Morgunblaðið - 12.11.2016, Side 49

Morgunblaðið - 12.11.2016, Side 49
MENNING 49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2016 Listamaðurinn Snorri Ásmundsson verður fimmtugur á morgun, sunnudag. Af því tilefni heldur hann afmælistónleika í Mengi í dag, laugardag, kl. 18. Þar kemur fram „hin goðsagnakennda hljómsveit Flotakona Kínakota en hana skipa auk Snorra þau Ásdís Sif Gunn- arsdóttir, Guðmundur Oddur Magnússon, Helga Óskarsdóttir, Ingibjörg Magnadóttir, Jóhann Ei- ríksson, Sara Björnsdóttir og Spessi,“ segir í tilkynningu. Að tónleikum loknum, þ.e. kl. 20 opnar listamaðurinn yfirlitssýningu á völdum verkum frá 20 ára ferli sínum á Kex hosteli. Samkvæmt upplýsingum frá afmælisbarninu er því „skemmtilegt kvöld í vændum með ótal óvæntum uppákomum.“ Snorri Ásmundsson fimmtugur Morgunblaðið/Eggert Listir Snorri fagnar afmælinu með tón- leikum og yfirlitssýningu á Kex hosteli. Guðrún Hálfdánardóttir guna@mbl.is Tveir af fremstu tónlistarmönnun heims, Leonard Cohen og David Bowie, létust í ár en þeir eiga það sammerkt að hafa sent frá sér plötu rétt fyrir andlátið. Leonard Cohen lést á fimmtudag, 82 ára að aldri. Cohen er einn þekktasti tónlistar- maður heims og ljóðskáld enda fáir sem þekkja ekki lag hans „Hallelu- jah“ og mörg fleiri. Nokkrar vikur eru síðan plata hans You Want It Darker kom út en hún er fjórtánda og um leið síðasta hljóðversplata hans. Í viðtali við tímaritið New Yorker nýverið sagðist hann vera reiðubúinn fyrir dauðann en hann ræddi við tímaritið um svipað leyti og platan kom út en útgáfudagur hennar var mánuði eftir afmæli hans, 21. októ- ber. Blackstar, síðasta plata Bowie, kom út á afmælisdegi tónlistar- mannsins, 8. janúar sl. Tveimur dög- um síðar var hann allur. Spáði því að stutt væri eftir Leonard Cohen fæddist 21. sept- ember 1934 í Westmount, Quebec í Kanada. Hann ólst upp í Montreal en bjó í áratugi í Kaliforníu. Í gær var haldin minningarathöfn um hann í Los Angeles. Fjölskylda Cohens er gyðingar en sjálfur aðhylltist hann búddisma og í fimm ár, 1994-1999, tók hann sér hlé frá tónlistinni og bjó í Mount Baldy Zen-miðstöðinni fyrir utan Los Ang- eles. Síðar sagði hann að þar hefði honum tekist að koma reglu á líf sitt og þegar sá áfangi var í höfn sneri hann aftur í tónlistina. Á sínum yngri árum dvaldi Cohen langdvölum á grísku eyjunni Hydra en flutti síðan til Los Angeles. En hann hélt alltaf tengslum við borgina sem hann ólst upp í, Montreal. Árið 2000 var hann einn þeirra sem báru kistu fyrrverandi forsætisráðherra Kanada, Pierre Trudeau, föður Just- in Trudeau, ásamt m.a. Jimmy Car- ter, fyrrverandi forseti Bandaríkj- anna, og Fídel Castró, fyrrverandi forseti Kúbu. Mörg laga Cohens, svo sem „Bird on the Wire“, „Hallelujah“ og „So Long Marianne“, eru skrifuð til kon- unnar sem hann elskaði og dáði, Marianne Ihlen, en þau kynntust í Grikklandi á sjöunda áratugnum. Eins er hún innblástur hans í laginu „Hey, That’s no Way to Say Goodbye“. Í júlí frétti Cohen að Ihlen lægi fyrir dauðanum og þá skrifaði hann henni bréf þar sem hann sagði að sú stund væri runnin upp að þau væru orðin gömul og líkamar þeirra að þrotum komnir. En hann teldi að hann myndi fylgja henni fljótlega. Sú spá hans hefur nú ræst en hún lést í lok júlí. Cohen átti í ástarsambandi við listakonuna Suzanne Elrod á fyrri hluta áttunda áratugarins og eiga þau tvö börn saman, Adam, sem er fæddur árið 1972, og dóttur, Lorca, sem er tveimur árum yngri, en nafn hennar kemur frá skáldinu Federico García Lorca. Árið 2011 eignaðist Lorca dóttur með tónlistarmann- inum Rufus Wainwright. Cohen og Elrod gengu aldrei í hjónaband og segir Cohen að það hafi verið vegna hræðslu hans og aumingjaskapar. Þau slitu sam- vistum árið 1979. Eitt þekktasta lag Cohens, „Suz- anne“, hafa margir talið að sé til- einkað Elrod en aðrir leiða líkur að því að það sé ekki rétt heldur sé það tileinkað Suzanne Verdal, fyrrver- andi eiginkonu vinar Cohens, lista- mannsins Armand Vaillancourt. Á níunda áratugnum átti Cohen í ást- arsambandi við franska ljósmynd- arann Dominique Issermann, sem meðal annars tók upp myndbönd við lögin „Dance Me to the End of Love“ og „First We Take Manhattan“. Síð- ar kom leikkonan Rebecca De Mornay inn í líf tónlistarmannsins en platan The Future er tileinkuð henni. Við söknum þín Fjölmargir hafa minnst Cohens eftir að um andlát hans fréttist og er forsætisráðherra Kanada, Justin Trudeau, einn þeirra. „Leonard, ljóð og tónlist annarra listamanna jafnast ekki á við þína. Við söknum þín,“ seg- ir í yfirlýsingu frá Trudeau. Flaggað var í hálfa stöng í Mont- real að beiðni borgarstjórans, Denis Coderre, en hann skrifaði á Twitter að borgin hafi misst einn helsta sendiherra sinn og táknmynd. Tugir aðdáenda komu saman fyrir utan heimili Cohens í Montreal eftir að fréttir bárust af andláti hans, kveiktu á kertum og lögðu blóm fyrir utan. Fjölmargir tónlistarmenn hafa flutt lög og texta Cohens í gegnum tíðina, þar á meðal „Hallelujah“. Má þar nefna Nick Cave and The Bad Seeds, Jeff Buckley, John Cale, k.d. lang og Rufus Wainwright. Sama á við um lög eins „So Long, Marianne“ og „Suzanne“. Cohen kvaddi með plötu  Tónlistarmaðurinn og ljóðskáldið Leonard Cohen er látinn, 82 ára að aldri  Sendi 14. og síðustu hljóðversplötuna frá sér í seinasta mánuði  Ráðamenn og aðdáendur minnast hans með hlýju Morgunblaðið/Einar Falur AFP Skáldið kveður Söngvaskáldið ástsæla kveður Parísarborg í janúar 2012. Hann var skapandi fram á síðasta dag, en taldi sig vita að stutt væri eftir. Töffari Leonard Cohen heilsar sposkur við komuna til landsins. Hann hélt tónleika á Listahátíð í Reykjavík árið 1988 í Laugardalshöll. Með honum er Hrafn Gunnlaugsson sem var formaður stjórnar Listahátíðar. AFP Ljós Aðdáandi kveikir á kerti fyrir framan heimili Cohens í Montreal. Stórsveit Reykjavíkur heldur tón- leika í Silfurbergi, Hörpu, á morgun, sunnudag, kl. 17. Um er að ræða óð hljómsveitarinnar til Reykjavíkur- borgar og endurútgáfutónleika Reykjavíkurplötu sveitarinnar, sem hefur verið uppseld og ófáanleg um nokkra hríð. Árið 2003 gaf Stórsveit Reykja- víkur út plötuna Í Reykjavíkurborg en hún geymir 12 vinsæl Reykjavík- urlög í útsetningum Veigars Mar- geirssonar. Margir af þekktustu söngvurum þjóðarinnar sungu á plötunni. Þar sem platan hefur verið uppseld undanfarin ár hefur Stór- sveitin nú ráðist í að endurútgefa upprunalegu plötuna. Á tónleik- unum verða öll lögin flutt og ekki er útilokað að ein eða tvær nýjar Reykjavíkurperlur bætist við. Söngvarar verða reyndar ekki þeir sem upprunalega voru með, heldur nokkrir þeirra fremstu af yngri kyn- slóð íslenskra söngvara í dag: Salka Sól, Valdimar Guðmundsson og Sig- urður Guðmundsson, en þau hafa ýmist sjaldan eða aldrei komið fram með sveitinni. Stjórnandi verður Veigar Mar- geirsson, en hann útsetti allt efnið fyrir upprunalegu plötuna. Stórsveitungar Valdimar Guðmundsson, Sigurður Guðmundsson, Salka Sól og Veigar Margeirsson bera saman bækur sínar á æfingu í vikunni. Óður Stórsveitarinnar til Reykjavíkurborgar Ranglega var í blaðinu í gær farið með sýningartíma á sérstakri styrktarsýningu á Icelandic Sagas: The Greatest Hits in 75 minutes sem haldin er til stuðnings Íslands- deild Amnesty International. Sýn- ingin verður í dag, laugardaginn 12. nóvember, kl. 16 í Hörpu. Eru hlutaðeigendur beðnir velvirð- ingar á þessum leiðu mistökum. „Sýningin er brot af því besta úr Íslendingasögunum á 75 mínútum og fer fram á ensku. Aðstand- endur leikverksins ákváðu að standa að sérstakri uppfærslu á sýningunni til stuðnings Íslands- deild Amnesty International í bar- áttunni fyrir málefnum flóttafólks og gefa þeir allir vinnu sína,“ seg- ir í tilkynningu. Miðasala er á harpa.is. Rangur sýningartími Morgunblaðið/G.Rúnar Sögur Lilja Nótt Þórarinsdóttir er annar tveggja leikara í sýningunni í Hörpu. LEIÐRÉTT LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar HACKSAW RIDGE 5, 8, 10.40 (P) ARRIVAL 8, 10.25 TRÖLL 2D ÍSL.TAL 2, 4, 6 BRIDGET JONES’S BABY 5, 8, 10.30 DOCTOR STRANGE 2 HEIMILI FRÖKEN PEREGRINE 2 Miðasala og nánari upplýsingar POWERSÝNING KL. 22.40

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.