Morgunblaðið - 12.11.2016, Síða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2016
Thealoz inniheldur trehalósa sem er náttúrulegt efni
sem finnst í mörgum jurtum og dýrum sem lifa í mjög
þurru umhverfi.
Trehalósi eykur viðnám þekjufrumna
hornhimnunnar gegn þurrki.
Droparnir eru án rotvarnarefna
og má nota með linsum.
Ég fór í laseraðgerð hjá Sjónlagi í lok maí 2015. Keypti mér
Thealoz dropana eftir aðgerðina og var mjög ánægð, ákvað
samt að prufa að kaupa mér ódýrari dropa og fann rosalega
mikinn mun á gæðum. Þessir ódýrari voru bara ekki að
gera neitt fyrir mig og þurfti ég að nota mikið meira magn.
Mælti með dropunum við tengdamömmu og er hún alsæl
með Thealoz dropana.
Elín Björk Ragnarsdóttir
Þurrkur í augum?
Thealozaugndropar
Fæst í öllum helstu apótekum.
Árlegir
styrktartónleikar
Kirkjukórs Lágafellssóknar
Styrkþegi er Fyrstu tengsl, samtök sem sérhæfa sig
í meðferð vegna þunglyndis á meðgöngu
og eftir barnsburð.
Fjöldi listamanna leggur málefninu lið.
Miðar við innganginn kr. 3.000. Ekki tekið við kortum.
verða í Guðríðarkirkju 13. nóvember kl. 16.00
„Þegar svona hvasst er þarf maður að hafa
sig allan við að synda,“ segir gamli sjóarinn
Sigurður Friðriksson eftir sjósundsprettinn
sem hann tók í Nauthólsvíkinni í gær. Vind-
urinn var um 20 metrar á sekúndu. Sigurður
hefur farið um 500 ferðir í Nauthólsvíkinni,
ekki síst yfir vetrarmánuðina, en notar aldrei
húfu, og sundgleraugu hafa aldrei komið á
höfuð hans. Þegar synt er á móti vindi fer sjór
í augu og ofan í sundmanninn. „Það hættuleg-
asta í sjósundinu er að synda undan vindi.
Slysin gerast þegar þú snýrð við og ætlar til
baka,“ segir Sigurður. Hann er betur þekktur
sem Diddi Frissa. Var í fjörutíu ár skipstjóri
og sjómaður á Suðurnesjum en er nú kominn í
ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Pusar yfir gamla sjóarann í Nauthólsvíkinni
Sigurður Friðriksson vill synda á móti vindinum
Rúmlega 200 mál hafa komið upp
það sem af er árinu þar sem toll-
verðir hafa stöðvað póstsendingar
sem innihéldu fíkniefni, stera og
ávanabindandi lyf. Til októberloka
eru slík mál orðin samtals 214 en
voru 221 talsins allt árið 2014. Það
ár var metár í haldlagningu slíkra
sendinga, að því er fram kemur í
frétt frá tollstjóra.
Í langflestum tilfellum er um
minni háttar mál að ræða, en
stærri innan um. Má þar nefna
póstsendingu sem tollverðir stöðv-
uðu í síðasta mánuði og reyndist
hún innihalda tæplega kíló af
metamfetamíni. Hafði efnið verið
falið í handsápum en það dugði
ekki til. Tollstjóri hefur kært
ofangreind mál sem upp hafa
komið til lögreglunnar á höf-
uðborgarsvæðinu sem fer með
rannsókn þeirra.
Tollstjóri minnir á fíkniefnasím-
ann 800-5005.
Fíkniefni og sterar
í póstsendingum
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhann-
esson, afhenti Óbyggðasetri Íslands
nýsköpunarverðlaun Samtaka
ferðaþjónustunnar við hátíðlega at-
höfn á Kex Hostel í gær en Kex
Hostel hlaut sömu verðlaun árið
2011 og því við hæfi að verðlaunin í
ár hafi verið afhent þar.
„Það er ánægjulegt að fá viður-
kenningu á framtaki sínu og hug-
mynd en við hjónin fengum hug-
myndina að setrinu fyrir að verða
fimm árum og opnuðum það svo
loks í ár,“ segir Steingrímur Karls-
son en hann og kona hans, Arna
Björg Bjarnadóttir, eru bæði alin
upp í sveit og vildu bjóða ferða-
mönnum að upplifa sveitalífið við
mestu óbyggðir í Norður-Evrópu.
Sveitalífið og náttúran
Óbyggðasetrið er í Norðurdal í
Fljótsdal á Austurlandi. Náttúran
er einstök þar eins og svo víða á
landinu en Steingrímur segir til-
gang setursins að njóta en ekki að
þjóta.
„Hér geta ferðamenn séð hvernig
við eldum í gamaldags eldhúsi, gist í
baðstofu og farið í göngu- og hesta-
ferðir um svæðið. Við erum því ekki
síður að selja náttúruna en setrið
sjálft og sýninguna á setrinu,“ segir
Steingrímur en staðsetningin er
ekki síður einstök fyrir þær sakir að
hvort sem ekin er norður- eða suð-
urleiðin frá Reykjavík er aksturs-
tíminn nokkurn veginn sá sami.
„Við segjum stundum að við séum
eins langt frá Reykjavík og mögu-
legt er á landinu,“ segir Steingrímur
sposkur á svip en í Óbyggðasetrinu
er enginn æsingur eða æðibunu-
gangur.
„Hér eru engir stórir jeppar á
ferð heldur einblínum við á rólega
ferðamennsku þar sem gestir okkar
fá að kynnast náttúrunni, labbandi
eða á hesti og sveitalífinu á setrinu.“
Tilgangurinn að
njóta en ekki þjóta
Óbyggðasetrið hlaut verðlaun SAF
Verkfræðingafélag Íslands og
Tæknifræðingafélag Íslands sam-
einast um áramót í framhaldi af raf-
rænni allsherjaratkvæðagreiðslu
meðal félagsmanna. Í nýja félaginu
verða um 4.000 félagsmenn.
Niðurstaða atkvæðagreiðslu um
samruna var kynnt síðdegis í gær og
var afgerandi: 76,2% verkfræðinga,
sem greiddu atkvæði, samþykktu
sameiningu og 92,6% tæknifræð-
inga. Kjörsókn var um 32% hjá verk-
fræðingum en tæplega 54% hjá
tæknifræðingum. Nú blasir því við
að sameinað félag, Verkfræðinga-
félag Íslands, félag verkfræðinga og
tæknifræðinga, taki til starfa 1. jan-
úar 2017, að því er fram kemur í til-
kynningu.
Stjórn Tæknifræðingafélagsins
lýsti í vor áhuga á að ræða samein-
ingu verkfræðinga og tæknifræð-
inga í eitt félag og stjórn Verkfræð-
ingafélagsins samþykkti að vinna að
sameiningu og leggja tillögu þar að
lútandi undir atkvæði félagsmanna.
Um fjögur þúsund manns í nýju félagi