Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2015, Síða 2
Vikublað 30. júní –2. júlí 20152 Fréttir
Sársauki minnkar strax
• Kaldur gelsvampur & gel
• Lækkar hita í brunasárum um 6-7 °C
• Gelsvampur helst vel á, dettur ekki af
• Tea Tree & Lavender
- sótthreinsar, róar & deyfir
• Sterílar umbúðir
Virkar á sviða og sársauka af:
sólbruna - skordýrabiti
brenninettlum - húðflúrum
laser og núningsbruna
Fæst í apótekum.
Celsus ehf. www.celsus.is
AbsorBurn®
Kælir brunasár, hratt og lengi
Bílaverkstæði á
Patreksfirði yfirfull
n Bílaleigubílar ferðamanna verða fyrir tjóni á malarvegum Vestfjarða
V
ið erum að gera við um tíu
bíla á dag hérna á verk-
stæðinu og höfum varla
undan,“ segir Páll Heiðar
Hauksson, eigandi bílaverk-
stæðisins Smur og Dekk ehf. Með
auknum ferðamannastraumi um
misgóða vegi landsins vænkast hag-
ur þeirra sem reka bifvélaverkstæði.
Umdæmisstjóri Vegagerðarinnar
segir að vegirnir á svæðinu séu með
besta móti.
Hjá Smur og Dekk ehf. á Patreks-
firði vinna fimm manns. Páll Heiðar
segir að þeir hafi í nógu að snúast
en víða í nágrenni Patreksfjarðar eru
vegir ómalbikaðir. „Það eru eldgamlir
og lélegir vegir sem liggja til dæmis
að Arnarbjargi og Arnarfirði héðan
frá Patreksfirði.“ Hann segir aðallega
vera um að ræða staði sem ferða-
menn vilji sjá og skoða.
Malarvegirnir valda skemmdum
„Í 95 prósentum tilvika eru þetta
útlendingar á bílaleigubílum,“ segir
Páll. „Erlendir ferðamenn keyra um á
smábílum eða jepplingum og kunna
einfaldlega ekki að keyra á malarveg-
um. Íslendingar eru vanir að sveigja
bílnum frá ef grjót er á veginum eða
hola. Þeir erlendu keyra bara beint af
augum.“
Páll segir jafnframt að margir bíla-
leigubílar séu í lélegu ástandi: „Það
er mikið af druslum í umferð sem
útlendingar annaðhvort leigja eða fá
lánaðar.“
Ástand vega slæmt á
suðursvæði Vestfjarða
Páll er á Patreksfirði og segist því
aðallega verða var við lélegt ástand
vega á því svæði. „Nærliggjandi veg-
ir hafa verið heflaðir en það er ekki
nógu vel gert. Eitthvað er um grjót á
vegunum. Verstu vegirnir eru malar-
vegirnir. Ég hef aðallega verið að
ná í bíla sem orðið hafa fyrir tjóni
á Dynjandisheiði, Látrabjargi eða
Rauðasandi.“
Hann segist ætla að ástandið sé
svipað á öðrum stöðum landsins þar
sem enn eru malarvegir: „Já, þetta er
svona á þessum útnárum landsins
sem fólk vill skoða.“
Ferðamenn gista á Patró
„Við gerum við um það bil 10 bíla
á dag,“ segir Páll. Hann segir að
oft sé um meiriháttar viðgerðir að
ræða og hann hafi nýlega gert við
splunkunýjan smájeppa sem ferða-
maður hafi leigt af bílaleigu. „Það
kom hnefastórt gat inn í sjálfskipt-
inguna á honum og hann hreinlega
eyðilagðist.“
Páll segir viðgerðir taka tíma, sem
leiði til þess að ferðalangar þurfi að
dveljast nætur langt á Patreksfirði:
„Það getur tekið sinn tíma að ná í bíl,
bíða eftir varahlutum frá Reykjavík og
svo framvegis. Menn verða oft að bíða
fram á næsta dag.“
Mikill munur á sýslum
Halldór Holt, atvinnubílstjóri frá Pat-
reksfirði, tekur í sama streng og Páll.
„Malarvegirnir eru skelfilegir, sér-
staklega á Dynjandisheiði en þar
liggja sýslumörk. Munurinn á Barða-
strandarsýslu og Ísafjarðarsýslu er
mikill,“ segir Halldór.
„Umdæmisstjóri vegagerðarinnar
ber við fjárskorti. En það á að skipta
fénu jafnt. Vegir eru nýir við Ísafjörð.
Í Barðastrandarsýslu eru vegir hvorki
heflaðir né þar gerður nokkur skap-
aður hlutur.“
Hann segir erlenda ferðamenn
sem koma til Patreksfjarðar til að
skoða Vestfirðina verða smeyka þegar
þeim sé sagt að keyra malarvegina.
„Margir vilja helst fara með áætlun-
arbílum. Hins vegar leigir fólk sér
bílaleigubíla á eigin vegum og þegar
komið er að safninu rétt hjá Látra-
bjargi eru erlendir ferðamenn oft
orðnir beinlínis hræddir. Þessu þarf
að bregðast við. Menn geta ekki farið
að furða sig á málunum þegar ferða-
mannastraumurinn eykst í sumar.“
Vegagerðin telur vegina vera
með betra móti
Eiður Thoroddsen, umdæmisstjóri
Vegagerðarinnar á suðursvæði
Vestfjarða, segir að malarvegirnir
séu með besta móti. „Við höfum
verið að hefla og ganga frá vegum á
svæðinu. Ég er ekki að segja að veg-
irnir séu góðir hérna, enda eru þetta
malarvegir.“
Aðspurður hvers vegna svo mik-
ill fjöldi bíla sé á bílaverkstæðum á
Patreksfirði segir hann: „Þetta eru
flest allt ferðamenn sem kunna ekki
að keyra á malarvegum, síðan eru
bílaleigur að leigja út handónýta
bíla“
Eðlilegt að tjónum fjölgi
Halldór Ómarsson, aðstoðar-
flotastjóri hjá Avis-bílaleigu, einni
stærstu bílaleigu landsins, segist
ekki hafa orðið var við að vegirnir
á Vestfjörðum séu verri en annars
staðar.
„Það er vissulega rétt að það
koma svona furðulegir álagspunktar
á ýmsum svæðum, en við höfum
ekki tekið sérstaklega eftir því á
þessu svæði. Almennt eru þó meiri
líkur á að bílar skemmist þar sem
malarvegir eru grófir.“
Hann segir að bílum á vegum
landsins fjölgi með auknum ferða-
mannastraumi. Avis-bílaleiga sé
með um 1.600 bíla á vegum lands-
ins. Því sé eðlilegt að tjónum á bíl-
um fjölgi samfara því. n
Birna Guðmundsdóttir
birna@dv.is
„Túristar keyra um
á smábílum eða
jepplingum og kunna ein-
faldlega ekki að keyra á
malarvegum.
Starfsmenn verkstæðis Brosa sínu breiðasta þó að þeir hafi varla undan.
Nóg af bílum í viðgerð Bílaverkstæði eru yfirfull á Patró.
Þinglok á
föstudaginn
Stjórn mála flokk arn ir sex á Al-
þingi náðu á sunnudagskvöld
sam komu lagi um þinglok og
er stefnt að því að þau verði á
föstu dag inn. Mörg mál bíða
enn afgreiðslu þingsins og þar
af nokkur umdeild, þar á með-
al makrílfrumvarp Sigurðar Inga
Jóhannssonar, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra.
Ljóst er að frumvarp ráðherr-
ans verður ekki afgreitt fyrir þing-
lok og ekki heldur breytinga-
tillaga atvinnuveganefndar vegna
rammaáætlunar. Sam tals á að af-
greiða á sjö unda tug mála fyr ir
þinglok sam kvæmt sam komu lag-
inu og þar af sex þing manna mál.
Jón Atli
tekur við
Jón Atli Benediktsson, prófessor í
rafmagns- og tölvuverkfræði, tek-
ur formlega við embætti rektors
Háskóla Íslands af Kristínu
Ingólfs dóttur, prófessor í lyfja-
fræði, í Hátíðasal Háskóla Íslands
í dag, þriðjudag. Athöfnin hefst
klukkan 14.00. Þar mun Kristín
flytja kveðjuávarp og svo afhenda
eftirmanni sínum tákn rektors-
embættisins. Að því loknu mun
Jón einnig flytja ávarp.