Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2015, Qupperneq 6
Vikublað 30. júní –2. júlí 20156 Fréttir
og
Smáratorgi · Korputorgi
HUNDAFÓÐUR
FÆST HJÁ OKKUR
Reiðhjólum stolið af
Cyclothon-keppendum
Hálfrar milljóna króna hjóli var stolið af flugrekstrarstjóra WOW air
A
ð minnsta kosti þremur
reiðhjólum var stolið fyrir
utan höfuðstöðvar WOW air
í Katrínartúni skömmu áður
en hjólreiðakeppnin WOW
Cyclothon hófst.
Egill Reynisson, flugrekstrarstjóri
hjá WOW air, varð fyrir því óláni
því að hjólinu hans var stolið nán-
ast beint fyrir framan nefið á honum
daginn áður en hann ætlaði að nota
það í keppninni..
Hann var nýbúinn að uppfæra
hjólið með fylgjandi kostnaði, en
hjólið er af tegundinni Focus Mares
og samanlagt nemur tjónið tæplega
hálfri milljón króna.
Fimm metra frá hjólinu
„Við vorum að undirbúa okkur og
gera okkur klára. Við vorum kannski
fimm metra frá hjólinu og rétt litum af
því í nokkrar sekúndur. Þetta var mjög
sérstakt,“ segir Egill en hann tók þátt
í WOW Cyclothon ásamt sjö vinnu-
félögum sínum. Hjólið var læst þegar
því var stolið.
Telur hann að þjófnaðurinn hafi
tvímælalaust verið vel skipulagður
því á sama tíma var reynt að stela
öðru hjóli frá vinnufélaga hans, án
árangurs. Það hafði verið fest á grind
á bíl og búið var að losa allar teygju-
festingar af því.
„Ég var mjög svekktur vegna þessa
en við vildum ekki láta þetta draga úr
okkur kjarkinn,“ segir Egill, sem lét
vonbrigðin ekki á sig fá og tók þátt í
keppninni á öðru hjóli. „Það gekk
ágætlega. Við vorum langt frá vinn-
ingssæti en þetta var bara meiriháttar
upplifun. Ég væri til í að fara fljótlega
aftur ef mér væri boðið.“
500 deildu á Facebook
Hann segist ekki hafa orðið var við
marga reiðhjólaþjófnaði í kringum
sig og því hafi atvikið komið honum
á óvart. „En þegar maður verður fyrir
þessu fer maður að heyra meira um
þá.“
Egill tilkynnti þjófnaðinn til lög-
reglunnar og auglýsti einnig eft-
ir hjólinu á Facebook. Þar hefur
stöðu færslunni verið deilt um fimm
hundruð sinnum, án þess þó að
hjólið hafi fundist.
Spurður hvort hann fái eitthvað út
úr tryggingunum segir hann að það
verði eitthvað lítið. Sértryggja þurfi
hjól ef þau kosti meira en 100 þúsund
krónur, sem hann hafi ekki gert.
Hjólum kippt aftan af bílum
Ólafur Örn Karlsson, starfsmaður
Hjólaspretts, benti á annan
Cyclothon-þjófnað á Facebook-síð-
unni Hjóladót: Tapað, fundið og
stolið sem hann stofnaði fyrir rúmri
viku. „Það komu hérna tveir menn
í verslunina sem sögðu að hjólum
hefði verið kippt aftan af bílunum hjá
þeim fyrir utan WOW air. Þau voru
læst en það var búið að klippa lás-
inn og hirða hjólin,“ segir hann en svo
virðist sem hjólunum hafi verið kippt
upp í sendiferðabíl.
Að sögn Ólafs hefur Facebook-
síðan hans vakið mikla athygli. Tíu
til fjörutíu
manns hafa
bæst við hana
á hverjum
degi. „Mér
sýnist vera
búið að finna
í gegnum
síðuna tvö
til þrjú hjól
sem hefur
verið stolið,“
segir hann
en töluvert er
um að fólk komi í verslunina til að
kaupa ný hjól eftir að gömlu hjólun-
um þeirra var stolið.
Dýrari tæki en áður
Benedikt Lund hjá lögreglunni á
Grensásvegi segir að mikið hafi verið
um reiðhjólaþjófnaði í hans hverfi
að undanförnu. „Þetta eru orðin
miklu dýrari tæki en áður og hjólin
eru almennt orðin miklu vandaðri.
Sumir eru að kaupa hjól sem kosta
langt yfir milljón,“ segir Benedikt.
121 hjóli stolið
Frá 1. maí til 26. júní var lögreglunni
á Grensásvegi tilkynnt um 71
reiðhjólaþjófnað. Það nemur 56 pró-
sentum allra slíkra þjófnaða á höfuð-
borgarsvæðinu á þessu tímabili en
þeir voru 121 talsins. Á sama tíma var
22 hjólum stolið í miðborginni og 21
í Breiðholti.
Á sama tímabili í fyrra var lög-
reglunni á Grensásvegi tilkynnt um
59 reiðhjólaþjófnaði. Aukningin
nemur 20 prósentum.
Mörg hjól á útivistarsvæði
Benedikt getur ekki gefið neina sér-
staka skýringu á þessum fjölda
þjófnaða í hverfinu hans. Stundum
þurfi þó aðeins einn atorkumikinn
þjóf til. „Við höfum verið með menn
í að reyna að uppræta þetta,“ segir
hann. „En þetta er mikið útivistar-
svæði. Við erum með allan Laugar-
dalinn og Nauthólsvíkina,“ bætir
hann við og segir sjaldgæft að hjólin
finnist aftur. n
„Við vorum að
undirbúa okkur
og gera okkur klára.
Við vorum kannski
fimm metra frá hjól-
inu og rétt litum af
því í nokkrar sekúnd-
ur. Þetta var mjög
sérstakt.
Freyr Bjarnason
freyr@dv.is
Egill Reynisson Hjólinu var stolið nánast beint fyrir framan nefnið á honum.
Hjól í kirkju Hjólið hans Egils inni í kirkju
nokkru áður en því var stolið. Hann hefur
auglýst eftir því á Facebook og tilkynnt
þjófnaðinn til lögreglu en ekki enn verið
bænheyrður.
Bifröst
hlýtur styrk
Lögfræðisvið Háskólans á Bifröst
hlaut nýverið styrk að fjárhæð 25
milljóna íslenskra króna í gegn-
um evrópsku Erasmus+ áætlun-
ina. Styrkurinn var gefinn út fyr-
ir verkefni sem ber yfirskriftina:
„Þróun blandaðra kennsluhátta
fyrir sameiginlega gráðu í við-
skiptalögfræði.“
Um er að ræða tveggja ára
samstarfsverkefni milli lög-
fræðisviða Háskólans á Bifröst,
lagadeildar Háskólans í Árósum
og lagadeildar Dyflinnarháskóla
í Dyflinni.
Byggt verður á reynslu Há-
skólans á Bifröst af nýrri tegund
lagakennslu en lögfræðisvið
skólans tók upp vendikennslu á
liðnu skólaári og mun kenna lög-
fræði í blönduðu námi frá og með
haustinu 2015.
Útmeð'a
Hlaupahópur á vegum verkefn-
isins Útmeða lagði af stað frá
Rauða krossinum í Efstaleiti í
morgun til að hlaupa í kringum
landið á næstu fimm dögum.
Útmeð'a er átaks- og
forvarnarverkefni gegn sjálfs-
vígum ungra karla á Íslandi sem
Geðhjálp mun standa fyrir á ár-
inu. Sjálfsvíg hafa verið algeng-
asta dánarorsök íslenskra karl-
manna á aldrinum 18 til 25 ára
á síðustu árum. Með slagorðinu
eru ungir karlar hvattir til að
setja tilfinningar sínar í orð.
Til stuðnings verkefninu
mun hlaupahópur sex karla
og kvenna hlaupa hringinn í
kringum landið. Með hlaupinu
vill hópurinn vekja athygli á
algengi sjálfsvíga ungra karla
og safna fjármunum fyrir
gerð forvarnarmyndbands og
herferðar til að fækka sjálfsvíg-
um ungra karla.
Hraðlestir í höfuðborgina
Nýtt svæðisskipulag liggur fyrir
Í
nýju svæðisskipulagi höfuð-
borgarsvæðisins til ársins 2040
er gert ráð fyrir Borgarlínu, nýju
léttlestar- og hraðvagnakerfi, að
því er segir í fréttatilkynningu frá
Samtökum sveitarfélaga á höfuð-
borgarsvæðinu.
Sveitarfélögin sem unnu saman
að svæðisskipulaginu eru Garða-
bær, Hafnarfjarðarkaupstað-
ur, Kjósarhreppur, Kópavogsbær,
Mosfellsbær, Reykjavíkurborg og
Seltjarnarnesbær.
Borgarlína verður nýtt hágæða
almenningssamgöngukerfi sem
tengja mun kjarna sveitarfélaganna
og flytja farþega með skjótum og ör-
uggum hætti um höfuðborgarsvæð-
ið. Þannig myndist samgöngu- og
þróunarás sem tengja muni sveitar-
félögin.
Mun lestakerfið gegna lykilhlut-
verki við að breyta ferðavenjum en
meðfram því verða eftirsóknarverð
uppbyggingarsvæði fyrir íbúa og at-
vinnulíf.
Í tilkynningunni segir að síð-
ustu áratugi hafi höfuðborgar svæðið
verið í örum vexti og byggð dreifst
um óvenju stórt svæði. Fjölgun íbúa
á höfuðborgarsvæðinu muni halda
áfram og árið 2040 verði þeir farnir
að nálgast 300.000. Því sé mikilvægt
að fyrirsjáanlegri fólksfjölgun verði
mætti án þess að bílaumferð aukist í
sama hlutfalli. n