminjar  Varðveislu og viðhalds fornminja Sjóðnum er jafnframt heimilt að veita styrki til viðhalds annarra menningarminja sem hafa menningarsögulegt, vísindalegt eða listrænt gildi, t.d. minja sem njóta ekki friðunar á grundvelli aldurs en teljast hafa varðveislugildi, svo sem skipa, báta og annarra samgöngutækja. Umsóknir eru metnar með tilliti til vísindalegs– og menningarsögulegs gildis og þeirrar stefnu sem mörkuð hefur verið í minjavernd, ásamt gildi þeirra fyrir varðveislu þjóðararfleifðarinnar. Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar, m.a. úthlutunarreglur, er að finna á heimasíðu Minjastofnunar Íslands, www.minjastofnun.is. Umsóknarfrestur er til og með 10. janúar 2017. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur koma ekki til álita við úthlutun. Minjastofnun Íslands hefur eftirlit með að styrkt verkefni séu unnin í samræmi við lög nr. 80/2012 og reglur stofnunarinnar og í samræmi við innsend umsóknargögn. Suðurgötu 39, 101 Reykjavík Sími: 570 1300 www.minjastofnun.is fornminjasjodur@minjastofnun.is Minjastofnun Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrki úr fornminjasjóði fyrir árið 2017 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Stefnt er að því að á næstu vikum verði hafist handa við að fjarlægja grenitré í Öskjuhlíðinni, við enda flugbrautarinnar. Þessi tré eru orðin svo há að þau eru farin að hamla flug- starfsemi á vellinum. Sú hugmynd fæddist að Ásatrúarfélagið fengi við- inn að gjöf og hann yrði notaður í hið nýja hof sem félagið mun reisa við Menntasveig í Öskjuhlíðinni. Trjárækt hófst í Öskjuhlíð um 1950 að frumkvæði borgaryfirvalda. „Þeir hjá Isavia buðu okkur þessi tré og við erum að leita lausna. Þetta er mjög heillandi hugmynd og alger- lega í anda þeirrar heimspeki sem við höfum lagt upp með,“ segir Hilm- ar Örn Hilmarsson allsherjargoði. Verður með lægsta kolefnaspor allra bygginga á Íslandi „Það væri frábært að geta endur- nýtt þessa hluti í nágrenni við okkur. Við höfum alltaf lagt upp með að þessi bygging hafi lægsta kolefna- spor af öllum byggingum á Íslandi,“ segir Hilmar Örn. Hann segir að til hafi staðið að nota eingöngu íslenskan við frá Hall- ormsstað í bygginguna. „Og ef við bætum þessu við erum við enn frekar að ná markmiðum okkar. Við erum að leita lausna hvernig best er að vinna timbrið sem næst staðnum.“ Hilmar Örn segir að trjábolirnir verði sagaðir niður og viðurinn not- aður í klæðingu utanhúss og -innan. Timbrið frá Hallormsstað er komið með vottun en eftir er að fá vottun á timbrið úr Öskjuhlíð ef það verður þegið. „Það væri dásamlegt ef við gætum notað trjávið sem hefur vaxið í nágrenni hofsins,“ segir Hilmar Örn. Hann segir að aldrei áður hafi ver- ið reist stórhýsi sem er eingöngu úr íslensku timbri. Ekki einu sinni við landnám því landnámsmenn hafi komið hingað með bolvið og kirkju- við. Þetta hús verði einstakt í Ís- landssögunni. Hilmar Örn segir að búið sé að taka grunn að hofinu. Rafmagn, heitt vatn og kalt sé komið á staðinn og nú sé verið að vinna í fráveitumálum. Til stendur að byrja að steypa und- irstöður hofsins fljótlega á nýju ári. Hofið sjálft verður um 380 fermetrar að flatarmáli en kostnaðaráætlun hljóðar upp á 130 milljónir króna. Aðalverktakinn er fyrirtækið Spöng, Verkís annast verkfræðihönnun en hofið sjálft hannaði Magnús Jensson. Þegar safnast hafa nægir fjármunir verður á næstu árum hafist handa við safnaðarheimilið, síðari áfanga byggingarinnar. Verður byggingin þá orðin um 800 fermetrar að flat- armáli. Öskjuhlíðartré í hofið?  Á næstunni verður byrjað að fella í Öskjuhlíð tré sem hamlað hafa flugstarfsemi  Buðu Ásatrúarfélaginu timbrið  „Heillandi hugmynd“ segir allsherjargoðinn Teikning/Magnús Jensson Ásatrúarhofið í Öskjuhlíð Til stendur að nota aðeins íslenskan við í þessa nýstárlegu byggingu. Að fjarlægja trén í Öskjuhlíð var einn þátturinn í samkomulagi Ög- mundar Jónassonar, fyrrverandi innanríkisráðherra, og Jóns Gnarr, fyrrverandi borgarstjóra, um endurbætur á aðstöðu á Reykja- víkurflugvelli, sem gert var hinn 19. apríl 2013. Samkomulagið var svohljóð- andi: „Að flugöryggi við notkun austur/vestur flugbrautar verði bætt með því annars vegar að séð verði til þess að gróður í Öskju- hlíðinni skagi ekki upp í hindr- unarfleti núverandi flugbrautar og hins vegar að heimiluð verði upp- setning aðflugsljósa fyrir ná- kvæmnisblindaðflug vestan við brautina.“ Fram hefur komið hjá Árna Gunnarssyni, framkvæmdastjóra Flugfélags Íslands, að hæð trjánna í Öskjuhlíð hafi í einstaka tilfellum haft áhrif á flutningsgetu flugvéla félagsins og ekki hafi verið hægt að taka með alla farþega sem ann- ars hefðu farið í flugið. Þetta ger- ist sem betur fer ekki oft, en við vissar aðstæður skapi trén vanda- mál. Samið um það árið 2013 að trén yrðu fjarlægð HÖFÐU ÁHRIF Á FARÞEGAFLUGIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Nú liggur fyrir hvernig þing- flokkum verður skipt í herbergi í Al- þingishúsinu. Nauðsynlegt var að gera breytingar því einn þing- flokkur bættist við eftir Alþingis- kosningarnar og stærðarhlutföll flokka breyttust milli þinga. Stærstu tíðindin eru þau að Framsóknarflokkurinn og Vinstri græn skiptast á herbergjum. Þing- flokkur Framsóknarflokksins fer í það herbergi sem kallað er gula her- bergið en Vinstri græn fara í græna herbergið. Framsóknarmenn hafa haft græna herbergið til afnota frá árinu 1942, að undanskildu kjör- tímabilinu 2009-2013. Á því kjör- tímabili urðu þeir einnig að skipta á herbergjum við Vinstri græn. Herbergi skipt í tvennt Sjálfstæðisflokkurinn verður áfram með sitt herbergi í gamla Al- þingishúsinu og Björt framtíð verð- ur áfram með sitt herbergi í Skála Alþingis. Fyrrverandi herbergi Samfylkingarinnar í Skála hefur verið skipt í tvennt. Þingflokkur Pírata fær stærra herbergið, 14 manna, og Viðreisn minna her- bergið, 10 manna. Samfylkingin fær herbergi í Skála sem Píratar höfðu áður. Fram kom í fréttum eftir kosn- ingarnar 2009 að framsóknar- mönnum var óljúft að yfirgefa sitt gamla herbergi í Alþingishúsinu, græna herbergið. En þeir urðu að gefa sig þegar forsætisnefnd þings- ins ákvað að þingflokkum yrði raðað í herbergi eftir stærð þeirra. „Það var auðvitað sárt að missa gamla herbergið en við stefnum að svo góðum sigri í næstu kosningum að við endurheimtum það,“ sagði Siv Friðleifsdóttir, þáverandi þing- maður framsóknarmanna. Þetta gekk eftir í kosningunum 2013. Framsóknarflokkurinn vann stór- sigur, þingmönnum fjölgaði úr 9 í 19 og flokkurinn endurheimti græna herbergið. Það er gengið flokknum úr greipum á nýjan leik. Ekki er enn unnt að ganga frá skrifstofum fyrir nýkjörna alþingis- menn að svo stöddu samkvæmt upp- lýsingum blaðsins. Venjan hefur verið sú að bíða myndunar nýrrar ríkisstjórnar því að ráðherrar hafa ekki skrifstofur hjá Alþingi og miklu munar úr hvaða þingflokkum þeir koma; svo og forseti og formaður og varaformaður fjárlaganefndar. Framsókn yfirgefur græna herbergið á ný  Píratar og Viðreisn í gamla herbergi Samfylkingarinnar Morgunblaðið/Heiddi Gula herbergið Framsóknarmenn munu flytja sig í herbergi Vinstri grænna. Myndir af formönnum Framsóknarflokksins verða fluttar á ný. Þrír umsækj- endur voru um embætti prests í Bjarnanes- prestakalli, Suð- urprófastsdæmi. Prestakallinu til- heyra Höfn í Hornafirði og ná- grannaprestaköll. Umsækjend- urnir eru guð- fræðingarnir Arnaldur Máni Finns- son, María Rut Baldursdóttir og Sylvía Magnúsdóttir. Umsóknarfrestur rann út 9. nóvember sl. en biskup Íslands skip- ar í embættið frá 1. desember nk. í ljósi niðurstöðu kjörnefndar presta- kallsins. Séra Sigurður Kr. Sigurðsson lét af störfum sóknarprests í Bjarnanes- prestakalli 1. nóvember síðastliðinn eftir 21 ár í embætti. Við embætti sóknarprests tók sr. Gunnar Stígur Reynisson, en hann hefur starfað við hlið sr. Sigurðar síðan 2012. Fyrir mánuði lét Kristín Jóhannesdóttir af störfum sem organisti, en hún hafði gegnt starfinu í 20 ár. Jörg Sondermann tók við af Kristínu, en hann hefur m.a. verið organisti í Hveragerði, Selfossi og Húsavík . Biskup Íslands auglýsti nýlega laust til umsóknar embætti héraðs- prests í Austurlandsprófastsdæmi. Skipað er í embættið frá 1. janúar 2017 til fimm ára. Umsóknarfrestur er til og með 17. nóvember nk. Sr. Davíð Þór Jónsson gegndi áður þessu embætti en hann hefur tekið við embætti prests í Laugarnes- kirkju. sisi@mbl.is Lætur af prests- embætti  Þrír umsækj- endur um embættið Sigurður Kr. Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.