Morgunblaðið - 12.11.2016, Síða 18
Hvolpasýning í Reiðhöllinni
Hvolpasýning Hundaræktarfélag Íslands fór fram í gær í Reiðhöllinni og voru mætti
til leiks margir af krúttlegustu hvolpum landsins ásamt eigendum sínum. Hundarnir
voru að sjálfsögðu aðalstjörnur sýningarinnar og voru eigendur þeirra duglegir að
snyrta þá og dekra við þá meðan á sýningunni stóð.
Morgunblaðið/Eggert
Vinir Hvolpa- og hundasýning í Reiðhöllinni Víðidal.
Tegund Chow chow-hundar voru mættir á sýninguna ásamt eigendum sínum.
Hundasýning Svana Runólfsdóttir og Stella Baldursdóttir gera hvolpinn sinn fínan.
Sýning Hvolpa- og hundasýning var í Reiðhöllinni Víðidal í gær en hér eru Carlot, Iðunn Aðils og Haraldur saman á sýningunni.
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2016
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Starfsmenn Ræktunarsambands
Flóa og Skeiða leita þessa dagana að
heitu vatni í landi Laugardæla,
skammt fyrir ofan Selfoss. Þar verð-
ur boruð allt að 1.700 metra djúp hola
sem skilað gæti meira af heitu vatni
inn á veitukerfi Selfossveitna; það er
Selfoss, Eyrarbakka og Stokkseyri
og dreifbýlis. Bormenn eru nú komn-
ir niður á um 400 metra dýpi og mið-
ar vel. Stefnt er að því að verki þeirra
ljúki um áramót og þá verði hægt að
svara til hvort holan sé virkjanleg.
Vatnsöflun sé styrkt
Laugardælasvæðið hefur í nærri
70 ár verið nýtt til jarðhitavinnslu.
Borholurnar þar ásamt fleiri holum í
landi Stóra-Ármóts, sem er nokkru
ofar, skila alls um 240 sek/ltr. af heitu
vatni inn á veitukerfi Selfossveitna.
Það magn stendur nánast á pari við
heitavatnsþörfina í Árborg, hvar í
dag búa um 8.400 manns. „Fólki hér
hefur fjölgað mjög mikið á síðustu ár-
um og sú þróun mun væntanlega
halda áfram. Við þurfum því að
styrkja orkuöflunina,“ segir Jón
Tryggvi Guðmundsson sem stýrir
framkvæmda- og veitusviði Sveitar-
félagsins Árborgar.
Orkuvinnslusvæðið við Laugar-
dæli er tvískipt, það er efra og neðra
jarðhitasvæði. Hið efra er ofan við
1.000 metra og skilar mestu vatns-
magni. Væntingar eru hins vegar
bundnar við að hið neðra geti einnig
reynst drjúgt, en tvær holur sem
vinna úr því kerfi eru þegar til staðar,
og vatn sem er allt að 118 °C.
Spurning um heppni
„Það er ekkert í hendi um hverju
borunin nú gæti skilað, jarðfræðing-
ar eiga erfitt með að meta árangur
fyrirfram. Svona aðgerðir eru alltaf
að nokkru leyti spurning um heppni,
segir Jón Tryggvi um þetta verkefni
sem kostar á bilinu 80-100 milljónir
króna, samkvæmt fyrirliggjandi
áætlunum.
Í Árborg er í dag horft er til að afla
megi jarðhita á öðrum stöðum í
grennd við Selfoss, svo sem í Flóa,
Grímsnesi og Ölfusi, þar sem jarðhita
og vatn er þegar að finna. Viðræður
hafa átt sér stað við hlutaðeigandi,
meðal annars Orkuveitu Reykjavík-
ur.
„Við þurfum að vinna þessi mál
nokkuð hratt og þá er ég að tala um
bæði jarðhitaleitina við Laugardæli
og þar í kring og svo eins samstarf
við fleiri aðila. Þetta er viðfangsefni
sem skiptir sveitarfélagið miklu til
framtíðar,“ segir Jón Tryggvi Guð-
mundsson.
Leitað við Laugardæli
eftir meira af heitu vatni
Jarðboranir við Selfoss Ný svæði til orkuvinnslu í skoðun
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
„Framkvæmdir Viðfangsefni sem skiptir sveitarfélagið miklu til fram-
tíðar,“ segir Jón Tryggvi Guðmundsson, hér við borsvæðið ofan við Selfoss.
TOPPUR ehf
Bifreiðaverkstæði
TOPPUR er viðurkennt
þjónustuverkstæði fyrir
Skemmuvegi 34 • Kópavogi • Sími 557 9711 • toppur@toppur.is
Velferðarsvið Reykjavíkur hefur
gert samning við Barka, pólsk sam-
tök sem munu aðstoða utangarðs-
menn af erlendum uppruna við að
koma lífi sínu á réttan kjöl. Barka-
verkefnið miðar að því að stuðla að
meiri lífsgæðum þessa hóps hvort
sem í því felst að snúa aftur til
heimalands eða vera áfram í Reykja-
vík, segir í frétt frá borginni.
Aðstoðin er byggð á jafningja-
fræðslu. Þeir sem leiða starfið meðal
utangarðsfólks hafa sjálfir verið í
þeirra sporum og hafa búið á götum
í hinum ýmsu borgum Evrópu. Með
aðstoð frá Barka tóku þeir þátt í
verkefninu og náðu tökum á eigin
lífi. Þeir launa svo Barka vinnuna
með því að gerast sjálfir leiðtogar.
Barka-leiðtogar vinna sjálfstætt í
hverju landi ásamt háskólamennt-
uðu aðstoðarfólki.
Velferðarsvið hefur útvegað
starfsmönnum samtakanna aðstöðu
í Gistiskýlinu á Lindargötu, auk þess
sem sviðið stendur straum af kostn-
aði við verkefnið, m.a. launum
starfsmanna, ferðakostnaði og
stuðningi á vegum Barka í Póllandi
fyrir þá sem kjósa að fara til síns
heimalands.
Talið er að tæplega 30 utangarðs-
menn frá Austur-Evrópu gætu nýtt
sér aðstoð Barka í Reykjavík.
Pólsku samtökin Barka aðstoða
erlenda utangarðsmenn í borginni