Morgunblaðið - 12.11.2016, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 12.11.2016, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2016 Vertu upplýstur! blattafram.is ÞÚ ERT LÍKLEGRI TIL AÐ GRÍPA INNÍ EF ÞÚ HEFUR ÞEKKINGU Á ÓÆSKILEGRI HEGÐUN Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is Ný peysu- sending Str. 36-52 Opið 10-16 í dag Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook Nýtt - Túnikur Kr. 7.900 Str. M-XXXL gisting.dk 499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími) Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900 Kaupmannahöfn Fylgist með okkur á faceboock Kringlunni Sími 568 4900 SPARI FÖTIN fást hjá OKKUR Komið og kíkið á úrvalið Komið og gerið frábær kaup Laugavegi 63 • S: 551 4422 VETRARMARKAÐUR LAGERSALA VETRAKÁPUR, VETRARÚLPUR, LÉTTAR YFIRHAFNIR, BUXNAÚRVAL, SVARTAR KLASSÍSKAR, GALLABUXUR BLÁAR OG SVARTAR, BOLIR, PEYSUR, KJÓLAR, PILS, BLÚSSUR SKINN OG M. FLEIRA Á LAXDAL VETRAFATNAÐI Í KJÖRGARÐI KJALLARA Rýmum fyrir nýjum vetrarfatnaði 50 - 60 - 70% AFSLÁTTUR Opið 12-17 Lágmynd af Herdísi Þorvalds- dóttur leikkonu var afhjúpuð í gamla Elliðavatnsbænum í Heið- mörk í gær, þar sem höfuðstöðvar Skógræktarfélags Reykjavíkur eru. Myndin er eftir listamanninn Pétur Bjarnason en það var Baldvin Atlason sem færði félaginu mynd- ina að gjöf. Herdís, sem var fædd árið 1923 og lést 2013, var ein af þekktustu leikkonum sinnar kynslóðar og það úr ýmsum stórum hlutverkum. Hún skóp sér þó ekki síður nafn fyrir áratugalanga baráttu sína í þágu umhverfisverndar. Hún stofnaði og var formaður náttúruverndar- samtakanna Lífs og lands; þá tók hún þátt í starfi fjölmargra annarra áhugafélaga um uppgræðslu og gróðurvernd. Ekki síður var Herdís þó kunn fyrir baráttu sína gegn lausagöngu búfjár, en fyrir þeim málstað talaði hún fyrir árum saman, meðal annars í fjölda blaða- greina. Einnig má nefna myndina Fjallkonan hrópar á vægð, sem sýnd var í RÚV árið 2012. Að lágmynd af Herdísi Þorvalds- dóttur skyldi valinn staður í Elliða- vatnsbænum er engin tilviljun. Þar örskammt frá, þar sem heitir Hellu- vatn, átti hún sumarhús sem enn stendur og þar dvaldist hún oft. Stundaði þar einnig ræktunarstarf ýmiss konar. Við athöfnina í gær fluttu ávörp þeir Þröstur Ólafsson, formaður Skógræktarfélags Reykjavíkur, og Ólafur Egilsson leikari, dóttur- sonur Herdísar. Fjölmenni var við- statt. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Listaverk Í Elliðabænum í gær þar sem Þorvaldur S. Þorvaldsson arkitekt, bróðir Herdísar, afhjúpaði lágmyndina, sem er eftir Pétur Bjarnason. Lágmynd af Her- dísi í Elliðavatnsbæ  Barðist fyrir umhverfisvernd ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS Vegna vaxandi ógnar sem stafar af út- breiðslu sýklalyfjaónæmra baktería hefur heilbrigðisráðherra skipað starfshóp sem móta á tillögur um eft- irlit með sýklum og sýklalyfjaónæmi í dýrum og ferskum matvælum. For- maður starfshópsins er Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir en auk hans eiga þar sæti Sigurborg Daða- dóttir, tilnefnd af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Vala Frið- riksdóttir, tilnefnd af Tilraunastöð Há- skóla Íslands í meinafræði að Keldum. Útbreiðsla sýklalyfjaónæmra bakt- ería á sér margar orsakir og ein þeirra er dreifing með matvælum, segir í frétt frá velferðaráðuneytinu. Hér á landi hefur eftirlit með sýkla- lyfjaónæmi í dýrum og ferskum mat- vælum verið takmarkað og ekki fram- kvæmt með sambærilegum kerfisbundnum hætti og annars staðar í Evrópu, þar sem eftirlit byggist á ákvörðun Evrópusambandsins um vöktunarreglu sem ekki hefur verið innleidd hér á landi. Upplýsingar skortir Vegna þessa skortir upplýsingar um sýklalyfjaónæmi baktería í dýrum og ferskum matvælum hér á landi og því erfitt að meta hvort aukin hætta sé á að sýklalyfjaónæmar bakteríur berist í fólk með innflutningi ferskra matvæla. Starfshópurinn er skipaður á grundvelli tillögu frá fulltrúum sam- starfsnefndar um sóttvarnir, velferð- arráðuneytis og atvinnuvega- og ný- sköpunarráðuneytis. Gert er ráð fyrir að hann skili ráðherra tillögum sínum 1. febrúar 2017. Fjalla um sýklalyfja- ónæmi  Heilbrigðisráðherra skipar starfshóp - með morgunkaffinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.