Morgunblaðið - 12.11.2016, Síða 48
48 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2016
Erla Rún Guðmundsdóttir
erlarun@mbl.is
„Þetta er hjartnæm og einstök ást.
Allir elska dýrin sín en fáir elska þau
jafnmikið og Bjössi,“ segir Kári G.
Schram um viðfangsefni heimild-
armyndarinnar Svarta gengið, sem
verður forsýnd í Bíó Paradís kl. 20 í
kvöld og frumsýnd á morgun.
Svarta gengið segir stórbrotna
sögu Þorbjörns Péturssonar, Bjössa
á Ósi eins og hann er yfirleitt kall-
aður. Þorbjörn var fjárbóndi á Ósi í
Arnarfirði en fyrir nokkrum árum
þurfti hann að hætta búskap vegna
veikinda. Í því fólst meðal annars að
fella allt sauðfé á bænum, þar á með-
al séralinn stofn sem hann kallaði
„svarta gengið“ og stóð honum sér-
staklega nærri.
Lítil tengsl við umheiminn
Svarta gengið dregur nafn sitt af
tinnusvartri ullinni en stofninn kom
inn í líf Þorbjörns í lok níunda ára-
tugarins. „Hann tekur að sér heim-
alning sem verður honum afar kær.
Það er formóðirin, kölluð mamma og
amma og út frá henni vex sérstakur
stofn,“ segir Kári, spurður um sög-
una á bak við svarta gengið. „Hann
elur þessar kindur dálítið sér, þær
eru sérstakar og í svolitlu uppáhaldi
hjá honum.“
Kári segir að erfitt sé að gera sér
grein fyrir tilverunni að Ósi, bærinn
sé úr alfaraleið og innilokaður stór-
an hluta árs. „Það má ekki gleyma
því að allar heiðarnar lokast þarna í
kring.“ Samskipti Bjössa við annað
fólk einskorðast því að miklu leyti
við póstburðarmenn sem koma til
hans annað slagið og þó hann hafi ol-
íurafstöð fyrir rafmagn eru tengslin
við umheiminn takmörkuð. Sam-
bandið við mállausu vinina var hon-
um því kært.
„Þetta verður ein stór og mikil
fjölskylda. Ef þær sáu hann ganga í
hlíðum og fjöllum komu þær hlaup-
andi. Þá gaukaði hann að þeim kexi
sem hann var vanur að gefa þeim.
Þetta var náið samband.“ Kári segir
stofninn hafa stækkað jafnt og þétt
og þegar meðlimir gengisins hafi
fallið frá hafi Bjössi jarðsett þá í
heiðursgrafreit við ósinn sem bær-
inn dregur nafn sitt af.
„Svo fer hann að missa þol og
veikindi fara að hrjá hann. Hann er
tilneyddur til að bregða búi en til-
hugsunin um að senda vinina í slát-
urhús er óbærileg. Þá kom ekki ann-
að til greina en að jarðsetja féð
heima við.“ Þorbjörn býr ennþá á
Ósi bróðurpart ársins og var að
vinna í frágangi á búinu og jörðinni
þegar hann fékk hugmyndina um
minnisvarða. „Hann fær þessa hug-
dettu að byggja yfir kindurnar
minnisvarða í minningu svarta geng-
isins. Við viljum meina að þetta sé
nú svona minningarreitur fyrir ís-
lensku sauðkindina, sá eini sem
finnst á byggðu bóli.“
Eyrun stækkuðu
Kári fékk veður af sögu Þorbjörns
þegar hann var í vinnuferð á Vest-
fjörðum. „Ég er í hádegismat og
heyri í einni þarna á staðnum tala
um að Bjössi væri að panta legsteina
fyrir kindurnar. Þá stækkuðu eyrun
á mér og ég fór að kanna þetta.“
Kári hitti Þorbjörn í kjölfarið og
segir hann að ágætis vinskapur hafi
tekist með þeim. „Hann var í þessari
vegferð sinni að ganga frá bæ og búi
og ég svona þvældist með honum og
fékk að fylgjast með.“
Unnið saman í sex ár
Kári kynntist Þorbirni stuttu eftir
að sá síðarnefndi jarðsetti svarta
gengið og hefur heimildarmyndin
verið í vinnslu síðan, eða í rúm sex
ár. Kjarni sögunnar liggur í ferli
Bjössa við að setja upp minnisvarða
um svarta gengið og ósk hans um að
fá að vera jarðsettur við hlið vina
sinna þegar þar að kemur. „Þetta er
í hnotskurn saga einsetumanns sem
gerir hið ótrúlega; að eyða sínum
krónum í að varðveita minningu vina
sinna. Þetta er einsdæmi hérna á Ís-
landi, held ég. Svo er það hans hinsti
draumur að láta jarða sig með
svarta genginu því auðvitað vill mað-
ur vera þar sem manni líður vel, hjá
þeim sem voru fjölskylda manns.“
Kári segist hafa notið þess að vera
í félagsskap Bjössa og vonast til að
tilfinningin sé gagnkvæm. „Karakt-
erinn er ótrúlegur og ægifagur í alla
staði og hún er einstök þessi innri
ást sem hann hefur á umhverfinu og
sínum mállausu vinum, sem voru
náttúrulega hans fjölskylda í einu og
öllu.“
Kári segir það ekki hafa tekið
langan tíma að telja Bjössa á að taka
þátt í verkefninu en að hann hafi val-
ið að vinna myndina einn svo að-
stæður og persónan yrðu sem næst
raunveruleikanum. „Það er þessi
hrái sannleikur sem skiptir svo
miklu máli í dag. Það skiptir máli við
þessar aðstæður að vera ekki að
hlaupa inn í kvikmyndatökur með
einhvern fjölda manns. Þá nærðu
aldrei persónunni.“ Kári er því í
senn leikstjóri, handritshöfundur,
klippari og framleiðandi mynd-
arinnar. Tónlistin er hins vegar sam-
in af Friðjóni Guðlaugssyni og Elísa
Björk Schram sá um titla og grafík.
Lokamyndin í þríleik
Kári hefur áður unnið að tveimur
myndum um gamla tíma en hann
hyggst nú snúa sér að annarskonar
verkefnum. „Þetta er síðasta mynd-
in í svona þríleik um gamla tíma. Nú
taka við ný og fersk og skemmtilegt
verkefni.“ Heimildarmyndir verða
þó áfram í forgrunni hjá Kára, sem
telur að Íslendingar mættu vera
duglegri að sjá slíkar myndir í kvik-
myndahúsum. „Það er allt annað að
sjá þetta í bíó en í sjónvarpi.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Félagar Bjössi er kominn í bæinn til að vera viðstaddur forsýninguna.
„Hann var ekkert alveg til í það en hann neyddist til að koma,“ segir Kári.
„Ótrúlegur
og ægifagur“
Heimildarmyndin Svarta gengið
frumsýnd í Bíó Paradís á morgun
Dr. Stephen Vincent Strange slasast svo illa á
höndum í bílslysi að hann verður ófær um
framkvæmd skurðaðgerða. Til að leita sér
lækninga heldur hann út í heim og hittir að lok-
um „hinn forna“ sem kennir honum að nota
hendurnar og hæfileika sína á alveg nýjan hátt.
Metacritic 74/100
IMDb 8,2/10
Laugarásbíó 14.00
Sambíóin Álfabakka 15.00, 17.30, 20.00, 22.30
Sambíóin Egilshöll 13.00, 15.00, 17.30, 20.00, 22.30
Sambíóin Kringlunni 15.00, 17.30, 20.00, 22.30
Sambíóin Akureyri 17.30, 22.40
Sambíóin Keflavík 17.30, 20.00
Doctor Strange 12
The Light Between
Oceans
Vitavörður og eiginkona hans
búa við ströndina í Vestur-
Ástralíu, og ala upp skipreka
barn sem þau finna í árabát
Metacritic 60/100
IMDb 7,2/10
Sambíóin Álfabakka 17.20, 20.00, 22.40
Sambíóin Egilshöll 18.00, 21.00
Sambíóin Kringlunni 18.00, 21.00, 23.40
Sambíóin Akureyri 20.00
Sambíóin Keflavík 20.00, 22.40
The Accountant 16
Christian Wolff er stærð-
fræðingur sem hefur
meiri áhuga á tölum en
fólki.
Metacritic 51/100
IMDb 7,7/10
Sambíóin Álfabakka
17.20, 20.00, 22.40
Sambíóin Egilshöll 15.30, 17.30, 20.00, 22.40
Sambíóin Kringlunni 18.00, 21.00, 23.40
Sambíóin Akureyri 20.00, 22.40
Sambíóin Keflavík 22.40
Jack Reacher:
Never Go Back 12
IMDb 7,9/10
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.30
Sambíóin Egilshöll 20.00,
22.30
Grimmd 12
Morgunblaðið bbbnn
IMDb 5,8/10
Smárabíó 20.00, 22.20
Háskólabíó 18.10, 20.50
Eiðurinn 12
Morgunblaðið bbbbb
IMDb 7,7/10
Háskólabíó 15.30, 21.00
Eight Days a Week -
The Touring Years
Háskólabíó 18.00
Brotið
Borgarbíó Akureyri 18.00
Bridget Jones’s
Baby 12
Metacritic 59/100
IMDb 7,4/10
Laugarásbíó 17.00, 20.00,
22.30
The Girl on
the Train 16
Metacritic 47/100
IMDb 6,8/10
Sambíóin Álfabakka 20.00
Inferno 12
Smárabíó 19.50, 22.30
Ísaksskóli í 90 ár
Háskólabíó 16.00
Sully 12
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 74/100
IMDb 7,9/10
Sambíóin Álfabakka 22.30
Hacksaw Ridge 16
Byggð á magnaðri sögu her-
læknisins Desmond T. Doss,
sem neitaði að bera vopn í
seinni heimsstyrjöldinni.
Metacritic 66/100
IMDb 8,7/10
Laugarásbíó 17.00, 20.00,
22.40
Háskólabíó 17.30, 20.30
Borgarbíó Akureyri 20.00,
22.30
Middle School Metacritic 51/100
IMDb 5,8/100
Smárabíó 13.00, 15.30
Max Steel 12
Metacritic 22/100
IMDb 4,9/10
Smárabíó 15.20, 17.40
Arrival 12
Þegar dularfull geimskip
lenda víðsvegar um jörðina
setja jarðarbúar saman
teymi af fólki til að rannsaka
hvað sé um að vera.
Metacritic 80/100
IMDb 8,5/10
Laugarásbíó 20.00, 22.25
Smárabíó 13.30, 14.00,
16.40, 17.00, 19.30, 20.00,
22.10, 22.35
Háskólabíó 15.20, 18.00,
21.00
Borgarbíó Akureyri 20.00,
22.20
Masterminds
Metacritic 47/100
IMDb 5,8/10
Smárabíó 19.50, 22.00
Sjöundi dvergurinn Hin illa norn Dellamorta
lagði bölvun á Rose prins-
essu
Sambíóin Álfabakka 13.00,
16.00, 18.00
Sambíóin Egilshöll 13.00,
15.00, 17.30
Sambíóin Kringlunni 13.00,
14.00, 16.00
Sambíóin Akureyri 14.00,
16.00, 18.00
Sambíóin Keflavík 13.30,
15.30, 18.00
Storkar Metacritic 55/100
IMDb 7,2/10
Sambíóin Álfabakka 13.00,
14.00, 15.00, 16.00, 18.00
Sambíóin Egilshöll 13.00
Sambíóin Kringlunni 14.00,
16.00
Sambíóin Akureyri 13.30,
15.30
Sambíóin Keflavík 16.00
Tröll Metacritic 45/100
IMDb 6,8/10
Laugarásbíó 14.00, 16.00,
18.00
Sambíóin Keflavík 14.00
Smárabíó 13.00, 13.10,
15.20, 17.30, 17.50
Háskólabíó 15.30
Borgarbíó Akureyri 14.00,
18.00
Robinson Crusoe
Sambíóin Egilshöll 13.00,
15.00
Leitin að Dóru Metacritic 77/100
IMDb 7,6/10
Sambíóin Álfabakka 13.00,
15.10
Leynilíf Gæludýra Metacritic 61/100
IMDb 6,7/10
Sambíóin Álfabakka 14.00
Innsæi
Bíó Paradís 20.00
Captain Fantastic
Metacritic 72/100
IMDb 8,1/10
Bíó Paradís 22.00
Child Eater
Helen grunar ekki hversu
hryllilegt kvöld hún á í vænd-
um
IMDb 7,8/10
Bíó Paradís 22.00
Aumingja Ísland
Bíó Paradís 20.00
Slack Bay
Bíó Paradís 17.45
The girl with all
the gifts
Metacritic 73/100
IMDb 7,3/10
Bíó Paradís 22.00
Leonardo: Exhibition
on Screen
Bíó Paradís 18.00
Ransacked
Morgunblaðið bbbmn
IMDb 7,1/10
Bíó Paradís 18.00
Kvikmyndir
bíóhúsannambl.is/bio
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna